Níðingsleg framkoma við dýr

Held að fátt sé dapurlegra en þegar fólk kemur illa fram við dýr, sem geta ekki varið sig og hafa gaman af því að níðast á þeim. Við sem höfum átt dýr hugsum eðlilega um það hverskonar grimmd og lágkúra sé í þeim sem þannig koma fram. Sem betur fer heyrum við ekki oft af því að fullorðið fólk ráðist á dýr og hafi gaman af því hérna heima, en þess þá frekar heyrist af því að dýr séu vannærð og illa um þau hugsað, sem er ekki mikið skárra.

Ætla að vona að þessir ungu menn sem köstuðu grjóti í lömbin hugleiði á hvaða braut þeir eru. Þeir sem svona gera þurfa að hugsa sín mál vel. Þessi frétt sýnir hvað er mikið af sjúku fólki til, enda þarf verulega sjúkan huga til að koma svo ógeðslega fram við dýr.

mbl.is Köstuðu grjóti í ær og lömb
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Ég á ekki krónu í smáu. Þetta eru fullorðnir menn og mér er skapi næst að dæma þá til grýtingar og leyfa þeim að finna á eigin skinni hvernig þetta háttarlag þeirra virkar.  kveðja Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 10.6.2008 kl. 15:43

2 identicon

Ekki veit ég hvað þessum drengjum gekk til! Þetta eru ekki einu sinni drengir þetta eru nánast fullvaxta karlmenn. Ég er svo hjartanlega sammála þér að mikið er til að sjúku fólki og tilheyra þessir aðilar þeim flokki. Þú þarft ekkert endilega að hafa átt dýr til þess að finnast þetta veruleg grimmd og lágkúra.

skotta (IP-tala skráð) 10.6.2008 kl. 15:47

3 Smámynd: Ólöf Jóhanna Pálsdóttir

Það er með ólíkindum hvað menn geta lagst lágt að grýta varnarlaus dýr. Þetta hljóta að vera verulega sjúkir menn á sálinni.

Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 10.6.2008 kl. 19:40

4 Smámynd: Hallgrímur Óli Helgason

Þetta er hryllilegt að heyra og lesa um þetta, þeir eru bara veikir þessir menn, og ég sem alinn er upp í sveit þar sem dýrin voru bestu vinir manns og þá kannske sérstaklega kindurnar þar sem maður þekkti þær allar með nafni, maður passaði að hugsa vel um þær og svo beið maður spenntur á vorin eftir lömbunum.

Hallgrímur Óli Helgason, 10.6.2008 kl. 20:58

5 identicon

Ég fæ alveg fyrir hjartað við að lesa þessa frétt. Hvað þetta pakk er óþroskað! Litlu sætu lömbin, hvað gerðu þau þeim? Helvítis! Ég verð svo skelkaður við að lesa svona, svona á ekki að koma fram við málleysingja. Þau geta ekki varið sig! :(

Þessir aðilar mega eiga það að þeir eru einskis virði, það ætti að refsa þeim mikið fyrir þetta!

úlfar viktor (IP-tala skráð) 10.6.2008 kl. 22:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband