30.7.2008 | 23:39
Ólafur F. er gjörsamlega að spila sig út
Ég er eiginlega algjörlega orðlaus eftir Kastljósviðtalið við Ólaf F í kvöld. Greinilegt að maðurinn er gjörsamlega að spila sig út. Þvílíkur performans! Hver ætli PR-ist fyrir karlgreyið? Annað hvort er sá maður í sumarfríi eða hreinlega ekki til í þessari hitabylgju sem er að þjaka landsmenn alla en þó helst meirihlutann í borginni sem er að verða eins og leikhópur í farsaleikriti sem enginn skilur upphafið eða endann á.
Hvers vegna gat borgarstjórinn ekki bara svarað einföldum og eðlilegum spurningum fjölmiðlamanna um lykilatriði? Við erum að tala um að hann sparkar út í ystu myrkur konu sem hann sjálfur valdi sem aðstoðarmann sinn og hafði inn á kontór hjá sér á hverjum degi. Við erum ekki að tala um einhverja konu úti í bæ. Ef Ólafur F. getur ekki svarað svona eðlilegum spurningum er eðlilegt að spurt sé hvort ekki sé kominn tími til að hann gerist læknir í fullu starfi úti í bæ aftur og láti borgarbúa lifa sínu lífi án hans á borgarstjórakontórnum.
Mér finnst saga þessa meirihluta verða æ vitlausari með hverjum deginum sem líður. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins líta út eins og fólk í sjálfsmorðssprengiför sem það hefur engin tök á að losna út úr. Er virkilega ekki hægt að binda endi á þennan fjárans farsa eða í það minnsta gera hann skiljanlegan fyrir pólitíska áhugamenn? Plús, það væri ágætt að þessi borgarstjóri færi að svara spurningum.
Fannst Ólafur F. reyndar gefa það í skyn að hann nyti ekki virðingar og væri illa komið fram við hann. Kannski væri ráð fyrir hann að fara að mæta með borgarstjórakeðjuna í viðtöl hér eftir og túlk við hliðina á sér sem talar íslensku.
Hvers vegna gat borgarstjórinn ekki bara svarað einföldum og eðlilegum spurningum fjölmiðlamanna um lykilatriði? Við erum að tala um að hann sparkar út í ystu myrkur konu sem hann sjálfur valdi sem aðstoðarmann sinn og hafði inn á kontór hjá sér á hverjum degi. Við erum ekki að tala um einhverja konu úti í bæ. Ef Ólafur F. getur ekki svarað svona eðlilegum spurningum er eðlilegt að spurt sé hvort ekki sé kominn tími til að hann gerist læknir í fullu starfi úti í bæ aftur og láti borgarbúa lifa sínu lífi án hans á borgarstjórakontórnum.
Mér finnst saga þessa meirihluta verða æ vitlausari með hverjum deginum sem líður. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins líta út eins og fólk í sjálfsmorðssprengiför sem það hefur engin tök á að losna út úr. Er virkilega ekki hægt að binda endi á þennan fjárans farsa eða í það minnsta gera hann skiljanlegan fyrir pólitíska áhugamenn? Plús, það væri ágætt að þessi borgarstjóri færi að svara spurningum.
Fannst Ólafur F. reyndar gefa það í skyn að hann nyti ekki virðingar og væri illa komið fram við hann. Kannski væri ráð fyrir hann að fara að mæta með borgarstjórakeðjuna í viðtöl hér eftir og túlk við hliðina á sér sem talar íslensku.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:45 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Síðuritari
Stefán Friðrik Stefánsson
Ég er í fáum orðum sagt: bjartsýnn, jákvæður, áhugamaður um pólitík, sjálfstæður, kaldhæðinn, skapheitur, kvikmyndafrík, bókaormur, Akureyringur, tónlistarspekúlant og Brekkusnigill. Netfang (MSN): stebbifr@simnet.is
Nýjustu færslur
- Gert upp við úrslit kosninga á Akureyri
- Afgerandi umboð Boris - pólitískar áskoranir nýs leiðtoga
- Boris Johnson og Jeremy Hunt berjast um Downingstræti 10
- Boris með fullnaðartök í leiðtogakjöri Íhaldsflokksins
- Boris hálfnaður í mark - ráðherraslagur um sæti í einvíginu
- Aukin spenna í einvíginu um Downingstræti 10
- Boris Johnson á sigurbraut
- Sögulegur sigur hjá Trump - áfall fyrir demókrata
- Boris í lykilráðuneyti - klókindi hjá Theresu May
- Kvennabylgja fylgir Theresu May í Downingstræti 10
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Bloggvinir
- Adda bloggar
- Adda Laufey
- Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
- Aðalheiður Ámundadóttir
- Agnar Freyr Helgason
- Agný
- Alfreð Símonarson
- Alma Guðmundsdóttir og Freyja Haraldsdóttir
- Anna
- Anna Benkovic Mikaelsdóttir
- Anna Kristinsdóttir
- Anna Steinunn Þengilsdóttir
- Anton Þór Harðarson
- Arnljótur Bjarki Bergsson
- Atli Fannar Bjarkason
- Atli Fannar Ólafsson
- Auðbergur Daníel Gíslason
- Auðun Gíslason
- Auður Björk Guðmundsdóttir
- Axel Jóhann Axelsson
- Ágúst Bogason
- Ágúst Dalkvist
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Ármann Kr. Ólafsson
- Árni Árnason
- Árni Helgason
- Árni Matthíasson
- Árni Torfason
- Árni Þór Sigurðsson
- Ásdís Rán
- Ásgeir Guðmundsson
- Ásgerður Jóna Flosadóttir
- Ásta Möller
- Baldur Hermannsson
- Baldur Kristjánsson
- Baldur Smári Einarsson
- Baldvin Jónsson
- Barði Bárðarson
- Bárður Ingi Helgason
- Bergur Thorberg
- Bergur Þorri Benjamínsson
- Bessí Jóhannsdóttir
- Birgir Ármannsson
- Birgir Leifur Hafþórsson
- Birgir R.
- Birgir Örn Birgisson
- Birgir Örn Birgisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Birna Steingrímsdóttir
- Bjarni Benedikt Gunnarsson
- Bjarni Harðarson
- Bjarni Kjartansson
- Bjarni Kristjánsson
- Bjartmar Oddur Þ Alexandersson
- Björgvin Þóroddsson
- Björk Vilhelmsdóttir
- Björn Emilsson
- Björn Kr. Bragason
- Björn Magnús Stefánsson
- Bleika Eldingin
- Blog-andinn Eyvar
- Borgar Þór Einarsson
- Bókaútgáfan Hólar
- Braskarinn
- Breki Logason
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Bryndís Haraldsdóttir
- Bryndís Helgadóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Brynjar Davíðsson
- Brynja skordal
- Bumba
- Bwahahaha...
- Böðvar Sturluson
- Carl Jóhann Granz
- Daði Einarsson
- Dagný
- Daníel Sigurður Eðvaldsson
- Davíð
- Davíð Jóhannsson
- Davíð Þór Kristjánsson
- Deiglan.com - Vefrit um þjóðmál
- DÓNAS
- Dóra litla
- Dunni
- Dögg Pálsdóttir
- Egill Bjarnason
- Egill Rúnar Sigurðsson
- Eiður Svanberg Guðnason
- Einar B Bragason
- Einar Bragi Bragason.
- Einar Helgi Aðalbjörnsson
- Einar Kristinn Guðfinnsson
- Einar Sigurjón Oddsson
- Einar Örn Gíslason
- Einhver Ágúst
- Eiríkur Sjóberg
- Elfur Logadóttir
- Elinóra Inga Sigurðardóttir
- Elín Katrín Rúnarsdóttir.
- Elliði Vignisson
- Ellý Ármannsdóttir
- Elmar Geir Unnsteinsson
- Emma Agneta Björgvinsdóttir
- E.Ólafsson
- Erla Margrét Gunnarsdóttir
- Erla Ósk Arnardóttir Lilliendahl
- Erla Ósk Ásgeirsdóttir
- Erna Friðriksdóttir
- Erna Hákonardóttir Pomrenke
- ESB
- Ester Júlía
- Ester Sveinbjarnardóttir
- Eygló Sara
- Eygló Þóra Harðardóttir
- Eyjólfur Kristinn Vilhjálmsson
- Eyþór Árnason
- Eyþór Ingi Jónsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Fannar frá Rifi
- Fannar Gunnarsson
- Fararstjórinn
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Fishandchips
- FreedomFries
- Freyr Árnason
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Friðrik Óttar Friðriksson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Fræðingur
- Gaukur Úlfarsson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Gerald Häsler
- Gestur Guðjónsson
- Gils N. Eggerz
- Gísli Aðalsteinsson
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Gísli Birgir Ómarsson
- Gísli Blöndal
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Gísli Sigurðsson
- Gísli Steinar Jóhannesson
- Gísli Tryggvason
- Grazyna María Okuniewska
- Grímur Gíslason
- gudni.is
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- Guðfinna S. Bjarnadóttir
- Guðfinnur Sveinsson
- Guðjón Baldursson
- Guðjón Helmut Kerchner
- Guðmundur Auðunsson
- Guðmundur Ásgeirsson
- Guðmundur Gunnlaugsson
- Guðmundur H. Bragason
- Guðmundur Helgi Helgason
- Guðmundur Jóhannsson
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Guðmundur Magnússon
- Guðmundur Pálsson
- Guðmundur Rafnkell Gíslason
- Guðmundur Ragnar Björnsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Guðmundur St Ragnarsson
- Guðmundur Örn Jónsson
- Guðný Jóhannesdóttir
- Guðrún Magnea Helgadóttir
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Guðrún Una Jónsdóttir
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Gunnar Axel Axelsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Gunnar Freyr Steinsson
- Gunnar Gunnarsson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Gunnar R. Jónsson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Gunnsteinn Þórisson
- Gylfi Björgvinsson
- Gylfi Þór Þórisson
- Götusmiðjan
- HAKMO
- Halla Gunnarsdóttir
- Halldóra Hjaltadóttir
- Halldór Baldursson
- Halldór Borgþórsson
- Hallgrímur Óli Helgason
- Handtöskuserían
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Hannes Sigurbjörn Jónsson
- Hannibal Garcia Lorca
- Haraldur Haraldsson
- Haraldur Huginn Guðmundsson
- Haraldur Pálsson
- Haukur Kristinsson
- Haukur Már Helgason
- Haukur Nikulásson
- Hákon Unnar Seljan Jóhannsson
- Heidi Strand
- Heiða
- Heiða Þórðar
- Heiðrún Lind
- Heimir Hannesson
- Heimir Lárusson Fjeldsted
- Heimskyr
- Heimssýn
- Helga Dóra
- Helga Lára Haarde
- Helga Nanna Guðmundsdóttir
- Helga skjol
- Helgi Jóhann Hauksson
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Helgi Már Barðason
- Helgi Seljan
- Helgi Vilberg
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Hersir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Hilmar Dúi Björgvinsson
- Himmalingur
- Hjörleifur Guttormsson
- Hlini Melsteð Jóngeirsson
- Hlynur Hallsson
- Hlynur Kristjánsson
- Hlynur Sigurðsson
- Hlöðver Ingi Gunnarsson
- Hommalega Kvennagullið
- Hrafn Jökulsson
- Hrannar Baldursson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hreiðar Eiríksson
- Hugrún Jónsdóttir
- Hugsanir
- Hulda Haraldsdóttir
- Huld S. Ringsted
- Hægrimenn í Menntaskólanum á Akureyri
- Icelandic fire sale
- Inga Dagný Eydal
- Inga Lára Helgadóttir
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Ingi Björn Sigurðsson
- Ingi Þór Ágústsson
- Ingólfur Ásgeir Jóhannesson
- Ingólfur Gíslason
- Ingólfur H Þorleifsson
- Ingólfur Þór Guðmundsson
- Ingvi Hrafn Jónsson
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Íslendingur
- Ívar Jón Arnarson
- Jakob Falur Kristinsson
- JEA
- Jens Guð
- Jens Sigurjónsson
- Jóhann Alfreð Kristinsson
- Jóhann Ágúst Hansen
- Jóhannes Þór Skúlason
- Jóhann Hauksson
- Jóhann Kristjánsson
- Jóhann Waage
- Jóhann Þorsteinsson
- Jón Agnar Ólason
- Jónas Björgvin Antonsson
- Jónas Jónasson
- Jónas Tryggvi Jóhannsson
- Jón Axel Ólafsson
- Jón Baldur Lorange
- Jón Gerald Sullenberger
- Jón Hjörleifur Stefánsson
- Jón Ingi Cæsarsson
- Jón Ingi Stefánsson
- Jónína Benediktsdóttir
- Jón Lárusson
- Jón Magnússon
- Jón Ragnar Björnsson
- Jón Sigurðsson
- Jón Sigurgeirsson
- Jón Svavarsson
- Jón Valur Jensson
- Jón Þór Ólafsson
- Jórunn Ósk Frímannsdóttir
- jósep sigurðsson
- Júlíus Garðar Júlíusson
- Júlíus Sigurþórsson
- Júlíus Valsson
- Kafteinninn
- Karl Gauti Hjaltason
- Katrín Anna Guðmundsdóttir
- Kári Finnsson
- Kári Sölmundarson
- Kári Tryggvason
- Ketilás
- Killer Joe
- Kjartan Magnússon
- Kjartan Pálmarsson
- Kjartan Vídó
- Kolbrún Baldursdóttir
- Kolbrún Gígja Gunnarsdóttir
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Kristinn Ágúst Friðfinnsson
- Kristinn Ingi Jónsson
- Kristin stjórnmálasamtök
- Kristín Björg Þorsteinsdóttir
- Kristín Einarsdóttir
- Kristín Erla Kristjánsdóttir
- Kristín Hrefna
- Kristján Freyr Halldórsson
- Kristján Hreinsson
- Kristján L. Möller
- Kristján Pétursson
- Kristján P. Gudmundsson
- Kristlaug M Sigurðardóttir
- Krummi
- Lára Stefánsdóttir
- Leikhópurinn Lotta
- Lilja G. Bolladóttir
- Lilja Ingimundardóttir
- Listasumar á Akureyri
- Lísa Björk Ingólfsdóttir
- Logi Már Einarsson
- Maður dagsins
- Magnús Paul Korntop
- Magnús Þorlákur Lúðviksson
- Margrét Birna Auðunsdóttir
- Margrét Elín Arnarsdóttir
- Margrét Sverrisdóttir
- Marinó Már Marinósson
- María Anna P Kristjánsdóttir
- María Guðjóns
- María Magnúsdóttir
- MARKAÐSSETNING Á NETINU
- Marta Guðjónsdóttir
- Matthias Freyr Matthiasson
- Mál 214
- Methúsalem Þórisson
- MIS
- Morgunblaðið
- Móðir, kona, sporðdreki:)
- Myndlistarfélagið
- Nanna Katrín Kristjánsdóttir
- Námsmaður bloggar
- Oddur Helgi Halldórsson
- Óðinn
- Óðinn Þórisson
- Ólaf de Fleur Jóhannesson
- Ólafur fannberg
- Ólafur N. Sigurðsson
- Ólafur Th Skúlason
- Ólafur Valgeirsson
- Ólafur Þór Gunnarsson
- Ólafur Örn Nielsen
- Óli Sveinbjörnss
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Ólöf Jóhanna Pálsdóttir
- Ólöf Kristín og Ólöf Rut
- Ólöf Nordal
- Ómar Pétursson
- Ómar Ragnarsson
- Ómar Örn Hauksson
- Óskar Sigurðsson
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Óskar Örn Guðbrandsson
- Óttar Felix Hauksson
- Óttarr Makuch
- Óþekki embættismaðurinn
- Panama.is - veftímarit
- Paul Nikolov
- Pálína Erna Ásgeirsdóttir
- Páll Heimisson
- Páll Ingi Kvaran
- Páll Kristbjörnsson
- Páll Rúnar Elíson
- Páll Sævar Guðjónsson
- Páll Vilhjálmsson
- Pálmi Freyr Óskarsson
- Pálmi Gunnarsson
- peyverjar
- Pétur Björgvin
- Pétur Sig
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Pjetur Stefánsson
- Pollurinn
- Púkinn
- Rafn Gíslason
- Ragnar Arnalds
- Ragnar Bjarnason
- Ragnar Ólason
- Ragnar Páll Ólafsson
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Ragnheiður Ólafía Davíðsdóttir
- Ragnheiður Ríkharðsdóttir
- Ragnhildur Sverrisdóttir
- Reynir Antonsson
- Reynir Jóhannesson
- Róbert Þórhallsson
- Ruth
- Rúnar Birgir Gíslason
- Rúnar Haukur Ingimarsson
- Rúnar Óli Bjarnason
- Rúnar Þórarinsson
- Rýnir
- Samtök Fullveldissinna
- Saumakonan
- Señorita
- Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
- Sigfús Sigurþórsson.
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Sigmar Guðmundsson
- Sigríður Gísladóttir
- Sigríður Hrönn Elíasdóttir
- Sigurbjörn Svavarsson
- Sigurður Á. Friðþjófsson
- Sigurður Ingi Jónsson
- Sigurður Jónsson
- Sigurður Kári Kristjánsson
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Þórðarson
- Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
- Sigurjón Benediktsson
- Sigurjón Sveinsson
- Sigurjón Þórðarson
- Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
- Sigvaldi Kaldalóns
- Sindri Kristjánsson
- Sjálfstæðissinnar
- Sjensinn Bensinn
- Skafti Elíasson
- Snorri Bergz
- Snorri Sigurðsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Stefanía
- Stefanía Sigurðardóttir
- Stefán Jón Hafstein
- Stefán Þór Helgason
- Stefán Þórsson
- Stefán Örn Viðarsson
- Steingrímur Helgason
- Steini Bjarna
- Steinn E. Sigurðarson
- Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir
- Stjórn Eyverja
- Sunna Dóra Möller
- Svala Jónsdóttir
- Svanur Kári Daníelsson
- Svanur Sigurbjörnsson
- Svavar Alfreð Jónsson
- Sveinn Arnarsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Sveinn Ingi Lýðsson
- Sveinn Tryggvason
- Sverrir Einarsson
- Sverrir Stormsker
- Sverrir Þorleifsson
- Sverrir Þór Garðarsson
- Sædís Ósk Harðardóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Sævar Finnbogason
- Sæþór Helgi Jensson
- TARA
- Thelma Ásdísardóttir
- Theodór Bender
- ThoR-E
- Tiger
- Tíðarandinn.is
- TómasHa
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Trúnó
- Tryggvi F. Elínarson
- Tryggvi Gíslason
- Tryggvi H.
- Unnur Brá Konráðsdóttir
- Úlfur
- Vaka, félag lýðræðissinnaðra stúdenta
- valdi
- Valdimar H Jóhannesson
- Valgeir Ómar Jónsson
- Valsarinn
- Varðhundar frelsisins
- Varmársamtökin
- Vefritid
- Vestfirðir
- viddi
- Viðar Freyr Guðmundsson
- Viktor Borgar Kjartansson
- Viktoría Rán Ólafsdóttir
- Vilborg G. Hansen
- Vilborg Valgarðsdóttir
- Vilhjálmur Árnason
- Vilhjálmur Sveinn Björnsson
- Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson
- Vinir Ítalíu,VITA
- Vinir Ketils bónda, áhugamannafélag
- VÞV
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Þjóðleikhúsið
- Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir
- Þorleifur Ágústsson
- Þorleifur Leó Ananíasson
- Þorsteinn Erlingsson yngri
- Þorsteinn Gunnarsson
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Þorsteinn Magnússon
- Þóra Guðmundsdóttir
- Þóra Kristín Hauksdóttir
- Þórarinn Eldjárn
- Þórður Björn Sigurðsson
- Þórður Steinn Guðmunds
- Þórður Vilberg Guðmundsson
- Þórir Aðalsteinsson
- Þórólfur Ingvarsson
- Þórólfur S. Finnsson
- Þráinn Árni Baldvinsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Ævar Rafn Kjartansson
- Öll lífsins gæði?
- Örlygur Hnefill Örlygsson
- Örvar Már Marteinsson
Athugasemdir
Tek undir með Einari, ég skammaðist mín fyrir að vera frá sama landhorni og Helgi í kvöld. Nei , ég vil ekki heldur sjá hann í stúkunni. Hann er greinilega mjög mikið á móti borgarstjóra. Burt með Helga úr Kastljósi.
Björk (IP-tala skráð) 31.7.2008 kl. 00:08
Helgi Seljan varð sjálfum sér til skammar í þessu viðtali. Ólafur á heiður skilinn fyrir að halda ró sinni undir dónaskapnum í Helga sem greip ítrekað fram í fyrir viðmælanda sínum á ósvífinn hátt og góð ádrepan frá borgarstjóra í lok viðtals þar sem hann gerði stjórnandanum skiljanlegt hvernig hann hefði eyðilagt viðtalið.
Helgi var góður í Jónínuviðtalinu en þarna fór hann yfir strikið. Ólafur sýndi það hinsvegar að hann er í góðu jafnvægi og lætur ekki svona fjölmiðlatitti fara neitt með sig. Hvernig væri að fá gömlu góðu kurteisina aftur inn? Hún kostar ekkert og fellur aldrei úr gildi.
Steini Bjarna, 31.7.2008 kl. 00:18
Takk fyrir kommentin.
Anna: Mjög góður punktur.
Aðrir: Helgi var bara að spyrja spurninga sem allir eru að spyrja sjálfa sig að. Eðlilegt að borgarstjóri svari þeim. Þegar hann svarar ekki lykilspurningum endar þetta svona. Held að hann ætti að fara að átta sig á því að hann er í starfi þar sem grunnmál er að svara spurningum.
mbk.
Stefán Friðrik Stefánsson, 31.7.2008 kl. 00:44
Mér gjörsamlega ofbauð framganga Helga fréttamanns. Hann sýndi borgarstjóra mikla óvirðingu. Fréttamaðurinn var ríkissjónvarpinu ekki til sóma. það er eitt að vera beinskeyttur í spurningum og annað að vera hreinlega dónalegur.
Margret Sig (IP-tala skráð) 31.7.2008 kl. 01:13
Augljóslega eru sjálfstæðismenn bara að drepa tímann þartil þeir fá stjórnvölin aftur, svo treysta þeir á að þeir geti komið nægu í verk til að vinna upp fylgistap fyrir næstu kosningar.
Það er líklega skásti leikurinn sem þeir eiga í stöðunni. Þurftu að bjóða Ólafi eitthvað bitastætt til að komast aftur í meirihluta, vilja ekki láta of mikið til sín taka núna, því þá fær F-listinn og Ólafur góðan hluta hróssins.
Aldrei að vita hvernig það fer, en það er mál manna að almenningur sé kominn með nóg af þessari borgarstjórnar hringavitleysu.
Persónulega er ég sjálfur held ég bara sæmilega sáttur við tilhugsunina um Hönnu Birnu sem borgarstjóra.
Alexandra Briem, 31.7.2008 kl. 02:09
Sæll Stebbi.
Það hefði nú verið ágætt að Kastljós hefði farið rétt með staðreyndir í upphafi þar sem kynnt var að fulltrúa " Frjálslynda flokksins " hefði verið vikið á brott.
Hvar var Ólöf Guðný í þvi sambandi ?
Framkoma Helga Seljan sem fyrisrpyrjenda hlýtur hins vegar að kalla á endurskoðun faglega einkum og sér í lagi.
kv.gmaria.
Guðrún María Óskarsdóttir., 31.7.2008 kl. 02:23
já ég verð að vera þér ósammála Stefán þótt ég sé þér oft sammála. En Helgi Seljan er nú eitthvað að misskilja hlutverk sitt er ég hræddur um. Mér finnst Ólafur bara vera að standa sig ágætlega. Hann hefur haft mikið á móti sér í þessu embætti en er bara að koma sterkur út.
Það eru engar æviráðningar í pólitík og er þetta nú ekki stórmál varðandi smá mannabreytingar.
sandkassi (IP-tala skráð) 31.7.2008 kl. 02:25
Eins og væntanlega margir aðrir gerðu, horfði ég á viðtal Helga Seljan við Ólaf F. Magnússon borgarstjóra, í Kastljósinu í kvöld. Mér fannst Helgi Seljan sýna Ólafi F. alveg með eindæmum mikinn dónaskap og jaðraði við lítilsvirðingu, hann (Helgi) margsinnis greip fram í fyrir Ólafi þannig að honum gafst ekki færi á því að klára að svara spurningum þess fyrrnefnda, Helgi margítrekaði hluti sem honum fannst greinilega að skiptu miklu máli og voru honum hjartfólgin eins og t.d afstaða Ólafs til einhverra tveggja húsa þarna á því svæði sem listaháskólinn á að rísa. Ef svona lagað er það sem á að einkenna Kastljósið í framtíðinni þá bíð ég nú ekki í framhaldið. Menn munu nú hugsa sig um áður en þeir samþykkja að vera viðmælendur í Kastljósinu í framtíðinni, það eru ekki allir tilbúnir í svona "trakteringar". Ekki hef ég nú verið Ólafs megin í pólitík en mér finnst nú að hann hafi komið mun betur frá þessum þætti en Helgi Seljan og miðað við hvernig skrif margra eru um þetta mál mætti ætla að þáttastjórnendur séu álitnar einhverjar "æðri verur" sem geti leift sér allt og þurfi ekki að fara eftir almennum lágmarks kurteisisvenjum.
Jóhann Elíasson, 31.7.2008 kl. 08:18
Stefán, virðirðu líf þitt ekki meira en svo að þú myndir treysta þessu manni til að verða læknir þinn? Hreint út sagt því meir sem ég fylgist með íslenskum stjórnmálum því oftar verður mér hugsað til Rómarborgar til forna. Það setur að mér hryggð og depurð.
Hörður Torfason (IP-tala skráð) 31.7.2008 kl. 08:28
Horfði á Kastljósviðtalið við Ólaf borgarstjóra og um málflutning hans þar vildi ég aðeins sagt hafa: Það er erfitt og í raun óviðeigandi að hafa pólitískar skoðanir á mannlegum harmleik.
Sigurður Bogi Sævarsson (IP-tala skráð) 31.7.2008 kl. 08:56
Stefán frændi minn, ég segi eins og kerlingin, ég forstaar ekki skilningin. Hvað er eiginlega að gerast? Ég hélt að þessi stúlka hún Ólöf væri svo tilvalin í þetta starf. En öllu má nú nafn gefa svo sem. Með beztu kveðju.
Bumba, 31.7.2008 kl. 09:18
Helgi Seljan var mjög dónalegur.
Stefán (IP-tala skráð) 31.7.2008 kl. 11:46
Kastljós RÚV er ekki fréttaskýringaþáttur eins og áður var.
Undir stjórn Þórhalls Gunnarssonar er hann skilgreindur svona:
Þessa dagana skiptist þátturinn gjarnan í þrennt. Fyrst tilraun til að etja mönnum saman, síðan eitthvert létt spjall og að lokum tónlistaratriði.
Í gær átti að taka borgarstjóra á beinið. Spyrillinn, Helgi Seljan, stóð sig mjög illa. Hann minnti mun meira á Bill O'Reilly en David Frost.
"Það er ég sem stjórna hér" var smiðshöggið á axarskaftasmíð Helga.
Nokkur augnablik sýndi Helgi góða frammistöðu, en það var þegar hann spurði hvort samstarfsaðilar Ólafs í meirihlutanum hafi vitað af þessum hrókeringum.
Að því frátöldu þá er greining mín á þættinum sú að Ólafur F hafi sýnt að yfirgangssamir fjölmiðlaguttar geta ekki komið honum úr jafnvægi þrátt fyrir dónalega framkomu og þrasgirni.
Sigurður Ingi Jónsson, 31.7.2008 kl. 12:36
Ólafur F. hefur eiginlega bara átt afleiki í borgarstjórastólnum. Í máli Listaháskólans hafði hann tækifæri á að skora vel með því að leiða það mál farsællega til lykta, eins og hann og Hanna Birna, eru svo viss umn að þeim muni takast að gera. Í staðinn fyrir að gera það þá rekur hann fulltrúa sinn í skipulagsráði, af því er virðist fyrir að vilja taka faglega afstöðu til málsins og dregur þar með athygli allra að einræðistilburðum og einstrengishætti , sem hann hefur oft verið vændur um. Í Kastljósviðtalinu fellur hann síðan í þá gryfja að gera tilraun til að taka stjórnina af Helga Seljan með því að svara ekki spurningum og hefja einræðu um hvað búið sé að vinna frábært starf á þeim tíma sem hann hefru verið borgarstjóri. Helgi bregst vissuelga harkalega við og gengur hart fram gegn borgarstjóra sem sífellt færðsit undan að gefa skýr svör við af hverju hann hafði rekið Ólöfu Guðnýu. Í lokinn sést hann síðan strunsa út úr settinu og gefur með því orðrómi um að þar fari meður sem ekki sé í jafnvægi, byr undir báða vængi. Einn stór afleikurinn enn í stöðu sem hefði geta gagnast honum vel ef dómgreind hefði verið eðlileg.
Kiddi (IP-tala skráð) 31.7.2008 kl. 12:39
Sælir allir hérna. Ég skil reyndar ekki orrahríðina sem Helgi fær hér yfir sig. Hvað gerði hann annað en að vinna vinnuna sína og hann átti allan rétt á því að vera aðgangsharður. Ég hef horft á viðtalið núna tvisvar og ég fæ ekki séð að hann hafi verið ókurteis. Af hverju má ekki tala íslensku við stjórnmálamenn og krefja þá um svör þegar þeir hafa leikið af sér og virðast hreint og beint vera með einhverju óráði. Við eigum rétt á að heyra þessi svör og það var það sem Helgi var að reyna að fá fram. Ef Ólafur þolir ekki fjölmiðla er hann svo sannarlega ekki í réttu starfi.
Annað er svo með þessar byggingar. Af hverju þurfa Íslendingar þegar þeir ætla að byggja eitthvað voða fínt hús að byggja það ofan á önnur eða ofan í tjörn. Þetta Listaskólahús passar ekki þarna. Ég er reyndar alveg sammála Ólafi að af hverju er húsið ekki sett á Hverfisgötuna sem er að eyðast upp af ljótleika. Hvað er svo með nýju Háskólabygginguna , af hverju var henni valin staður ofan í Nauthólsvík að sjálfsögðu ofan á Kaffi Nauthól. Er ekki Öskjuhlíð friðuð og hvernig verður umferðin á Bústaðavegi svo , sem er nú þegar blokkeruð hvern einasta dag. Skipulagsmál eru í rugli, sama hvaða flokkur er.
Margrét Auður (IP-tala skráð) 31.7.2008 kl. 13:00
Var að horfa á þetta umrædda viðtal fyrst ég missti af Kastljósinu í gærkvöldi. Ég hef svo sem tekið eftir því áður, fyrst þegar rætt var við Vilhjálm hér fyrir nokkrum mánuðum síðan, hvað Kastljós stjórnendur hafa verið duglegir að grípa fram í og hafa jújú alveg verið dónalegir gagnvart gestinum.
Hinsvegar fannst mér Ólafur nú ekkert vera að svara neinu, bara leika sér í kringum spurningarnar og alltaf að hamra á "að láta verkin tala" og þennan málefnasamning.
Ég var sáttur með fyrstu meirihlutabreytinguna enda hafði Vilhjálmur gjörsamlega eyðilagt ferillinn sinn og dregið flokkinn sinn niður. Svo þegar þeir komu með endurkomu og létu þennan mann sem borgarstjóra var með gjörsamlega nóg boðið.
Hvað varðar Listaháskólan þá finnst mér þetta fínt hús og það ætti alveg að planta því þarna á reitnum. Jú okay það eru tvö gömul hús þarna og það ætti alveg að ræða málin og finna lausn á hvað skal gera við þau en annars er bara strippstaður og kynlífsvöruverslun í sama húsnæði. Reyndar held ég að það séu íbúðir þarna líka. Þetta er fínt hús og gefur laugaveginum góða adrenalínsprautu. Er alveg til að bjarga götumyndinni á laugaveginum en mér sýnist nú hluti af honum vera orðin 20. aldargötumynd nú þegar. Hví má ekki kynslóðin okkar ekki setja svip sinn á borgina?
Daníel Sigurður Eðvaldsson, 31.7.2008 kl. 13:39
Mikið er ég nú sammála þér í þetta sinn Stefán. Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokks lætur þennan eina mann draga sig á asnaeyrunum út um allar trissur. Hvað veldur? Menn eru greinilega tilbúnir í að fórna öllu, já öllu án þess að hugsa út í afleiðingarnar bara meðan beðið er eftir því að fá stólinn í eitt ár. Já miklar eru raunir mannanna, ekki satt?
Páll Jóhannesson, 31.7.2008 kl. 14:32
Ég horfði á Kastljósið í gærkveldi og fann þá fyrir þeirri tilfinningu að ég vorkenndi núverandi borgarstjóra, Ólafi Magnússyni. Hvernig borgarstjórinn gat ekki hamið sig og neitaði að svara sjálfsögðum spurningum fréttamanns og strunsaði að því loknu út úr hljóðverinu segir sína sögu...
Fyrr um daginn hlustaði ég á Útvarpi Sögu 99,4 á Sverri ,sagðan Stormsker tala við Guðna Ásgeirsson fyrrverandi landbúnaðarráðherra..En vegna þess að Sverrir vildi fá ákveðin svör frá Guðna þá strunsaði Guðni í miðjum útvarpsþættinum í burt-hann treysti sér ekki til að svara fyrir fyrri verk sín...30 júlí 2008 er því að mínu mati minnisverður dagur.
Guðrún Magnea Helgadóttir, 31.7.2008 kl. 15:35
Helgi stóð sig vel. Hann spurði einfaldra spurninga sem Ólafur neitaði að svara. Spurninga sem við eigum rétt á að fá að vita. Óþolandi að borgarstjórinn haldi að hann geti haga sér svona og þurfi svo ekki að svara fyrir það.
Nanna Katrín Kristjánsdóttir, 31.7.2008 kl. 16:15
Helgi Seljan stóð sig virkilega vel í Kastljósi gærkvöldsins. Það er ekki á hvers manns færi að taka viðtal við geðsjúkan mann sem svarar út í hött. Borgarstjórafulltrúar Sjálfstæðisflokksins hljóta að hafa roðnað ofan í tær af skömm.
Stefán (IP-tala skráð) 31.7.2008 kl. 16:16
Ég horfði á viðtalið í gær, ég tel að Ólafur hafi fengið það sem hann verðskuldaði og sem borgari í þessu landi þá tel ég að Helgi hafi gert vel í því að kreista kjörinn fulltrúa (ca. 6000 atkv.) til að opinbera sína stefnu og ástæður þess að ákvarðanir voru teknar. Ég hef ekkert álit á Ólafi og tel að sjallarnir hafi tekið niður fyrir sig þegar þeir tóku saman við hann. Það er fráleitt að mæta í sjónvarpið og ætlast til þess að fá e-ð drotningar trít. Hann ætti að draga lærdóm af þessu - Mæta undirbúinn og hafa ekkert að fela !!!
Ó hvað ég er feginn að vera fluttur úr borginni - þetta skrípi er ekki minn fulltrúi lengur...
Hjalti (IP-tala skráð) 31.7.2008 kl. 17:02
Helgi stóð sig bara mjög vel að mínu mati.
Friðrik Ásmundsson (IP-tala skráð) 31.7.2008 kl. 17:13
Helgi var allt of gjarn að grípa fram í, annars á hann alveg vera aðgangsharður þegar kemur að starfsmönnum í opinberum embættum, þeir eru nú einu sinni þarna í okkar þágu.
Þetta viðtal var samt bjánalegt...
Garðar Valur Hallfreðsson, 31.7.2008 kl. 17:27
Ég get hreinlega ekki verið sammála þér Stefán í þessu máli. Mér þótti stjórnandi þáttarins fara algjöru offari í viðtalinu og reyndar þótti mér Ólafur F. koma með athugasemd í þáttinn sem var löngu tímabær sérstaklega þegar þessi tiltekni stjórnandi er við völd. Hann var ekki eingöngu dónalegur heldur sýndi hann afspyrnu lélega fréttamennsku. Því eitt er að vera ákveðinn fréttamaður með fastar/beittar spurningar eða vera dónalegur við viðmælendur sína með því að grípa stöðugt frammí. Þennan hátt hefur þessi stjórnandi haft all oft sérstaklega þegar pólitískir gestir eru í þættinum, hugsanlega kann það að skýrast af þeirri pólitísku sín sem stjórnandinn hefur sjálfur, án þess þó að ég vilji fullyrða nokkuð um það.
Ég skrifaði færslu um þetta mál og hana má sjá hér.
Óttarr Makuch, 31.7.2008 kl. 18:17
Það er greinilega misjafnt hvernig fólk leggur mat á vel unnin störf. Að mínu mati þá er sá spyrill sem gefur ekki viðmælendum sínum kost á því að svara spurningum ekki góður spyrill. Það væri annað ef viðmælandinn svaraði engu en svo var ekki reyndin í gær.
Ég er hinsvegar ekki sammála þér að sá sem gefur kost á sér í opinbert embætti eigi að láta dónaskap og vanvirðingu yfir sig ganga. Hinsvegar er ég sammála þér að fólk í opinberum embættum eiga klárlega að svara þeim spurningum sem fyrir það er lagt og er síður en svo ekki hafið yfir gagnrýni.
Óttarr Makuch, 31.7.2008 kl. 19:02
Ólafur er mjög veiklulegur stjórnmálamaður og ekki bógur til mikilla verka. Skömm sjálfstæðismanna fyrir að treysta honum til borgarstjórastarfa verður lengi í minnum haft. Þetta á aðeins eftir að versna fyrir þeim.
Hitt er svo annað að Helgi var full dónalegur við Ólaf og kynti undir hann með hroka sínum. Helgi og Stebbi eru náfrændur svo ég skil vel að hann verji hann. Þeir frændur eru þó ansi líkir í skapi held ég.
Magnús (IP-tala skráð) 31.7.2008 kl. 19:06
Hanna getur asni lítið gert með ólaf meðan óskar/dagur/svandis kjósa að vera læst inni í klefa.
Kanski hefur Ármann Jakobsson eitthvað til síns máls - hann er a.m.k búinn að opna á ákveðin möguleika -
Óðinn Þórisson, 31.7.2008 kl. 20:59
Ég get klárlega tekið undir brekkusöngvarann, hann ætti að leggja annað fyrir sig en að syngja. Við erum þá allavega sammála um það Hlynur
Óttarr Makuch, 31.7.2008 kl. 21:02
Þessi Helgi Seljan ætti nú að vinna við eitthvað annað. "Forvitniskastljósið" er byggt á orðaleikjum og bulli sem er ekki sæmandi að hafa í sjónvarpi. Ólafur Borgarstjóri sem ég hef reyndar aldrei haft neina sérstaka tru á áður, kemur út þarna sem ótrúlega þolinmóður maður gagnvart sjónvarpsspyrli sem veit hvorki út eða inn.
Fréttamenn yfirleitt halda að þeir getir spurt "já og nei" spurningar hvenær sem þeim sýnist. Þvílíkt viðtal. Tek hattinn ofan fyrir Ólafi Borgarstjóra.
Leiðinlegt þegar spyrill breytir sér í trúð, til að þjóna forvitnisspurningum sem engum kemur við...enn hvað er ekki gert til að svala þorsta "forvitnisbullanna" sem leika lausum hala og hafa mikil áhrif á fréttaval fjölmiðla.
Kastljós þarf að skipta um ákveðin mannskap...af allt öðrum ástæðum enn vegna þessa viðtals. Það ættu allir að vita..
Óskar Arnórsson, 1.8.2008 kl. 07:44
Mér þykir Kastljós vera svona frekar illa hannaður þáttur. Þetta eru eiginlega ekki fréttamenn, heldur svona einhverjir menningarvitar sem velja sér málefni með frekar handahófskenndum hætti.
Hvað menningarhluta þáttarins varðar, jú gítarspilandi og syngjandi áttræðar tvíburasystur ofan af Skaga, Didda Pönk, nú og allt sem vekur undrun fólks virðist vera sértaklega á áhugasviði þáttastjórnenda. Þetta minnir stundum á þá tegund af sirkus sem bönnuð var með öllu á sínum tíma. Þá var það tröllið, minnsta kona í heimi, og ófreskjan. Ekki beint my cup of tee.
Ég held að Ólafur F. Magnússon ætti bara að taka aðferð Davíðs Oddsonar á fréttamenn í bili og láta þá væla út viðtölin. Þá eru þeir orðnir þægir og fínir þegar hann loksins mætir. Hann þarf ekkert að fara í fleiri viðtöl í bili, bara að einbeita sér að vinnu sinni sem hann er að skila af sér með prýði.
Það er búið að koma illa fram við þennan mann, gera grín að honum fyrir andleg veikindi, það er ljótt, og sendir það öllum þeim fjölda fólks sem glímir við andleg veikindi miður falleg skilaboð.
Ólafur Borgarstjóri er hetja.
sandkassi (IP-tala skráð) 1.8.2008 kl. 13:24
Bíddu afhverju eiga þeir að sýna stjórnmálamönnum meiri virðingu en öðrum?
Nanna Katrín Kristjánsdóttir, 1.8.2008 kl. 17:08
það á bara að sýna fólki almennt virðingu. Mér persónulega hefði fundist athyglisvert að fá skýr svör frá Ólafi. En hann fékk ekki tækifæri til þess að svara.
sandkassi (IP-tala skráð) 1.8.2008 kl. 19:34
Ég styð Helga Seljan. Hann er ákveðinn og góður spyrill. Krefur svara og gefur ekkert eftir. Þessi borgarstjóri er auðvitað ekki með öllu mjalla.
Það er ekkert lýðræði í því að einhver siðblindur pólítikus með nokkur hundruð atkvæði á bak við sig geti haldið borginni í gíslingu með stuðningi nokkurra valdagráðugra spjátrunga. Ég sé engan stóran mun á Ólafi F og Árna J.
Báðir eru þetta siðblindir pólitíkusar sem sitja í valdastöðu á vafasömum forsendum.
Báðir ættu að hafa vit á því að taka pokana sína og finna sér störf við hæfi.
Kjartan Sæmundsson, 1.8.2008 kl. 23:37
ja, tölum um lýðræði. Sjálfstæðisflokkurinn fékk mjög afgerandi umboð til þess að fara með stjórnartaumana í borginni í síðustu kosningum.
Það er ekki mjög lýðræðislegt að vilja ekki kannast við það.
sandkassi (IP-tala skráð) 2.8.2008 kl. 00:17
Hvað er að því að stjórnmálamenn svari fyrir sig. Hér á landi virðist það vera einhver lenska að stjórnmálamenn fái að nota fjölmiðla til að auglýsa sig í stað þess að svara fyrir sig. Helgi spurði, Ólafur svaraði ekki og Helgi spurði aftur hvað er að því. Ég hef marg oft horft á viðtöl við stjórnmálamenn þar sem þeir komast upp með hvað sem er, snúa út úr og svara ekki spurningum. Finnst alveg tímabært að einhver taki almennilega á þeim.
Adam (IP-tala skráð) 2.8.2008 kl. 21:34
Helgi Seljan þrástagaðist á þeirri röngu fullyrðingu sinni að það væri einsdæmi að skipta út fólki í nefndum. Þegar Ólafur leiðrétti hann lét hann það sem vind um eyru þjóta og hagaði sér eins og vindhani.
Sigurður Þórðarson, 2.8.2008 kl. 22:11
Afspyrnu lélegur og leiðinlegur spyrill. Skipti hreinlega um stöð þegar hann birtist svo ég varð að kíkja á þennan þátt á netinu og hann stóð undir væntingum eða þannig.
Þórhildur (IP-tala skráð) 2.8.2008 kl. 22:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.