Dramatík í Moskvu - glæsilegt hjá Man Utd!

Evrópubikarnum hampað í Moskvu Mikið innilega var það nú sætt að sjá Manchester United verða Evrópumeistara fyrir stundu. Magnaður leikur, nagandi dramatík og spenna frá upphafi til enda í Moskvu í kvöld - vítaspyrnukeppnin var auðvitað hættulega spennandi og eflaust allir knattspyrnuáhugamenn að deyja úr spennu þegar að United náði loks að klára þetta. Um tíma undir lok leiksins hélt ég að Chelsea væri að ná yfirhöndinni, en þetta hafðist.

Spennan var ekki mikið síðri þegar að Man Utd vann titilinn síðast fyrir níu árum í Barcelona. Þá skoraði Ole Gunnar Solskjær sitt frábæra mark í uppbótartíma, er leikurinn var að klárast, skömmu eftir að Sheringham náði að jafna leikinn. Var alveg stórfenglegur leikur og mjög eftirminnilegur í minningunni. Yndislegt og gott maíkvöld alveg eins og þetta svo sannarlega.

Manchester United hefur aldeilis átt góða knattspyrnuvertíð, þá sætustu og bestu síðan árið 1999 og margir sælir í kvöld. Vorkenni samt þeim í Chelsea. Hlýtur að vera alveg skelfilegt að tapa eftir leik af þessu tagi og sérstaklega á John Terry bágt í kvöld. Ekki glæsilegt að fara með þetta á bakinu af velli.

En hvað með það. Sætur sigur hjá rauðu djöflunum og flottur lokapunktur á glæsilegri knattspyrnuvertíð.

mbl.is Man. Utd Evrópumeistari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Útnefningin í sjónmáli fyrir Barack Obama

Barack og Michelle ObamaNú, þegar að Barack Obama vantar aðeins 64 þingfulltrúa til að hljóta útnefningu sem forsetaframbjóðandi demókrata og hefur hlotið meirihluta þingfulltrúa í forkosningahluta valsins, er aðeins dagaspursmál hvenær harðri sögulegri rimmu Obama og Hillary Rodham Clinton muni ljúka. Fókusinn mun því fyrr en varir færast yfir á baráttu Obama við John McCain um forsetaembættið.

Sá slagur mun eflaust verða óvæginn og spennandi - er reyndar þegar hafinn með skotum þeirra á milli síðustu dagana. Við höfum svosem séð harkaleg átök í síðustu tveimur forsetakosningum, en væntanlega verður þetta enn kuldalegra núna. Mennirnir sem munu keppa um forsetaembættið eru enda mjög ólíkir, menn tveggja ólíkra kynslóða og með mjög ólíka reynslu að baki sem undirbúning fyrir þetta valdamesta embætti heims í alþjóðapólitík.

Demókrata þyrstir auðvitað í völdin eftir átta ár utan Hvíta hússins og munu leggja allt í sölurnar fyrir að sigra í kosningunum. Þess vegna verður það lykilatriði fyrir Demókrataflokkinn að sameinast eftir harkaleg átök Hillary og Obama síðustu mánuði, sem lengst af minntu á langvinna styrjöld þar sem ein liðssveit barðist innbyrðis með litlum árangri, nema þá skemma móralinn. Sú vinna sem blasir við nú fyrir Obama er að sameina þá að baki sér sem stutt hafa Hillary mánuðum saman og haldið lífi í baráttu hennar í ólgusjó að undanförnu.

Þegar að repúblikanar töpuðu þingkosningunum 2006 og misstu völdin í öldunga- og fulltrúadeild Bandaríkjaþings vegna óvinsælda George W. Bush og óánægju með utanríkisstefnu hans var ég viss um að næsti forseti Bandaríkjanna yrði demókrati. Átti von á að það yrði reyndar Hillary Rodham Clinton, þó vissulega hafi allir velt því fyrir sér hvort að Barack Obama gæti sigrað hana. Varla varð það þó áleitin spurning fyrr en í lok ársins 2007 er ljóst varð að veikleikar á framboði hennar gætu gefið Obama byr undir báða vængi. Harður forkosningaslagur demókrata hefur í senn veikt og styrkt flokkinn. Þó ekki slúffað möguleikum hans.

Demókratar hefðu getað gert sér kosningabaráttuna á þessu ári auðveldari með því að sameinast fyrr að baki forsetaframbjóðanda. Langvinn barátta mánuðum saman hefur verið lýjandi fyrir bæði Hillary og Obama. Þau fengu svo til svipað fylgi og nú loksins í maílok blasir við hver frambjóðandinn verði. Þó hann hafi haft pálmann í höndunum síðan á ofur-þriðjudegi með tólf forkosningasigrum í röð hefur Hillary tekist með sigrum að lengja slaginn og vekja um leið spurningar um styrkleika Obama. Meira að segja nú á lokaspretti baráttunnar tekst henni að sigra og sýnir vel að Obama á sína veikleika.

En nú hættir baráttan að snúast um átök innan flokkanna og verður spurning um hvort flokkarnir fylkja sér um forsetaefnin sem flokksmenn hafa valið í fjölda forkosninga. Nokkrir mánuðir eru síðan að John McCain náði útnefningu Repúblikanaflokksins og hefur haft sinn tíma til að vinna vissa grunnvinnu. Hann þurfti að sameina flokkinn að baki sér, hefur alla tíð verið umdeildur innan raða hans og átti mikið verk fyrir höndum. Greinilegt er á öllu að honum hefur tekist það, enda átti hann auðveldar með að ná sinni útnefningu en Obama, en það hefur tekið hann langan tíma til að klára sína rimmu.

Stóra spurningin á næstunni er hver varaforsetaefni þessara ólíku forsetaframbjóðanda muni verða. Þar er oftast reynt að finna sigurstranglegt mótvægi, sem geti höfðað til annarra hópa en forsetaefnið og jafnvel yngra og eldra. Þess vegna má búast við að Obama velji eldri og reyndari frambjóðanda til að vega upp reynsluleysi sitt á meðan að McCain velur yngri frambjóðanda sér við hlið til að yngja framboðið, en hann verður elsti forseti Bandaríkjanna frá upphafi, 72 ára, ef hann sigrar.

Kannanir á þessum tímapunkti eru veganesti fyrir frambjóðendur en fjarri því augljóst merki um hvernig muni fara. Löng leið er enn til flokksþinganna síðsumars og ennþá lengri vegferð til kjördags 4. nóvember nk. Dæmi eru um að frambjóðendur nái yfir 15% forskot í sumarbyrjun og missi hana niður og jafnvel tapi kosningum á kjördegi. Löng leið er því eftir. Þó er fyrirfram ljóst að demókratar ættu að hafa sterkari stöðu þegar að einn óvinsælasti forseti Bandaríkjanna er að hætta í pólitík.

Þar má þó ekkert út af bregða og frambjóðendur munu þurfa á öllu sínu að halda til að eygja von á Hvíta húsinu. Eins og staðan er nú bendir flest til þess að repúblikanar eigi á brattann að sækja, en á móti kemur að John McCain er fjarri því með sömu skoðanir og George W. Bush á öllum málum og mun reyna allt til að fjarlægja sig honum eftir því sem nær dregur.

Á meðan að Obama mun predika að tími sé fyrir breytingar mun McCain tala fyrir því að reynslan skipti máli og auk þess muni hann verða traustari fulltrúi í utanríkis- og varnarmálum. Skýr merki um átakalínur blasa þegar við í þessum sögulega slag, þar sem elsti maðurinn og fyrsti blökkumaðurinn berjast um Hvíta húsið.


mbl.is Obama með forskot á McCain
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sprengjan gerð óvirk - hvaðan kemur sprengjan?

Sprengjuhætta í KópavogiJæja, þá er búið að aftengja sprengjuna á svæði Snælandsskóla í Kópavogi sem svo mikið hefur verið talað um í dag. Í kjölfar skrifa minna áðan fékk ég póst frá manni sem hefur búið mjög lengi í Kópavogi sem sagði mér að engin merki væru um að hermenn hefðu verið þarna eða geymsla á þeirra vegum hafi verið þarna. Allavega engin söguleg merki þess efnis.

Þá er eðlilegt að spurt sé hvaðan þessi sprengja komi eiginlega, hvernig hún hafi endað þarna. Ef hermenn hafa ekki verið þarna eða geymsla af einhverju tagi er eðlilegt spurt sé hvort að mögulegt sé að hún hafi verið flutt þangað sérstaklega eða hafi endað þar fyrir slysni, jafnvel dottið úr flugvél þar sem þarna liggur aðflugslína að Reykjavíkurflugvelli.

Kannski er við hæfi að rifja upp þætti Helga H. Jónssonar um stríðsárin núna á næstunni - á þá einhversstaðar í safninu mínu. Þeir voru mjög vel gerðir og dekka vel þennan tíma og umsvif hersins hér. En allavega er stórmerkilegt ef engin aðstaða hermanna hefur verið þarna og því spurning um hvernig sprengjan endaði þar og var á skólasvæði á okkar tímum.

Enda getur varla verið að skóli og mannvirki hafi verið reist þarna nema þá að ganga úr skugga um að þarna væru ekki leifar af stríðsminjum, hafi verið vafi uppi um hvort þarna hafi verið eitthvað slíkt.

Allavega, stórmerkilegt mál að öllu leyti.


mbl.is Sprengja í Fossvogi gerð óvirk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flugvélasprengja frá seinna stríðinu í Kópavogi

Sprengjuhætta í Kópavogi Nú hefur það verið staðfest sem ég sagði hér fyrir eitthvað um klukkutíma að sprengjan í Kópavogi er flugvélasprengja frá seinni heimsstyrjöldinni, sem væntanlega er enn virk. Vonandi mun ganga vel að aftengja hana. Þetta vekur auðvitað spurningar um staðsetningu sprengjunnar, en væntanlega hefur þarna verið geymsla eða æfingasvæði.

Sýnist á öllu að vel hafi verið staðið að öllu í viðbrögðum. Rétt var að rýma skólann og loka svæðið af, enda geta sprengjur af þessu tagi verið mjög öflugar og óþarfi að tefla á tæpasta vað með það. Væntanlega verður eitthvað rætt við þá sem þekkja sögu hersins á Íslandi í seinni heimsstyrjöldinni, um hversvegna sprengjan sé þarna og skanna hvað hafi verið á þessu svæði hér á árum áður, en mun líklegra er að sprengjan sé frá stríðsárunum en eftir þau.

Þó þetta sé hálfgerð sagnfræði væri gaman að vita meira um það. Auk þess er eðlilega spurt hvort fleiri sprengjur af svipuðu tagi séu þarna.

mbl.is 50 kg flugvélasprengja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sprengjuhætta í Kópavogi

Sprengjuhætta í KópavogiEkki vantar hasarinn í Kópavogi, þar sem fannst sprengja nú eftir hádegið. Væntanlega er þetta flugvélasprengja. Spurningar vakna, hversvegna sprengjur hafi verið þarna. Væntanlega hafa þarna verið geymslur, æfingasvæði eða eitthvað á vegum hersins væntanlega í seinni heimsstyrjöldinni.

Svona vekur allavega athygli í skólahverfi og hálfpartinn nöturlegt að sprengjur séu svo skammt frá skólahúsnæði og svolítið sérstakt að fyrst komist upp um slíkt núna. Einkum verður áhugavert að sjá hvort fleiri sprengjur eru á þessu svæði og væntanlega leiðir þetta til þess að það verði allt kannað vel.

Lýsingar á sprengjunni benda allavega til þess að þetta sé flugskeyti og þarf að fá svarað þeirri veigamiklu spurningu hversu lengi slík sprengja hefur verið þar og hversvegna hún hafi verið þar.


mbl.is Sprengjulaga hlutur fannst í húsgrunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kalkúnninn Dustin fær sömu örlög og Silvía Nótt

Dustin Ekki borgaði gamansemin og flippið sig fyrir Írland í Eurovision. Kalkúnninn Dustin féll úr keppni með glans og er strax farinn að horfa til Silvíu Nætur sem fyrirmyndar í því að flippa ærlega út og horfast svo í augu við tapið. Á vel við, enda voru þau bæði púuð niður. Held reyndar að Silvía Nótt hafi verið fyrsti keppandinn í hálfrar aldar sögu keppninnar sem var púuð niður og hún fékk mjög marga upp á móti sér.

Atriðið með Silvíu var einn húmor út í eitt og þar var þetta tekið alla leið. Dramað var algjört fyrir og eftir fallið mikla, en frægar voru geðsveiflur hennar eftir keppnina þar sem hún grýtti í fólk öllu úr búningsherberginu og er hún grét á öxl Sigmars Guðmundssonar í fréttaviðtali frá Aþenu. Mögnuð leiktúlkun. Silvía náð allavega athygli allra og margir sem voru í Aþenu gjörsamlega hötuðu hana. Rimma hennar og hinnar sænsku Carolu var alveg mögnuð, til dæmis.

Gat ekki betur séð en að Dustin hafi verið með íslenska fánann í höndunum. Veit ekki hvort að það er tilvísun til Silvíu eða hann haldi með Eurobandinu úr þessu í keppninni. Verður að ráðast svosem. Það er reyndar ansi fyndið hvað Írland hefur fengið háðuglega útreið í keppninni síðustu árin. Þetta er auðvitað Eurovision-land par excellance en þeir unnu fjórum sinnum á tíunda áratugnum og þótti mörgum nóg um orðið, eflaust þeim sjálfum undir lokin enda var orðið þeim dýrt að halda utan um pakkann.

En kalkúnninn blessaði reyndi allt sitt en hafði ekki erindi sem erfiði. Kannski er grínið fyrir gamanseminni í Eurovision eitthvað að minnka. Fjöldi laga í gegnum tíðina sem hafa húmorstengingu hafa náð árangri. Hver man annars ekki eftir Datner & Kushnir með Hoppa Hulle Hulle, LT United með We are the Winners og laginu frá Moldavíu fyrir nokkrum árum, með ömmunni á trommunni. Allt til í þessu.

En misskilinn húmor sem gengur mjög langt fær oft útreið. Írskur kalkúnn og íslensk glimmergella geta vitnað um það.

mbl.is Dustin: Við hefðum átt að hlusta á Ísland
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stórsigur hjá Hillary Clinton í Kentucky

Hillary Rodham Clinton Mér finnst það stórmerkilegt eins og staða mála er orðin að Hillary Rodham Clinton vinni enn góða sigra í forkosningabaráttu demókrata. Sigur hennar í Kentucky er afgerandi en hefur þó aðallega táknræna þýðingu á stöðu mála. Barack Obama er kominn það nálægt útnefningunni að hann verður ekki stöðvaður. En sigrar Hillary, nú og í Vestur-Virginíu, sýna veikleikana í framboði hans.

Hillary er auðvitað mikið hörkutól. Mér finnst hún hafa verið mjög sterk síðustu vikurnar og unnið sína vinnu mjög vel. Þrátt fyrir erfiða stöðu hefur henni tekist að halda dampi og sýna að hún hefur mjög sterkan kjarna með sér. Mistök á mikilvægasta kafla kosningabaráttunnar kostuðu hana sigurinn, en hún hefur sýnt síðustu vikurnar að hún getur sigrað, þrátt fyrir að allt bendi til þess að slagurinn sem slíkur sé búinn. Þrátt fyrir að hún eigi mjög lítinn vonarneista í að taka þennan slag á leiðarenda yfirgefa stuðningsmenn hennar í alþýðuhreyfingunni hana ekki og sýna vel styrkleika hennar í baráttunni.

Útgönguspárnar sýndu strax sterkan sigur Hillary. Hún hafði stuðning 62% karla á móti 32% Obama og hjá konum hafði hún 67% á móti 27%. Hún vann í öllum aldurshópum; 55% gegn 39% kjósenda á aldrinum 17-29 ára, 61% gegn 35% kjósenda á aldrinum 30-44; 65% gegn 28% kjósenda á aldrinum 45-64 og 77% gegn 18% á aldrinum 65 og eldri. Semsagt hún rúllaði Obama upp í Kentucky að öllu leyti. Merkileg úrslit eins og umræðan hefur verið í forkosningaslagnum síðustu dagana, þar sem flestir bíða eftir því að Obama nái útnefningunni. Þetta sýnir styrkleika Hillary umfram allt.

Athygli vekur að í alþýðufylkjum á borð við Kentucky segjast aðeins 41% demókrata verða ánægð ef Obama nær útnefningunni. Á meðal stuðningsmanna Hillary eru aðeins 33% ánægð með að hann nái útnefningunni. Á móti segjast 76% demókrata þar verða ánægð ef Hillary nær útnefningunni. Ergó: Obama á mikið verk fyrir höndum þegar að hann nær útnefningunni í fylkjum á borð við þetta.

Demókratar eiga mjög mikið verk fyrir höndum að sameina flokkinn, hann er heldur betur klofinn víða um land eftir harða rimmu Hillary og Obama um útnefninguna.

mbl.is Clinton spáð sigri í Kentucky
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 21. maí 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband