Aðskilnaður ríkis og kirkju

AkureyrarkirkjaFyrr í þessum mánuði bauð Erlingur Þór Tryggvason, formaður Hugins, félags ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ, mér að rita gestapistil á vef félagsins. Þáði ég þann heiður með þökkum. Það sést vel á góðum vef Hugins hversu mikill kraftur er í starfinu þar. Það er öflugt og gott fólk í stjórninni þar og ávöxtur þessa góða starfs sást vel í kosningunum í vor. Þar er ungliðum treyst fyrir alvöru ábyrgð og forystuverkum, sem er auðvitað ánægjuefni. Huginn hefur alla tíð verið mjög áberandi í ungliðastarfi flokksins, enda Garðabær sterkasta vígi flokksins.

Ég ákvað strax er ég settist niður til að skrifa pistil að þar yrði fjallað um aðskilnað ríkis og kirkju. Við eigum það sameiginlegt, ég og stjórnarmenn í Huginn, að við viljum aðskilnað ríkis og kirkju. Það er eitt af grunnmálum Sambands ungra sjálfstæðismanna að mínu mati, og á ávallt að vera, að mínu mati að berjast fyrir þeim aðskilnaði og það hefur sést vel í ályktunum Sambandsins. Þetta er eitt af þeim málum sem sameinar okkur og því auðvitað hið eina rétta að benda á þetta efni og vekja sérstaka athygli á því og koma með innlegg í þá umræðu.

Í þessum pistli koma vel fram skoðanir mínar á því hvernig staða mála á að vera. Skoðanakannanir hafa sýnt það og sannað að þetta er vilji meirihluta landsmanna. Ég tala því ekkert eyðimerkurtungumál í þessum pistli. Vissulega yrði aðskilnaður flókinn, en verkefnin eru og verða ávallt til að takast á við þau. Þessi skrif og þessar skoðanir koma ekki fram vegna þess að ég sé efasemdarmaður í trúmálum. Ég var alinn upp í kristinni trú og grunngildum hennar. Amma mín, Hanna Stefánsdóttir, var í áratugi öflug í starfi KFUM og í sókninni hér og hún var forystukona á Hólavatni, sumarbúðum KFUM og K í Eyjafirði, um árabil.

Ég fór ungur vikulega í sunnudagaskóla og ég fer enn hið minnsta einu sinni í mánuði til kirkju. Á stórhátíðum er fastur liður hjá mér og mínum að fara til kirkju. Ég lít svo á að trúarlegt uppeldi guðmæðra minna, Línu ömmu og Hönnu ömmu, sem báðar voru mjög trúaðar, hafi verið mikilvægt. Það færði mér mikið. Þessi skrif koma svo sannarlega ekki vegna þess að ég meti trú ekki mikils. Enda kemur það vel fram í þessum pistli á vef Hugins - þar kemur grunnur þessa alls mjög vel fram. Það eru þau grunngildi sem hafa ráðið afstöðu minni, sem ég hef haft síðan að ég var unglingur. Á það minni ég.

Fyrr á þessu ári tók ég sæti í stjórn SARK. Þar sit ég sem trúaður maður skoðana í þessum efnum. Þar situr fólk með ólíkan bakgrunn, bæði trúað fólk og efasemdarfólk í trúmálum. Það er heiðarleg og góð blanda. Ég sit þar á mínum eigin forsendum og skrifa og haga mínum verkum á eigin forsendum. Ég á mig nefnilega sjálfur.

Ég þakka stjórn Hugins því kærlega tækifærið til að skrifa um þetta á vef félagsins og óska stjórninni alls hins besta í störfum sínum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Arnljótur Bjarki Bergsson

Stefán Friðrik, ég verð að benda þér á pistil nafna þíns Einars þar sem óskráður Ágúst bætir því við að enn annar Stefán sitji í stjórn SARK...

Arnljótur Bjarki Bergsson, 22.11.2006 kl. 01:45

2 Smámynd: Stefán Friðrik Stefánsson

Stefán Friðriksson er oddviti SARK, ég er þar óbreyttur stjórnarmaður, enda aðeins setið í stjórn frá því í febrúar. 

Stjórnina skipa:
Edda Hrönn Atladóttir.
séra Hjörtur Magni Jóhannsson.
Kári Páll Óskarsson.
Sigurður Hólm Gunnarsson.
Sóley Gréta Sveinsdóttir.
Stefán Friðriksson.
Stefán Friðrik Stefánsson.

Þetta má sjá á sark.is

Stefán Friðrik Stefánsson, 22.11.2006 kl. 01:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband