17.000 Akureyringurinn fæðist

Sigrún Björk með 17.000 Akureyringnum Það er gleðilegt að sautján þúsundasti Akureyringurinn sé fæddur. Það er ánægjulegur áfangi fyrir okkur í bænum. Sigrún Björk Jakobsdóttir, bæjarstjóri, heimsótti foreldrana í Smárahlíðina og afhenti þeim blómvönd og bókargjöf, enda við hæfi að vakin sé athygli á þessum áfanga.

Mér finnst orðið ótrúlega langt síðan að við náðum 15.000 markinu hér og þetta er því auðvitað viss áfangi. Lengi höfum við viljað ná íbúafjölda upp á 20.000 og það mun vonandi ganga vel.

mbl.is Akureyringar orðnir ríflega 17.000
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Þetta er allt að koma hjá ykkur, við í Árborg erum komin yfir 6000

Ásdís Sigurðardóttir, 26.7.2007 kl. 19:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband