Pólitísk klókindi bragđarefsins Pútíns

Spilaborg PútínsŢađ er svolítiđ sérstakt ađ fylgjast međ stöđu mála í Rússlandi. Vladimír Pútín, fráfarandi forseti Rússlands, stýrir lykilákvörđunum lýđrćđis í rússneskum stjórnmálum eins og taflborđinu heima hjá sér. Hann hefur handvaliđ vćntanlegan forseta og útnefnt sjálfan sig, međ góđvild handvalda forsetaefnisins ađ sjálfsögđu, sem forsćtisráđherra frá og međ marsmánuđi er seinna kjörtímabilinu lýkur. Ţessi kapall sýnir umfram allt pólitísk klókindi bragđarefsins Pútíns. Hann vill velja forsetaefni til ađ fylla upp í forsetaferil sinn og ćtlar sér ađ fara fram í kosningunum áriđ 2012.

Ţetta blasir viđ öllum sem horfir á atburđarásina eftir allt sem á undan er gengiđ. Pútín hefur á áratug gert rússneska pólitík algjörlega ađ sinni pólitík og tryggt sér bćđi mikil völd og áhrif á forsetastóli. Fyrir áratug, síđsumars 1999, vissu fáir utan Rússlands hver Vladimir Pútín var ţegar ađ Borís Jeltsín ákvađ ađ skipa hann forsćtisráđherra. Hann var vissulega gegnheill leyniţjónustukall frá KGB-tímanum og fáum órađi fyrir ađ ţar fćri nćsti risi rússneskra stjórnmála, lykilspilari á alţjóđavettvangi.

Margir töldu ţá ađ ţar vćri kominn enn einn forsćtisráđherrann sem fćri fyrir lok forsetaferils Jeltsíns, sem hafđi haft tögl og hagldir allt frá ţví ađ hann hafđi tekiđ völdin afgerandi eftir valdarániđ misheppnađa áriđ 1991 og hafđi risiđ upp úr öskustó kommaveldisins. Hann var skapmikill drykkjumađur sem markađi áhrif - og var líka ţekktur fyrir ađ sparka forsćtisráđherrum.  Jeltsín var einn eftirminnilegasti stjórnmálamađur tíunda áratugar 20. aldarinnar ţrátt fyrir persónuleikabrestina.

Mörgum ađ óvörum ákvađ Jeltsín ađ segja af sér forsetaembćttinu í áramótaávarpi á gamlársdag 1999. Allt í einu var leyniţjónustudulan Pútín orđinn einn valdamesti mađur heims sem starfandi forseti landsins fram ađ kosningum; sigrađi forsetakosningarnar í mars 2000 og var endurkjörinn strax í fyrri umferđ áriđ 2004 - einn vinsćlasti stjórnmálamađur í sögu Rússlands, međ allt ađ 80% stuđning. Auk ţess međ alla fjölmiđla á bakviđ sig og ríkir međ járnkrafti eins og fyrrum lykilstjórnmálamenn Sovétríkjanna.

Pútín hefur semsagt markađ sig sem hinn stóra afgerandi drottnara veldis síns. Stađan í Rússlandi er mikiđ áhyggjuefni. Mér finnst ţar horfa ansi margt til fortíđar og vert ađ hugsa um framtíđina sem blasir viđ. Stjórnarskráin meinar Pútín ađ gefa kost á sér í kosningunum nćsta vor og rúmlega átta ára forsetaferli er ţví ađ ljúka. Atburđarás vikunnar er ţó ekki beinlínis međ ţeim hćtti ađ Pútín ćtli sér ađ hverfa út í sólarlagiđ eins og George W. Bush, sem brátt lćtur ennfremur af embćtti.

Hann ćtlar sér ađ stjórna atburđarásinni eins og kvikmyndaleikstjóri úr fjarska, halda um alla spotta og ráđa örlögum landsins, jafnt sem stuđningsmannahjörđar sinnar. Hann ćtlar sér ađ vera meginspilari áfram á sviđinu. Ţađ kemur mér samt sem áđur ađ óvörum ađ Pútín velji svo ungan eftirmann. Ţađ eru óvćntustu tíđindin. En tafliđ breytist ekkert viđ ţađ.

Ekkert meinar Pútín ađ fara fram eftir fimm ár í kosningunum ţá og vćntanlega er plottiđ ađ ţá komi hann međ sinn steinrunna svip eins og riddarinn á hestinum hvíta inn á pólitíska sviđiđ í Rússlandi. Á međan horfum viđ öll út í gráđiđ og hugsum okkur um ţađ hvort ađ Rússland sé ađ verđa sama sjúka einrćđisríkiđ og ţađ var áđur en múrinn féll og kommagrýlan var sigruđ. Flashbackiđ til fortíđar í Rússlandi er verulegt áhyggjuefni, segi ég og skrifa.

Steve Bell hjá Guardian sér stemmninguna í Rússlandi réttum augum og myndin hans hér efst í fćrslunni segir meira en ţúsund orđ.


mbl.is Rice: Medvedev hluti af nýrri kynslóđ
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband