1.5.2008 | 21:47
Sorglegur óhugnaður
Dapurlegra er en orð fá lýst að lesa fréttir á borð við þessa að norsk kona hafi eignast þrjú börn með föður sínum. Sifjaspjöll eru einn alvarlegasti glæpur sem til er. Þetta er algjör óhugnaður, algjörlega sorglegt. Því miður er þetta ekki ný saga sem sögð er með þessu norska máli og því austurríska, sem er reyndar með því allra ógeðfelldasta sem sögur fara af, sérstaklega nú í seinni tíð.
Auðvitað eru það ekkert annað en hreinlega villidýr sem gera börnunum sínum þetta - ógeðslegir menn, hreinir djöflar í mannsmynd. Austurríska málið er sérstaklega dapurlegt þegar að litið er á allar aðstæður og hvernig konu var haldið sem fanga í kynferðislegri misnotkun. Í norska málinu er þetta óhugnaður sem er eiginlega óþægilega nærri okkur og hlýtur að vekja alla til umhugsunar.
Sorglegasta spurningin sem vaknar við að heyra af svona málum er auðvitað hversu margar konur hafi upplifað svona óhugnað. Hversu margar sögur hafa legið í þagnargildi og aldrei orðið opinberar, vegna þess að konurnar eru hræddar við að tjá sig.
![]() |
Norsk kona eignaðist þrjú börn með föður sínum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.5.2008 | 19:15
Samfylkingin tapar fylgi - ríkisstjórnin dalar

Apríl var erfiður mánuður fyrir Samfylkinguna. Deilt var einkum á ráðherra flokksins í utanríkis-, umhverfis- og samgöngumálum auk þess sem sótt var að velferðaráherslum flokksins. Samfylkingin hefur verið minnt æ ofan í æ á skoðanir sínar á eftirlaunalögunum í aðdraganda síðustu þingkosninga þar sem fram kom að flokkurinn myndi beita sér af krafti fyrir breytingum. Er svo komið að margir kjósendur Samfylkingarinnar eru óánægðir með flokkinn.
Þó að Sjálfstæðisflokkurinn haldi velli fylgislega séð í nýjustu könnun Gallups vekur mikla athygli að persónulegt fylgi Geirs H. Haarde, forsætisráðherra, minnkar um þrjátíu prósentustig frá síðustu sambærilegri könnun fyrir nokkrum mánuðum. Fylgi Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, utanríkisráðherra, dregst einnig umtalsvert saman. Jóhanna Sigurðardóttir er enn vinsælasti ráðherrann, en missir tíu prósentustig frá síðustu könnunum. Óvinsælasti ráðherrann, Árni M. Mathiesen, fjármálaráðherra, mælist aðeins með átta prósentustiga stuðning þjóðarinnar.
Stóru tíðindin eru þó þau að hveitibrauðsdögum hinnar voldugu ríkisstjórnar, sem hefur 43 sæti á þjóðþinginu, er sannarlega lokið. Hún mældist með yfir 80% stuðning í upphafi en hefur nú fallið niður í 58%. Hefur fylgi stjórnarinnar minnkað umtalsvert á frekar skömmum tíma. Ekki virðist þó Sjálfstæðisflokkurinn tapa á niðursveiflu ríkisstjórnarinnar, heldur virðist Samfylkingin ein taka það fylgistap á sig og virðist nú stefna í svipaðar mælingar og í aðdraganda síðustu þingkosninga þegar að vinstriflokkarnir mældust á pari og VG bætti mjög við sig.
Samfylkingin var að segja má í draumastöðu eftir síðustu kosningar, með öll spil á hendi þrátt fyrir fylgistap í kosningum og komst loksins í ríkisstjórn eftir langa eyðimerkurgöngu. Greinilegt er þó að kjósendur fella áfellisdóm yfir verkum Samfylkingarinnar. Hið mikla fylgistap síðustu vikna var fyrirsjáanlegt og hafa merki þess sést í Fréttablaðskönnunum að undanförnu.
Hef fundið það vel að Samfylkingarfólk hefur ekki verið ánægt með verk síns fólks í ríkisstjórn. Það hefur vel komið fram í bloggskrifum og vangaveltum manna á meðal í samfélaginu. Kannanir nú staðfesta þá umtalsverðu niðursveiflu og eðlilegt að spurt sé hvort að flokkurinn endurvinni sér traust þeirra sem hafa snúið við honum baki.
![]() |
Fylgi við Samfylkingu og ríkisstjórn minnkar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
1.5.2008 | 15:04
Íslenski geimfarinn hættir störfum
Íslenski geimfarinn Bjarni Tryggvason hefur hætt störfum. Hefur alltaf fundist mikið til hans koma og held að flestum Íslendingum hafi fundist það í senn áhugavert og skemmtilegt að eiga geimfara. Honum hefur verið sýndur sómi hér víða og ég man vel eftir því er hann kom hingað fyrir áratug í boði Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, skömmu eftir eitt geimafrekið.
Hann er ættaður úr Svarfaðardal. Faðir hans var Svarfdælingur og á Dalvík var talað um Bjarna af virðingu og áhuga fyrir því sem hann var að gera. Hann kom til Dalvíkur í Íslandsförinni fyrir áratug. Var áhugavert að fá hann í heimsókn og kynnast honum, en hann hafði aðallega verið í umfjöllun fjölmiðla hér heima og sum blöðin höfðu átt viðtöl við hann. Þó að hann hefði mjög skamman tíma búið hér heima eignuðum við Íslendingar okkur hann að sjálfsögðu og þau afrek sem hann hafði komið að.
Kom mér þó mest á óvart þegar að Bjarni kom til landsins að hann talaði ekki íslensku. Skildi kannski eitt og eitt orð, en hann talaði á ensku þegar að hann var hérlendis. Fannst það svolítið áfall að íslenski geimfarinn margfrægi talaði ekki íslensku. Ekki hafði greinilega verið lögð rækt við það að hann héldi í ræturnar með því að viðhalda íslenskukunnáttunni. Þó að hann talaði ekki íslensku held ég samt að við höfum verið stolt af honum og við megum svosem vera það. Hann hefur gert margt gott.
Veit ekki hvort að Bjarni var sæmdur fálkaorðunni af Ólafi Ragnari í Íslandsför hans. Sennilega. Ef ekki á að heiðra verk hans. Fálkaorðan hefur verið afhent af minna tilefni en því sem hann hefur afrekað.
![]() |
Bjarni sest í helgan stein |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)