7.12.2007 | 15:59
Íslensk rómantík par excellence

Annars var sérstaklega sniðugt hjá honum að nota lagið úr The Wedding Singer til að hitta rétta rómantíska tóninn. Held að þetta sé annars eitt rómantískasta kvikmyndalag seinni tíma, algjörlega yndislegt í gegn. Það er reyndar alltaf eitthvað við þá mynd, með Adam Sandler og Drew Barrymore, sem klikkar aldrei. Þetta lag er allavega með rétta tóninn.
![]() |
Fyrrum herra Ísland endurheimtir ástina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
7.12.2007 | 15:03
Íslenskt óæti kynnt á alþjóðavettvangi

Reyni að komast af með hið klassíska íslenska hangikjöt og meðlæti því tengt og harðfiskinn. Annað borða ég hreinlega ekki. Það hefur verið svo síðan að ég man eftir. Gerði heiðarlega tilraun til að éta þetta óæti fyrir einhverjum árum með þeirri heiðarlegu ákvörðun í kjölfarið að reyna það aldrei aftur. Það má vel vera að margir kjammsi fram og til baka yfir þessum mat en ég er ekki einn af þeim og verð aldrei. Þegar að ég vil borða mat sneiði ég snarlega framhjá mygluðum mat og innmat úr skepnum með sakleysislegt augnaráð.
Ég skil því vel tilfinningar Gordons Ramsay er hann fær sér bita af íslenskum hákarl sérstaklega. Kannski er séns að slafra þessu niður með snafsglasi af íslensku brennivíni, annars ekki.
![]() |
Gordon Ramsay ælir íslenskum hákarli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 15:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
7.12.2007 | 02:10
Eru myndbirtingar af bílflökum nauðsynlegar?
Myndbirtingar af vettvangi umferðarslyss þjónar mjög litlum tilgangi, hef aldrei talið það skipta miklu máli að sýna bílflökin. Kannski er það ábending til annarra að svona geti farið í umferðinni, en fyrir þá sem tengjast hinum látnu er þetta særandi myndræn umgjörð um mikinn harmleik.
Veit ekki hvort það er einhver algild regla hjá fjölmiðlum í þessum efnum. Sumir fjölmiðlar eru þó meira áberandi í þessu en aðrir eflaust. Hef séð hjá þeim sumum að þeir birta aðeins staðsetningu slyssins á korti. Það er ágætis nálgun á það finnst mér.
Það er alltaf jafn stingandi að sjá aðstæður umferðarslysa, enda getur aðkoma að svona slysum verið virkilega sjokkerandi og vandséð hvaða erindi þær fréttamyndir eigi í fjölmiðla. Vona að fjölmiðlar fari að hætta slíkum myndbirtingum.
![]() |
Þungt haldnir eftir árekstur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
6.12.2007 | 20:06
Dapurlegt virðingarleysi fólks á slysstað
Fólk verður alvarlega að fara að hugsa sinn gang að mínu mati. Það er til marks hnignandi samfélagi að mínu mati að heyra af svona framkomu fólks á slysstað, þar sem fólk hefur slasast alvarlega og þarf á aðhlynningu að halda. Geti fólk ekki sýnt slíkum störfum þá virðingu að bíða og eða að leggja því hjálparhönd er eitthvað mikið orðið að þessu samfélagi sem við lifum í.
Við þurfum svo sannarlega að fara að horfa í spegil og spyrja okkur sjálf hvað skiptir mestu máli í lífinu.
![]() |
Brak hreinsað af slysstað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 20:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
6.12.2007 | 17:32
Umferðarslys
Það er dapurlegt að heyra af enn einu alvarlegu umferðarslysinu, nú á Reykjanesbraut. Það er orðið nokkuð langt síðan að fréttir hafa borist af slysi á þeirri miklu hraðbraut. Eftir að hluti hennar var tvöfaldaður hefur slysatíðni minnkað verulega og ég held að það sé rétt munað hjá mér að þar hafi ekki verið banaslys frá því að tvöfölduð braut var vígð. Það var mikil samgöngubót að tvöfalda Reykjanesbrautina og bráðlega verður Suðurlandsvegur tvöfaldaður, ekki verður sú bót síðri.
Síðustu vikur hafa verið kuldalegar í umferðinni. Verið nokkuð um banaslys og alvarleg slys á fólki. Árið 2006 var eitt versta árið í íslenskri umferðarsögu, en þá létust rúmlega 30 í umferðarslysum. Á þessu ári hafa fimmtán manns látið lífið, nú þegar að 25 dagar eru til áramóta. Vonandi mun takast að halda þeirri tölu óbreyttri.
![]() |
Alvarlegt umferðarslys á Reykjanesbraut |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
6.12.2007 | 13:59
Sextán ára strákur hringir í Hvíta húsið

Vífill Atlason, þessi sextán ára strákur, er sonur Atla Harðarsonar, heimspekings, og því bróðursonur Bjarna Harðarsonar, alþingismanns Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi. Það verður áhugavert að sjá hvernig tekið verði á hans máli af hálfu Bandaríkjamanna; hvort þetta þýði kannski að hann endi á svörtum lista til að fara til Bandaríkjanna eða tekið verði hart á því að öðru leyti. Bandaríkjamenn hafa verið últra-næmir fyrir svona nokkru frá 11. september 2001 og allar öryggisreglur verið hertar von úr viti í raun og veru.
Eðlilega vilja öryggiskarlarnir vita hvernig sextán ára skólastrákur á norðurhjara veraldar hafi fengið þetta símanúmer. Finnst samt aðallega fyndið að sjálfur forseti Bandaríkjanna hefði mögulega getað tekið símtal frá unglingsstrák héðan frá Íslandi og það framhjá öllum prótókólvenjum og siðum, símtal sem hefði verið vottað af öllum möppudýrunum í Hvíta húsinu.
![]() |
Skagapiltur pantaði viðtal við Bush |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
6.12.2007 | 09:54
Fingralangur ökumaður gefur sig fram

Finnst það jákvætt og gott skref að lögreglan taki á svona hraðamálum með myndbirtingum á þeim bílum sem fara of hratt. Alvara málsins verður enn meiri þegar að það er gert opinbert með þessum hætti. Ökumenn verða að gera sér grein fyrir ábyrgð sinni í umferðinni, hvort sem það snýst um að keyra ekki drukkinn, ekki keyra of hratt og eða auðvitað að virða almennar umferðarreglur. Leikreglur umferðarinnar eiga að vera okkur öllum skýrar.
Það besta við þetta allt að nú er komið fordæmi fyrir myndbirtingu og því vita þeir sem eru í umferðinni og brjóta af sér ekki nema jafnvel en að þeir endi í fjölmiðlum með þessum hætti. Það er greinilegt að maðurinn gaf sig fram vegna kannski bæði samviskubits og eða bíllinn þekktist. Hann tók ábyrgðum á sínum gjörðum. Það er virðingarvert. Mér finnst það gott mál að svona hegðun sé ekki látin óátalin.
![]() |
Ökufantur gaf sig fram |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
6.12.2007 | 00:23
Reynt að ræna leigubílstjóra

Við höfum þó ótrúlega lítið lent í svona málum hérna heima. Heilt yfir eru flestir heiðarlegir og ráðast ekki að bílstjórunum, sem betur fer. Það eru því sem betur fer enn stórtíðindi og það alvarleg að heyra af ránstilraun og eða árásum á leigubílstjóra. En þetta opnar enn og aftur umræðuna um það hversu varnarlausir bílstjórarnir eru í raun.
Í næsta mánuði eru fjórir áratugir liðnir frá einu eftirminnilegasta morðmáli Íslandssögunnar er leigubílstjórinn Gunnar Tryggvason var myrtur, á vakt, er hann keyrði morðingja sinn, skammt frá Laugardalslaug. Það mál upplýstist aldrei en það hefur sannarlega ekki gleymst. Þar var um ránsmorð að ræða.
Um þessar mundir er ég að lesa bókina um það fræga morð fyrir fjórum áratugum. Margt áhugavert sem þar kemur fram og nýjar hliðar þessa máls. Sannarlega bók sem vert er að mæla með - það er svolítið spes óneitanlega að heyra af þessu máli í dag einmitt við miðjan lestur bókarinnar.
![]() |
Ráðist á leigubílstjóra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.12.2007 | 17:06
Lögreglan leitar að fingralöngum ökumanni

Það er eflaust að verða ný stefna hjá löggunni að birta myndir af þessu tagi. Þetta gerist fjarri því reglulega að svona sé gert. Kannski er þetta góð leið til að draga úr hraða, hver veit. Annars er nær vonlaust að greina hver ökumaðurinn er og auðvitað hefur verið máð út andlit mannsins og stráksins auk bílnúmersins. Þessi Subaru-bifreið er ekki það einstök að hún gefi upp hver ökumaðurinn sé. En þetta er visst statement sem felst í myndbirtingunni.
Eflaust eru þessar umferðarmyndavélar þarfaþing. Það er mikilvægt að fylgjast vel með hraða, við upplifum það flest að umferðarþunginn er mikill og það er oft gefið vel í. Það vill eflaust enginn verða fyrirsæta á svona mynd svo að kannski hugsa einhverjir sitt ráð, á meðan að flestir kíma út í eitt yfir þessari mynd og fingramerkinu.
![]() |
Huldi númerið og ók of hratt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
5.12.2007 | 12:08
Ógeðsleg skrif hjá Gillzenegger
Það er auðvitað eðlilegt að hann hugsi sitt ráð vegna þessa og hafi séð að skrifin þurftu að fara út. Skil viðkomandi aðila mjög vel að vilja leita réttar síns vegna skrifa af þessu tagi. Það er eins og fyrr segir eðlilegt að vera ósammála femínustum og takast á um áherslur en það er annað og alvarlegt mál að hóta fólki vegna skoðana sinna.
Gillzenegger hefur oft talað djarft og óhikandi, jafnvel kuldalega í garð fjölda fólks. Þessi skrif voru botninn á öllu sem hann hefur skrifað og eðlilegt að hann bakki með skrifin og hugsi sinn gang. Þó að hann sé á móti femínistum er eðlilegt að hann hugsi sinn gang áður en skrifað er.
![]() |
Gillzenegger tók bloggfærslu út fyrir mömmu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.12.2007 | 01:14
Stórfelldur fjárdráttur sveitarstjórans í Grímsey

Enginn vafi leikur á því að þetta mál er mikill harmleikur fyrir hið fámenna samfélag í Grímsey, þar sem það er í raun eins og ein stór fjölskylda. Spurningar vakna þó hvernig svo víðtækur fjárdráttur gat gengið, en sögusagnir eru um að hann hafi staðið meira og minna öll þrjú ár Brynjólfs sem sveitarstjóra.
Veit ekki hvernig eyjaskeggjar vinna sig frá áfalli af þessu tagi. Þetta mál er að mörgu leyti einstakt, en ég man ekki dæmi þess að stjórnandi sveitarfélags hafi misnotað traust samstarfsmanna sinna og umbjóðanda með svo grófum hætti sem fráfarandi sveitarstjórinn út í eyju hefur gert.
5.12.2007 | 00:22
Frábær jólastemmning með Baggalút

Á hverju ári bíðum við svo eftir sykursætu aðventulagi vefsins og vel rokkuðu jólalaginu. Nýjasta aðventulagið er nú komið í spilun, þrem vikum fyrir jól. Þar hefur gamla slagaranum You´ve Lost That Loving Feeling með The Righteous Brothers breytt í sykursætan jólasmell á íslensku með öllu tilheyrandi. Vel heppnað og gott.
Mörg frábær jólalög með félögunum í Baggalút eru í tónlistarspilaranum hér á síðunni, þar á meðal þetta nýja og vel heppnaða lag.
![]() |
Baggalútur í jólafíling |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
4.12.2007 | 18:01
Flugi Hannesar lokið - nýjir tímar hjá FL Group

Það verður spennandi að fylgjast með því hvernig nýr forstjóri tekst að spila úr hlutverki sínu, komandi úr skugga hins litríka Hannesar. Það hefur verið áhugavert fyrir áhættufíkla viðskiptalífsins að fylgjast með Hannesi, eftir að hann skipaði sig forstjóra í kjölfar þess að Ragnhildur Geirsdóttir var sett af vegna átaka við Hannes fyrir rúmum tveim árum. Það voru umdeildar breytingar, en aðeins örfáum mánuðum áður hafði þessi fyrsti kvenforstjóri íslenska flugbransans verið kynnt til sögunnar er Sigurður yngri Helgason settist í helgan stein.
Flestir muna stóru spurningu síðasta áramótaskaups; "Af hverju ert þú ekki eins og Hannes Smárason?". Það var bæði spurt af kaldhæðni og alvöru. Hannes var einn spútnikk manna ársins 2006 og virtust allir vegir færir í bransanum, var lykilmaður í bissnessnum. Innan við ári síðar hefur Hannes verið settur til hliðar af Baugsmönnum og er orðinn óbreyttur stjórnarmaður undir verndarvæng Jóns Ásgeirs Jóhannessonar. Napurt hlutskipti fyrir mann sem fjárfesti mikið og lifði hátt í bransanum uns allt hneig til viðar og digrir sjóðir pappírspeninga urðu að sífellt hnignandi og morknum pappír á niðurleið.
Það verður sannarlega áhugavert að sjá hvert leið hans liggur nú eftir þessi vistaskipti og val á nýjum og ungum forstjóra sem boðar nýja tíma á flugvakt Baugs hjá FL Group.
![]() |
Forstjóraskipti hjá FL Group |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 22:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
4.12.2007 | 16:37
Hillary Clinton missir fylgi og forystuna í Iowa

Það er alveg ljóst að skoðanakönnun Zogby-fyrirtækisins í nóvember varð umtalsvert áfall fyrir Hillary. Þar sást að framboð hennar var brothættara en nokkru sinni áður - verið gæti að hún væri sigurstjarna flokksins en gæti hinsvegar ekki sigrað sjálfar forsetakosningarnar. Könnunin varð vatn á myllu bæði Obama og John Edwards, sem segja að Hillary geti ekki sigrað að lokum svo að þeir eigi betri séns. Þetta hefur gengið og umtalsvert fylgistap Hillary er að mörgu leyti sláandi, enda töldu flestir hana vera búna að taka slaginn innan flokksins áður en hann hófst í forkosningaferlinu.
Í grein minni um könnunina þann 26. nóvember sl. spáði ég því að slagurinn hjá demókrötum yrði jafnari en mörgum óraði fyrir. Fannst könnunin hjá Zogby boða þau tíðindi. Það er allt sem stefnir í það núna að það verði harðvítug barátta um sigurinn í Iowa. Það skiptir gríðarlega miklu máli að verða sigursæll í upphafi slagsins til að ná sigursjarma. Allir muna eftir því hvernig Howard Dean var með talsvert forskot á þessum tímapunkti meðal demókrata fyrir fjórum árum. Hann tapaði fyrstu forkosningunum sínum og varð lúser, fólk flúði frá honum og John Kerry markaði sér stöðu sem sigursælasti frambjóðandinn og náði útnefningunni.
Það eitt er víst að allra augu verða á Iowa eftir mánuð þegar að forkosningaferlið hefst. Það skiptir máli fyrir Hillary að taka Iowa og næstu fylki á eftir með trompi. Takist það ekki gæti hún misst þetta út úr höndunum. Það er mikið áhyggjuefni fyrir Hillary að vera undir í Iowa nú í desemberbyrjun, enda tel ég að Hillary verði að ná þeim glampa allt frá upphafi að vera sigurvegari. Fari hún að tapa lykilfylkjum í upphafi gæti hún misst allt út úr höndunum. Það má búast við að Hillary leggi nótt við dag á aðventunni við að tryggja stöðu sína í Iowa og næstu fylkin sem fylgja á eftir.
Fyrir nokkrum vikum töldu flestir nærri ráðið að Hillary Rodham Clinton og Rudy Giuliani myndu takast á um Hvíta húsið. Nýjasta könnunin sýnir að allt er opið í sjálfu sér. Það er ekkert búið enn í þessum slag og til mikils sannarlega að berjast í fyrstu forsetakosningunum í átta áratugi þar sem hvorki forseti né varaforseti eru í forkosningaferlinu.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.12.2007 | 16:19
Norðlensk bókaútgáfa
Blá birta er fyrsta skáldsaga Helga Jónssonar, bókaútgefanda hjá Tindi. Í henni er sagt frá eldri hjónum, Ásdísi og Jónmundi, sem standa á krossgötum og verða að bregða búi eftir áratugavist í sveitinni sem þau bæði unna - bærinn verður fúinn og jörðin rýrnar í takt við nútímastrauminn úr sveitabyggðunum. Það er í senn hugljúfur tónn í þessari en líka mjög hreinskilinn. Talað er hreint út um vandamál hjónanna og krossgöturnar sem þau eru á. Einnig kynnist lesandinn vel þeim nýja veruleika sem þau horfast í augu við.
Tónn minninganna er líka sterkur í þessari bók. Eins og hjá öllu venjulegu fólki einkennast þær í senn af ljúfum tímum en einnig sárum. Frásögnin einkennist af eftirsjá eftir hinum liðna tíma og blæ sveitalífsins fyrr á árum, tíma sem sannarlega er liðinn, bæði tíma mikillar vinnu og sárinda en lifir þó innst í hjartarótinni sem hugljúfur. Helgi segir sögu hjónanna með notalegum hætti, þarna er skrifað af tilfinningu og innlifun. Það var áhugavert að lesa fyrstu skáldsögu Helga og vonandi er stutt í þá næstu.
Helgi er þekktur fyrir Gæsahúðarbækur sínar, spennusögur skrifaðar fyrir krakka. Þær eru orðnar fleiri en tíu talsins og hafa vakið athygli á Helga sem rithöfundi en þær hafa notið vinsælda hjá börnum og unglingum. Í nýjustu bókinni í flokknum Villi Vampíra skrifar Helgi fyrir eldri krakka sérstaklega og fetar þar nýja slóð, bókin verður dekkri og beittari en þær hinar fyrri. Það er áhugavert að sjá hvernig Helgi staðsetur bókina hér á Akureyri og spinnur sögu sem virkar fjarstæðukennd vegna allra aðstæðna en verður samt svo öflug og sönn.
Helgi boðar framhald þessa bókaflokks. Það verður sannarlega spennandi að sjá í hvaða átt hann fetar með þennan nýja flokk spennusögu fyrir eldri krakka, sem er fjarri því sárasaklaust ævintýri heldur alvara hin mesta, saga sem snýst um líf og dauða. Helgi hefur verið bestur að mínu mati við að byggja þessar spennusögur fyrir krakka og hefur notið vinsælda fyrir þau skrif sín. Það er sniðugt hjá honum að feta lengra með þær frásagnir og taka nýtt skref í þeim skrifum, prófa hvernig þessi skrif passa við eldri krakka. Bókin var sannarlega spennandi og áhugaverð.
Júlíus Júlíusson, þúsundþjalasmiður á Dalvík, er landskunnur fyrir stjórn sína á fiskideginum mikla á Dalvík síðustu árin. Auk þess hefur hann orðið frægur fyrir að halda úti vinsælum jólavef, þar sem fjallað er um jólahátíðina með fjölbreyttum og litríkum hætti. Það kemur því ekki að óvörum að fyrsta bók Júlla sé notaleg jólasaga fyrir börnin - Blíð og bangsi litli.
Helstu kostir jólabarnsins í Júlla koma þar vel fram og bókin er sannarlega lifandi í frásögn og áhugaverð, einkum og sér í lagi fyrir glæsilegar myndir Sunnu Bjarkar Hreiðarsdóttur sem glæðir söguna lífi. Það voru einna helst myndir Sunnu sem vakti athygli mína og hún skapar myndrænan blæ utan um hugljúfa jólasögu.
Vil óska Helga góðs gengis í bókaútgáfu sinni. Það er alltaf gott þegar að fólk sinnir áhugamálum sínum og byggir upp fyrirtæki á heimavelli, byggir upp eitthvað nýtt og áhugavert.
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.12.2007 | 12:33
Grafalvarlegar fregnir

Koma þessar fregnir sem nokkuð reiðarslag eftir uppbyggingu í skólamálum á undanförnum árum, en vel hefur verið unnið víða í málaflokknum. Stærðfræðiþekkingin hlýtur að vera mesta áfall okkar þegar að litið er yfir námsgreinar, en við erum þar á hraðri niðurleið. Það er svosem ekkert nýtt vandamál að stærðfræðiþekkingu sé kannski ábótavant en það hlýtur að teljast áfall að sjá niðursveiflu af þessu tagi.
Við höfum markað okkur sess sem lestrarþjóð, þar sem lykilatriði hefur jafnan verið að lesa mikið af bókum og lesturinn hefur verið okkar helsta lykilstoð að mjög mörgu leyti. Það að lestrarkunnáttu barna á lokastigum grunnskóla hraki umtalsvert eru dökkar fregnir og hljóta að leiða til þess að við hugsum um það á hvaða leið við erum eiginlega.
Við þurfum að hugsa okkar ráð í kjölfar þessarar niðurstöðu. Það getur varla talist annað en lykilmál til að taka á að ungmenni landsins séu með lélegan námsárangur og lestrarkunnáttu þeirra hraki. Það verður áhugavert að sjá hvernig að yfirmenn menntamála taki á þessari niðurstöðu.
![]() |
Staða Íslands versnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
4.12.2007 | 11:06
Vinsældir eilífðartöffarans Bó Hall

Hef t.d. alltaf metið mikils hversu öflugur hann er í textaframburði, hann er einn af þeim fáu hér heima sem getur sungið ensku af fagmennsku og hann syngur hvert orð af innlifun, tært og undurljúft. Það skilja allir hvert orð í söng Björgvins. Hann er svona eins og Raggi Bjarna og Haukur Morthens sinnar kynslóðar. Reyndar er Bubbi Morthens aðeins fimm árum yngri en Björgvin en það er ekki rétt að bera þessa tvo tónlistarmenn saman, svo stórir eru þeir báðir í tónlistarsögu okkar og hafa markað mikil áhrif á sínum vettvangi bransans.
Björgvin hefur líka staðið sig vel í jólatónlist og virðist helst vera í umræðunni þessa dagana vegna tónleikanna um næstu helgi og útgáfu nýrrar jólaplötu. Það eru tveir áratugir síðan að Björgvin gaf út sína fyrstu jólagestaplötu. Þar var fókusinn ekki á að syngja gömlu jólalögin sem allir þekktu heldur spáð í nýjum lögum - leitað var til Ítalíu og settar jólakúlur á góð ítölsk lög. Þetta form hefur ekki klikkað og mörg eftirminnilegustu jólalög síðustu áratuga eru ítalíuskotnu jólalögin hans Björgvins.
Nokkur jólalög með Björgvini og gestum hans eru í tónlistarspilaranum hér á vefnum. Eins og allir ættu að taka eftir er kominn jólabragur á spilarann, enda viðeigandi, þar sem aðeins tuttugu dagar eru til jóla. Best allra þessara jólalaga sem Björgvin ættleiddi frá Ítalíu og gerði að sínum er dúett hans og Ruth Reginalds - það er að sjálfsögðu í spilaranum.
![]() |
Bó plataði Loga í beinni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tónlist | Breytt s.d. kl. 11:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
4.12.2007 | 02:22
Þegnarnir hafna Chavez sem einræðisherra
Það kom skemmtilega á óvart að þegnarnir í Venezuela ákváðu að hafna Hugo Chavez sem einræðisherra. Það er öllum ljóst að hefðu stjórnarskrárbreytingar hans náð fram að ganga hefði einræði þessa vitfirrta þjóðarleiðtoga verið endanlega staðfest. Ekki aðeins hefði hann getað ríkt til eilífðarnóns heldur hefði hann getað haft alræðisvald yfir fjölmiðlum og getað skipað upp á sitt einsdæmi borgar- og bæjarstjóra í landinu.
Með þessu eru kjörtímabilsmörk Chavez staðfest og hann hverfur því úr embætti á eðlilegum tíma, að óbreyttu. Hann fetar þar í fótspor fjandvinar síns, George Walker Bush, sem er eins og flestir vita bundinn kjörtímabilsmörkum og getur ekki gefið kost á sér oftar í forsetakosningum. Það er að mínu mati eðlilegur hluti lýðræðis að menn geti ekki gert sjálfa sig að drottnurum með því að breyta stjórnarskrá og skipa sjálfa sig í guða tölu með alræðisvaldi.
Held að íbúar Venezuela geti verið stoltir af því að láta ekki fagurgala Chavez blinda sér sýn og hafna tillögum hans. Þarna var í pípunum enda einræðisstjórn af sama kalíber og sú sem Castro hefur leitt í hálfa öld í Kúbu. Castro er fyrirmynd Chavez og augljóst var að hann vildi feta í fótspor hans með kosningunni. Það er engum vinstrimanni til sóma að fasistar vilji láta skipa sig alvalda til eilífðarnóns, allt í nafni sósíalisma.
En það sér samt ekki fyrir lokin á þessu ferli tel ég. Chavez var strax farinn að tala um það í gær að endurtaka kosninguna. Hann ætlar sér að ná þessu í gegn sama hvað tautar og raular. En vonandi tekst honum það ekki. Það verður áhugavert að sjá hvað gerist og hvernig Chavez reynir að þröngva sér framhjá lýðræðinu og færa landið í einræðisátt, miðað við ummæli hans um úrslit kosninganna.
![]() |
Bandaríkin fagna ósigri Chavez |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
4.12.2007 | 00:16
Kyntákn gerist ráðsettur fjölskyldafaðir

Brad hefur túlkað mjög ólíkar persónur á löngum leikferli og átt margar gullnar stundir á hvíta tjaldinu. Stundum hefur hann verið frekar fáklæddur og sýnt kroppinn með áberandi hætti. Sennilega var síðasta myndin af því tagi Troy fyrir nokkrum árum. Pitt hefur ennfremur leikið dramatísk hlutverk sem krefjast alvöru leiktúlkunar, án nektar, og hefur oft verið mjög góður. Persónulega hefur mér alltaf þótt bestu myndir hans vera Se7en og Fight Club, kvikmyndir meistarans David Fincher sem eru skemmtilega ólíkar en kröfðust alls af Pitt sem leikara.
Mér finnst yfirlýsing Pitt um nektina vera skemmtilega aðra nálgun á nútímann, þar sem nekt er orðin standard söluvara í kvikmyndum, tónlist og sjónvarpsþáttum - liggur við líka allt þar á milli í sviðsbransanum. Þetta er sterkt statement á þessum tímum þar sem flestir keppast við afhjúpa sig sem allra mest. En kannski er Pitt einfaldlega búinn með kvótann í þessum geira bransans. Það er kannski varla undur og stórmerki að maður á fimmtugsaldri breyti til með þessum hætti. En þetta eru samt tíðindi þegar að maður á borð við Brad Pitt á í hlut, enda hefur hann svo mikið auglýst sig með kynþokkanum.
Pitt mun brátt birtast kvikmyndaáhorfendum í endurgerð hinnar þekktu hasarmyndar Bullitt, sem skartaði Steve McQueen árið 1968. Steve McQueen var auðvitað stórstjarna á síns tíma mælikvarða. Hann á það sameiginlegt með Brad Pitt að vera myndræn stjarna með glans að nær öllu leyti. Hann hafði sjarma og glæsileika, gat túlkað bæði gaman sem drama á næman hátt. Hafði allan pakkann. McQueen var þó ekki bara sæti strákurinn á hvíta tjaldinu, hann gat bæði verið sá harði og mildi. Túlkaði bæði næmar týpur og eins rosalega nagla sem allir tóku eftir, gátu stungið hressilega. Að því leyti eru þeir tveir líkir.
Væntanlega eru kvenkyns aðdáendur Pitts ekkert sérlega ánægðir með ákvörðun Pitts, en þær geta þá bara horft á eldri myndir í staðinn.
Ein eftirminnilegasta sena kvikmyndaferils Pitts er uppgjörið í Seven. Um að gera að rifja það gullna augnablik upp hér.
![]() |
Aldrei aftur allsber Pitt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.12.2007 | 18:05
Dró sveitarstjórinn í Grímsey sér fé frá hreppnum?

Það gerist ekki á hverjum degi að skrifstofur sveitarfélags séu innsiglaðar vegna gruns um fjárdrátt og bókhaldssvik stjórnanda innan þess og vekur það því sannarlega mikla athygli. Svona vont mál hlýtur að liggja sem þung mara yfir jafn litlu sveitarfélagi og Grímsey er, þar sem samfélagið er eins og ein samheldin fjölskylda í raun og veru.
Það hljóta að hafa verið þung spor fyrir menn að taka svona á málum en eitthvað hlýtur að hafa legið fyrir sem grundvöllur ákvörðunar af þessu tagi. Fyrst og fremst er mikilvægt að fara vel yfir allt málið og athuga hvert umfang þess hefur í raun verið. En þetta eru vondar fregnir fyrir Grímseyinga og vonandi ná þeir að vinna úr þessu dökka máli.
![]() |
Skrifstofa sveitarstjórnar Grímseyjar innsigluð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |