5.6.2008 | 22:58
Hillary stígur til hliðar - hvað gerir hennar fólk?

Tónninn í yfirlýsingunni er eiginlega þannig að hún segir undir rós að ef hann vilji sig við hlið sér í framboðinu og hún leiki hlutverk í framboði hans, meira en bara að styðja hann opinberlega, verði hann að sækjast eftir því. Enda veit hún vel að hann mun þarfnast hennar í baráttunni. Þetta sýna kannanir, þar sem Obama og McCain eru hnífjafnir í baráttunni - ljóst að stefnir í jafnar og mjög spennandi kosningar.
Mesti áhættuþátturinn fyrir demókrata nú er hvað stuðningsmenn Hillary muni gera. Eins og vel hefur sést á ummælum og netskrifum eru margir þeirra fjarri því ánægðir með Obama og hvergi nærri tilbúnir til að fylkja liði með honum, leggja eitthvað á sig fyrir hann og fyrir það fyrsta kjósa hann. Las athyglisverð skoðanaskipti stuðningsmanna Hillary og Obama í kommentum við frétt á cnn.com. Þar er heiftin allsráðandi og stuðningsmennirnir kasta drullukökum á milli sín eins og lítil börn í sandkassa. Ekki er mikill sáttatónn í þessu fólki, sem sameinuð verða að vinna saman eigi demókrati að vinna Hvíta húsið.
Eins og staðan er nú þurfa demókratar að róa sig niður, jafna sig eftir harðvítugan forkosningaslag mánuðum saman og ákveða sín mál rólega en ekki með miklum hraða. Eitt mál af því er hiklaust varaforsetaefni forsetaefnanna. John McCain náði útnefningu repúblikana fyrir nokkrum mánuðum og hefur hvergi nærri flýtt sér og tekið sinn tíma. Eðlilega, enda vinnast svona mál hægt og yfirvegað en ekki hratt í kjölfar þess að forsetaefni nær útnefningunni. Sagan sýnir okkur að val á varaforsetaefnum skiptir máli og þar verður að skoða alla þætti mjög nákvæmt og án þess að ana að einhverju.
Kannanir sýna vel að Barack Obama á mikið verk fyrir höndum. Hvergi nærri sjálfgefið er að hann verði forseti Bandaríkjanna. John McCain var sá repúblikani sem sigurstranglegastur var alla tíð og mælingar sýna að hann er mun sterkari en nokkru sinni flokkurinn á landsvísu. Hann hefur möguleika. Einn stærsti veikleiki Obama er að hann hefur ekki mikla reynslu og hann vann ekki forkosningar í lykilfylkjunum margfrægu. Þar þarf hann að fylla upp í með bæði eldri og reyndari frambjóðanda og þeim sem getur hjálpað honum að vinna fylki sem hann stóð sig ekki vel í.
Hillary er fjarri því eini frambjóðandinn sem getur fyllt upp í það gat fyrir Obama. En hún hefur liðsheild sem enn er mjög virk og hefur skilað sigrum allt til loka forkosningaferlisins og auk þess hefur hún reynslu sem skiptir miklu máli. Að auki er hún kona sem markaði söguleg skref í forkosningabaráttunni. Allt mælir með að velja hana, nema þá auðvitað erfið persónuleg samskipti síðustu mánuði og ótti við að hún verði of dómínerandi. En kannski verða þau vandamál sem smámál fyrir Obama er líður á baráttuna.
Síðustu daga hef ég séð marga spekinga velta því fyrir sér hvort varaforsetaefnin skipti máli fyrir forsetaefnin. Tel það hiklaust. Þeir eru hluti framboðsins, veikleikar þeirra verða um leið veikleikar forsetaefnanna rétt eins og styrkleikar þeirra bæta upp forsetaefnið. Út frá þeim forsendum á að velja varaforsetaefni og eflaust munu bæði Obama og McCain finna sér frambjóðendur sem bæta stöðu þeirra.
Varaforsetinn á hverjum tíma er staðgengill forsetans - á örlagastundu gæti orðið hlutskipti hans að sverja embættiseiðinn og taka við embættinu. Því er valið á varaforsetaefni aldrei smámál.
![]() |
Clinton sækist ekki eftir að verða varaforseti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.6.2008 | 18:08
Baugsmáli lokið - hættir Jón Ásgeir í stjórnum?

Stóra spurningin eftir þennan dóm er hvort Jón Ásgeir muni sitja áfram í stjórnum fyrirtækja og verði t.d. áfram starfandi stjórnarformaður Baugs. Hef hvergi séð ummæli hans eftir dómsuppkvaðningu, eðlilega er hann að íhuga næstu skref. Sé nú þegar að Jón Gerald ætlar með sitt mál alla leið til Strassborgar.
Jón Gerald hefur opnað mjög áhugaverða vefsíðu um Baugsmálið. Eflaust hafa allir áhugamenn um málið litið á hana og kynnt sér efnið sem þar er, en ég vil samt sem áður benda á vefslóðina. Þar er mikið af efni sem mikilvægt er að kynna sér og þar er málið kortlagt mjög vel. Er þar altént að finna eina hlið málsins sem er bæði gagnleg og áhugaverð.
Held að flestum sé létt yfir því að Baugsmálinu sé lokið. Fá mál hafa verið umtalaðri í seinni tíð. Minnir kannski helst á Hafskipsmálið á sínum tíma. Kaldhæðnislegt er að lokadómur í því máli féll á þessum sama degi árið 1991.
![]() |
Dómar staðfestir í Baugsmáli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.6.2008 | 12:20
Dúlluleg mótmæli - trúarhiti vegna símaauglýsinga
Bæði hefur Símanum tekist að tryggja sér umræðu og fengið jafnvel ókeypis auglýsingu með svo umdeildri framsetningu sem raun ber vitni. Ekki verður af þeim skafið hjá Símanum að þeir hafa náð fram ótrúlegri kynningu á kerfinu og fyrirtækinu á aðeins um sólarhring. Þeir eru fáir sem ekki hafa séð auglýsingarnar og umfang þeirra hefur tryggt að fólki langar til að kynna sér auglýsinguna. Þeim hjá Símanum hefur jafnan tekist að vera með áberandi auglýsingar sem hafa hitt í mark með einum hætti eða öðrum.
Enn tekst það, þó vissulega séu ekki allir á eitt sáttir með auglýsinguna og telji hana annaðhvort tæra snilld eða lúalega smekklausa útfærslu á síðustu kvöldmáltíðinni. Svo mikið er víst að Símanum tekst ætlunarverkið að komast í umræðuna, ná athygli og það massífri. En það var held ég öllum ljóst að þessi framsetning myndi kalla á skiptar skoðanir og deilur. Þetta er einfaldlega þannig efni sem gert er út á.
Á meðan að trúaðir taka sína rimma hlæja aðrir og þar með hefur Símanum tekist sitt. Varla munu þeir beygja af leið fyrir þennan hóp, en þessi mótmæli sýna vel hversu Símanum hefur tekist vel upp við að ná umræðu og skiptum skoðunum.
![]() |
Segja upp viðskiptum við Símann |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.6.2008 | 10:11
Manndrápsakstur í umferðinni
Enn og aftur berast fregnir af ökumönnum sem keyra um á manndrápshraða, keyra langt yfir hraðamörk og jafnvel í vímuástandi. Þessi var auk þess réttindalaus. Akstur á þessum hraða og við þessar aðstæður flokkast ekki undir neitt annað en hreinan háska, enda eru í senn bæði ökumaðurinn og þeir sem hann mætir í lífshættu vegna þess. Hvað er fólk að hugsa þegar að það keyrir á slíkum hraða eða hvað fer í gegnum huga þess á meðan? Eða sennilega hugsar það auðvitað ekki neitt, þeysir bara áfram hugsunarlaust.
Ætla að vona að við séum ekki komin í biðferli eftir banaslysi, þar sem ökumaður á háskahraða drepur jafnvel fjölda fólks með hugsunarleysi sínu og gerræðislegum ákvörðunum. Það er auðvitað mikið áhyggjuefni hversu alvarleg staðan er í umferðarmálum. Búið er að tala vel og reyndar mjög lengi um að úrbóta sé þörf - taka verði á þessum augljósa vanda. Fara þarf að gera eitthvað meira en bara tala. Auðvitað er það dapurlegt þegar fólk tekur þá ákvörðun að geisast áfram á kolólöglegum hraða og jafnvel í vímu.
Þeir sem keyra svona bera ekki einu sinni virðingu fyrir sjálfu sér og hvað þá þeim sem það mætir á leið sinni. Þetta hefur gerst of oft á síðustu mánuðum. Þetta hlýtur að fara að leiða til þess að horft verði út fyrir orð okkar allra sem tölum fyrir því að fólk hugsi sitt ráð og fari ekki undir stýri í annarlegu ástandi. Akstur í vímu, annaðhvort að völdum áfengis eða eiturlyfja, er vaxandi vandamál sem kristallast æ meir með atvikum að undanförnu.
Í sjálfu sér tel ég þetta orðið eitt mesta vandamálið í umferðinni í dag. Engin trygging er fyrir því þegar fólk sest undir stýri og heldur út í umferðina að það mæti ekki fólki undir áhrifum vímugjafa - út úr heiminum í sínu annarlega ástandi. Þetta er mikið áhyggjuefni sem full þörf er á að tala um með mjög áberandi hætti.
![]() |
Ölvaður á 171 km hraða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.6.2008 | 01:32
Hillary lýsir yfir stuðningi við Obama á laugardag

Eflaust má fullyrða að þessi endalok séu visst áfall fyrir konur. Í fyrsta skipti var raunhæfur möguleiki á að kona yrði kjörin valdamesta manneskja heims og greinilegt var að sterkur kjarnastuðningur kvenna tryggði Hillary afl til að fara lengra en hún sennilega ella náð. Þrátt fyrir það varð þetta ekki ár konu í bandarískum forsetakosningum. Aðeins ein kona hefur verið í forystu framboðs stóru flokkanna; Geraldine Ferraro árið 1984. Fróðlegt verður að sjá hvort að kona verði við hlið Obama eða McCain.
Þó að Hillary hafi tapað má hún samt vel við una þrátt fyrir allt. Henni tókst að tryggja sterkan stuðning við framboð sitt mánuðum saman og naut mikils stuðnings og markaði söguleg skref með framboðinu, þó því hafi lokið mun fyrr en að hafi verið stefnt. Hún átti mjög góðan endasprett í framboðinu, vann 8 af 15 síðustu forkosningunum þó fjölmiðlar og stjórnmálaspekingar vestanhafs hafi talið hana af og náði að sýna og sanna að hún er pólitískt hörkutól sem gat staðið sig vel í erfiðri stöðu og náði vissulega ennfremur að sýna að kona getur náð langt í forkosningaslagnum. Henni tókst að opna nýjar dyr í bandarískri stjórnmálasögu, þó ekki hafi hún náð útnefningunni.
Hef aldrei farið leynt með aðdáun mína á Clinton-hjónunum. Þó að ég hafi alls ekki alltaf verið sammála þeim og stundum reyndar mjög ósammála þeim virði ég þau bæði mjög mikils, þó sérstaklega Hillary. Hún hefur verið hörkutól í stjórnmálabaráttu, verið mjög öflug og einbeitt í sinni stjórnmálabaráttu og vakið heimsathygli með verkum sínum. Með hinum góða lokaspretti í forkosningaslagnum tókst henni að sýna afl sitt við mjög erfiðar aðstæður og úr hverju hún er gerð. Hið mikla afrek að hljóta 18 milljón atkvæða stendur eftir sem mjög merkilegur áfangi.
Hvað svo sem Hillary gerir úr þessu, hvort sem hún gerir aðra tilraun til að hljóta Hvíta húsið, verði varaforsetaefni að þessu sinni eða tekur að sér aðrar baráttur á öðrum vettvangi getur hún verið stolt af sínu. Enda sést vel að Barack Obama þarf á henni að halda og hún fer með viss tækifæri, sterk tromp á hendi, af velli þrátt fyrir tapið.
![]() |
Clinton mun lýsa sig sigraða á föstudag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |