Virðingarverð aðstoð Pólverja við Íslendinga

Ég virði það mikils við pólsk stjórnvöld að vilja leggja Íslandi lið án þess að beinlínis sé til þeirra leitað. Þetta sýnir traustan vinarhug og góðan samhug með íslensku þjóðinni. Eftir allt neikvæða talið gegn pólsku þjóðinni eru þetta merkileg skilaboð til okkar hér. Ég er eiginlega viss um að Pólverjar hafa hlotið mun traustari sess í huga okkar eftir þessa aðstoð. Færeyingar og Pólverjar mega báðir eiga það að þeir hafa hjálpað okkur án þess að leitað hafi verið eftir framlagi þeirra. Slíkt ber að virða mikils.

mbl.is Geir staðfestir pólska aðstoð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband