Paul Simon međ tónleika á Íslandi í júlí

Paul Simon Jćja, ţá er Paul Simon á leiđinni á klakann til ađ halda tónleika í sumar. Seint og um síđir. Held ađ ţađ sé rétt munađ hjá mér ađ hann hafi aldrei komiđ hingađ á tónleika áđur og viđ ţví aldrei heyrt í dúettnum margfrćga, Simon og Garfunkel. Hef svosem aldrei veriđ mikill ađdáandi Paul Simon, en virđi mjög framlag hans til tónlistarinnar. Hann er einn af ţessum söngvurum sem hefur virkilega markađ söguleg skref í sínum bransa.

Verđ hinsvegar ađ viđurkenna ađ ég hef alla tíđ dýrkađ ţá tvo saman, Art Garfunkel og Paul Simon. Ţegar ađ ţeir sömdu tónlistina viđ hina yndislegu kvikmynd, The Graduate, áriđ 1967 komu međ ţeir eitthvađ svo innilega ferskt og gott í bransann, tónlist sem hefur stađist tímans tönn. Ţeir voru auđvitađ frábćr dúett og lögin ţeirra algjör meistaraverk. Sérstaklega finnst mér The Sounds of Silence ţar standa upp úr, en röddunin og takturinn í laginu er hrein snilld.



Mrs. Robinson er auđvitađ tímamótasnilld sem aldrei klikkar, en mér finnst Scarborough Fair, ekki mikiđ síđra lag, eiginlega vinna meira á međ árunum. Ţađ er eitthvađ viđ ţetta lag sem er svo traust og magnađ. Bridge Over Troubled Water er svo eitt af ţessum ódauđlegu lögum sem ađeins verđa betri međ árunum.



Kannski mađur skelli sér á tónleikana. Á í tónlistarsafninu tónleikana ţeirra í Central Park, sem eru međ ţeim bestu fyrr og síđar. Alveg yndislegir. Ţetta eru lög sem lifa og tónlistarmenn sem gerđu saman nokkur af bestu lögum allra tíma ađ mínu mati.

Sem minnir mig á eitt: ţađ er orđiđ alltof langt síđan ađ ég hef séđ The Graduate! Ein af ţeim bestu fyrr og síđar.

mbl.is Paul Simon međ tónleika á Íslandi
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Aldarminning um Bette Davis

BetteDavisÍ dag er öld liđin frá fćđingu bandarísku óskarsverđlaunaleikkonunnar Bette Davis, sem var ein besta leikkona 20. aldarinnar - margfrćg fyrir sín leiftrandi augu og svipmiklar túlkanir á miklum kjarnakonum. Söngkonan Kim Carnes samdi og söng yndislegt lag um augu leikkonunnar, Bette Davis Eyes, áriđ 1983, sem varđ einn af stóru smellum níunda áratugarins. Ţađ er í spilaranum hér á vefnum.

Enginn vafi leikur á ţví ađ túlkun Bette á leikkonunni Margo Channing í All About Eve er hennar besta á ferlinum. Myndin er auđvitađ ein af mestu klassíkum kvikmyndasögunnar, skartar glćsilegum leikframmistöđum, skotheldri sögu og einu besta kvikmyndahandriti allra tíma. Svo innilega leiftrandi af mćlsku, húmor og hnyttni - traust blanda af ţví allra besta frá gullaldarárum Hollywood og tekur leikhúslífiđ og gerir ađ ţví gys. Glamúrinn og glysinn verđur ţar allt öđruvísi en í öllum öđrum myndum.

Ţađ er reyndar eiginlega eins og Bette sé ađ leika sjálfa sig í ţessari mynd, enda ađ leika fertuga leikkonu sem hefur haft öll heimsins tćkifćri en er allt í einu ekki lengur eins ung og geislandi og áđur. Bette átti á ţeim tímapunkti og hún nćldi sér í hlutverk Margo orđiđ mjög erfitt međ ađ fá hlutverk eftir einn glćstasta leikferil kvikmyndasögunnar. Bette hafđi ung náđ miklum frama og hlotiđ tvenn óskarsverđlaun fyrir leik í ađalhlutverki á fjórđa áratugnum, í Jezebel og Dangerous, og voru allir vegir fćrir. Ţegar ađ kom ađ lokum fimmta áratugarins hafđi hún einhvernveginn fest sig í ađ leika hina ungu leiftrandi konu krafts og orđmćlgis.

Ţađ verđur reyndar seint sagt um Bette Davis ađ hún hafi veriđ allra, hún var rétt eins og margar kvenpersónurnar sem hún lék bćđi sjálfstćđ og mikill eldhugi sem fór eigin leiđir. Ţó ađ hlutverk Margo Channing hafi veriđ hennar allra besta vann hún ekki óskarsverđlaunin fyrir rulluna. Verđlaunin fóru til Judy Holliday og náđi hún ađ sigra báđar gullnu stjörnurnar í bransanum, Bette og gyđju ţöglu myndanna, Gloriu Swanson, sem átti leiftrandi endurkomu međ túlkun sinni á Normu Desmond í Sunset Boulevard.



Ţegar ađ ég minnist Bette gnćfir túlkun hennar á Margo upp úr. Ekkert annađ er eftirminnilegra, enda tel ég ţađ eina bestu túlkun leikkonu á síđustu öld, svo innilega leiftrandi og traust tjáning. Auk ţess kemur einna sterkust fram í hugann túlkun hennar á Julie í Jezebel, Mildred Rogers í Of Human Bondage, Joyce í Dangerous, Gabrielle Maple í The Petrified Forest, Judith í Dark Victory, Charlotte í The Old Maid, Leslie í The Letter, Maggie Cutler í The Man Who Came to Dinner, Charlotte Vale í Now Voyager, Söru í Watch on the Rhine, Fanny í Mr. Skeffington og Regínu í Little Foxes.

Tvćr túlkanir hennar frá síđari hluta ferilsins eur ţó sérstaklega eftirminnilegar. Í Whatever Happened to Baby Jane verđa augun hennar sérstaklega eldfim, ógnvekjandi og svo innilega kröftug í hinni mögnuđu túlkun á Jane Hudson. Ţvílík upplifun ađ sjá ţá mynd og ţćr tvćr stjörnur gullaldaráranna, Bette og Joan Crawford, ná nýjum hćđum. Síđasta stórrullan hennar Bette, túlkunin á
Libby Strong í The Whales of August er svo innilega traust og heilsteypt og samleikur hennar međ Lillian Gish, einni bestu leikkonu gullaldaráranna, var pottţéttur. Ţćr létust báđar skömmu síđar.

Má reyndar ekki gleyma túlkun Bette á hinni pjöttuđu og yfirdrifnu Marie í myndinni Death on the Nile, undir lok áttunda áratugarins, byggđ á hinni frábćru sögu Agöthu Christie um einkaspćjarann Hercule Poirot. Ţetta er besta mynd Ustinovs í hlutverki Poirot og myndin er mikiđ persónugallerí áhugaverđra karaktera - Bette Davis er einhvern veginn rúsínan í pylsuendanum sérstaklega í túlkun sinni.



Bette Davis var ein af hinum stóru stjörnu gullaldartímans í Hollywood. Ţađ eru tveir áratugir frá ţví ađ hún dó en snilld hennar og leiftrandi túlkun mun aldrei gleymast. Ţeim sem vilja upplifa ţessa drottningu hvíta tjaldsins bendi ég sérstaklega á ađ horfa á All About Eve og Whatever Happened to Baby Jane. Svo sakar ekki ađ geta komist yfir The Whales of August, sem er hinn frábćri lokapunktur hins litríka leikferils.


Dershowitz á Íslandi - saga af sekt eđa sakleysi

Alan Dershowitz

Hinn frćgi bandaríski lögfrćđingur, Alan Dershowitz, kom til Íslands í vikunni. Dershowitz er einna ţekktastur fyrir ađ hafa tekist ađ fá blökkumanninn O.J. Simpson sýknađan fyrir morđiđ á fyrrum eiginkonu sinni og ástmanni hennar á miđjum tíunda áratugnum, í einu umtalađasta sakamáli síđari tíma í Bandaríkjunum. Hann er ţekktur ţjóđfélagsrýnir og er einn besti málflytjandi vestan hafs, međ sterk rök og einbeittur í tjáningu.

Dershowitz er ekki síđur ţekktur fyrir ađ verja greifann Claus Von Bulow í einu umdeildasta máli níunda áratugarins í Bandaríkjunum. Eiginkona hans, greifynjan Sunny Von Bulow, féll í dá áriđ 1980. Hún liggur enn í dái á sjúkrahúsi í New York, hefur sofiđ í tćpa ţrjá áratugi, tja svefninum langa skulum viđ segja bara. Von Bulow var sakađur um ađ hafa reynt ađ drepa eiginkonuna, ţađ hafi mistekist en hún hafi veriđ kálfóđur á eftir. Sagan af ţessu umdeilda sakamáli var rakin í hinni eftirminnilegu kvikmynd Reversal of Fortune, en Jeremy Irons hlaut óskarinn fyrir stórfenglega túlkun sína á greifanum Claus. Ţađ er rosalega sterk og öflug mynd, sem fer yfir máliđ međ heilsteyptum hćtti.

Fyrst og fremst fjallar myndin auđvitađ um eftirmála ţess ađ Sunny féll í dá. Enn er ţví haldiđ fram ađ Claus hafi reynt ađ drepa Sunny, en hann vann frćg réttarhöld, ţar sem reynt var ađ negla hann, međ stuđningi lagasnillingsins Dershowitz, sem leikinn er af Ron Silver í myndinni. Deilt var um hvort ađ Sunny hefđi reynt sjálfsvíg eđa veriđ reynt ađ drepa hana. Hún var sprautuđ međ of stórum skammti af insúlini, en hún var sykursjúk. Enn er stóru spurningunni ósvarađ hvers eđlis ţetta allt var.

Myndin varđ mjög rómuđ, sérstaklega fyrir flashback-atriđin ţar sem sett eru bćđi tilfellin á sviđ, hvort um morđtilraun eđa sjálfsvígstilraun var ađ rćđa. Virkilega vandađ allt og myndin býđur lesandanum fjölbreytt sjónarhorn á máliđ. Ţađ sem er einna merkilegast viđ myndina er hiklaust ađ Sunny, í gríđarlega góđri túlkun Glenn Close er sjálf sett sem sögumađur viđ upphaf og endi myndarinnar. Ţar eru engir dómar felldir yfir ţví hvort sé rétt heldur máliđ allt sýnt og áhorfandinn dćmir sjálfur.

Ég man ţegar ađ ég sá myndina fyrst í bíó fyrir sextan árum, mikil upplifun. Keypti mér hana svo fyrir nokkrum árum og upplifđi hana aftur. Sterk mynd í frásögn og túlkun ađalleikaranna. Jeremy Irons átti stórleik ferilsins í hlutverki hefđarmannsins Claus sem bćđi er sýndur sem snobbađur ađalsmađur og kuldalegur eiginmađur, en ţađ er vćgt til orđa tekiđ ađ sambúđ ţeirra var viđ frostmark ţegar ađ Sunny féll í dáiđ.

Ég gerđi mér ferđ áđan á Wikipedia til ađ sjá hver örlög Sunny eru. Hún var í dái er myndin var gerđ, áratug eftir ađ hún fannst međvitundarlaus. Skv. alfrćđivefnum yndislega er allt nákvćmlega óbreytt. Henni er enn haldiđ lifandi af börnum sínum, sem vilja ekki ađ Claus erfi hana, enda eru ţau auđvitađ enn gift, eins merkilegt og ţađ hljómar eftir 28 ára dásvefn og ţađ ađ hjónaband ţeirra var komiđ rćkilega á endastöđ. 

Sá myndina reyndar um páskana aftur, og mćli međ henni. Ţađ var gaman ađ sjá hana eftir nokkuđ langan tíma. Leikurinn er hreinasta afbragđ og myndin eldist vel. Ţetta er merkilegt mál allavega. Ţar er Dershowitz leikinn mjög vel og hann fćr ađ njóta sín mjög vel í umfjölluninni.

Síđast sá ég reyndar Dershowitz í viđtali á CNN er hann var ađ verja Spitzer, fyrrum ríkisstjóra í New York, frá falli vegna vćndishneykslisins. Hann var lćrifađir hans í lögfrćđi, og talađi máli hans međ ósannfćrandi rökum en mikilli fimni, sem hefur einkennt hann alla tíđ.

Á morgun verđur Dershowitz hjá Agli í Silfrinu. Hlakka til ađ sjá ţađ viđtal. Hvet alla til ađ líta á Reversal of Fortune.


Snilldin ađ kunna á réttu tímasetningarnar

Pizza Sagan af manninum sem eignađist pizzuléniđ í árdaga netsins og átti ţađ árum saman og hefur nú selt ţađ fyrir fúlgur fjár er sennilega eitt besta dćmiđ um ţađ hvernig er hćgt ađ grćđa međ ţví ađ vera klókur. Ţegar ađ netiđ fór af stađ keyptu sumir lén og hafa stórgrćtt á ţví, annađ hvort međ ađ hafa síđar selt ţađ fyrir mikla peninga eđa auđvitađ veriđ nógu klár ađ eiga ţađ fyrir sinn bissness árum saman.

Man t.d. vel eftir ţví hversu klók ţau voru í Heimdalli í árdaga netsins ađ festa sér léniđ frelsi.is. Táknrćnt og gott lén fyrir fólk međ pólitískar hugsjónir, enda var ţađ mjög sterkur miđill ungliđa í stjórnmálum sem berjast fyrir frelsishugsjónum. Síminn byrjađi međ frelsisdćmiđ sitt í farsímum ekki svo löngu síđar og hefur árum saman bođiđ í léniđ en aldrei fengiđ. Fleiri hafa gert ţađ minnir mig. Heimdallur hefur haft léniđ í sínum fórum og passa vel upp á ţađ enn. Gćtu samt fengiđ mikla peninga fyrir ţađ vissulega.

Sama má segja um mörg lén. Ţegar ađ netiđ fór af stađ voru margir ţađ gáfađir ađ taka frá góđ lén og ţetta er ađeins einn ţeirra og hann fćr svo sannarlega ígildi margra flatbaka fyrir ţađ ađ hafa keypt sér flatbökuléniđ forđum daga.

mbl.is Fékk 194 milljónir fyrir „pizza.com“
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

'80s nostalgían - hallćrislegt en eftirminnilegt

Rick Astley Viđurkenni fúslega ađ mér finnst '80s tónlistin mjög góđ. Ţađ er flottur nostalgíubragur yfir öllu frá ţessum tíma reyndar - sumt er vissulega pínlega hallćrislegt ađ svo mörgu leyti en eftirminnilegt engu ađ síđur. Man vel eftir Rick Astley en verđ ađ viđurkenna ađ ég hef lítiđ velt fyrir mér hvađ hafi orđiđ af honum síđan. Sléttsama í sjálfu sér.

Ţađ eru svo margir söngvarar frá ţessum tíma sem lifa í fornri frćgđ, hafa gleymst međ öllu og hafa hálfpartinn aldrei komist út úr ţessum tíđaranda í útliti og töktum. Níundi áratugurinn er reyndar sérstaklega eftirminnilegur fyrir mína kynslóđ. Ţađ eitt ađ setja disk međ lögum ţessa tímabils í spilarann kallar fram svo margar ljúfar minningar og traustar - eiginlega afturhvarf til fortíđar í ljóma einhvers eftirminnilegs.

En vissulega er svo margt innilega púkó og lummulegt viđ ţennan tíma. Ţađ er alltaf, nćgir ţar ađ nefna tískuna, hárgreiđslu og tónlistarsköpun. En ţađ sem er lummó getur orđiđ eftirminnilegt og ţađ á viđ um ţetta tímabil. Sumir beinlínis hata ađ hverfa aftur til baka og setja tónlist ţessa tíma í spilarann, ađrir fíla nostalgíuna. Fann ţetta einna best ţegar ađ ég keypti safndisk fyrir nokkru, međ sumpart lummulegum og sykursćtum lögum, hallćrislegum vissulega en kveikti allar heimsins minningar.

Ţađ er alltaf svo ađ tónlist kallar fram minningar, fátt er betra nema ţá ljósmyndir auđvitađ. Ţađ eiga allir minningar, góđar eđa vondar um tónlist, kallar fram einhverjar hugsanir frá fyrri tíđ. Hjá okkur sem munum níunda áratuginn á ţetta mjög vel viđ. Hallćrislegt og púkó ţarf ekki ađ vera leiđinlegt, heldur mjög skemmtilegt. Ţó ađ mér sé slétt sama hvađ varđ um Rick Astley var hann gođ ţeirra liđnu tíma sem margir vilja rifja upp og fíla í tćtlur.

mbl.is Man einhver eftir Rick Astley?
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Clinton-hjónin opinbera ţađ allra heilagasta

Clinton-hjóninEftir margra vikna umrćđur um fjárhagsstöđu Clinton-hjónanna í hinni harđnandi forkosningabaráttu demókrata hefur Hillary Rodham Clinton nú svipt hulunni af persónulegustu upplýsingum ţeirra frá ţví ađ ţau yfirgáfu Hvíta húsiđ. Fáir, ef nokkrir stjórnmálamenn vestan hafs, hafa gefiđ jafn mikiđ upp um persónuleg atriđi sín og um leiđ gert hreint fyrir sínum dyrum. 

Ţađ er fátt orđiđ heilagt í hinni hatrömmu baráttu Hillary og Barack Obama fyrir útnefningu Demókrataflokksins í forsetakosningunum í nóvember. Baráttan er fyrir löngu orđin ein sú kuldalegasta í bandarískri stjórnmálasögu, altént síđustu áratugina, ţar sem öllum brögđum er beitt og hnútuköstin ganga á milli á hverjum einasta degi. Enda eru margir demókratar orđnir logandi hrćddir um ađ flokkshag sé varpađ fyrir róđa hjá báđum frambjóđendum til ţess eins ađ upphefja sjálfan sig til skýjanna. Fáir eru hlutlausir í ţeim slag og flokkurinn logar stafnanna á milli.

Finnst fátt viđ ţessar prívatupplýsingar Clinton-hjónanna koma ađ óvörum. Ţađ vita ţađ allir ađ Bill Clinton er einn eftirsóttasti rćđumađur Bandaríkjanna og ferđast heimshorna á milli til ađ flytja rćđur sínar og er mikiđ borgađ til ađ fá hann til ađ flytja bođskap sinn á alţjóđavettvangi, enda einn af litríkustu stjórnmálamönnum síđustu áratuga. Bćkur hans og rit hafa selst vel og skrif hans veriđ í hávegum höfđ. Fyrir bókaskrif og rćđumennsku hefur hann auđgast vel og ţađ eru engin ný tíđindi fólgin í ţví ađ hann hafi ţađ gott í ţeim bransa.

Hillary Rodham Clinton hefur sjálf ritađ pólitíska ćvisögu sína, Living History, mjög áhugaverđa og vel skrifađa bók sem var gefin út um allan heim og seldist t.d. vel hér á Íslandi. Enginn deilir um ađ ţau eru vel stćđ og ţessar upplýsingar stađfesta ţađ vissulega. Ţađ hefur veriđ deilt um ađ ţau skyldu ekki opinbera ţessar upplýsingar fyrr. Nú hefur ţađ gerst. Efast stórlega um ađ birting ţessara gagna marki einhver vatnaskil í ţessari baráttu. Hillary og Obama eru ađ berjast jafnri og hatrammri baráttu um hnossiđ mikla og virđist ekkert ráđiđ í ţeirri baráttu í ţessum mánuđi.

Ţađ hafđi veriđ ţrýst mjög á Hillary ađ gera ţessar upplýsingar opinberar fyrir forkosningarnar í Pennsylvaníu ţann 22. apríl nk. Flest bendir til ađ hún sigri ţar og hún verđur ađ sigra ţar til ađ verđa áfram sterkur frambjóđandi. Henni tókst međ forkosningunum í Texas og Ohio ađ tryggja sér farseđil lengra. Ekkert bendir til ađ örlög ráđist í ţessum harkalega forkosningaslag fyrr en eftir einhverjar vikur hiđ minnsta.


mbl.is Skattaupplýsingar Clinton-hjónanna gerđar opinberar
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Fjórir áratugir frá morđinu á Martin Luther King

Dr. Martin Luther King Ţegar blökkumannaleiđtoginn dr. Martin Luther King var myrtur í Memphis í Tennessee fyrir fjórum áratugum átti hann sér draum um samfélag ţar sem litaraft skipti ekki máli og ţeldökkir hefđu sömu tćkifćri í lífinu og hvítir. Sú barátta kostađi hann lífiđ. Dr. King lét baráttu sína ráđa eigin örlögum og tók áhćtturnar sem henni fylgdu. Ţćr voru hluti af baráttunni fyrir ţeim draumi sem var honum allt. Draumurinn dó ţó ekki međ honum.

Arfleifđ ţessa áhrifamikla blökkumannaleiđtoga, sem sameinađi blökkumenn í samhentan hóp í baráttunni fyrir mannréttindum og viđurkenningu á jöfnu hlutskipti í frjálsu samfélagi, er traust. Hann var málsvari allra blökkumanna, traustur málsvari sem fćrđi hugsjónir í ógleymanlegar og heilsteyptar rćđur, fullar af baráttuanda og draumsýn sem ţá virtist svo sjálfsögđ en samt ţess eđlis ađ berjast varđ fyrir henni. Draumurinn um jafna stöđu ţeldökkra og hvíta var barátta sem verđur alla tíđ tengd predikaranum frá Atlanta, hinum sanna baráttumanni.

Alla tíđ sem ég hef fylgst međ stjórnmálum hef ég hlustađ á rćđurnar hans Martins Luthers Kings. Ţađ var harmleikur ađ hann skyldi ekki geta leitt sitt fólk alla leiđ í ţá einu réttu átt sem hann vildi sjá verđa ađ veruleika. Hann komst ekki alla leiđ en hann tryggđi sínu fólki baráttuandann og bođskapinn til ađ leggja í ţá vegferđ. Draumurinn hans var svo innilega fallega orđađur í hinni ódauđlegu rćđu í Washington fyrir rúmum fjörutíu árum, einni eftirminnilegustu rćđu sem nokkru sinni hefur veriđ flutt - rćđu sem sameinar öll helstu leiđarstefin í baráttunni fyrir mannréttindum.

Rćđan sem hann flutti kvöldiđ áđur en hann dó er líka eitt af ţessum meistaraverkum rćđusnilldarinnar í pólitískri baráttu. Einlćg og sönn rćđa og kaldhćđnisleg ađ ţví leyti ađ ţar talađi blökkumannaleiđtoginn um baráttuna og gerđi ekki ráđ fyrir sjálfum sér í sigurstund framtíđarinnar, ţar sem allir myndu verđa jafnir og ţađ skipti engu máli hvort fólk vćri ţeldökkt eđur ei. Ţađ hefur mikiđ veriđ rćtt og ritađ um dr. King síđan ađ hann dó, en mér finnst rćđurnar hans besti vitnisburđurinn um styrk hans og leiđsögn. Hann var eldhugi sem barđist fyrir hinu rétta.

Svo gćti fariđ ađ Barack Obama láti drauma baráttumannsins frá Atlanta rćtast á ţessu minningarári hans, ţegar ađ minnst er baráttunnar sem kostađi hann lífiđ og ţeirri traustu leiđsögn sem einkenndi baráttuanda hans og styrkleika. Ţetta gćti orđiđ sögulegt ár fyrir ţeldökka. Varla hefđi dr. King látiđ sér detta í hug ţegar ađ hann talađi um draumsýn sína í Washington á sjöunda áratugnum ađ ţađ gćti gerst í upphafi nýrrar aldar. Flestir áttu eflaust von á ađ sú barátta tćki lengri tíma ađ blökkumađur ćtti raunhćfa möguleika á Hvíta húsinu.

Hvernig sem barátta anno 2008 um valdamesta embćtti heims fer hefur draumur dr. Martins Luthers Kings í raun ţegar rćst. Ţađ er í raun ţegar sannađ međ ţví ađ litaraft skiptir ekki lengur máli í forsetakjöri í fylkjum ţar sem ţeldökkir eru í minnihluta ađ hvítir kjósa blökkumann. Ţađ er stóri sigurinn í baráttunni miklu sem dr. Martin Luther King lét lífiđ fyrir.

Allir hafa jöfn tćkifćri til ađ láta ađ sér kveđa og ţađ sem meira er ađ međ ţví er stađfest ađ blökkumađur getur orđiđ valdamesti mađur heims. Ţađ eitt og sér verđur stćrsti sigur blökkumanna frá ţví ađ King leiddi ţá međ táknrćnni draumsýn sinni í leiftrandi rćđu.


--------





Bendi hérmeđ á ţessar klippur af sögulegustu rćđum dr. Kings - sú fyrri rćđan um drauminn mikla frá árinu 1963 - sú síđari er síđasta rćđan hans, hin táknrćnu lokaorđ hins mikla baráttumanns, kvöldiđ áđur en hann var myrtur.

Ţađ hefur svo margt fallegt veriđ ritađ um baráttumanninn mikla frá Atlanta síđustu daga - frásögn blađakonu af fundi sínum međ ekkju blökkumannaleiđtogans ađ kvöldi dánardćgurs hans er einna eftirminnilegust.

mbl.is 40 ár frá morđinu á King
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Bloggfćrslur 5. apríl 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband