Íslensk fegurð klikkar aldrei

Alexandra Helga Ívarsdóttir Auðvitað er það móðgun hin mesta við íslenskar konur að fegurð þeirra sé ekki mælanleg í úttekt tímaritsins Travelers. Auðvitað eru fegurstu konur heimsins þær íslensku og ekki boðlegt að litið sé framhjá því eigi mælingin að vera í senn vísindaleg og heiðarleg. Er ekki málið að heimta aðra umfjöllun og þá alvöru, þar sem íslenska fegurðin sem er rómuð og margverðlaunuð fær viðeigandi sess.

En auðvitað látum við svosem enga erlenda besservissera segja okkur hvað sé fallegt og hvað ekki. Vitum það sennilega allra best og erum stolt af okkar. Veit svosem ekki hvaða staðlar og mat á fegurð ræður niðurstöðu þessarar könnunar. Sennilega skiptir það heldur ekki máli þegar að við vitum hvað er best af öllu þegar að meta skal alvöru fegurð.

Getum líka státað af því að íslensk fegurð hefur unnið til verðlauna á alþjóðavettvangi og þeir sem koma hingað verða heillaðir af henni. Ætli við getum ekki verið stoltust af því sama hvaða mat á fegurð ferðatímaritið blessaða hefur.

mbl.is Fegurstu konurnar ekki á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bragi Bergmann snýr baki við Sigrúnu Björk

Akureyri Mér finnst það afleitt að ekki sé komið endanlega á hreint hvernig staðan verði á tjaldsvæðum Akureyrarbæjar um verslunarmannahelgina og hvort áfram verði hið fáránlega 23 ára aldurstakmark þar inn. Ég get þó ekki annað sagt en ummæli Braga Bergmanns um að Sigrún Björk Jakobsdóttir, bæjarstjóri, hafi drepið stærstu helgina í ferðaþjónustu á svæðinu með ákvörðun sinni síðastliðið sumar um aldurstakmarkið umdeilda veki mikla athygli.

Auðvitað eru það mikil tíðindi að Bragi láti ummæli sem þessi falla og snúi baki við Sigrúnu Björk með svo áberandi hætti. Bragi hefur verið nátengdur öllum kosningabaráttum Sjálfstæðisflokksins á Akureyri undir forystu Kristjáns Þórs Júlíussonar 1998, 2002 og 2006 og leikið þar lykilhlutverk sem pólitískur ráðgjafi ekki aðeins Sjálfstæðisflokksins heldur og mun frekar Kristjáns Þórs Júlíussonar. Hann hefur verið mjög nátengdur Kristjáni Þór og haldið utan um allar kosningabaráttur sem hann hefur tekið þátt í síðustu tíu árin.

Eðlilegt er að spyrja sig um hver áhrif þessa verði fyrir Sigrúnu Björk og Sjálfstæðisflokkinn hér á Akureyri að maður sem svo nátengdur hefur verið forystu flokksins ekki aðeins hér á Akureyri heldur og í Norðausturkjördæmi og verið lykilmaður þar snúi baki við hinum nýja leiðtoga flokksins vegna ákvarðana hennar. Um leið er eðlilegt að harma að engin niðurstaða sé komin og allt ferlið vegna verslunarmannahelgarinnar sé í einhverju biðferli, hálfgerðum hring eftir að hver og einn taki af skarið.

Get allavega ekki annað sagt, sem sjálfstæðismaður hér til fjölda ára og starfsmaður í kosningabaráttu flokksins í sveitarstjórnarkosningunum 2006, að greinaskrif Braga og hvöss ummæli hans um bæjarstjórann sem hann vann fyrir í kosningunum 2002 og 2006 og vann mjög náið með séu bæði táknræn og veki spurningar um hvað gerist næst, þar sem Bragi er greinilega að afskrifa hana sem leiðtoga sem hann vinni fyrir í stjórnmálum.

Þegar að maður svo nátengdur Kristjáni Þór Júlíussyni skrifar svo harkalega um eftirmann hans á bæjarstjórastóli vakna stórar spurningar.

mbl.is Hvernig verður Ein með öllu?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hasar á Akranesi - dramatískur eltingarleikur

Ekki vantar hasarinn á Akranesi í dag, en það er eiginlega ævintýralegt að fylgjast með atburðarásinni í þessum eltingarleik við Skagamanninn sem var svo handtekinn heima hjá sér. Ekki nema von að spurningar vakni um hvað gangi eiginlega á. Þetta er eitt þessara mála sem eiga sér sína forsögu en fer svo í fjölmiðla og hver og einn veltir fyrir sér hvað hafi gerst.

Þetta atvik minnir mjög vel á það, hversu brýnt er að lögreglan sé undir það búin að takast á við verkefni af ýmsu tagi, stór sem smá. Fyrir nokkrum árum þótti ekki öllum sem sitja á Alþingi mikilvægt að breyta skipulagi á yfirstjórn sérsveitar lögreglunnar til að sveitin væri ávallt til taks og sveigjanlegri en áður hefði verið.

Því síður virtist skilningur á því hjá fjölda fólks þá að nauðsynlegt væri að efla sérsveitina og fjölga í henni. Þessi staða sýnir vel hversu rétta stefnu sérsveitin hefur tekið og að hún sé vel búin fyrir ástand sem getur komið úr óvæntustu átt, rétt eins og þessi krísa á Skaganum.


mbl.is Eftirför lokið á Akranesi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig gátu fjársvikin í TR staðið í fjögur ár?

TR Mér finnst dómurinn yfir Rannveigu Rafnsdóttur, þjónustufulltrúanum sem spann svikamylluna, í Tryggingastofnunarmálinu viðeigandi. Enda er það sláandi að það hafi getað gengið í fjögur ár að þjónustufulltrúi Tryggingastofnunar hafi svikið út 75 milljónir frá TR og lagt inn á reikninga tuttugu einstaklinga. Svikamyllan var ótrúlega vel spunnin hjá Rannveigu og greinilegt að innra eftirlit TR var algjörlega í molum.

Þetta gat gengið mjög lengi, ótrúlega lengi, án þess að nokkur velti fyrir sér hvernig hægt var að útbúa 781 tilhæfulausa kvittun fyrir útborgunum. Ekki eru mörg ár síðan að starfsmaður Símans var dæmdur fyrir að svíkja miklar fjárhæðir út úr fyrirtækinu, ásamt vitorðsmönnum hans, meðan að það var í ríkiseigu og endaði með því að Síminn eignaðist Skjá einn, enda hafði verið dælt peningum úr Símanum í fyrirtækið.

Nú er greinilegt að innra kerfi TR var í molum og hægt að notfæra sér brotalamir í því. Það er því ekki nema von að velt sé fyrir sér hvort svona svikamylla hafi verið í öðrum ríkisfyrirtækjum. Eitt er að þetta geti gerst í skamman tíma og komist upp, en eftir fjögurra ára blekkingarleik er um víðtækan þjófnað að ræða.

Eflaust má alltaf eiga von á að glufur séu til staðar sem óprúttinn aðili getur misnotað, en það hlýtur að vera ansi sofandi stofnun sem getur orðið vettvangur svo langvinnrar og víðtækrar svikamyllu og raun ber vitni í þessu máli. Þar hafa menn vonandi lært af lexíunni, þó enginn taki á því ábyrgð.

Hvað varðar myndbirtingu af Rannveigu og upplýsingar um hana, sem ég sé að sumir velta fyrir sér, finnst mér eðlilegt að birta myndir af þeim sem brjóta af sér með þessu tagi. Nöfn í svona máli á að opinbera, ekkert síður en var í Símamálinu margfræga.

mbl.is 13 sakfelldir í Tryggingastofnunarmáli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hollenski túristinn farinn til vistar á Litla Hrauni

Jæja, þá er búið að úrskurða hollenska ferðalanginn í dóphúsbílnum í gæsluvarðhald og senda hann suður með flugi og koma honum á áfangastað á ferðalaginu, Hótel Litla Hraun á Suðurlandi, í umsjón gestgjafans Margrétar Frímannsdóttur - fljótafgreitt það. Íslenskt sumarfrí sem hæfir mönnum af þessu tagi. Fróðlegt að vita meira af þessu máli. Varla hefur þessi ferðalangur verið einn að verki. Mjög lítið heyrst um það þó. Efast um að maðurinn hafi ætlað að koma þessu ofurmagni í sölu á eigin vegum.

Væntanlega er það visst krydd í tilveruna fyrir Austfirðinga að verða miðpunktur umræðunnar á þessum degi. Seyðisfjörður er í sviðsljósinu rétt eins og Fáskrúðsfjörður fyrir réttu ári. Málin eru að vissu leyti keimlík en samt svo ólík. Þetta eru stór og sérstök mál fyrir litla byggð og sýnir mjög vel hversu mikill fíkniefnavandinn er orðinn og hversu farið er í kringum hlutina til að smygla dópinu til landsins, enda fylgdi sögunni í dag að dópið hefði verið falið það vel að ekkert átti að finna af því, skiljanlega.

Þetta er reyndar ekki nýtt mál þannig séð fyrir austan. Það eru aðeins fjögur ár frá líkfundarmálinu í Neskaupstað. Eins og flestum er í fersku minni var það fyrsta sem fannst þegar að viðkomandi maður var krufinn mikið magn eiturlyfja og mikil umfjöllun var um það mál. Farið hafði verið með manninn austur og honum varpað í sjóinn, væntanlega til að varðveita efnin en allt komst upp.

Þá var lögreglan fyrir austan og samfélagið þar í miðpunkti allrar umræðu, en nú kemur mál sem er sama eðlis að sumu leyti aftur upp í austfirskri byggð. Eflaust er það visst flashback fyrir Austfirðinga að upplifa svona mál aftur, svo skömmu eftir líkfundarmálið og stóra málið á Fáskrúðsfirði, sem þó fellur í skugga málsins í Norrænu, á sínum tíma.

mbl.is Hollendingur fluttur suður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 12. júní 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband