1.8.2008 | 01:51
Alvarleg atlaga Þórunnar að íbúum á Norðurlandi
Ákvörðun Þórunnar Sveinbjarnardóttur, lélegasta ráðherrans í ríkisstjórninni, um Bakkaálver í dag er bein atlaga að Norðurlandi og hagsmunum þess. Þar er vegið að fólki hér með mjög grófum hætti, svo alvarlegum að ekki er hægt að þaga. Verði þetta stefna ríkisstjórnarinnar í málum hér er svo komið að rétt er að láta af stuðningi við hana algjörlega. Ekki verður við þetta ástand unað að óbreyttu.
Svo er nú komið að Sjálfstæðisflokkurinn verður að meta það hvort hægt sé að styðja þessa ráðherraónefnu sem Þórunn Sveinbjarnardóttir er. Mér finnst eðlilegt að spyrja sig að því og fá svör í leiðinni hver stefna Samfylkingarinnar í þessum málum er. Ætlar flokkurinn að styðja álver við Bakka eða vinna gegn því með svo áberandi hætti og raunin er í dag? Sjálfstæðisflokkurinn tekur fulla ábyrgð ella á þessu rugli.
Ég hef orðið fyrir mjög miklum vonbrigðum með hálfvelgjuna sem kemur frá þessari ríkisstjórn, einkum í málum Bakkaálvers. Ákvörðun iðnaðarráðherrans fyrir nokkrum vikum og nú umhverfisráðherrans er atlaga að fólki hér. Eðlilega er velt fyrir sér hvort að þingmenn stjórnarflokkanna hér í kjördæminu séu áhrifalausir í þessum málum. Er virkilega ekkert hægt að gera til að snúa þessum málum við til betri vegar?
Mér finnst sífellt meira áberandi að þessi ríkisstjórn hefur enga heildstæða stefnu í lykilmálum. Blaðrað er í báðar áttir og hálfvelgjan er algjör. Nú er kominn tími til að einhver segi stopp og spurt sé að því hvort eigi að keyra til hægri eða vinstri. Það er erfitt að gera bæði í sama bíltúr, nema leggja eigi upp á tveim bílum, bláum og rauðum.
Hingað og ekki lengra í ruglinu, takk fyrir. En mikið vorkenni ég Samfylkingarmönnum í Þingeyjarsýslum núna. Þeir hljóta að vera sárir í dag. En ég vona að þeir beri harm sinn ekki í hljóði.
Undirbúningur skemmra kominn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:58 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Síðuritari
Ég er í fáum orðum sagt: bjartsýnn, jákvæður, áhugamaður um pólitík, sjálfstæður, kaldhæðinn, skapheitur, kvikmyndafrík, bókaormur, Akureyringur, tónlistarspekúlant og Brekkusnigill. Netfang (MSN): stebbifr@simnet.is
Nýjustu færslur
- Gert upp við úrslit kosninga á Akureyri
- Afgerandi umboð Boris - pólitískar áskoranir nýs leiðtoga
- Boris Johnson og Jeremy Hunt berjast um Downingstræti 10
- Boris með fullnaðartök í leiðtogakjöri Íhaldsflokksins
- Boris hálfnaður í mark - ráðherraslagur um sæti í einvíginu
- Aukin spenna í einvíginu um Downingstræti 10
- Boris Johnson á sigurbraut
- Sögulegur sigur hjá Trump - áfall fyrir demókrata
- Boris í lykilráðuneyti - klókindi hjá Theresu May
- Kvennabylgja fylgir Theresu May í Downingstræti 10
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Bloggvinir
- Adda bloggar
- Adda Laufey
- Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
- Aðalheiður Ámundadóttir
- Agnar Freyr Helgason
- Agný
- Alfreð Símonarson
- Alma Guðmundsdóttir og Freyja Haraldsdóttir
- Anna
- Anna Benkovic Mikaelsdóttir
- Anna Kristinsdóttir
- Anna Steinunn Þengilsdóttir
- Anton Þór Harðarson
- Arnljótur Bjarki Bergsson
- Atli Fannar Bjarkason
- Atli Fannar Ólafsson
- Auðbergur Daníel Gíslason
- Auðun Gíslason
- Auður Björk Guðmundsdóttir
- Axel Jóhann Axelsson
- Ágúst Bogason
- Ágúst Dalkvist
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Ármann Kr. Ólafsson
- Árni Árnason
- Árni Helgason
- Árni Matthíasson
- Árni Torfason
- Árni Þór Sigurðsson
- Ásdís Rán
- Ásgeir Guðmundsson
- Ásgerður Jóna Flosadóttir
- Ásta Möller
- Baldur Hermannsson
- Baldur Kristjánsson
- Baldur Smári Einarsson
- Baldvin Jónsson
- Barði Bárðarson
- Bárður Ingi Helgason
- Bergur Thorberg
- Bergur Þorri Benjamínsson
- Bessí Jóhannsdóttir
- Birgir Ármannsson
- Birgir Leifur Hafþórsson
- Birgir R.
- Birgir Örn Birgisson
- Birgir Örn Birgisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Birna Steingrímsdóttir
- Bjarni Benedikt Gunnarsson
- Bjarni Harðarson
- Bjarni Kjartansson
- Bjarni Kristjánsson
- Bjartmar Oddur Þ Alexandersson
- Björgvin Þóroddsson
- Björk Vilhelmsdóttir
- Björn Emilsson
- Björn Kr. Bragason
- Björn Magnús Stefánsson
- Bleika Eldingin
- Blog-andinn Eyvar
- Borgar Þór Einarsson
- Bókaútgáfan Hólar
- Braskarinn
- Breki Logason
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Bryndís Haraldsdóttir
- Bryndís Helgadóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Brynjar Davíðsson
- Brynja skordal
- Bumba
- Bwahahaha...
- Böðvar Sturluson
- Carl Jóhann Granz
- Daði Einarsson
- Dagný
- Daníel Sigurður Eðvaldsson
- Davíð
- Davíð Jóhannsson
- Davíð Þór Kristjánsson
- Deiglan.com - Vefrit um þjóðmál
- DÓNAS
- Dóra litla
- Dunni
- Dögg Pálsdóttir
- Egill Bjarnason
- Egill Rúnar Sigurðsson
- Eiður Svanberg Guðnason
- Einar B Bragason
- Einar Bragi Bragason.
- Einar Helgi Aðalbjörnsson
- Einar Kristinn Guðfinnsson
- Einar Sigurjón Oddsson
- Einar Örn Gíslason
- Einhver Ágúst
- Eiríkur Sjóberg
- Elfur Logadóttir
- Elinóra Inga Sigurðardóttir
- Elín Katrín Rúnarsdóttir.
- Elliði Vignisson
- Ellý Ármannsdóttir
- Elmar Geir Unnsteinsson
- Emma Agneta Björgvinsdóttir
- E.Ólafsson
- Erla Margrét Gunnarsdóttir
- Erla Ósk Arnardóttir Lilliendahl
- Erla Ósk Ásgeirsdóttir
- Erna Friðriksdóttir
- Erna Hákonardóttir Pomrenke
- ESB
- Ester Júlía
- Ester Sveinbjarnardóttir
- Eygló Sara
- Eygló Þóra Harðardóttir
- Eyjólfur Kristinn Vilhjálmsson
- Eyþór Árnason
- Eyþór Ingi Jónsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Fannar frá Rifi
- Fannar Gunnarsson
- Fararstjórinn
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Fishandchips
- FreedomFries
- Freyr Árnason
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Friðrik Óttar Friðriksson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Fræðingur
- Gaukur Úlfarsson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Gerald Häsler
- Gestur Guðjónsson
- Gils N. Eggerz
- Gísli Aðalsteinsson
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Gísli Birgir Ómarsson
- Gísli Blöndal
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Gísli Sigurðsson
- Gísli Steinar Jóhannesson
- Gísli Tryggvason
- Grazyna María Okuniewska
- Grímur Gíslason
- gudni.is
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- Guðfinna S. Bjarnadóttir
- Guðfinnur Sveinsson
- Guðjón Baldursson
- Guðjón Helmut Kerchner
- Guðmundur Auðunsson
- Guðmundur Ásgeirsson
- Guðmundur Gunnlaugsson
- Guðmundur H. Bragason
- Guðmundur Helgi Helgason
- Guðmundur Jóhannsson
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Guðmundur Magnússon
- Guðmundur Pálsson
- Guðmundur Rafnkell Gíslason
- Guðmundur Ragnar Björnsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Guðmundur St Ragnarsson
- Guðmundur Örn Jónsson
- Guðný Jóhannesdóttir
- Guðrún Magnea Helgadóttir
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Guðrún Una Jónsdóttir
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Gunnar Axel Axelsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Gunnar Freyr Steinsson
- Gunnar Gunnarsson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Gunnar R. Jónsson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Gunnsteinn Þórisson
- Gylfi Björgvinsson
- Gylfi Þór Þórisson
- Götusmiðjan
- HAKMO
- Halla Gunnarsdóttir
- Halldóra Hjaltadóttir
- Halldór Baldursson
- Halldór Borgþórsson
- Hallgrímur Óli Helgason
- Handtöskuserían
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Hannes Sigurbjörn Jónsson
- Hannibal Garcia Lorca
- Haraldur Haraldsson
- Haraldur Huginn Guðmundsson
- Haraldur Pálsson
- Haukur Kristinsson
- Haukur Már Helgason
- Haukur Nikulásson
- Hákon Unnar Seljan Jóhannsson
- Heidi Strand
- Heiða
- Heiða Þórðar
- Heiðrún Lind
- Heimir Hannesson
- Heimir Lárusson Fjeldsted
- Heimskyr
- Heimssýn
- Helga Dóra
- Helga Lára Haarde
- Helga Nanna Guðmundsdóttir
- Helga skjol
- Helgi Jóhann Hauksson
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Helgi Már Barðason
- Helgi Seljan
- Helgi Vilberg
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Hersir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Hilmar Dúi Björgvinsson
- Himmalingur
- Hjörleifur Guttormsson
- Hlini Melsteð Jóngeirsson
- Hlynur Hallsson
- Hlynur Kristjánsson
- Hlynur Sigurðsson
- Hlöðver Ingi Gunnarsson
- Hommalega Kvennagullið
- Hrafn Jökulsson
- Hrannar Baldursson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hreiðar Eiríksson
- Hugrún Jónsdóttir
- Hugsanir
- Hulda Haraldsdóttir
- Huld S. Ringsted
- Hægrimenn í Menntaskólanum á Akureyri
- Icelandic fire sale
- Inga Dagný Eydal
- Inga Lára Helgadóttir
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Ingi Björn Sigurðsson
- Ingi Þór Ágústsson
- Ingólfur Ásgeir Jóhannesson
- Ingólfur Gíslason
- Ingólfur H Þorleifsson
- Ingólfur Þór Guðmundsson
- Ingvi Hrafn Jónsson
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Íslendingur
- Ívar Jón Arnarson
- Jakob Falur Kristinsson
- JEA
- Jens Guð
- Jens Sigurjónsson
- Jóhann Alfreð Kristinsson
- Jóhann Ágúst Hansen
- Jóhannes Þór Skúlason
- Jóhann Hauksson
- Jóhann Kristjánsson
- Jóhann Waage
- Jóhann Þorsteinsson
- Jón Agnar Ólason
- Jónas Björgvin Antonsson
- Jónas Jónasson
- Jónas Tryggvi Jóhannsson
- Jón Axel Ólafsson
- Jón Baldur Lorange
- Jón Gerald Sullenberger
- Jón Hjörleifur Stefánsson
- Jón Ingi Cæsarsson
- Jón Ingi Stefánsson
- Jónína Benediktsdóttir
- Jón Lárusson
- Jón Magnússon
- Jón Ragnar Björnsson
- Jón Sigurðsson
- Jón Sigurgeirsson
- Jón Svavarsson
- Jón Valur Jensson
- Jón Þór Ólafsson
- Jórunn Ósk Frímannsdóttir
- jósep sigurðsson
- Júlíus Garðar Júlíusson
- Júlíus Sigurþórsson
- Júlíus Valsson
- Kafteinninn
- Karl Gauti Hjaltason
- Katrín Anna Guðmundsdóttir
- Kári Finnsson
- Kári Sölmundarson
- Kári Tryggvason
- Ketilás
- Killer Joe
- Kjartan Magnússon
- Kjartan Pálmarsson
- Kjartan Vídó
- Kolbrún Baldursdóttir
- Kolbrún Gígja Gunnarsdóttir
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Kristinn Ágúst Friðfinnsson
- Kristinn Ingi Jónsson
- Kristin stjórnmálasamtök
- Kristín Björg Þorsteinsdóttir
- Kristín Einarsdóttir
- Kristín Erla Kristjánsdóttir
- Kristín Hrefna
- Kristján Freyr Halldórsson
- Kristján Hreinsson
- Kristján L. Möller
- Kristján Pétursson
- Kristján P. Gudmundsson
- Kristlaug M Sigurðardóttir
- Krummi
- Lára Stefánsdóttir
- Leikhópurinn Lotta
- Lilja G. Bolladóttir
- Lilja Ingimundardóttir
- Listasumar á Akureyri
- Lísa Björk Ingólfsdóttir
- Logi Már Einarsson
- Maður dagsins
- Magnús Paul Korntop
- Magnús Þorlákur Lúðviksson
- Margrét Birna Auðunsdóttir
- Margrét Elín Arnarsdóttir
- Margrét Sverrisdóttir
- Marinó Már Marinósson
- María Anna P Kristjánsdóttir
- María Guðjóns
- María Magnúsdóttir
- MARKAÐSSETNING Á NETINU
- Marta Guðjónsdóttir
- Matthias Freyr Matthiasson
- Mál 214
- Methúsalem Þórisson
- MIS
- Morgunblaðið
- Móðir, kona, sporðdreki:)
- Myndlistarfélagið
- Nanna Katrín Kristjánsdóttir
- Námsmaður bloggar
- Oddur Helgi Halldórsson
- Óðinn
- Óðinn Þórisson
- Ólaf de Fleur Jóhannesson
- Ólafur fannberg
- Ólafur N. Sigurðsson
- Ólafur Th Skúlason
- Ólafur Valgeirsson
- Ólafur Þór Gunnarsson
- Ólafur Örn Nielsen
- Óli Sveinbjörnss
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Ólöf Jóhanna Pálsdóttir
- Ólöf Kristín og Ólöf Rut
- Ólöf Nordal
- Ómar Pétursson
- Ómar Ragnarsson
- Ómar Örn Hauksson
- Óskar Sigurðsson
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Óskar Örn Guðbrandsson
- Óttar Felix Hauksson
- Óttarr Makuch
- Óþekki embættismaðurinn
- Panama.is - veftímarit
- Paul Nikolov
- Pálína Erna Ásgeirsdóttir
- Páll Heimisson
- Páll Ingi Kvaran
- Páll Kristbjörnsson
- Páll Rúnar Elíson
- Páll Sævar Guðjónsson
- Páll Vilhjálmsson
- Pálmi Freyr Óskarsson
- Pálmi Gunnarsson
- peyverjar
- Pétur Björgvin
- Pétur Sig
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Pjetur Stefánsson
- Pollurinn
- Púkinn
- Rafn Gíslason
- Ragnar Arnalds
- Ragnar Bjarnason
- Ragnar Ólason
- Ragnar Páll Ólafsson
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Ragnheiður Ólafía Davíðsdóttir
- Ragnheiður Ríkharðsdóttir
- Ragnhildur Sverrisdóttir
- Reynir Antonsson
- Reynir Jóhannesson
- Róbert Þórhallsson
- Ruth
- Rúnar Birgir Gíslason
- Rúnar Haukur Ingimarsson
- Rúnar Óli Bjarnason
- Rúnar Þórarinsson
- Rýnir
- Samtök Fullveldissinna
- Saumakonan
- Señorita
- Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
- Sigfús Sigurþórsson.
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Sigmar Guðmundsson
- Sigríður Gísladóttir
- Sigríður Hrönn Elíasdóttir
- Sigurbjörn Svavarsson
- Sigurður Á. Friðþjófsson
- Sigurður Ingi Jónsson
- Sigurður Jónsson
- Sigurður Kári Kristjánsson
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Þórðarson
- Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
- Sigurjón Benediktsson
- Sigurjón Sveinsson
- Sigurjón Þórðarson
- Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
- Sigvaldi Kaldalóns
- Sindri Kristjánsson
- Sjálfstæðissinnar
- Sjensinn Bensinn
- Skafti Elíasson
- Snorri Bergz
- Snorri Sigurðsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Stefanía
- Stefanía Sigurðardóttir
- Stefán Jón Hafstein
- Stefán Þór Helgason
- Stefán Þórsson
- Stefán Örn Viðarsson
- Steingrímur Helgason
- Steini Bjarna
- Steinn E. Sigurðarson
- Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir
- Stjórn Eyverja
- Sunna Dóra Möller
- Svala Jónsdóttir
- Svanur Kári Daníelsson
- Svanur Sigurbjörnsson
- Svavar Alfreð Jónsson
- Sveinn Arnarsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Sveinn Ingi Lýðsson
- Sveinn Tryggvason
- Sverrir Einarsson
- Sverrir Stormsker
- Sverrir Þorleifsson
- Sverrir Þór Garðarsson
- Sædís Ósk Harðardóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Sævar Finnbogason
- Sæþór Helgi Jensson
- TARA
- Thelma Ásdísardóttir
- Theodór Bender
- ThoR-E
- Tiger
- Tíðarandinn.is
- TómasHa
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Trúnó
- Tryggvi F. Elínarson
- Tryggvi Gíslason
- Tryggvi H.
- Unnur Brá Konráðsdóttir
- Úlfur
- Vaka, félag lýðræðissinnaðra stúdenta
- valdi
- Valdimar H Jóhannesson
- Valgeir Ómar Jónsson
- Valsarinn
- Varðhundar frelsisins
- Varmársamtökin
- Vefritid
- Vestfirðir
- viddi
- Viðar Freyr Guðmundsson
- Viktor Borgar Kjartansson
- Viktoría Rán Ólafsdóttir
- Vilborg G. Hansen
- Vilborg Valgarðsdóttir
- Vilhjálmur Árnason
- Vilhjálmur Sveinn Björnsson
- Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson
- Vinir Ítalíu,VITA
- Vinir Ketils bónda, áhugamannafélag
- VÞV
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Þjóðleikhúsið
- Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir
- Þorleifur Ágústsson
- Þorleifur Leó Ananíasson
- Þorsteinn Erlingsson yngri
- Þorsteinn Gunnarsson
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Þorsteinn Magnússon
- Þóra Guðmundsdóttir
- Þóra Kristín Hauksdóttir
- Þórarinn Eldjárn
- Þórður Björn Sigurðsson
- Þórður Steinn Guðmunds
- Þórður Vilberg Guðmundsson
- Þórir Aðalsteinsson
- Þórólfur Ingvarsson
- Þórólfur S. Finnsson
- Þráinn Árni Baldvinsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Ævar Rafn Kjartansson
- Öll lífsins gæði?
- Örlygur Hnefill Örlygsson
- Örvar Már Marteinsson
Athugasemdir
Það að álver á Bakka sé einkamál íbúa á Norðurlandi er einstaklega merkileg afstaða sem tekin er í þessari færslu. Þessi ráðherra var ekki kosinn á þing til þess að sjá til þess að Húsvíkingar fengju að byggja álver.
Það er hlægilegt, hlægilegt (raunar sorglegt, en ég hlæ nú samt) hvað lansbyggðarfólki hefur tekist að snúa uppá handlegginn á stjórnmálamönnum með aumingjaskap og vælukjóahætti.
Hvernig væri að þið mynduð taka ykkur saman í andlitinu og vinna fyrir ykkur á eigin forsendum frekar en að heimta að landinu okkar sé fórnað til að nokkrir atvinnuleysingjar á krummaskuðum fái vinnu í álveri.
Sjálfsbjargarhvötin virðist vera algerlega horfin á landsbyggðinni á Íslandi, kannski vegna þess að allir sem hafa eitthvað vit í kollinum eru fyrir löngu búnir að fá nóg af moldbúahættinum sem einkennir svo mörg landsbyggðarpláss og fluttir suður (komnir á þing t.d. gegn því að lofa öllu fögru í héraði)
En sá hroki að halda því fram að ráðherra sé ónýtur sem tekur ekki hagsmuni Húsavíkur fram yfir hagsmuni allrar þjóðarinnar.
Sveiattan segi ég nú bara og megi álver aldrei rísa á Norðurlandi, börnin þín og börnin þeirra munu fagna því að eiga fagurt land frekar en álver.
Snorri Sturluson
Los Angeles, CA
Snorri Sturluson, 1.8.2008 kl. 04:44
Framsóknarflokkurinn fyrir norðan er án efa til í að taka við þér sem pólitískum flóttamanni!
Friðrik Jónsson (IP-tala skráð) 1.8.2008 kl. 08:38
Að senda álverið í umhverfismat er ekki að vinna gegn því. Eftir því sem mér sýnist er enginn að stoppa neitt. Það er sjálfsagður hlutur að skoða hvað svona framkvæmdir munu hafa í för með sér.
Yfirleitt ertu málefnalegur, en mér finnst þú vera með óþarfa skítkast í þessari færslu. Ég hefði átt von á því frá öðrum, en ekki þér.
Villi Asgeirsson, 1.8.2008 kl. 08:53
Það er ljóst á þessum greinarstúfi að þú veist ekki mikið um umhverfismat og tilganginn með því Stebbi minn.
Jón Ingi Cæsarsson, 1.8.2008 kl. 08:56
Stefán.
Það er nefnilega svo, að ég varð fyrir vonbrigðum með úrskurð hennar í þessu máli.
Hefði hann verið öðruvísi, hefðu menn auðvitað farið í dómsmál vegna Bitru og Hellisheiðar.
Ef ráðherra hefði úrskurðað þannig að þessar framkvæmdir þyrftu EKKI að fara í umhverfismat, hefði verið brotið gróflega á Sunnlendingum og Reyknesingum, mjög gróflega.
Nú þarf ekki að fara í Vaðlaheiðagöng og er það vel, þar sem ekki verða þá skemmdir á skóglendi austanmegin. Það þótti mér furðulegt, að opinberar stofnanir ætluðu að leyfa það en snerust gegn lagningu stígs í MANNGERÐUM skógi í Heiðmörk.
Við verðum að krefjast þess, að allir séu JAFNIR fyrir lögum og opinberri stjórnsýslu.
Þið þarna við Eyjafjörð eruð svo fljótir að fara í,,ÉG STYÐ EKKI ÞESSA RÍKISSTJÓRN EF ÉG FÆ EKKI......HÉÐINSFJARÐAGÖNG, VAÐLAHEIÐAGÖNG LENGINGU FLUGVALLAR OG AÐ VIRKJA EINS OG MÉR SÝNIST" gírinn.
Svo eruð þið einnig svo frekir, að þið viljið ráða skipulagi Rvíkur. Skamm SKamm.
Ykkur er slétt sama hvort menn á Reykjanesi fái eða ekki.
Samræmi í málflutningi. Muna það minn kæri
Annars
gleðilega hátíð Verslunarmanna, líklega eina hátíð stétta, sem verða að VINNA sinn,,Frídag"..
Miðbæjaríhaldið
Bjarni Kjartansson, 1.8.2008 kl. 09:38
Ég efast um að kratar í Þingeyjarsýslu, eða á norðurlandi hafi yfirleitt sofið nokkuð í nótt ! Nú er kominn tími til að Geir og félagar fari að íhuga stjórnarsamstarfið.
Ég held að þeir ættu að skipta samfylkingunni útaf og setja B og F inná í staðinn. Samfylkingin hefur staðið undir væntingum mínum sem algjörlega ómögulegt stjórnmálaafl. Ráðherrar þeirra tala út og suður og engar lausnir hafa þeir aðrar en ESB.
Skákfélagið Goðinn, 1.8.2008 kl. 09:46
Skrítinn pistill hjá þér Stebbi,
Af orðalaginu mætti ráða að Húsavík væri sliguð af 20% atvinnuleysi, en mér er til efs að þar finnist 20 atvinnulausir einstaklingar, vinnufærir og viljugir til vinnu.
Það er nákvæmlega ekkert við aðgerðir umhverfisráðherra að athuga.
Ef Húsvíkingar eru að láta sig dreyma um að stækka plássið með aðfluttu starfsfólki til að manna álver, þá langar mig að spyrja hvort þú teljir það réttlætanlega ráðstöfun á ríkisfé?
Sigurður Ingi Jónsson, 1.8.2008 kl. 13:15
Hroðaleg ákvörðun Þórunnar Sveinbjarnardóttir veikasta hlekksins í keðjunni ætti að auðvelda Ingibjörgu að taka ákvörðun um breytingu á ráðherraliðinu hjá sér.
Sf verður að koma skikk á sín mál ellegar verður Sjálfstæðisflokkurinn að skipa um samstarfsaðila.
Jón Gunnarsson og Kristjáns Þór eru núþegar búnir að tjá ánægju sína með þessa ákvörðun og fleiri þingmenn Sjálfstæðisflokksins eiga eftir að gera það sama.
Sjálfstæðismenn geta ekki samþykkt þetta.
Óðinn Þórisson, 1.8.2008 kl. 13:46
Hrikalega er hann hrokafullur í garð landsbyggðafólk þessi gaur þarna í LA. Þetta lýsir því bara hversu þröngsýnn hann er þetta borgarbarn sem hefur ekki hundsvit á málefnum landsbyggðarinnar og hefur aldrei komið þangað. Hann talar svo mikið niður til fólks á landsbyggðinni að hann er örugglega óvinur fólks þar nr. 1. Ég er viss um að það eru margir úti á landi sem hugsa sem svo að best væri taka hann og setja í poka, binda fyrir og henda honum í sjóinn.
Ekki er hann betri þessi Sigurður Ingi Jónsson. Hefur lítinn skilning né vit á hugtakinu atvinnulíf og tölfræði. Afhverju eru bara 20 atvinnulausir á Húsavík? Jú, það er af því að ekki er næga vinnu að fá þar og því flýr fólk þaðan til Höfuðborgarsvæðið því þar er næg atvinna og öll bestu störfin á landinu, enda er stefnan sú að öll bitastæð störf skulu vera þar. Þetta er líka stefna stjórnvalda, t.d. að öll gagnaver og netþjónabú eigi að rísa þar, álver í Helguvík fór ljúflega í gegnum kerfið og enginn mótmælti því fyrir utan trúðana í Saving Iceland.
Það er einskonar "þjóðarsátt" um það hér á landi að allt eigi að vera á Suð-Vesturhorninu, þess vegna þrífst engin starfsemi úti á landi, þó svo að fólk sé að reyna að klóra í bakkan þar af veikum mætti, bankar vilja ekki lána fé í verkefni og atvinnuuppbyggingu þar.
Þórólfur A. Ólafsson (IP-tala skráð) 1.8.2008 kl. 14:32
Það er ekki bara verið að tala um að álverið fari í umhverfismar eins og mér virðist sumir halda..... heldur allar framkvæmdirnar í sameiginlegt umhverfismat og það hefur aldrei verið gert áður......
Ég held að þetta muni hafa áhrif innan ríkisstjórnarinnar þó svo að Geir hafi ekki viljað viðurkenna það.
Stefán Stefánsson, 1.8.2008 kl. 14:40
Það borgar sig ekki að vera svona stóryrtur Stebbi. Mér finnst reyndar merkilegt hvað þú ert á móti umhverfisráðherra, eins og hún hafi stigið á skoðanatær þér daglega. Menn skrifa hér á síðunni eins og það sé búið að blása af virkjun á Bakka. Umhverfismat er ekkert vont mál og tefur ekki virkjunarferilinn. Er ekki lágmark að menn viti hvað umhverfismat er áður en slegið er á lyklaborðið? Orkurannsóknir eru ekki komnar langt og hér er verið að fara formlega leið sem hvort sem er hver og einn hefði geta krafist. ÞAÐ hefði tafið framkvæmdir en hér er um einfalda stjórnsýsluákvörðun að ræða. Skrápurinn er orðinn ansi þunnur ef það jaðrar við stjórnarslitum. Framsóknarmenn æfir líka. Það má gúgla orðið umhverfismat og þá skilja menn þetta betur og verða ekki svona æstir.
Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 1.8.2008 kl. 15:02
Þetta er engin atlaga að norðurlandi! Það er alveg jafn líklegt að þetta umhverfismat muni flýta fyrir þessum framkvæmdum eins og að tefja þær - eitt heilrænt umhverfismat í stað margra smárra þýðir ekkert meira umfang - heldur aðeins að þær verða framkvæmdar allar á sama tíma, og settar í forgang hjá ráðuneytinu.
Jónas Tryggvi Jóhannsson, 1.8.2008 kl. 16:29
Þórólfur A. Ólafsson hefur mig ásamt öðrum á hornum sér í þessum athugasemdaþræði. Mér er borið á bigsl að skorta bæði vit og skilning. Hér er því innlegg í umræðuna. Bið ég Þórólf endilega að upplýsa ef ég er að misskilja þessi gögn eitthvað.
Samkvæmt Hagstofu Íslands þá var íbúafjöldi Húsavíkur 2.491 árið 1998 og 2.256 árið 2008 (miðast við 1. janúar hvort ár). Þetta er fækkun um 235 á einum áratug. Ef skoðaður er hinn vinnufæri aldurshópur, 18-65 ára, þá voru 1.451 árið 1998 og 1.375 árið 2008. Þarna munar 76 einstaklingum. Það eru sem sagt 76 brottfluttir einstaklingar umfram aðflutta á heilum áratug, sex til átta manns á ári. Mér er ómögulegt að lesa í þetta einhverja bráða þörf fyrir álver til að stemma stigu við "fólksflótta".
Gefum okkur að þessir 76 og hinir 20 að auki, sem ég efast þó um að finnist vinnufærir og vinnufúsir án atvinnu á Húsavík, til samans gerir það 86 manns.
Hvað má eyða miklu af almannafé til að þessir einstaklingar fái stóriðjustörf fyrir norðan?
Sigurður Ingi Jónsson, 1.8.2008 kl. 22:13
Af hverju er verið að ákveða þetta fyrst núna?
Sigurður Þórðarson, 3.8.2008 kl. 01:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.