Er fálkaorðan embættismannaviðurkenning?

Fálkaorðan Hef aldrei verið mjög hrifinn af fálkaorðunni. Fundist þetta pjatt og hégómi sem ekki er þörf á. Litið jafnan á þetta sem embættismannaviðurkenningu. Annars hefur þó orðunefndin oft komið á óvart og bætt inn hvunndagshetjunum sem eiga virkilega hrós skilið fyrir verk sín. Gott dæmi var þegar að formaður MND-félagsins hlaut orðuna. Fleiri dæmi mætti eflaust nefna, þó að þau séu mun fleiri þar sem maður hefur á tilfinningunni að ævistarf á ríkiskontór sé metið meira en annað.

Var frekar uppreisnarsamur í þessum orðumálum í forsetakosningunum 1996 og vildi leggja allt dæmið niður. En ég var eiginlega djarfari í hugleiðingum um forsetaembættið en ég er sennilega núna og var ekkert alltof hrifinn af þessu orðubákni og öllu í kringum það. Skrifaði þá nokkrar greinar og spurði frambjóðendur út í það þá á fundum. Það var skemmtileg umræða og vissulega nokkuð eftirminnileg. Það var svona sú umræða sem kveikti helst í mér þá.

Það hefur ekki mikið breyst síðan. Þetta er allt í sama fari og eflaust munum við rífast um það hvort að þessi eða hinn verðskuldi orðuna og hverjir þeirra fá þær bara fyrir að mæta í vinnuna á ríkiskontórnum. Þetta er týpísk umræða æ ofan í æ. Ekkert gerist og enginn sem hefur völd vill taka til hendinni og breyta - kannski í von um að fá orðuna sjálfur. Hver veit!

mbl.is Ellefu sæmdir heiðursmerkjum fálkaorðunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lýður Pálsson

Sæll Stefán. Er þér sammála. Orðuna á að spara og ekki veita þeim sem mætt hafa óaðfinnanlega á ríkiskonór alla sína ævi. Oðruna á að veita þeim sem skarað hafa framúr. Af þessum 11menningum sem fengu orðuna í dag sýnist mér í fljótu bragði þeir hafa skarað framúr á einhvern hátt - og hver á sinn hátt. Hvenær afburðabloggari fær Íslensku fálkarorðuna fyrir eljusama þjóðfélagsrýni (best að nefna engin nöfn!) verður tíminn að leiða í ljós. Gleðilegt ár. Kv. Lýður.

Lýður Pálsson, 1.1.2009 kl. 23:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband