14.5.2008 | 23:41
Edwards styður Obama - útnefning í augsýn

Hillary Clinton hefur barist af krafti síðustu vikur en nær útilokað er fyrir hana að snúa töpuðu spili við. Ræða Obama í kvöld var augljóslega sett fram sem sterk skilaboð um að hann vill tryggja sameinaðan flokk að baki sér í forsetakosningunum þegar að hann nær útnefningunni á næstu vikum. Þar fái allir sem hafi barist við hann um útnefninguna sitt pláss og hann ætli að tryggja sterkt framboð flokksins með þeim brag að hann fari sameinaður í kosningarnar. Þetta eru skýrustu skilaboðin til þessa um að þegar Hillary viðurkennir ósigur muni hann rétta fram sáttahöndina til hennar.
Stóra spurningin í þessum forkosningaslag er ekki lengur um hver nái útnefningunni heldur hver verði varaforsetaefni Barack Obama í forsetakosningunum. Eðlilega er velt því fyrir sér hvort Obama muni til að styrkja flokkinn og sameina sundraðar hjarðir í honum bjóða Hillary sess við hlið sér og með því tryggja að hann eigi auðveldar með að ná stuðningi þeirra sem hafa tryggt henni kraft til að taka baráttuna svo lengi þó vitað hafi verið vikum saman að hún muni ekki ná á leiðarenda. Þessir hópar hafa fært henni sigur þegar allir telja hana af og augljóst er að það styrkir hana alla leið út forkosningaferlið.
Sigur Hillary í Vestur-Virginíu var fyrst og fremst táknrænn, enda sáust þá mjög vel veikleikarnir á framboði Obama, eins og ég fjallaði um hér í gærkvöldi. Þrátt fyrir mjög sterka stöðu og að vera með útnefninguna í sjónmáli nær hann ekki að sigra Hillary í fylkjum hvítra þar sem hún hefur lykilstöðu. Fólkið þar styður Hillary þó æ ólíklegra sé að hún nái útnefningunni. Í því felast skilaboð og augljóst á umsögn allra stjórnmálaskýrenda vestanhafs í dag að framboð hans er veikt ef hann nær ekki þessum lykilhópum á sitt band.
Óvissuferðin er framundan fyrir Obama þó útnefningin sé hans á næstu vikum. Í þeim efnum skiptir máli að hann sameini flokkinn að baki sér og sætti þá sem studdu Hillary við að styðja framboð sitt. Þetta er mikilvægasta verkefnið fyrir Obama á næstu vikum. Hann verður að sameina flokkinn í aðdraganda flokksþingsins í Denver. Í þeim efnum verður áhugavert að sjá hvernig Hillary lýkur baráttu sinni og hversu erfið lokahrinan í slagnum verði.
Hillary er þegar farin að dempa sig niður, eins og sást af ræðunni í Vestur-Virginíu og hún er að færast nær Obama. Væntanlega vill hún klára forkosningarnar fimm sem eru eftir á næstu þrem vikum, þó allir viti hvernig fer að leiðarlokum. Og stóra spurningin er hvernig hún mun færa sig nær Obama og hvort að þau sættist á að fylkja saman liði, hann með sína styrkleika og hún með sína.
![]() |
Edwards lýsir stuðningi við Obama |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.5.2008 | 18:21
Svarti dagurinn hjá Glitni - erfið uppstokkun

Auðvitað er það alltaf kuldalegt og erfitt að vera í þeim bransa sem er á niðurleið og vita að það á að stokka upp - það vill enginn verða fyrir þeim niðurskurði. Hið versta í þessu er að flestir vita að þetta er ekki endapunktur hagræðingar og uppstokkunar. Búast má við að tekið verði á bruðlinu í kringum þessi fyrirtæki og horft í hvert horn eftir hagræðingarleiðum og ekki útilokað að fleirum verði sagt upp. Óvissan er mikil og ekki hægt annað en vorkenna þeim sem verða fyrir því.
Var fyrir nokkrum vikum á fundi með forstjóra í fjármálafyrirtæki. Þar skipti hann starfsmönnum í þrjá hópa; þann fyrsta sem væri eðalstarfsfólkið á vinnustaðnum, öðrum í miðlungshóp sem stæði sig ágætlega en væri að fljóta í og með á afrekum fyrsta hópsins og svo þeim þriðja sem væri sísta starfsfólkið sem væri að fljóta á því góða frá báðum efri hópunum. Eflaust kemur uppstokkun fyrst niður á lægri hópum þeirrar greiningar þegar sverfir að. Haldið er í toppfólkið en hinir mæta afgangi og eru fyrst skornir niður.
Þá reynir virkilega á góðu verkin í fyrirtækinu og hverjir standa sig. Farið hefur verið með uppsagnirnar í bönkunum, sem voru hafnar fyrir misseri síðan, hálfpartinn sem mannsmorð. Mörgum uppsögnum var lokið með starfslokasamningum svo að lítið var rætt um uppstokkanir. Öðrum er boðið að taka á sig lægri laun og þeir ganga svo út. Fyrir suma verður uppsögnin og uppstokkun á vinnustaðnum skiljanlega mjög erfið, enda er kuldalegt fyrir alla að vera sagt upp í svona tíðarfari.
En í öllum breytingum felast viss tækifæri. Vonandi er hið fornkveðna rétt að góðu fólki séu allir vegir færir, meira að segja í kuldatíð.
![]() |
88 sagt upp hjá Glitni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.5.2008 | 17:11
Hlægilegar ásakanir Magnúsar Þórs um valdarán
Finnst nú frekar fyndið að Magnús Þór Hafsteinsson saki Karen Jónsdóttur og Gísla S. Einarsson um valdarán með því að ganga í Sjálfstæðisflokkinn. Held að Magnús eigi sjálfur allan heiðurinn af því að Karen yfirgaf F-listann og vildi ekki sætta sig við afstöðu hans í flóttamannamálinu.
Sýnist á öllu að Magnús Þór hafi staðið algjörlega einn í því ferli, allir bæjarfulltrúar og helstu embættismenn bæjarkerfisins hafi sameinast gegn því sem hann í hlutverki formanns nefndarinnar í bæjarkerfinu hafði um málið að segja. Þarna hefur brostið strengur í samskiptum fólks og bæjarfulltrúinn hefur ekki séð sér fært lengur að vinna með varamanni sínum.
Held að áhugavert væri fyrir einhvern að kanna flóttamannamálið sem umlykur flóttamannamálið mikla á Skaganum - það sem snýr að því hversu marga Magnús Þór hefur hrakið frá Frjálslynda flokknum með vinnubrögðum sínum. Eins og frægt er orðið yfirgáfu þrír kjördæmaleiðtogar frjálslyndra á síðasta kjörtímabili flokkinn og þeir eru miklu fleiri. Eins og flestir muna fór varamaður Guðjóns Arnars Kristjánssonar og Sigurjóns Þórðarsonar á síðasta kjörtímabili í Norðvesturkjördæmi úr flokknum, kona á Akranesi. Þetta væri áhugaverð flóttamannasaga að skrifa um.
Magnús Þór virðist vera sífellt að einangra sig í pólitíkinni, ekki aðeins á heimavelli sínum í pólitíkinni með því að missa bæjarfulltrúann úr sinni liðssveit heldur flokksmenn um allt land, suma í miklum ábyrgðarstöðum fyrir Frjálslynda flokkinn. Þessi flokkur þarf greinilega ekki á óvinum að halda með þennan varaformann í brúnni.
![]() |
Magnús gagnrýnir nýjan meirihluta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.5.2008 | 14:37
Af hverju á að banna sjálfráða fólki að tjalda?
Ég hef hvergi á nokkrum vettvangi sem ég hef fylgst með og heyrt rökstuðninga með og á móti þessum fáránlegu aldurstakmörkum heyrt þeirri spurningu svarað af hverju mörkin voru sett við 23 ára aldur. Af hverju ekki 22 ára, nú eða 24 ára, eða kannski 25 ára? Þessi tala meikar verulega lítinn sens í huga mér og hef ég velt þessu máli verulega fyrir mér. 20 ára aldurstakmark hefði kannski verið skiljanlegt að vissu marki vegna áfengiskaupaaldurs, þó að það sé samt á gráu svæði í huga margra.
Ég stóð í þeirri trú fyrir verslunarmannahelgina í fyrra að tekin hefði verið sú ákvörðun að hafa aldurstakmarkið 18 ár. Enda var það í sjálfu sér varla svo fáránlegt viðmið. Við erum öll sjálfráða 18 ára og getum gert flest það sem okkur dettur í hug. Það að taka ákvörðun um að fara til Akureyrar og dvelja þar yfir helgi telst varla ólöglegt þegar að maður hefur náð átján ára aldri og getur sett sér sínar lífsins reglur að mestu leyti sjálfur með tilliti til lagabókstafsins í það minnsta.
Það að fá sér í glas ætti líka að vera eigin ákvörðun á þessum aldri. Það leiðir vissulega hugann að því hversvegna áfengiskaupaaldri hefur ekki verið breytt og hann settur við hlið 18 ára aldurs. Það fór mjög í taugarnar á mér að Sjálfstæðisflokkurinn á Akureyri stóð að því að setja slík aldursviðmið. Bæjarfulltrúar flokksins hafa ekki enn réttlætt þessa ákvörðun með alvöru rökum og satt best að segja efast ég um að þeir hafi allir verið spurðir áður.
Nú eru aðrir að apa sömu vitleysuna upp og allt á þeirri forsendu að öllum á aldrinum 18-23 ára sé ekki treystandi til að fara á tjaldsvæði á stórhátíðum. Eðlilegt er að spyrja hvort að sjálfræðisaldurinn sé ekki marktækur í 18 árum. Ef ekki á að hækka hann sennilega til að þóknast þeim sem vilja færa viðmiðin annað.
![]() |
Yngri en 23 ára bannað að tjalda nema í fylgd með fullorðnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.5.2008 | 13:43
Karen Jónsdóttir sparkar í Magnús Þór
Ekki kemur það að óvörum að Karen Jónsdóttir hafi sparkað í Magnús Þór Hafsteinsson eftir sérkennilega framkomu hans í flóttamannamálinu. Velur hún þann góða kost að ganga í Sjálfstæðisflokkinn og tryggja þar með hreinan meirihluta hans og um leið áhrifaleysi Magnúsar Þórs, sem greinilega hefur fælt bæjarfulltrúann sinn frá sér eins og svo marga aðra.
Eins og flestir muna eftir sagði Karen sig reyndar úr Frjálslynda flokknum í mars 2007, í aðdraganda alþingiskosninga, en hún var mjög ósátt við ákvörðun forystu Frjálslynda flokksins að bjóða Kristni H. Gunnarsson, kjörnum þingmanni Framsóknarflokksins í alþingiskosningunum 2003, annað sætið á lista Frjálslynda flokksins í Norðvesturkjördæmi. Staða hennar er því svipuð stöðu Ólafs F. Magnússonar sem var óháður borgarfulltrúi F-listans í Reykjavík lengi vel áður en hann gekk formlega í flokkinn árið 2005.
Ólafur F. hefur nú fyrir margt löngu sagt skilið við frjálslynda ennfremur, eins og sést hefur af köstum vissra lykilmanna frjálslyndra í hans garð, þó Margrét Sverrisdóttir, fjandvinkona Magnúsar Þórs, hafi reyndar ákveðið að segja skilið við hann líka. Ekki vantar það að frjálslynda pólitíkin þeirra er ansi óskiljanleg og gaman fyrir einhverja eflaust að skrifa krónológíu um meirihlutafulltrúana þeirra tvo á þessu kjörtímabili. Ekki væri svosem verra að fara yfir sögu þeirra sem hafa leitt lista í nafni flokksins á landsvísu.
Karen virðist hafa fyrir löngu yfirgefið Magnús Þór í raun og veru, en nú virðist flóttamannamálið, skiljanlega, hafa verið kornið sem fyllti mælinn. Man vel eftir því þegar að F-listinn á Skaganum hélt fund um REI-málið skömmu áður en meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks sprakk í október 2007 að þar talaði Magnús Þór digurbarkalega um stöðu mála og virtist vega þar að Gunnari Sigurðssyni, leiðtoga Sjálfstæðisflokksins, sérstaklega. Á fundinum var Karen Jónsdóttir hvergi sjáanleg né til viðtals.
Þannig að eflaust á þetta allt sér langan aðdraganda en nú er komið að endalokunum. Eftir er Magnús Þór í kuldanum en Karen orðin fullgildur bæjarfulltrúi í nafni Sjálfstæðisflokksins. Óska henni til hamingju með góða ákvörðun og færi sjálfstæðismönnum á Skaganum hamingjuóskir með hreinan meirihluta.
![]() |
Sjálfstæðismenn með hreinan meirihluta á Akranesi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
14.5.2008 | 10:48
Veruleikafirring Vilhjálms - snúa þarf vörn í sókn

Velti því reyndar mjög fyrir mér hvernig þeim líði núna sem unnu fyrir Vilhjálm Þ. baki brotnu í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins haustið 2005 og sögðu hann vera með reynsluna sem þyrfti í leiðtogastöðuna. Hann fór sérstaklega fram þá með slagorð tengd rúmlega tveggja áratuga borgarfulltrúaferli sínum og löngu starfi fyrir flokkinn. Frægar sögur eru af símtölum þar sem stuðningsmenn Vilhjálms Þ. töluðu gegn Gísla Marteini vegna þess að hann væri svo óreyndur og gæti aldrei orðið sterkur leiðtogi, annað en Vilhjálmur Þ. sem hefði reynsluna og aldurinn í hlutverkið.
Mjög dapurlegt hefur verið að fylgjast með pólitískri framgöngu Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar á þessu kjörtímabili. Hann fékk gullið tækifæri til að leiða Sjálfstæðisflokkinn rétta leið eftir tólf ára minnihlutasetu en mistókst það með vinnubrögðum sínum, sérstaklega í haust þar sem hann hafði samstarfsfólk sitt í borgarstjórn Reykjavíkur ekki með í ráðum og vann bakvið tjöldin með afleitum hætti. Gamaldags vinnubrögð úrelts leiðtoga. Ofan á allt annað voru fyrri mistök rifjuð upp í febrúar og Vilhjálmur Þ. náði ekki að ljúka málum með virðugleika og sóma fyrir flokkinn á örlagastundu.
Farsælast væri fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík að Vilhjálmur léti sem fyrst af leiðtogahlutverkinu og tryggði flokknum tækifæri til að stokka sig upp í skugga þessarar vondu stöðu sem eru eftirmæli leiðtogasetu hans. Áfellisdómur kjósenda yfir forystu Vilhjálms Þ. er greinilegur í þessari könnun og kallað eftir uppstokkun, sýnt verði myndugleika og flokknum tryggð sterk forysta til að taka á vandamálunum. Kjósendur flokksins yfirgefa hann vegna mistakanna á vakt Vilhjálms Þ. Heiðarlegast er að leiðtoginn axli ábyrgð á slíku klúðri.
Við blasir að það verður að taka af skarið fljótlega og tryggja styrka forystu fyrir flokkinn, nú þegar að leiðtoginn er rúinn trausti og trúverðugleiki hans gufaður upp. Svarið við stöðunni er ekki sú veruleikafirring sem felst í orðum hans, að umræðan ein hafi skaðað flokkinn. Enda langur vegur þar frá. Ekki þýðir að benda á aðra, heldur horfast í augu við stöðuna og reyna að snúa vörn í sókn.
![]() |
Umræðan Sjálfstæðisflokknum afar erfið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.5.2008 | 01:01
Hillary afhjúpar veikleika Obama með sigri í WV
Sigur Hillary Rodham Clinton í Vestur-Virginíu sýnir mikla veikleika í framboði Barack Obama en mun væntanlega ekki koma í veg fyrir að hann nái útnefningunni á næstu vikum. Hillary hefur barist af miklum krafti síðustu dagana gegn öllum þeim sem hafa talið hana af og sýnt að hún er mjög dugleg og einbeitt í baráttu sinni þrátt fyrir að valkostunum í baráttunni fækki.
Þó að sífellt verði erfiðara að sannfæra aðra um að framboðið nái á leiðarenda ferðast hún um fylkin sem eiga eftir að kjósa og talar eins og hún eigi enn alvöru séns. Hvernig sem allt fer á næstunni má hún vera stolt af sinni framgöngu og eiginlega hefur hún sýnt alla bestu kosti sína síðustu vikurnar, rétt eins og baráttan gekk illa framan af og hún missteig sig á lykilhluta baráttunnar. Sennilega voru mestu mistökin eftir kosninguna í Suður-Karólínu og í kjölfar stóra þriðjudags í febrúar.
Hillary hefur nefnilega verið að standa sig mjög vel að undanförnu og náð að eiga endurkomu í slaginn með mikilvægum sigrum síðustu vikurnar eftir að hafa höktað. Þau mistök verða henni dýrkeypt en hún hefur með sigrunum að undanförnu sýnt að Obama á erfitt með að sparka henni úr slagnum. Sama hversu illa hefur verið talað um hana og þrátt fyrir kjöraðstæður Obama að ná að klára dæmið skýst hún alltaf aftur í slaginn og nær að fá alla til að velta fyrir sér hvort að hann geti verið sterkur frambjóðandi þrátt fyrir að tölfræðin í þessum slag sýni að hann sé í raun búinn.
Efasemdir um Obama eru miklar, einkum vegna þess að greinilegt er að honum tekst mjög illa að ná alþýðufylginu; verkafólki, konum og eldri borgurum. Auk þess er hann veikur í hópi hvítra kjósenda í fylkjum síðustu vikurnar. Hann hefur aldrei náð þessum hópum almennilega á sitt band og þar er stærsta spurningamerkið í stöðunni. Þetta er aðaltrompið hennar Hillary, er eiginlega að verða það eina sem eftir er fyrir hana að tala fyrir eftir því sem slagurinn verður langdregnari og alltaf verði undrunin meiri af hverju Obama hafi ekki náð að klára dæmið.
Möguleikar Hillary eru mestir í baráttunni með því að benda á veikleika Obama, sem skýrast koma fram í Vestur-Virginíu. Þrátt fyrir að flokkselítan og ofurfulltrúar séu að færast á band Obama er enn spurt hversvegna hann geti ekki náð að klára dæmið með sigrum í þessum týpísku fylkjum hvítra kjósenda sem helst hafa stutt Hillary.
Þó að dæmið sé metið búið og allt virki slétt og fellt, Obama í hag, nær hann ekki að slá Hillary út sannfærandi og án hiks. Þetta eru stóru efasemdirnar núna, sem verða bráðum aðalpælingin um hvort hann geti sigrað í nóvember. Ekki er hægt að segja annað en þessar veigamiklu staðreyndir séu hróplega áberandi þessa dagana.
Nú sýna kannanir að flestir demókratar vilji að Hillary verði við hlið Obama í forsetakosningunum í nóvember, sem varaforsetaefni hans, þó minnihluti stuðningsmanna Obama vilji það. Sá möguleiki er uppi á borðinu, enda blasir við að Obama verður að fá stuðning þeirra sem styðja Hillary eigi hann að geta unnið í nóvember.
Hið stóra verkefni Obama, þegar hann nær útnefningunni, verður að svara þeirri spurningu með strategíusnillingum sínum hvernig hann höfði til þeirra sem stutt hafa Hillary síðustu vikurnar og tryggt henni baráttukraft svo lengi í slag við mann sem hefur nóg af peningum og allt sem þarf til að klára dæmið.
Ef hann vill ekki Hillary sér við hlið verður hann að horfa í þá átt engu að síður, þ.e.a.s. ef hann vilji vinna kosningarnar. Veikleikar hans eru augljósir og Hillary er að sýna þá allra best með því að lengja lokahrinu baráttunnar.
![]() |
Clinton vann í Vestur-Virginíu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)