21.1.2008 | 00:17
Össur býður Birni Inga í Samfylkinguna
Í lok blóðugrar helgar í Framsóknarflokknum þar sem hnífar hafa verið á lofti í slag hinna fornu félaga Björns Inga Hrafnssonar og Guðjóns Ólafs Jónssonar hefur Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra, nú boðið Birni Inga í Samfylkinguna upp á sitt einsdæmi. Þetta boð vekur sannarlega athygli. Myndi Björn Ingi þiggja það boð yrði hann væntanlega óbreyttur félagi í liðsheild Dags B. Eggertssonar, borgarstjóra, og þyrfti að byrja að plotta sig frá grunni. Ekki tel ég það líklega fléttu í stöðunni sem uppi er.
Mun líklegra er að þetta hafi verið einn leikþáttur eins og Guðjón Ólafur hefur bent á. Eins og komið er fyrir Birni Inga eru valkostirnir að vinna áfram í Framsókn eða ganga viðskiptalífinu á hönd eins og Finnur Ingólfsson og Árni Magnússon, aðrir pólitískir afkomendur Halldórs Ásgrímssonar, gerðu svo eftirminnilega þegar að sól flokksins tók að hníga til viðar. Enn hefur Björn Ingi annars ekki svarað beint ásökunum Guðjóns Ólafs, nema í hálfkveðnum vísum og vælutóni. Ekki mun Björn Ingi endalaust geta flúið flokksfélaga sína með þeim hætti og skýrra svara beðið. Hann svaraði reyndar fréttamanni með SMS-skeyti í dag. Það er í fyrsta skipti í langan tíma sem hann afþakkar að láta ljós sitt skína í viðtali.
Það væri gaman að vita hvernig að Samfylkingarfólk tekur þessu boði Össurar til Björns Inga. Er hann að tala fyrir hönd annarra en sjálfs sín? Svar óskast! Ég man þá tíð að Samfylkingarfólk talaði harkalega gegn Birni Inga, fyrir og á meðan að REI-skandallinn geisaði á hápunkti. Á einni nóttu voru þau þó tilbúin til að gleyma öllu tali um að hann væri gerspilltur og gengu í eina sæng með honum í nýjum vinstrimeirihluta á haustdögum og fóru allt í einu að slá skjaldborg um hann. Það var eftirminnilegur umsnúningur, þó fáir hafi umpólast meira en Bjarni Harðarson, alþingismaður, sem hafði óskað eftir afsögn Björns Inga en koðnaði niður með það.
Framsóknarflokkurinn er illa staddur eftir helgina. Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, grætur krókódílatárum yfir því að lagt sé til Björns Inga og virkaði næstum því sannur með sorrýsvipinn sinn heima á Selfossi í kvöldfréttunum. Hann missir ekki svefn yfir því að frægðarsól Björns Inga hnígi til viðar og hann verði skotspónn í átökum af þessu tagi. Enda var vörn hans fyrir Björn Inga ekki beint sannfærandi. Hún hefði kannski verið það ef ekki væri vitað um undirliggjandi deilur og að jafnvel muni hann hjóla í Guðna á næsta flokksþingi. En formaðurinn er ekki mjög áhyggjufullur yfir hnífaslagnum í Reykjavík.
Það er langt síðan að einn flokkur hefur logað eins glatt í höfuðstaðnum eins og við erum að verða vitni að á þessari blóðugu helgi framsóknarmanna. Þetta eru fjarri því bara átök tveggja manna, þetta er miklu stærra en svo. Þarna eru heilir armar að berjast hatrammlega og sér ekki fyrir endann á því, eflaust er þetta eins og Skaftárhlaup að spretta fram eftir gos í iðrum jarðar um nokkuð skeið.
Það er freistandi að telja að þarna séu örlagarík slagsmál í gangi sem hafi áhrif á heill og hag elsta stjórnmálaflokks landsins, sem þessa dagana minnir þó æ meir á eldgamalt fley án haffærisskírteinis en glæsifleytu fornrar tíðar.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
20.1.2008 | 19:40
Mun Árni Mathiesen verða forstjóri Landsvirkjunar?

Hann kom ekki vel fyrir í Kastljósviðtali í síðustu viku og veikti stöðu sína enn, að mínu mati. Það var honum fjarri því til sóma að ráðast að dómnefndinni með þeim hætti sem þar var gert. Árni hefur verið hundeltur af fjölmiðlamönnum - það var ekki hátt risið á honum er hann var allt að því á flótta niður stigann í Valhöll til að forðast spurningar fréttamanns Stöðvar 2. Það er þó með öllu óvíst hver pólitísk staða hans verði er líða tekur á málið. Það blasir við að umsækjendur um stöðuna munu leita til umboðsmanns Alþingis og niðurstaða mála fjarri því ljós.
Það verður bráðlega hávær umræða um það hver hljóti forstjórastól Friðriks hjá Landsvirkjun. Fyrir áratug, í apríl 1998, hætti Friðrik Sophusson sem ráðherra og var óbreyttur þingmaður um skeið áður en hann var formlega skipaður forstjóri frá og með 1. janúar 1999. Það er alls óvíst hvernig ferlið við valið á eftirmanni Friðriks muni fara fram. Eflaust verður spurt um það hvort að Árni sem fjármálaráðherra geti fengið stólinn, en það breytir ekki því að orðrómur er um þessa fléttu.
Hætti Árni á þingi og verði forstjóri í stað Friðriks myndi Kjartan Ólafsson, alþingismaður, verða leiðtogi Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi en hann færðist upp fyrir Árna Johnsen á framboðslista flokksins, er kjósendur strikuðu hann niður um eitt sæti á listanum. Staða Árna verður væntanlega mikið í umræðunni á næstunni, burtséð frá stöðu málsins, og því hvort hann sé á útleið úr stjórnmálum.
20.1.2008 | 15:09
Guðjón Ólafur gerir upp við Björn Inga
Það var stórmerkilegt að sjá Guðjón Ólaf Jónsson gera upp við Björn Inga Hrafnsson í Silfri Egils nú eftir hádegið. Ummælin um að hann hefði hnífasett í bakinu eftir vinnubrögð borgarfulltrúans í sinn garð í aðdraganda kosninganna 2003 og 2007 vekja athygli og segja allt sem segja þarf um vinslit þeirra og hversu umdeildur Björn Ingi er innan Framsóknarflokksins, ekki bara í Reykjavík heldur á landsvísu. Hann virðist hafa sviðna jörð í kringum sig.
Það er eflaust rétt sem Guðjón Ólafur segir að yfirlýsing Björns Inga í gær er bara einn leikþáttur þar sem reynt er að væla út stuðning og spinna upp undankomuleið til að þurfa ekki að svara fyrir fatamálið margfræga. Enn hefur Björn Ingi ekkert gert til að svara heiðarlega fyrir sig og hreinlega afneita fatadæminu á kostnað flokksins. Heldur er þetta aumt yfirklór hjá honum og eðlilegt að kallað sé eftir skýrum svörum, en ekki bara vælukjóatöktum. Það vita enda allir að enginn vill taka við Birni Inga, fari hann úr Framsókn. Hann er bæði það umdeildur og illa þokkaður sem persóna, samkvæmt lýsingum samstarfsmanna hans, að hann stendur og fellur með framsóknarvist.
Það er greinilegt að mikið hefur gengið á innan Framsóknarflokksins í Reykjavík á síðustu árum. Hann tærðist að mestu upp á síðasta kjörtímabili og rétt marði að ná inn einum borgarfulltrúa í kosningunum 2006 og virðist á þessari stundu hafa veikst það mjög að hann hefur ekki burði til að fá þingsæti eða jafnvel að halda borgarfulltrúasætinu sem Björn Ingi situr nú í, í borgarstjórnarkosningunum eftir tvö ár. Eflaust vitum við aðeins hálfa sögu valdabaráttunnar bakvið tjöldin í þessum hópi. Guðjón Ólafur kom þó fram með nokkrar mikilvægar sögur úr þeirri baráttu og það var svolítið sérstakt að fá innsýn í þann suðupott.
Björn Ingi gerði mikið með það að ólga væri innan Sjálfstæðisflokksins síðasta haust í borgarmálunum. Ég held að honum nægi að horfa í eigið bakland, eigin flokkssveit, til að sjá að hann er mun verr staddur í raun en nokkur borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Það er biðröð greinilega þar af fólki með hnífasettin í bakinu sem bíða eftir færi að stinga hnífum í hinn grátandi borgarfulltrúa, sem er að reyna að snapa sér upp samúð til að forðast að mæta þessu fólki á niðurleiðinni. Það er jafnan sagt að menn eigi að forðast að sparka í fólk á leiðinni upp á tindinn, enda geti það orðið erfitt að mæta þeim á niðurleiðinni. Þetta virðist Björn Ingi vera að sjá nú.
Framsóknarflokkurinn í Reykjavík er flakandi sár, sviðin jörð. Guðjón Ólafur var alveg heiðarlegur í viðtalinu áðan og sagði brotabrot af þeirri átakasögu sem gengið hefur bakvið tjöldin og varð enn miskunnarlausari eftir því sem gæfa flokksins eftir merkilegan varnarsigur í kosningunum 2003 snerist upp í hreina ógæfu, þar sem hver og einn vóg næsta mann til að búa í haginn fyrir sjálfan sig. Þetta er greinilega ekki falleg saga, fjarri því orðið eitthvað ævintýri, heldur dimm og drungaleg barátta um pólitískt líf hvers og eins. Það er ekkert heilagt í þeim hráskinnaleik og greinilegt að samstaða þessa fólks dugar ekki í fleiri kosningar. Þetta er bara rúst.
Í sjálfu sér er áhugavert að sjá inn í þennan suðupott pólitískrar ólgu. Hvað varðar Björn Inga væri ágætt að sjá hann svara alvöru spurningum og að einhver fjölmiðillinn myndi byrja á að rekja upp þann augljósa og ómerkilega spuna sem hann er að spinna til að reyna að bjarga eigin skinni. En kannski fer fyrir Birni Inga á endanum að hann verði gerður upp í eigin spuna.
![]() |
Með mörg hnífasett í bakinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
20.1.2008 | 06:10
McCain, Hillary og Romney vinna í forkosningum

Baráttan um útnefningar flokkanna í forsetakosningunum eftir tíu mánuði er þó enn á fullu og ekkert öruggt enn að heita má, þó frambjóðendum taki nú að fækka. Þó blasir við að barátta demókrata eftir viku í Suður-Karólínu og hjá repúblikunum í Flórída eftir níu daga muni hafa mikil áhrif á framhaldið.
Nokkrir punktar:
- John McCain vann svo sannarlega sætan sigur í Suður-Karólínu. Hann tapaði fyrir George W. Bush í fylkinu fyrir átta árum í svæsnum leðjuslag og vægðarlausu áróðursstríði - náði aldrei aftur flugi í baráttunni fyrir Hvíta húsinu eftir sigra áður í Michigan og New Hampshire. Nú leggur hann fylkið að fótum sér. Sigurinn er taktískt mikilvægur fyrir McCain. Forsetaefni repúblikana hefur ekki verið útnefnt áratugum saman án þess að sigra í Suður-Karólínu. Með þessu fer McCain til Flórída með byr í seglum og stefnir að sigri þar - hefur leitt kannanir í fylkinu nú um tíma. Sigur þar mun tryggja McCain mjög í sessi.
- Mitt Romney vann mikilvægan sigur í forkosningunum í Nevada. Á móti kemur að hann var nærri einn um hituna og hafði sig mest í frammi á meðan að aðrir fókuseruðu á Suður-Karólínu eða Flórída. Sigurinn er gott veganesti fyrir hann í Flórída, svo skömmu eftir að hann tók Michigan, gamla heimafylkið sitt. Hann verður þó að ná góðum árangri í Flórída til að fá byr í seglin fyrir ofur-þriðjudag. Sigrarnir tveir hafa markað Romney sem alvöru frambjóðanda með möguleika, eftir töpin í Iowa og New Hampshire. Hann hefur safnað mestu af þingfulltrúum en þarf að sigra fleiri fylki til að ná alvöru flugi aftur. Flórída er því markmiðið hans nú.
- Mike Huckabee varð fyrir miklu pólitísku áfalli við tapið í Suður-Karólínu. Þó að það hafi vissulega verið naumt var taktískt mikilvægt fyrir hann að taka fylkið. Einkum til að hann fengi á sig sigurblæ í suðrinu. Huckabee er evangelískur suðurríkjapredikari og fyrrum ríkisstjóri í Arkansas (heimafylki Clintons forseta) og þarf auðvitað að sigra í suðurríkjunum til að fólk telji hann eiga alvöru séns. Enn hefur hann bara unnið Iowa en verið þriðji í helstu fylkjum fram að þessu. Nú þurfti hann að vinna til að marka sig áfram sem alvöru kandídat. Hann helst lengur í slagnum, en vindurinn fer fljótt úr seglum hans ef hann nær ekki flugi í Flórída.
- Rudy Giuliani bíður eftir forkosningunum í Flórída, eins og fyrr hefur komið fram á þessum vef. Hann hefur enn ekki safnað neinu af þingfulltrúum að ráði. Hann hefur því færst aftur fyrir aðra frambjóðendur með því að leggja ekki í baráttu í fyrstu fylkjunum í slagnum - hefur enda fengið þar næsta háðuglega útreið og má ekki við mörgum skakkaföllum í viðbót. Það er slappt fyrir hann að hafa ekki fengið meira en fjögur prósent í Nevada t.d. En nú er komið að örlagastundu. Sigur í Flórída getur markað hann aftur sem alvöru frambjóðanda sem gæti gert tilkall til forystu í útnefningaferlinu. Þar reynir á hann.
- Fred Thompson varð þriðji í Suður-Karólínu. Þar ætlaði hann að reyna að eiga endurkomu í slaginn, þurfti að vinna eða ella verða annar. Þessi árangur dugar honum engan veginn til að halda lífi í framboði sínu. Tel öruggt að hann dragi sig út úr slagnum á næstu dögum. Hann þurfti að vera sterkur í suðrinu, enda fyrrum öldungadeildarþingmaður Tennessee, til að geta startað vélinni af alvöru. Það gerðist ekki og hann er úr leik sem alvöru frambjóðandi. Margir bundu vonir við framboð Freds, en hann náði aldrei flugi. Hann kom of seint í slaginn og sýndi aldrei kraftinn og seigluna sem þurfti. Þetta er búið hjá kallinum.
- Ron Paul fékk góða kosningu í Nevada og hefur sýnt vel að hann hefur gott bakland víða. Þó að Paul eigi ekki séns á útnefningu repúblikana verður að dást að því að kallinn hefur seiglu og þrumandi kraft í kosningabaráttu sinni. Hann er ekki að reyna að falla í fastmótað form frambjóðanda og hefur farið eigin leiðir. Það er ekki furða að Paul bendi á að hann sé á pari við Giuliani í slagnum nú, borgarstjóranum fyrrverandi í New York til mikillar skapraunar en flestum öðrum til gleði og gamans.
-----
- Hillary Rodham Clinton vann mikilvægan sigur í Nevada. Það hlýtur að teljast sterkt fyrir hana að takast að sigra með svo góðum mun eftir allt sem á undan var gengið. Obama fékk stuðningsyfirlýsingu stærsta verkalýðsaflsins í fylkinu, en þrátt fyrir það tapaði hann með rúmum fimm prósentustigum. Þessi sigur markar endanlega endurkomu Hillary sem forystuframbjóðanda í útnefningaferli demókrata. Þetta færir henni byr í seglin fyrir kjörið í Suður-Karólínu eftir viku. Sigur þar myndi fara langleiðina með að tryggja hana í sessi fyrir komandi átök og jafnvel tryggja henni útnefninguna. Þar verður hörð og vægðarlaus barátta.
- Barack Obama varð fyrir áfalli í Nevada. Það var vandræðalegt að sjá kosningaherbúðir hans reyna að hrósa sigri í fylkinu vegna skiptingar þingfulltrúa og að hann stæði á pari við Hillary þar og hefði jafnvel unnið. Tölurnar tala sínu máli. Það er greinilega komin upp paník í herbúðum Obama. Eftir sigurinn í Iowa fyrir tæpum þrem vikum fór hann á bylgju stuðnings til New Hampshire. Clinton-hjónunum tókst að stöðva þá bylgju með aðdáunarverðum hætti, þvert á allar kannanir, og virðast hafa náð yfirhöndinni aftur. Það hefur mikið gerst á skömmum tíma, en Obama hefur enn góðan séns og berst meðan að stætt er, fram að ofur-þriðjudegi.
- John Edwards er í raun búinn að vera sem alvöru frambjóðandi. Hann fékk skelfilega útreið í Nevada, aðeins fjögur prósentustig og engan þingfulltrúar, þrátt fyrir að leggja mikið á sig í fylkinu. Edwards mun leggja allt undir í Suður-Kaliforníu eftir viku. Hann tók fylkið í forkosningunum árið 2004 og þarf sigur til að snúa við gæfuhjólinu. Það er eina von hans nú í slagnum, þó ansi veik sé. Hann er fastur milli sögulegra frambjóðenda, fyrstu konunnar og fyrsta blökkumannsins með möguleika á forsetaembættinu. Tel aðeins tímaspursmál hvenær að Edwards dregur sig út úr hinu augljósa einvígi Hillary og Obama.
-----
Áhugaverðar vikur eru framundan í baráttunni um útnefningu flokkanna í forsetakosningunum 4. nóvember nk. Það er ljóst að McCain, Hillary og Romney fara með sterka stöðu í næstu forkosningar flokkanna, sérstaklega McCain sem var mjög sigurreifur í Suður-Karólínu, eftir átta ára sigurbið þar. Nú tekur alvaran við, ofur-þriðjudagur mun verða örlagaríkur en kjörin fram að þeirri vegferð geta þó líka haft þau áhrif að fækki verulega í hópnum. Það er ekki víst að allir fái farmiða fram til þess örlagaríka dags.
![]() |
Clinton og Romney unnu í Nevada |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 06:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.1.2008 | 22:16
Uppgjöf Björns Inga - tími Framsóknar liðinn
Ekki mun þessi yfirlýsing gera neitt annað en að veikja undirstöður þessa elsta starfandi stjórnmálaflokks landsins, enn frekar en orðið er, sem er greinilega kominn að fótum fram eins og hvert annað gamalmenni seint og um síðir. Björn Ingi opnar sjálfur í vörn sinni í fatamálinu uppgjöf lykilforystumanns á baklandi sínu innan eigin flokks og opnar með því umræðuna um endalok flokksins algjörlega upp á gátt. Það er greinilega lítið eftir af forystu fyrir það fólk og uppgjöfin ein eftir. Hún vekur athygli. Í kommentum og póstum til mín í gær og í dag hef ég fundið fyrir því að framsóknarfólk reynir að neita að flokkurinn sé að sligast. Það verður erfitt eftir þessa yfirlýsingu, spái ég.
Það fer ekki framhjá neinum manni að Framsóknarflokkurinn er á krossgötum þessar vikurnar. Innri sundrung og óeining er að sliga hann, flokkurinn hefur misst sérstöðu sína síðustu árin og minnir nú æ frekar á flakandi sár. Uppgjöf Björns Inga Hrafnssonar á eigin baklandi og flokkssveit vekur spurningar um það hvort að hann hafi þegar metið það svo veikt að hann geti ekki farið fram aftur í kosningum í nafni þess og sé farinn að líta í kringum sig eftir öðru plássi fyrir sig. Honum tókst með herkjum að ná kjöri í borgarstjórnarkosningunum fyrir tveim árum og greinilegt er á öllu að liðsheildin er það veik núna að hann myndi ekki geta náð kjöri aftur út á hana.
Svo aumt er þetta orðið. Það er stóra yfirlýsing dagsins. Og þetta mun eflaust hafa áhrif um landið allt. Þegar að Framsókn hnígur til viðar í þéttbýlinu er orðið illa komið fyrir þessum elsta starfandi stjórnmálaflokki landsins. Svona er þá komið fyrir höfuðborgarvæðingu Framsóknarflokksins í formannstíð Halldórs Ásgrímssonar. Aumt er það orðið.
Mun þessi flokkur lifa fram að næstu kosningum - mun hann verða 100 ára - lifir hann til 2016? Stórar spurningar... en það er ekki nema von að spurt sé eftir atburðarás dagsins.
![]() |
Björn Ingi úr Framsóknarflokki? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
19.1.2008 | 19:54
Langþráður íslenskur sigur í Þrándheimi
Leikurinn var sannarlega draumur í fyrri hálfleik. Ótrúlega sterkur kafli hjá strákunum okkar þá og við héldum í hálfleik með ellefu marka forystu. Misstum aðeins flugið í seinni hálfleik og Slóvakar gengu á bragðið og náðu að skora fjögur strax í upphafi og risu upp eftir vægast sagt slæman fyrri hálfleik þar sem þeir náðu bara fimm mörkum. Verð að viðurkenna að ég varð aðeins órólegur þó þegar að munurinn var kominn niður í fimm mörk og við virtumst vera að missa örugga stöðu.
En þetta hafðist og vel það. Þó að Slóvakar hafi lotið í gras í dag er ekki hægt annað en að hrósa þeim fyrir að takast að rísa upp í seinni hálfleik og eiga endurkomu og skora heil 17 mörk á hálftíma. Glæsilegur árangur það. Svosem ekki verra að alvöru hasar væri í seinni hálfleik. En það voru gloppur í sóknarleiknum á þeim kafla hjá okkar mönnum, en ekkert sem sökkti okkur svosem. Sigur er alltaf sigur, ber að fagna því sem vel er gert. Nú er bara að ná hagstæðum úrslitum gegn Frökkum. Við tókum þá á HM í fyrra og eigum alveg að geta það núna!
En til hamingju strákar. Ykkur tókst að vekja aftur áhugann og slökkva á skammdegisþunglyndi landans sem var sannarlega áberandi eftir rassskellinn á fimmtudag. En nú er það gleymt og vonandi erum við komin með þetta á beinu brautina og beint áfram til sigurs í næsta leik og þeim á eftir. Þetta verður sannarlega spennandi mót - gott mál að það hafi birt yfir.
![]() |
EM: Stórsigur gegn Slóvakíu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
19.1.2008 | 19:15
Verður Bobby Fischer jarðaður á Þingvöllum?

Væntanlega mun unnusta skákmeistarans ráða því hvað verður um jarðneskar leifar hans og hvort hann verði jarðsettur hér. Ég vonast til að hann muni hvíla hér. Hér dvaldi hann síðustu þrjú ár ævi sinnar, hér fékk hann að deyja sem frjáls maður, eftir að við björguðum honum frá þeim örlögum að deyja sem fangi í fjarlægu landi. Þó að það hafi verið umdeild ákvörðun tel ég að leiðarlokum að það hafi það verið rétt skref. Það hefði verið vont að láta hann grotna í fangelsi, en það hlutskipti blasti við Fischer er Davíð Oddsson lagði honum lið.
Það hefur verið mikil umfjöllun um andlát skákmeistarans í öllum fjölmiðlum á alþjóðavettvangi í gær og í dag. Það verður ekki um það deilt að Fischer var einn þeirra samferðarmanna okkar sem vakti mesta athygli, hvað svo sem okkur fannst um skoðanir hans. Ég var ekki einn þeirra sem deildi hugsjónum hans og skoðunum, en mér fannst mikið til listagáfu hans í skákinni koma. Það er það sem hans verður minnst fyrir að leiðarlokum og það er framlag sem ber að virða. Margir misskildustu snillingar heimsins voru snartjúllaðir en nutu virðingar þrátt fyrir allt, einkum á kveðjustundu.
Þó að Bobby hafi verið gloppóttur snillingur hafði hann snilligáfu - hann var ein stjarnan í Íslandssögunni. Þó að hann hafi aðeins í þrjú ár verið íslenskur ríkisborgari; verið í raun með sama bakgrunn sem Íslendingur og þriggja ára barn á leikskóla, hafði hann markað söguna hér fyrr og nú. Sigur hans í einvígi aldarinnar í skák árið 1972 færði honum merkan sess og fyrir það verður hans minnst. Vonandi mun hann hvíla í íslenskri mold, hér vann hann sinn glæstasta sigur og hér fékk hann að lifa frjáls maður á ævikvöldi sínu.
![]() |
Fischer hvíli í íslenskri mold |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 19:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
19.1.2008 | 16:24
Vinslit í Framsókn - dauðateygjur í Reykjavík?
Það blasir við öllum að Framsóknarflokkurinn í Reykjavík skelfur nú vegna bréfaskrifa Guðjóns Ólafs Jónssonar og ásakana hans um fatakaup flokksins fyrir Björn Inga Hrafnsson. Í þessum augljósu vinslitum þessara fornu fóstbræðra í hjaðningavígum innan Framsóknarflokksins felast allnokkur tíðindi. Guðjón Ólafur hefur um langt skeið verið maðurinn sem skrifaði til að spinna atburðarásir í flokknum og í þeim hópi sem kom Birni Inga til valda.
Það vantar að fram komi hvernig vinslit þessara manna bar að. Hvenær slitnaði þar upp úr nánu samstarfi og hvað býr undir því að Guðjón Ólafur tekur upp hnífinn og leggur til við þann eina framsóknarmann sem hefur kjörið umboð borgarbúa á þessari stundu? Hvað varð um rannsóknarblaðamennina? Eru þeir í helgarfríi allir sem einn? Af hverju leggjast þeir ekki á Björn Inga og fá hann til að svara þessum ásökunum án þess vælutóns sem einkenndi þá stund er hann féll skælandi í faðminn á guðföður vinstrimeirihlutans í Reykjavík, Don Alfredo sjálfan? Af hverju heimtar ekki Björn Ingi allt upp á borðið en svarar engu og reynir frekar að svæfa málið með hlægilegum útúrsnúningum? Ekki vantar spurningarnar í þessu lokadrama Framsóknar.
Hvað er að gerast innan Framsóknarflokksins í Reykjavík? Þegar að fyrrum alþingismaður með augljósar tengingar á alla staði innstu klíku flokksins á síðustu árum og tengdur rækilega inn í Halldórsarminn margfræga leggur til við vonarstjörnu þessa hóps í síðustu borgarstjórnarkosningum - eina manninn með umboð borgarbúa eftir að flokkurinn missti þrjú þingsæti - er greinilega allt á suðupunkti. Ekki er langt síðan að Anna Kristinsdóttir, borgarfulltrúi innan R-listans forðum daga, yfirgaf flokkinn og það heyrist að hún sé ekki ein á ferð úr flokknum. Enda má lesa út úr bréfi Guðjóns Ólafs að það sé mjög sorrý yfir liðinu.
Það er ekki furða að andstæðingar Framsóknarflokksins líti á þessar deilur sem dauðateygjur hans í Reykjavík. Þarna krauma eldar undir og greinilegt að þar er allt að sjóða upp úr. Það þarf engan pólitískan sérfræðing til að sjá það. Þetta stefnir í að verða átakanlegt drama. Það er alltaf magnað að sjá spennandi þrillermynd með pólitísku ívafi; fylgjast með svo miklu drama.
Enn skemmtilegra er þó að sjá það live og leikararnir séu jafn raunverulegir og handritið jafn þrumandi skemmtilegt eins og er í þessu tilfelli.
![]() |
Hafnar orðrómi um fatakaup Framsóknarflokksins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
19.1.2008 | 14:03
Skuggi Monicu fylgir Clinton-hjónunum eftir

Það fer ekki á milli mála að ástarsamband forsetans við Monicu Lewinsky drottnaði yfir seinna kjörtímabili hans og var á eftir honum allt þar til að hann lét af embætti í janúar 2001. Sambandið hófst rétt fyrir forsetakosningarnar 1996 og mun hápunktur þess hafa staðið á þeim tíma sem hann sór embættiseið seinna skipti í þinghúsinu fyrir ellefu árum. Clinton forseti varð aðeins annar forseti Bandaríkjanna í sögunni sem varð að þola þá niðurlægingu að fara fyrir þingið í ákæruferli til embættismissis. Hann hélt þó völdum og náði að þrauka út tímabilið, þrátt fyrir að illa horfði um tíma. Baráttusaga hans á þessum mánuðum hefur verið efni í bókaskrif og ótalmargar pólitískar pælingar, enda sögufrægt mál.
Sú sem mest og best varði Bill Clinton á þessum dimmum dögum fyrir áratug var Hillary Rodham Clinton, eiginkona hans. Þegar að ásakanirnar komu fyrst fram í janúar 1998 fór hún samstundis í margfrægt viðtal í spjallþætti og vísaði ásökunum á bug. Nefndi þær pólitíska aðför að mannorði eiginmanns síns og að sér persónulega. Þetta væri ekkert öðruvísi aðför en margar aðrar, en hálfu grófari þó. Clinton margneitaði sambandinu lengi vel ársins 1998 og Hillary stóð með honum í gegnum erfiðasta hjallann. Það gaus þó allt upp síðsumars 1998 þegar að sambandið var staðfest endanlega og Clinton forseti varð í yfirheyrslum sem fram fóru í Hvíta húsinu að staðfesta ástarsambandið og að hafa logið eiðsvarinn um það.
Það var ekki fyrr en á síðsumarsdögum 1998, í skugga yfirheyrslunnar þar sem hann yrði spurður um málið, að Bill Clinton viðurkenndi endanlega fyrir Hillary að sambandið hefði farið fram samkvæmt öllum kjaftasögum og hann hefði logið að henni í rúmlega hálft ár og auðvitað lengur á meðan að sambandinu sjálfu stóð. Það eru margfrægar sögur af viðbrögðum Hillary við framhjáhaldinu. Mun hún hafa gripið lampa sem var á borði við hliðina á henni á þeirri stund er Clinton forseti viðurkenndi brot sitt og hafa grýtt honum í forsetann og látið ókvæðisorð um hann falla. Í kjölfarið flutti Clinton sjónvarpsávarp þar sem hann viðurkenndi loks sambandið opinberlega.
Í kjölfarið barðist Clinton fyrir forsetaembættinu í ákæruferlinu sem leitt var af William Rehnquist, þáverandi forseta hæstaréttar Bandaríkjanna. Þetta voru sögulegir dagar. Aðeins Andrew Johnson, forseti Bandaríkjanna á sjöunda áratug nítjándu aldar, hafði gengið í gegnum viðlíka meðferð og Richard M. Nixon sagði af sér áður en að því kom í Watergate-málinu. Á þessum dögum stóð hjónaband Clinton-hjónanna tæpast en eftirminnilegar eru fréttamyndir af ferðalagi þeirra til vina á Martha´s Vineyard þar sem Chelsea, dóttir þeirra, gekk á milli þeirra, enda töluðust þau ekki við í nokkrar vikur eftir að forsetinn viðurkenndi framhjáhaldið.
En það rættist úr þessu fyrir Clinton forseta; hann hélt forsetaembættinu og náði að lappa upp á hjónabandið. Hann fór þó að mörgu leyti ærulaus maður úr Hvíta húsinu. Á síðasta sólarhring forsetaferilsins viðurkenndi hann ástarsambandið við aðrar konur í umdeildum hneykslismálum; t.d. Gennifer Flowers og Paulu Jones, sem hann hafði áður margfaldlega neitað. Gegn samningi um staðfestingu þessara mála sem höfðuð voru gegn honum forðaðist hann að fara fyrir dóm að loknum forsetaferlinum. Staðfesting allra þessara mála á síðustu klukkustundum litríks forsetaferils voru aðalfréttaefnið á þeim degi er Bush tók við.
Nú er liðinn áratugur. Nú berst Clinton forseti aftur fyrir því að komast í Hvíta húsið, nú við hlið eiginkonunnar sem fyrirgaf honum seint og um síðir ótryggðina og að hafa logið að sér á viðkvæmustu augnablikum forsetaferilsins. Og í fyrsta skiptið frá því að Clinton viðurkenndi ótryggðina þarf Hillary að brjóta odd af oflæti sínu og svara þessum viðkvæmu spurningum á sömu stund og spurt er um efnahaginn, utanríkismálin og trúmálin í suðurríkjum Bandaríkjanna.
Þetta mál var sögufrægt og það deyr ekki þó árin líði. Enn er skuggi lærlingsins sem mara yfir Clinton-fjölskyldunni.
![]() |
Hillary tjáir sig um Lewinsky-málið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
18.1.2008 | 21:50
Kaupa framsóknarmenn fötin handa Birni Inga?
Fyrstu viðbrögð mín við þessari frétt í kvöld voru eiginlega hlátur, langt hláturskast. Þessi flokkur þarf ekki andstæðinga tel ég. Hann er að klára sig alveg innbyrðis. Er nokkur furða þó að pólitískir sérfræðingar séu hættir að velta þessum flokki fyrir sér. Hann er nær algjörlega valdalaus orðinn í samfélaginu utan við lykilstöðu Björns Inga í borgarmálunum, sem hann hélt þrátt fyrir að fara í fjögurra framboða meirihluta í Reykjavík og vera mun minni en leifarnar af Frjálslynda flokknum í borgarstjórn. Einu sinni var þetta virtur flokkur valdanna, naut virðingar víða og margir voru hræddir við hann. Nú virðist hann vera á leiðinni fyrir ætternisstapann.
Það virðist vera að Framsóknarflokkurinn sé í sjálfsmorðsherferð þessa dagana. Það er freistandi að halda það sé tekið mið af ásökunum Guðjóns Ólafs í garð Björns Inga Hrafnssonar. Þetta er deyjandi flokkur, hann er að taka síðustu andköfin. Kannski brotnar hann endanlega upp þegar að tekist verður á um formennskuna á næsta flokksþingi. Það vita það allir að það verður harkalegt uppgjör þar, kannski síðasta einvígið, þegar að hjólað verður í Guðna. Það mun gerast rokki Framsókn áfram í tíu prósentum eða minna, sem er söguleg afhroðsmæling fyrir Framsókn, hvað þá verandi í stjórnarandstöðu.
Það vakti athygli mína að Björn Ingi neitaði engu í málflutningi Guðjóns Ólafs. Þetta var svona ámótlegt væl líkt og rétt áður en hann faðmaði Alfreð Þorsteinsson á flokksfundi eftir meirihlutaslitin í Reykjavík. Það virðist vera að hitna undir Birni Inga innan eigin flokks. Það er greinilegt að ólgan með hann er ekki bara bundin við andstæðinga hans, hann ætti kannski að fara að passa sig á því hverjir eru í biðröðinni eftir því að taka í hann innan eigin raða.
Kannski verður það stóra baráttan, eftir allt saman, sem hann á framundan. Ætli hann verði gerður upp innan eigin raða fyrir næstu kosningar, þegar að þetta þingmannslausa flak í borginni ætlar sér að reyna að ná borgarfulltrúasæti aftur? Ja, spennandi verður það að sjá maður minn!
![]() |
Gagnrýnir fatapeninga framsóknarmanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
18.1.2008 | 16:46
Svandís Svavarsdóttir slasast - lélegur aðbúnaður

----
Mér finnst það nú heldur lélegur aðbúnaður fyrir farþega hjá Flugfélagi Íslands þegar að sæti farþeganna losnar í flugferðinni með þessum hætti. Nógu dýrt er fargjaldið í innanlandsfluginu þó að farþegar eigi það ekki á hættu að lenda í svona aðstæðum í ferðinni eða slasast vegna þess, allt vegna þess að búið er illa að fólki. Það verður allavega áhugavert að sjá hvað kemur út úr rannsókn á þessu atviki, enda blasir við öllum að það er fjarri því eðlilegt að svona gerist.
Þegar að við kaupum okkur flugmiða erum við flest að velja öruggan ferðamáta og vonumst væntanlega eftir því að búið sé vel að okkur sem farþegum, öryggi okkar sé tryggt eftir fremsta megni - allavega að sætin sem við sitjum í geti ekki losnað. Þegar að það gerist er eðlilegt að kanna öryggið og hvað hafi farið úrskeiðis í eftirliti.
![]() |
Sæti losnaði í flugvél |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 18:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
18.1.2008 | 12:33
Bobby Fischer látinn
Bobby Fischer, fyrrum heimsmeistari í skák, er látinn, 65 ára að aldri. Það verður ekki um það deilt að Bobby var einn fremsti meistarinn í skáksögunni og markaði söguna er hann varð heimsmeistari í skák í Reykjavík á hinu sögulega heimsmeistaramóti gegn Boris Spassky í september 1972, er hann varð fyrsti Bandaríkjamaðurinn til að vinna titilinn. Fischer var þó sérlundaður meistari sem fór eigin leiðir og lét aldrei vel að stjórn.
Fyrst vildi Fischer ekki koma til Íslands og tefla og þurfti atbeina Nixons Bandaríkjaforseta og Henry Kissinger til að hann færi hingað og tæki slaginn. Þetta var litrík saga og eftirminnileg, en henni lauk með sögulegum sigri Fischers. Í seinni tíð var skákmeistarinn upp á kant við bandarísk stjórnvöld. Bandarísk yfirvöld óskuðu eftir því að fá Fischer framseldan til Bandaríkjanna, þar sem hann átti yfir höfði sér allt að 10 ára fangelsi fyrir að brjóta viðskiptabann Bandaríkjanna gegn Júgóslavíu með því að tefla við Boris Spassky í Belgrad haustið 1992. Eftir að þau átök hófust fór hann ekki til Bandaríkjanna.
Deilurnar tóku á sig dramatíska mynd er hann var hnepptur í varðhald í Japan sumarið 2004. Í kjölfarið ákváðu íslensk stjórnvöld að leggja Fischer liðsinni sitt og hlaut hann dvalarleyfi á Íslandi í desember 2004. Það dugði þó ekki til að Fischer væri sleppt úr varðhaldi. Lauk málinu með því að Davíð Oddsson, þáverandi utanríkisráðherra, beitti sér sérstaklega fyrir því að Fischer hlyti íslenskan ríkisborgararétt og fór það endanlega í gegn á Alþingi í mars 2005. Í kjölfar þess var Fischer sleppt úr varðhaldi og hann kom til Íslands sem íslenskur ríkisborgari á skírdag, í mars 2005. Frá þeim tíma og til dauðadags dvaldi Fischer í sínu nýja föðurlandi, Íslandi.
Það er kaldhæðnislegt að Bobby Fischer skuli deyja á sama degi og Davíð Oddsson, fyrrum utanríkis- og forsætisráðherra, fagnar sextugsafmæli sínu. Fáir menn leiddu betur og af meiri krafti þá ákvörðun í gegnum stjórnkerfið að Fischer yrði íslenskur ríkisborgari og kæmi hingað til lands, yrði hnepptur úr varðhaldi, en Davíð. Í þeim efnum sýndi Davíð eftirminnilega forystu og það má fullyrða að Fischer hefði varla fengið ríkisborgararéttinn með þessum hætti nema að það hefði verið leitt af þeim krafti sem einkenndi forystu Davíðs.
Var það umdeild ákvörðun, en að mínu mati sú rétta er á hólminn kom. Við getum verið stolt af því að hafa lagt þessum sögufræga skákmanni, þeim besta til þessa að mínu mati, lið á örlagastundu. Það sem var þó til skammar á þeim tímapunkti var fjölmiðlaumgjörðin utan um heimkomu hans en þar var farið einum of langt í markaðssetningu vissra aðila á skákmeistaranum, en honum var flogið hingað heim af eigendum sömu stöðvar. Skrifaði ég langan pistil um það á þeim tíma.
Með Bobby Fischer er fallinn í valinn goðsögn í lifanda lífi - sannur meistari skákheimsins, maður sem markaði söguleg skref á ferli sínum og fetaði eigin leiðir. Hann var eigin herra, vissulega uppreisnarsinni sem lét ekki vel að stjórn. Hann stóð og féll með sannfæringu sinni og krafti og það framlag verður að virða, þó ekki hafi mögulega allir verið sammála honum.
Ég vil votta fjölskyldu og vinum skákmeistarans, þeim sem studdu Bobby Fischer í gegnum síðasta kafla ævi hans - er gaf á bátinn og hann þurfti virkilega á aðstoð að halda, innilega samúð mína við andlát hans. Það er ánægjulegt að Fischer gat dáið hér á Íslandi sem frjáls maður en ekki fangi í fjarlægu fangelsi.
Minningin um mikla goðsögn og meistara skáklistarinnar mun lifa.
![]() |
Bobby Fischer látinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.1.2008 | 09:50
Sorglegt

Það var fastur liður í ferðum á Krókinn að fara á Kaffi Krók og fá sér að borða, enda mjög flottur veitingastaður og maturinn jafnan mjög góður. Fór þar síðast fyrir aðeins nokkrum vikum og fékk mér ljúffengan BBQ-borgara með alles. Frábær staður og sá besti að mínu mati á Króknum. En fleiri verða ferðirnar ekki á Kaffi Krók í bráð, en það er vonandi að eigendur staðarins láti þessa hörmung ekki stöðva sig.
Það er alltaf sorglegt að heyra af eldsvoðum, en þegar að hús með merka sögu fuðra upp með þessum hætti verður það enn dapurlegra og vonandi verður það endurbyggt í einhverri mynd.
![]() |
Stórbruni á Sauðárkróki í nótt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 09:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.1.2008 | 01:11
Skuggaleg katastrófa hjá landsliðinu
Það leikur enginn vafi á því að tap landsliðsins fyrir Svíum í kvöld er eitt hið versta á síðustu árum. Það er orðið nokkuð langt síðan að við höfum séð aðra eins katastrófu, þar sem einhvern veginn allt klikkaði og lánleysið var algjört. Greinilegt er að þjóðin var undrandi, svo skömmu eftir góðan árangur og flott samspil leikmanna gegn Tékkum. Í kvöld var liðið varla skugginn af þeirri sigursveit.
Það er þjóðargleði þegar að landsliðinu gengur vel en að sama skapi leggst yfir þjóðarþunglyndi, eða allt að því á skammdegisdögunum þegar að þessi janúarmót eru, ef illa gengur. Þessi leikur var hið versta sem ég man eftir lengi, sennilega frá mótinu 2005, þar sem við fórum heim á vondum tímapunkti og klikkuðum svakalega. Það sem var verst við kvöldið var að það var enginn ljós punktur og flatneskjan var algjört. Þetta var liggur við eins og að horfa á stillimyndina, slow-motion hreyfingarnar og þreytumerkin, lánleysið og tómleikinn, skein í gegn. Þetta var skuggalegt upphaf á mótinu.
Það eru orð að sönnu hjá Guðjóni Val, íþróttamanni ársins 2006 og handboltasnillingi, að nú þarf liðið í naflaskoðun og finna sig aftur. Það er þó ekki langur tími til stefnu fyrir þá vinnu, þar eru aðeins nokkrir dagar undir og greinilegt að nota verður vel þá tvo sólarhringa sem eru fram að næsta leik að snúa ógæfunni í lukku. Vonandi tekst þeim það. Tíu mínútna kaflinn sem sýndi alla bestu leikmenn okkar í rusli og átakanlegt markaleysi ætti að vera þeim lexía um að gera betur og reyna að sýna sitt besta. Öll vonum við það besta og sendum bestu kveðjur út til Noregs.
![]() |
Guðjón: Spiluðum eins og kjánar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.1.2008 | 21:19
Rassskelling í Þrándheimi - mikil vonbrigði
Verð að viðurkenna að ég var allt að því farinn að gapa af undrun og ergju þegar að við náðum ekki að dúndra svo mikið sem einu marki á um eða yfir tíu mínútna kafla. Allir keppnis- og skapmenn þola ekki svona langan down-tíma. Hreint út sagt. Verð að viðurkenna að ég taldi ekki mínúturnar - þær voru þó andskoti lengi að líða og hver sekúnda var svekkjandi og eftir því sem tíminn leið var ekki hægt annað en hreinlega að taka nokkra ergelsistóna yfir andleysinu, sem fór með okkur í þessum leik.
Svona rassskelling eru mikil vonbrigði en enn hafa strákarnir tíma til að hysja upp um sig brækurnar og taka á þessu. En það er með handboltann eins og annað; you win some - lose some. Verðum bara að vona það besta fyrir hönd liðsins. Sigur gegn Slóvökum hlýtur að teljast grunnatriði hérna heima vilji liðið ná að bíta frá sér gegn Frökkum. Það vonandi tekst að landa sigri næst. En nú þurfa menn að horfa í eigin barm og taka sig saman í andlitinu áður en næst er spilað. Grunnkrafa!
Leikurinn í kvöld var skelfingarsaga nær frá upphafi til enda. En það dugar ekki að leggjast niður í eymd og volæði. Vonandi mun landsliðið geta horft fram fyrir þessa rassskellingu og taka hana sem hverja aðra lexíu og bíta frá sér í næstu átökum. Það eitt skiptir nú máli. Við getum ekki látið það til okkur spyrjast að við rennum svona á rassinum út af þessu móti!
![]() |
Svíar sigruðu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
17.1.2008 | 18:17
Davíð Oddsson sextugur
Davíð Oddsson, seðlabankastjóri og fyrrum forsætisráðherra, er sextugur í dag. Það verður ekki um það deilt að Davíð er einn áhrifamesti forystumaður í íslenskri stjórnmálasögu síðustu áratugina og var t.d. kjörinn stjórnmálamaður 20. aldarinnar í aldamótakönnun Gallups. Hann hefur lengst allra íslenskra stjórnmálamanna gegnt embætti forsætisráðherra, rúm þrettán ár, og var formaður Sjálfstæðisflokksins í einn og hálfan áratug, lengst allra, fyrir utan Ólaf Thors sem var á formannsstóli í hartnær þrjá áratugi.
Það hefur gustað um Davíð Oddsson á litríkum ferli. Hann var umdeildur borgarstjóri - deilt var um fjölda mála í valdatíð hans í borginni og meira að segja um byggingar á borð við Perluna og Ráðhúsið. Davíð var sigursæll stjórnmálamaður. Í 23 ár samfleytt gegndi hann borgarstjóraembætti í Reykjavík og ráðherraembætti. Í hans borgarstjóratíð vann Sjálfstæðisflokkurinn sinn glæsilegasta sigur, er hann hlaut yfir 60% atkvæða og tíu borgarfulltrúa og undir forystu Davíðs Oddssonar sem flokksformanns varð þingflokkur Sjálfstæðisflokksins stærstur, 26 þingmenn sátu í nafni Sjálfstæðisflokksins á löggjafarþinginu kjörtímabilið 1991-1995.
Davíð Oddsson var allt frá sigri sínum í borgarstjórnarkosningunum 1982 til haustdaga 2005, er hann ákvað sjálfur að hætta þátttöku í eldlínu stjórnmálanna, einn af helstu forystumönnum Sjálfstæðisflokksins og í fararbroddi innan hans. Hann leiddi flokkinn til glæsilegra kosningasigra og forystu í landsmálum í upphafi tíunda áratugarins og var risi í stjórnmálum alla tíð. Tíundi áratugurinn var tími Davíðs og sögubækurnar hafa sannarlega staðfest það, enda var hann við völd allan áratuginn. Hann leiddi miklar breytingar á íslensku samfélagi og markaði stór spor í íslenska stjórnmálasögu. En hann var jafnan umdeildur og oft bæði vinsælasti og óvinsælasti stjórnmálamaður landsins.
Davíð hefur verið þekktur fyrir að vera áberandi. Hann tjáði óhikað skoðanir sínar og var óhræddur við að tala tæpitungulaust um menn og málefni. Það var að mínu mati helsti styrkleiki og mesta gæfumerki Sjálfstæðisflokksins að hafa átt svo glæsilegan og áberandi leiðtoga - sannkallan skipstjóra sem sagði til verka og naut virðingar innan flokks og utan vegna starfa sinna. Það leikur enginn vafi á því að forystuhæfileikar Davíðs og litríkur karakter hans var einn helsti lykilþáttur þess að Sjálfstæðisflokkurinn endurreisti sig sem stórveldi í íslenskum stjórnmálum í upphafi tíunda áratugarins eftir miklar lægðir um nokkra tíð.
Hvaða skoðun sem menn svosem hafa á Davíð Oddssyni og pólitískum verkum hans verður því ekki neitað að hann hefur markað merkileg skref í hinu íslenska samfélagi; er sigursælasti stjórnmálamaður landsins síðustu áratugina og mikill áhrifamaður fyrr og nú. Það staðfestist ávallt sé litið yfir stöðu mála og það hversu mjög hann getur gert alla þjóðfélagsumræðu algjörlega að sinni með því að tjá sig opinskátt um menn og málefni. Það hefur honum tekist meira að segja eftir að stjórnmálin voru kvödd.
Ég vil óska Davíð og fjölskyldu hans innilega til hamingju með þennan góða lífsins áfanga sem sextugsafmælið er.
![]() |
Fjölmenni í sextugsafmæli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
17.1.2008 | 17:32
Flugslys á Heathrow

Það er kannski til marks um stöðu alþjóðamálanna að fyrsta hugsun fólks er slíkt slys á sér stað er að þar standi ill öfl að baki og sé að senda skilaboð til fólks. Það eru ekki nema nokkrir dagar síðan að reynt var að drepa norrænan stjórnmálamann, sem ekki tók þátt í upphafi Íraksstríðsins eða hitamála fyrri hluta áratugarins, bara til að senda skilaboð og hræða þjóðir heims. Það fær vonandi alla til að hugsa um stöðuna.
Bretar hafa upplifað hryðjuverk hin síðustu misseri; í lestakerfi London fyrir tæpum þrem árum og í fyrra voru árásir í London og Skotlandi. En það er gott að hryðjuverkaógnin vaknar ekki nú og vonandi mun ganga vel að komast að því hvað gerðist í þessu slysi.
![]() |
Ekki grunur um hryðjuverk |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.1.2008 | 13:11
Er komið í tísku að henda út bloggvinum?
Sýnist þó á sumum vefum að dæmi séu um að fólk hendi bloggvinum eftir vissan tíma og mæli vináttuna í hvort það eru skrifuð komment á hverja færslu. Persónulega lít ég á vináttuna í gegnum tengsl en ekki síður með því að líta á síður hvors annars og fylgjast með. Það er hægt að meta vináttu svo mikils, ég hef fundið það vel að það eru ekki allt vinir sem liggja utan í manni, heldur er vináttan mæld þegar að mest á reynir. Þá kalla ég vini sem fylgjast með því sem ég skrifa og vilja líta í heimsókn.
Þó að ég eigi marga bloggvini að þá hef ég ekki grisjað mikið þann hóp. Það hefur þó komið fyrir að ég hafi tekið út bloggvini sem greinilega eru hættir að blogga, en það eru ekki mörg dæmi um að ég slíti vináttu. Það hefur þó gerst að þeir sem hafa tengt mig sem bloggvin hafa skrifað gegn mér persónulega og verið með persónuleg leiðindi. Það lít ég á sem endalok bloggvináttu í sjálfu sér, enda tel ég vináttu að mörgu leyti gegnheila og að það eigi að vera hægt að hafa samskipti án skota á bloggi.
Allir þeir sem ég hef sem bloggvini eru mikils metnir af mér. Ég er þannig gerður að ég vil frekar skrifa en eyða deginum í að kommenta út um allt. Kommenta frekar lítið, en það kemur vissulega fyrir. En ég les ótrúlega margar síður á dag og fer oftast nær góðan bloggrúnt í upphafi dags og svo á kvöldin þegar að róast yfir deginum. Ég hef líka farið þá leið að ég raða bloggvinum eftir stafrófsröð. Ekki nenni ég að raða upp hver eigi að vera ofar öðrum og handvelja röð bloggvina. Finnst það rugl.
Ekki ætla ég að henda út bloggvinum í massavís, allt vegna þess að ég vilji taka til og eða að einhverjir kommenta sjaldan. Sumir hafa samskipti við mig í gegnum tölvupóstinn og það er misjafnt form á vináttu. Þeir sem vilja skrifa gera það og þeir sem vilja koma í heimsókn gera það. En vinátta er vinátta og henni er ekki slitið þó að vinir hringi sjaldan eða komi sjaldan í heimsókn. Enda þurfa böndin ekki að ráðast eftir því, heldur því hvort hugur fylgi máli og fólk vilji hafa tengingu.
17.1.2008 | 11:20
Líður að valdaskiptum - Bush hreinsar vel til

Það hefur jafnan verið hefð í Bandaríkjunum að forsetar Bandaríkjanna hafa jafnan hreinsað vel til þegar að þeir yfirgefa Hvíta húsið og skilja ekki mikið af ummerkjum forsetaferilsins eftir í skjölum og gögnum. Þetta á best við þegar að forsetar úr öðrum flokki en forverinn tekur við völdum. Oftar en ekki fara umdeild gögn í forsetabókasafn viðkomandi forseta, sem byggð eru af stuðningsmannahópi hans. Þegar að George W. Bush kom í Hvíta húsið þegar að Clinton-hjónin fóru fyrir sjö árum höfðu þau tekið vel til og tekið með sér gögn um Lewinsky-málið, Whitewater og fleiri umdeildustu mál átta ára forsetaferils Bill Clinton. Sama gerðist þegar að Clinton tók við af föður Bush forseta, í janúar 1993.
Það er alveg ljóst að muni demókrati taka við Hvíta húsinu eftir ár verði vel farið yfir öll gögn úr umdeildustu málum forsetans. Það þarf því varla að koma að óvörum að grisjunin sé þegar hafin og til merkis um að Bush forseti ætlar ekki að skilja eftir sig minnismerki um þessi ár, ekki frekar en margir forsetar. Það var alþekkt að Richard M. Nixon hreinsaði vel til síðustu misseri Watergate-tímans, í aðdraganda þess að hann varð að segja af sér forsetaembættinu fyrstur bandarískra forseta. Hann hélt t.d. dauðahaldi í hinar frægu spólur með samtölum úr forsetaskrifstofunni og skjölum og enn er mikil leynd yfir mörgum gögnum þess tíma.
Það er alveg ljóst að George W. Bush var forseti á umbrotatímum. Hann var umdeildur og tók umdeildar ákvarðanir sem forseti Bandaríkjanna, deilt var um þær þegar að þær voru teknar og deilt er um þær enn. Hann er forseti sem sagnfræðingar framtíðarinnar munu fjalla um og hann verður vinsælt umfjöllunarefni þegar að líður frá og rykið hefur sest - hann er kominn til Texas í sveitasæluna.
Og þá hentar vel að hafa sópað til þeim upplýsingum sem geta orðið verðmætar og jafnvel fyllt upp í heildarmyndina. Þetta er ekki fyrsti forsetinn sem gerir það og ekki sá síðasti. En það má deila um hversu mikið af sögunni á að eyða.
![]() |
Tölvugögnum Hvíta hússins líklega eytt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.1.2008 | 11:17
Sorgleg örlög ungstjörnunnar Brad Renfro
Leikarinn Brad Renfro, sem nú er látinn langt um aldur fram, aðeins 25 ára gamall, var eitt ungstirnanna í leikbransanum sem reis upp úr fjöldanum, náði athygli kvikmyndaáhorfenda með frábærri leiktúlkun í stjörnurullu og naut vinsælda en féll síðar í duftið, lenti í viðjum óreglunnar; eiturlyfja- og áfengisneyslu, og náði aldrei að byggja sig upp eftir það. Sorgarsaga hans er fjarri því einsdæmi, öðru hverju erum við minnt á hverfulleika frægðarinnar þegar að ungar stjörnur missa fótanna, sumar ná að byggja sig upp aftur en aðrar falla í valinn.
Brad var aðeins tólf ára þegar að hann náði heimsathygli með túlkun sinni á Mark Sway í lagaþrillernum The Client, kvikmynd leikstjórans Joel Schumacher, árið 1994. Sway, varð ásamt bróður sínum vitni að því er lögmaður, sem er flæktur í glæpsamlegt athæfi, svipti sig lífi og varð aðalvitni lögreglunnar í málinu. Áður en lögmaðurinn sviptir sig lífi upplýsir hann Sway um mikilvægt atriði, hvar öldungadeildarþingmaður sem mafían kom fyrir kattarnef er grafinn. Mafían veit að hinn ungi Sway hefur upplýsingarnar og reynir að þagga niður í honum áður en hann segir lögreglunni.
The Client var ein af bestu kvikmyndum ársins 1994. Susan Sarandon átti þar stjörnuleik í hlutverki lögfræðingsins Reggie Love, og hlaut tilnefningu til óskarsverðlaunanna og var nærri því að ná gullkarlinum, en fékk hann árið eftir fyrir Dead Man Walking sællar minningar, og Tommy Lee Jones var skemmtilega illkvittinn í hlutverki saksóknarans Foltrigg, sem reynir að ná upplýsingunum úr stráknum með öllum tiltækum ráðum áður en mafían nær honum. Renfro átti stjörnuleik í myndinni og varð heimsfrægur á einni nóttu. Hann var límið sem hélt myndinni saman, persónan sem skipti mestu máli og hann var alveg stórfenglegur sem Sway.
Í kjölfarið fékk hann mörg leiktækifæri og voru í sjálfu sér allir vegir færir. Árið eftir lék hann Stikilsberja-Finn í kvikmyndaútfærslu Peter Hewitt á frægri sögu Mark Twain á móti Jonathan Taylor Thomas, öðru ungstirni. Renfro lék um miðjan tíunda áratuginn Michael Sullivan (á yngri árum) í kvikmyndinni Sleepers, er fjallaði um misnotkun á drengjum á heimili fyrir afbrotaunglinga) sem skartaði sannkölluðum stjörnufans; t.d. Robert De Niro, Brad Pitt (lék Sullivan er hann var eldri), Dustin Hoffman og Kevin Bacon. Myndin fékk víða góða dóma og fjallaði um áleitið efni í sannri sögu, en deilt var þó um margar sagnfræðilegar hliðar.
Árið 1998 lék hann í myndinni Apt Pupil á móti Sir Ian McKellen, hinni fínustu mynd sem segir frá samskiptum unglings og manns í hverfinu hans, sem reynist vera nasistahöfðingi úr seinna stríðinu. Svolítið vanmetin mynd sem segir merkilega sögu sem er áhugaverð, þó það séu vissulega nokkrar gloppur inn á milli. Samt með því besta sem Renfro gerði er hann varð unglingur og áherslur hans sem leikara breyttust í kjölfar Sleepers, sem markaði unglinginn Renfro sem alvarlegri stjörnu en þann sem lék aðeins hlutverk þar sem æskuljóminn einn var í forgrunni.
Eftir því sem Brad Renfro varð eldri tók hann að sér enn harðari hlutverk, oftar en ekki lék hann unglinga í neyslu og í viðjum óreglunnar; heimi sem hann festist sjálfur í er yfir lauk og markaði síðustu ár ævi hans. Dæmi um myndir af því tagi eru Telling Lies in America, Bully, Tart (þar sem fókusinn er ansi svæsinn á kynlíf og eiturlyf), American Girl og Deuces Wild. Hann átti svo góða innkomu í költ-myndinni Ghost World, sem fékk góðar viðtökur gagnrýnenda.
Undir lokin á ferlinum lék hann í sálfræðiþrillernum The Jacket, seinþroska bróður James Marsden í 10th & Wolf og hann endaði ferilinn fyrir aðeins nokkrum mánuðum í kvikmyndinni The Informers, sem brátt er væntanleg, þar sem hann var í sannkölluðum stjörnufans, með Billy Bob Thornton, Brandon Routh, Winonu Ryder, Mickey Rourke og Kim Basinger, svo aðeins nokkrir leikarar séu nefndir. Eftir að hafa lent í fangelsi í nokkra daga á árinu 2006 virtist hann hafa náð tökum á lífi sínu.
Það hefur svosem ekki verið upplýst hvað varð Brad Renfro að bana en það virðist vera sem að hann hafi verið einn þeirra ungstjarna sem missti tökin á lífi sínu og féll í viðjar óreglunnar, sem kostaði hann að lokum lífið. Þetta er vissulega sorgarsaga, enda hafði hann hæfileika og hafði átt margar ágætar leiktúlkanir þó engin þeirra á seinni árum jafnist á við leiksigurinn í The Client, rulluna sem gerði hann heimsþekktan á einni nóttu.
![]() |
Leikarinn Brad Renfro látinn 25 ára |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Kvikmyndir | Breytt s.d. kl. 16:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)