Governator styður McCain - lykilhlutverk Giuliani

Schwarzenegger og McCain Það er að verða nokkuð ljóst að John McCain verður frambjóðandi repúblikana í forsetakosningunum í nóvember. Stuðningur Arnold Schwarzenegger, ríkisstjóra í Kaliforníu, er mikils virði fyrir hann og færir honum án nokkurs vafa fylkið á silfurfati. Stuðningur Rudy Giuliani færir honum New York og New Jersey. Það blasir því við að baráttan verður nær engin orðin hjá repúblikunum eftir ofur-þriðjudag.

Það er mikilvægt fyrir McCain að hafa fengið stuðning Schwarzenegger. Með því hlýtur hann um leið stuðning stjörnuljómans í Hollywood sem hefur verið á bakvið ríkisstjórann í gegnum leik- og stjórnmálaferil. Enginn efast um hvernig landið liggur í fylkinu á þriðjudag. Í dag fékk McCain reyndar fleiri bandamenn og það úr suðrinu; Rick Perry, ríkisstjóri í Texas, eftirmaður George W. Bush á ríkisstjórastóli, og báðir þingmenn flokksins í öldungadeildinni frá Georgíu lýstu yfir stuðningi við hann. Það fer því ekki framhjá neinum hvernig landið liggur - McCain er byrjaður að fá mikilvægan kjarnastuðning, enda eðlilegt þegar ljóst er í raun orðið hver frambjóðandi flokksins verður.

Það hefur löngum verið sagt að John McCain hafi ekki stuðning flokkskjarnans. Ljóst er að hann hefur náð langleiðinni að útnefningunni á eigin vegum. Það er vissulega rétt. Hann reis úr glataðri stöðu og átti sér endurkomu og er eðlilega kallaður comeback kid, þrátt fyrir að vera á áttræðisaldri. Endurkoma hans er stórmerkileg og verður áhugavert að skrifa um hana að loknum kosningunum, hvort sem hann verði forseti Bandaríkjanna eður ei. Hann hefur skrifað merkilegan kafla í forkosningasögunni sama hvernig fer. Það eru stórmerkileg tíðindi að maður á þessum aldri eigi raunhæfa möguleika á valdamesta embætti heims. Það hefði enginn spáð honum því eftir tapið fyrir Bush árið 2000 að hann yrði frambjóðandi flokksins á eftir honum.

Roberta McCain, móðir frambjóðandans, hefur verið ein helsta stjarnan í stuðningssveit hans, eins og ég benti á í pistli mínum í síðustu viku. Hún talaði afdráttarlaust um það fyrir rúmri viku að stuðningur flokkskjarnans við son sinn hefði aldrei verið til staðar, hefði vantað í forsetakosningunum 2000 og væri ekki sjáanlegur, en hann yrði í sjónmáli tæki hann Flórída. Það reyndust orð að sönnu. Það blasir reyndar við að stuðningur Mel Martinez og Charlie Crist hafi fært McCain endanlega sigurinn í Flórída. Eins og staðan er orðin núna má þó búast við að McCain fái stuðning víða innan úr kjarnanum, nú þegar að útnefningin er í sjónmáli.

Nú þegar að Rudy Giuliani hefur dregið framboð sitt til baka og stutt McCain blasir við að hann mun leika lykilhlutverk í herbúðum hans. Ekki aðeins kom hann fram með McCain í gær og lýsti yfir stuðningi við hann á blaðamannafundi í forsetabókasafni Ronalds Reagans í Simi-dal í Kaliforníu heldur hefur hann verið á ferð með McCain í dag um Kaliforníu og var við hlið þeirra er Schwarzenegger lýsti yfir stuðningi sínum. Á morgun munu McCain og Giuliani koma fram saman í kvöldþætti Jay Leno í Burbank í Kaliforníu, sem sýnir mjög vel að Giuliani mun vera öflugur við hlið frambjóðandans og eðlilegt að velta því fyrir sér hvort hann sé ráðherraefni í mögulegri stjórn hans.

Það sem er ekki vitað nú er hver keppinautur John McCain um forsetaembættið verði. Hörð barátta er framundan næstu vikurnar í einvíginu milli Hillary Rodham Clinton og Barack Obama. Svo mikil er harkan þar að talað er um slag upp á hvern þingfulltrúa fram á vorið. Það gæti vissulega farið svo að McCain gæti slappað af í nokkrar vikur meðan að slagur þeirra klárast, en mun líklegra er þó að spurt verði að því hvernig ofur-þriðjudagur fari og byrinn fylgi aðeins öðru þeirra úr þeirri baráttu víðsvegar um landið.

mbl.is Schwarzenegger styður McCain
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband