Mikilvægt að Viðskiptablaðið muni halda velli

Ég er einn þeirra sem hef haft gaman af að lesa Viðskiptablaðið og fundist það vera mikilvægur fjölmiðill, enda einn af þeim fáu sem eftir eru á markaðnum sem ekki hafa endað í eigu fjölmiðlakóngsins Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, en veldi hans er orðið á Murdoch- og Berlusconi-skala eins og flestum er orðið kunnugt.

Því er það mjög dapurlegt að svo illa horfir með Viðskiptablaðið sem raun ber vitni. Ætla að vona að blaðið nái að halda velli í óbreyttri mynd en muni ekki deyja í þessum efnahagsþrengingum.

mbl.is Hvetur starfsfólk VB til atvinnuleitar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Mér skilst að Viðskiptablaðið hafi verið í eigu fjármálafyrirtækis. Ég efa ekki að það fyrirtæki hafi forðast afskipti af skrifum blaðsins en þetta er samt óheppilegt, svona svipað eins og að bílaumboð ætti eina málgagnið um bíla.

Ómar Ragnarsson, 18.11.2008 kl. 15:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband