29.6.2008 | 19:27
Sunnudagsbíltúr í móðu
Ekki er hægt annað en spyrja sig að því hvað sé að gerast hjá þeim sem keyra ofurölvi og próflausir. Hvað eru viðkomandi að hugsa þegar þeir taka ákvörðun um að fara af stað eftir drykkju og hafa ekki bílpróf. Eða eru þeir sennilega ekki bara að hugsa eitt né neitt. Taka augnablikákvörðun og velta ekki fyrir sér afleiðingunum af því. Láta allt lönd og leið.
Þeir sem þetta gera bera hvorki virðingu fyrir sjálfum sér né öðrum í umferðinni. Þar vantar alla rökrétta hugsun í ölæðinu. Það þarf að taka á þeim sem svona gera. En auðvitað er það slæmt að eftir allar auglýsingarnar um ölvunarakstur og skilaboð um afleiðingar þess sé þetta að gerast.
Þeir sem lenda í þessu ná vonandi áttum og geta hugleitt hverjar afleiðingar slíkrar vitleysu geti orðið.
Þeir sem þetta gera bera hvorki virðingu fyrir sjálfum sér né öðrum í umferðinni. Þar vantar alla rökrétta hugsun í ölæðinu. Það þarf að taka á þeim sem svona gera. En auðvitað er það slæmt að eftir allar auglýsingarnar um ölvunarakstur og skilaboð um afleiðingar þess sé þetta að gerast.
Þeir sem lenda í þessu ná vonandi áttum og geta hugleitt hverjar afleiðingar slíkrar vitleysu geti orðið.
![]() |
Ofurölvi í sunnudagsbíltúr |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.6.2008 | 16:46
Afmælisbarnið og yfirráðin yfir veislunni

Þegar ég var barn bauð ég öllum þeim sem ég vildi þekkja og vildi eiga sem vini. Ekki bauð ég öllum bekknum mínum eða öllum jafnöldrum í skólanum sem ég var í. Fannst eiginlega að þetta væri augnablik sem ég vildi eiga með mínum nánustu og þeim vinum sem næst mér voru. Efast reyndar um að ég hefði viljað allan hópinn heim. Það er eðli afmæla að maður býður þeim sem maður vill helst fá í veisluna.
Finnst það frekar fyndið að eitt aðalumræðuefnið í Svíþjóð sé hvort bjóða eigi öllum jafnöldrum sínum í afmælisveisluna. Þetta er skondið mál en er merki um ótrúlega smámunasemi hjá frændum okkar Svíum. Hefði frekar trúað því að svona drama gæti gerst í Bandaríkjunum en í Svíþjóð, en alltaf heyrir maður eitthvað nýtt.
Hef enga samúð með þeim sem var ekki boðið í þetta afmæli. Afmælisbarnið hlýtur að ráða hvern hann vill, varla eiga aðrir að fá yfirráð. Þetta er veislan hans/hennar. Annað skiptir ekki máli. Þvílík sænsk væluklessa
![]() |
Barnaafmæli veldur uppnámi í Svíþjóð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.6.2008 | 02:11
Sterk skilaboð - umhverfismál eru mikilvæg
Held að öllum landsmönnum sé annt um Ísland og náttúru þess. Þetta á að vera okkar lykilmál. Öll viljum við vernda það og tryggja að komandi kynslóðir njóti þeirrar fegurðar sem við höfum upplifað. Stóru skilaboð þessara tónleika er hvað þessi mál eru mikilvæg og hvað við unnum landinu okkar mikils. Enda held ég að allir vilji gera sitt til að tryggja að það land sem við erfðum fái komandi kynslóðir að njóta.
Upplifði reyndar í dag merkilegan atburð í mínu lífi. Í dag fór ég í fyrsta skipti á minni ævi í Héðinsfjörð, sem var einn afskekktasti staður landsins. Mörg ár eru liðin frá því að ég vildi fyrst fara þangað. Þar til fyrir nokkrum mánuðum var aðeins hægt að komast þangað sjóleiðina. Fegurð Héðinsfjarðar hefur verið mörgum fjarlægur leyndardómur og margir aðeins látið sig dreyma hvernig þar sé. Þó kalt væri í Héðinsfirði í dag fannst mér það merkilegur áfangi að geta farið þangað. Þetta var yndislegur dagur.
![]() |
Óður til náttúrunnar í Laugardal |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)