Sterk staða Gunnars - verður meirihluta bjargað?

Stóra niðurstaða fulltrúaráðsfundar Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi er hversu gríðarlega sterk staða Gunnars Birgissonar er í flokkskjarnanum. Hann gnæfir þar yfir og augljóst að erfitt verður að ná samstöðu um eftirmann, ef Gunnar víkur ekki sjálfviljugur af stóli, án prófkjörs eða kosningar. Hann hefur reyndar afgerandi stöðu sem forystumaður í bæjarmálunum í Kópavogi sama hversu hefur verið sótt að honum með skýrslum eða árásum andstæðinga hans.

Vandamál Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi er að örlög Gunnars ráðast hjá samstarfsflokknum. Muni Framsóknarflokkurinn gera honum að hætta, eins og útlit var fyrir nær alla síðustu viku, er honum ekki sætt áfram og þá er vandi Sjálfstæðisflokksins að leysa úr því áður en þeir missa atburðarásina úr hendi sér. Fundurinn með leiðtoga Framsóknar er að reyna til þrautar að leysa málið með einhverjum hætti án þess að það verði að velja nýjan leiðtoga.

Nú reynir væntanlega á allan styrkleika og allt afl Gunnars Birgissonar í samningaviðræðum við samstarfsflokk til tveggja áratuga. Ef eitthvað eitt hefur komið í ljós, fyrir utan að nýr leiðtogi er í Framsókn sem þarf að búa sér til stöðu sem hentar kannski ekki Gunnari Birgissyni, er að þreyta er komin í samstarfið. Gunnar Birgisson þarf að berjast fyrir sínu og væntanlega verður það erfiðara en að þjappa Sjálfstæðisflokknum að baki sér.

En nú reynir á hversu sterkt lím heldur saman þessum þaulsetna og árangursríka meirihluta sem hefur ráðið í Kópavogi, allan þann tíma með Gunnar Birgisson sem risann í Kópavogi, allt frá árinu 1990.

mbl.is Falið að ræða við Framsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Þeir ætla að halda í karlinn.... skítt með gjörðir hans... en maður fær hroll þegar menn eins og Gunnar eru mærðir fram og til baka... það er eitthvað alvarlegt og langvarandi að hjá Sjálfstæðismönnum.

Jón Ingi Cæsarsson, 16.6.2009 kl. 00:14

2 identicon

Ég þekkti nokkra af undirverktökum Gunnars á fundinum.

Ólafur Sveinsson (IP-tala skráð) 16.6.2009 kl. 00:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband