26.2.2008 | 14:02
Bloggari dæmdur - Gaukur tapar fyrir Ómari
Ég hef alltaf verið þeirrar skoðunar að fólk verði að gá að sér þegar að það skrifar á blogg. Eitt er að hafa skoðanir, annað er að ráðast ómerkilega að fólki og með ósmekkleg ummæli. Það sést í þessu máli þar sem ummæli sem greinilega fóru langt yfir markið eru dæmd dauð og ómerk og bloggari verður að greiða miskabætur til þess sem hann fjallaði um. Eflaust verða málin fleiri síðar meir en þetta er sögulegur dómur og mjög merkilegur vegna þess fordæmis sem hann setur um ábyrgð á orðavali og umfjöllun í bloggheimum.
Það er ágætt að svona standard sé settur yfir, að fólk passi sig á því hvað það skrifar. Það er ágætt að tjá sig vel um þau mál sem eru í gangi en það verður að gera af ábyrgum og siðlegum hætti en ekki með blammeringum í allar áttir. Þessi dómur verður sem ágætis lexía í þeim efnum.
![]() |
Sekur um meiðyrði á bloggi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
26.2.2008 | 13:26
Sögulega lágt áhorf á áttræðisafmæli Óskarsins

Það þurfti að vera mikill kvikmyndaáhugamaður til að sitja yfir prógramminu og mér persónulega fannst gaman af hátíðinni, en það er auðvitað einkum vegna þess að ég hef fylgst með óskarnum í tvo áratugi og hef gaman af þessu. Það er löngu þekkt staðreynd að fáir hafa gaman af tækni- og umgjörðarverðlaunum kvikmyndanna og því hefur verið kryddað vel inn á milli af góðri tónlist, skemmtilegum klippum og góðum atriðum þar sem fjallað er um kvikmyndir með öðruvísi hætti.
Tónlistaratriðin voru beinlínis hundleiðinleg að þessu sinni. Það voru óvenjulega slöpp lög tilnefnd sem besta kvikmyndalagið að þessu sinni og gerðu atriðin með tilnefndu lögunum lítið til að lyfta hátíðinni upp. Svo vantaði tilfinnanlega að farið væri betur yfir óskarssöguna með veglegri klippum, með því að heiðra leikara og hafa þá saman á sviðinu, eins og gert var 1998 og 2003 og var velheppnað og tónlistarupprifjun á þeim lögum sem hafa unnið óskarinn. Burt Bacharach setti saman eftirminnilegt tónlistarprógramm á óskarnum fyrir sjö árum sem lyfti þeirri hátíð vel upp og slíkt hefði verið vel þegið nú.
Það er því orðið svo að það eru allra hörðustu aðdáendur kvikmyndanna og hátískunnar sem sitja yfir prógramminu, sumir gefast upp í biðinni eftir flottustu verðlaununum og stórtíðindunum. Það gerðist reyndar nú að þeim var dreift meira um dagskrána en hefur oft verið. Með þessu fékkst ágætis dreifing á spennandi lykilatriði kvöldsins. Það sem vantaði var gott krydd inn á milli af tónlist og kvikmyndasögu og sérstaklega þar sem þetta var afmælishátíð.
Kynnirinn Jon Stewart stóð sig hinsvegar mjög vel og var með góða brandara, stóð sig mun betur en þegar hann kynnti fyrir tveim árum. Það er því ekki honum að kenna að áhorfið hafi náð botni. Það sem vantaði var almenn afþreying, enda eru ekki allir til í að sitja yfir sjónvarpinu vel á fjórða tímann yfir tækni- og umgjörðarverðlaunum kvikmyndanna í bið eftir stóru verðlaununum, án þess að fá einhverja létta og góða skemmtun inn á milli.
![]() |
Áhorf á Óskarsverðlaun í lágmarki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.2.2008 | 10:58
Ódýrara að fara í Hvalfjarðargöngin

Annars hefur umferðin um göngin verið mun meiri en áður var talið og þeir eru fáir sem keyra Hvalfjörðinn. Man að þegar að göngin voru vígð voru áætlanir um að það tæki sautján ár að borga göngin með þeim vegtolli sem þá var lagt upp með.
Það eru tíu ár liðin frá opnun og mér minnir að tölur hafi sýnt að um 95% sem fara leiðina, hið minnsta, fari göngin og sleppi Hvalfirðinum. Það segir allt sem segja þarf um hversu mikil samgöngubót Hvalfjarðargöngin voru.
![]() |
Veggjald í Hvalfjarðargöngum lækkar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
26.2.2008 | 01:36
Algjört ógeð
Þess eru reyndar dæmi að þetta hafi verið gert við karlmenn líka, að konur hafi sett ólyfjan í drykki þeirra. Þetta er ógeðslegur heimur sem felst í notkun svona lyfja og er dapurlegt að öllu leyti.
![]() |
Grunaðir um að hafa sett lyf í drykki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
26.2.2008 | 00:18
Ákveða þarf sem fyrst hver verði borgarstjóri

Það er eðlilegt að kallað sé eftir enda á þessum spurningum um forystu Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Þessi krísa hefur skaðað flokkinn í höfuðvígi hans og það verður að binda enda á þessa óvissu, svo að um annað verði rætt í borgarmálunum en það hver eigi að leiða flokkinn sem borgarstjóri á síðari hluta kjörtímabilsins. Það er hreinlegast og best að í þeim efnum sé litið til niðurstöðu í fjölmennasta prófkjöri Íslandssögunnar, sem fram fór fyrir síðustu kosningar meðal sjálfstæðismanna í borginni. Það er fjarstæða að horfa framhjá því.
Sé vafi uppi um að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson hafi styrk og stuðning til að verða borgarstjóri, eins og við blasir reyndar af atburðarás síðustu daga, á að fara yfir listann og finna nýjan borgarstjóra í kjölfar þess sem skipar fyrsta sætið. Hér á Akureyri og ennfremur í Mosfellsbæ hættu bæjarstjórar sem leiddu flokkinn sem leiðtogar á fyrri hluta kjörtímabilsins og héldu í önnur verkefni. Þar var sjálfgefið að sá sem skipaði annað sætið yrði bæjarstjóri í nafni flokksins og tæki við leiðtogahlutverkinu. Það á ekkert annað að gilda um Reykjavík í þessum efnum.
Sé bakland leiðtoga flokksins í borginni brostið eins og sést á þessum vafa er eðlilegast að Hanna Birna Kristjánsdóttir verði borgarstjóri. Það er ekkert flókið við það og er eiginlega með ólíkindum að ekki enn hafi verið höggvið á þennan hnút, enda er þessi krísa engum til góðs, sérstaklega hvorki flokknum né þeim sem eru kjörnir fulltrúar hans í Reykjavík.
Þessi galtóma niðurstaða sunnudagsins lokar ekki á kjaftasögur og vangaveltur um styrk Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík til forystu. Á meðan að ekki er tekið af skarið og svarað þeirri spurningu sem mestu skiptir mun allt snúast um hvort flokkurinn hafi styrkt til að hafa völd í höfuðborginni.
![]() |
Niðurstaðan ekki eins skýr og ætla hefði mátt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
25.2.2008 | 22:14
Kvikmynd um sögulegan leiðtogafund í sjónmáli

Það er óumdeilt að leiðtogafundurinn í Höfða í október 1986 markaði söguleg þáttaskil; færði leiðtogana saman, þeir kynntust betur og vissu meira um grunn hvors annars, bæði persónulega og pólitískt. Þeir vissu að þeir gætu samið, sorglega litlu munaði að sagan yrði mótuð á fundinum og kalda stríðinu lyki fyrr en ella. Enda tala bæði bandarískir og sovéskir embættismenn þessara sögulega ára að í Reykjavík hafi verið upphafið að endalokum kalda stríðsins.
Allt sem á eftir fundinum kom og lauk með hruni kommúnistastjórna í Evrópu og uppstokkun í kjarnorkuvopnamálum voru afleiðingar Höfða-fundarins. Það hefði óneitanlega verið einstakt fyrir okkur að leiðtogarnir myndu ná sögulegu samkomulagi í Reykjavík. Við getum allavega huggað okkur við það að þessi fundur á sess í mótun sögulegra þáttaskila. Þó fundurinn hafi virkað sem sár vonbrigði á októberkvöldinu 1986 þegar að Reagan og Gorbachev fóru í sínhvora áttina leikur enginn vafi á því að þar var upphaf endataflsins í refskák stórveldanna á þessum tíma leikið.
Það er merkilegt að sumir sérfræðingar kalda stríðsmála meti fundinn jafnmikilvægan sögulega séð og Jalta-fundinn. Hann braut blað í samskiptum tveggja ólíkra póla í heimsmyndinni og sagan var þar rituð að hluta. Eftirmálinn er öllum ljós. Það er mikilvægt að tryggja að kvikmyndin um þennan merka atburð verði gerð hér heima en ekki annarsstaðar og vonandi er tryggt að myndin verði gerð.
Það verður spennandi að sjá hverjir muni leika leiðtogana. Ætli að frægir bandarískir leikarar muni t.d. leika Vigdísi Finnbogadóttur og Steingrím Hermannsson í þessari mynd? Spennandi verður að sjá.
![]() |
Hafa fengið leyfi til að kvikmynda í Höfða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.2.2008 | 20:13
Bandarískt forsetaefni með túrban - hörð barátta

Það hlýtur að vera áhyggjuefni fyrir demókrata hversu hvöss og kuldaleg baráttan á milli Hillary og Obama er orðin. Það er engu líkara en þarna sé baráttan um forsetaembættið í nóvember en ekki forkosningaslagur flokkssamherja. Þetta virðist stefna í að verða álíka kuldalegt einvígi og það sem John McCain og George W. Bush háðu fyrir átta árum þar sem var gengið mjög langt í almennu skítkasti og dregið upp allt sem mögulegt mátti vera til að skaða frambjóðendur. Sú barátta lauk þó á ofur-þriðjudegi og var því ekki það langvinn að skaða flokkinn sem slíkan.
Þarna er enn slegist harkalega um hvern þingfulltrúa, enn sem komið er hið minnsta, og fari svo að Hillary nái að slá Obama við í næstu viku mun slagurinn standa fram eftir aprílmánuði hið minnsta. Það eru reyndar öll teikn á lofti um það að Hillary ætli að keppa eins lengi og hún geti og slagurinn verði alvöru í nokkurn tíma enn. Það veltur þó allt á því hvað gerist í Texas og Ohio.
En þessi myndbirting er lýsandi um stemmninguna í baráttunni. Hillary var æf um helgina og í baráttuhug, með stingandi reiðisvip hélt hún á auglýsingasnepli frá Obama sem rangtúlkaði stefnumál hennar og flutti þrumandi skammarræðu yfir honum. Það er greinilegt að þessi mynd af Obama með túrban er andstæðingum hans vel að skapi.
Það hvort myndin hafi áhrif skal ósagt látið en það er allavega merkilegt að sjá bandarískt forsetaefni klætt í þessa múnderingu og greinilega framsetning sem Obama vill ekki að sjáist.
![]() |
Mynd af Obama veldur uppnámi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.2.2008 | 15:56
Mikill trúnaðarbrestur milli Þorbergs og HSÍ
Það er eðlilega spurt um hvort hann hafi stuðning í að vera áfram í stjórn HSÍ. Það sem gerir málið enn verra eru staðfestar sögusagnir um að hann hafi verið drukkinn í þættinum. Það er frekar leitt að sjá hversu mjög Þorbergur hefur skemmt fyrir sér en hann verður að taka ábyrgð á gjörðum sínum og eðlilega hlýtur hann að meta hvort sér sé sætt áfram í trúnaðarstöðum hjá HSÍ.
Þessi yfirlýsing er afgerandi í þeim efnum að HSÍ sver Þorberg og ummæli hans algjörlega af sér.
![]() |
Stjórnarmaður HSÍ brást trúnaði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
25.2.2008 | 13:49
Stórsigur Eurobandsins - ekki skipt um söngvara
Enda er nákvæmlega engin þörf á að skipta um söngvara í laginu. Þjóðin valdi þau enda með afgerandi hætti til að fara út og greinilegt að það er verið að koma á flot kjaftasögum til að reyna að rýra sigur þeirra eða skemma fyrir þeim með einhverjum hætti. Það virðist þó ekki hafa tekist, enda hefur höfundur lagsins nú talað afgerandi um þetta.
Sigur Eurobandsins í keppninni var traustur og afgerandi. This Is My Life hlaut meira en helmingi fleiri atkvæði en næsta lag á eftir, Ho Ho Ho, We Say Hey Hey. Það deilir því vonandi enginn um úrslitin. Þjóðin valdi þetta lag og ekkert meira um það að segja.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
25.2.2008 | 12:16
Guðmundur tekur aftur við landsliðinu
Það var ekki góð tilhugsun að velja erlendan þjálfara eftir allt sem á undan er gengið nú síðustu dagana og það er traustast úr því sem komið er að velja Guðmund. Hann þekkir vel til verkefnisins, enda var hann landsliðsþjálfari áður á þessum áratug en hætti árið 2004.
Eftir leiðindamálið með Þorberg Aðalsteinsson varð HSÍ að taka af skarið og ég tel að þeir hafi valið rétt í þeirri þröngu stöðu sem þeir voru í, eftir að þrír íslenskir þjálfarar og einn erlendur höfðu hafnað starfinu.
![]() |
Guðmundur ráðinn þjálfari |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.2.2008 | 08:45
Coen-kvöld í Hollywood - evrópskur leiksigur

Margt fór eftir bókinni í nótt, annað ekki. Sigur Marion Cotillard í aðalleikkonuflokknum var mjög verðskuldaður en margir höfðu talið að hún gæti myndi ekki geta sigrað Julie Christie. En hún kom, sá og sigraði. Tilda Swinton vann aukaleikkonuóskarinn mörgum að óvörum og sló við mörgum sterkum keppinautum um hnossið mikla. Sigur Daniels Day-Lewis og Javier Barden voru ekki óvæntir en ánægjulegir, enda stóðu þeir sig vel í rullum sínum.
En þetta var svo sannarlega kvöldið þeirra Coen-bræðra. Vel verðskuldað. Þetta var kvöld evrópskra leiksigra. Evrópskir leikarar tóku leikverðlaunin og mörkuðu sér sögulegan sess, þar sem enginn bandarískur leikari var verðlaunaður af akademíunni. Þetta var t.d. aðeins í þriðja skiptið sem leikari var verðlaunaður fyrir að leika á öðru tungumáli en ensku í kvikmynd, er Marion Cotillard vann fyrir La Vie en Rose.
Skrifaði nokkrar færslur gegnum nóttina og birti hér tengla á þær svo fólk geti lesið beint. Einnig bendi ég á óskarsspána mína frá í gærkvöldi.
- Spádómar um Óskarsverðlaun 2008
- Fróðleiksmolar um Óskarsverðlaunin
- Óskarsverðlaunahátíðin hafin í Los Angeles
- Javier Bardem hlýtur aukaleikaraóskarinn
- Tilda Swinton hlýtur aukaleikkonuóskarinn
- Marion Cotillard hlýtur aðalleikkonuverðlaunin
- Hinna látnu minnst í Hollywood
- Munu Coen-bræður taka kvöldið á Óskarnum?
- Daniel Day-Lewis vinnur aðalleikaraóskarinn
- Coen-bræður vinna leikstjóraóskarinn
- No Country for Old Men valin kvikmynd ársins
![]() |
Coen bræður sigursælir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Kvikmyndir | Breytt s.d. kl. 08:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
25.2.2008 | 05:38
No Country for Old Men valin kvikmynd ársins

Það var því vel við hæfi að Martin Scorsese afhenti þeim verðlaun, en hann var seint og um síðir tekinn í hóp hinna stóru í englaborginni fyrir aðeins ári með sigrinum fyrir The Departed. Það er reyndar mjög skemmtilegt að spennumynd hafi verið valin mynd ársins og virðist vera sem að óskarinn sé að breytast úr hátíð hinna stífelsuðu og að vera verðlaunahátíð fyrir aðeins ævisagna- og vandamálamyndir, sem hafa löngum verið sigursælar þar.
Allavega er áhugavert hversu sterkir hinir margfrægu utangarðsmenn kvikmyndavaldsins eru á Óskarnum. Auk merkilegs sigurs Coen-bræðra var auðvitað stórmerkilegt að allir leikverðlaunahafar kvöldsins voru frá Evrópu og hefur það aldrei gerst fyrr að bandaríska kvikmyndaakademían verðlauni aðeins leikara utan Bandaríkjanna á óskarsverðlaunahátíð. Gleðileg tíðindi það.
Þetta var virkilega skemmtileg hátíð; margar góðar stundir. Það var virkilega skemmtilegt að sjá fyrrum fatafelluna sem samdi handritið í Juno vinna og svona mætti lengi telja. Tek kvöldið betur saman í pistli síðar í dag. En í heildina; fínasta kvöld og góð skemmtun fyrir kvikmyndafíklana - já og Stewart stóð sig bara vel og með ansi flotta brandara inn á milli.
25.2.2008 | 04:52
Coen-bræður vinna leikstjóraóskarinn

Sigur þeirra er sögulegur, en það hefur aðeins gerst einu sinni áður að tveir menn vinni saman leikstjóraóskarinn. Það voru Jerome Robbins og Robert Wise fyrir West Side Story árið 1961. Ekki amalegt að fara í hóp með þeim snillingum.
Rakti áðan stóru myndirnar þeirra í biðtímanum eftir leikstjóraverðlaunum og óþarfi að endurtaka það. Ég sem aðdáandi þeirra og kvikmyndaverkanna sem þeir hafa gert er alsæll með sigur þeirra á þessu kvöldi.
25.2.2008 | 04:47
Daniel Day-Lewis vinnur aðalleikaraóskarinn

Mér hefur alltaf þótt Daniel Day-Lewis vera frábær leikari og á flestar mynda hans. Hann velur jafnan hlutverk af kostgæfni, aðeins leikið í 25 myndum á ferlinum og hann hefur t.d. enga mynd á teikniborðinu núna á þessari stundu. Hann hefur aðeins leikið í átta myndum frá því að hann hlaut óskarinn áður, fyrir átján árum. Meðal þeirra eru traustar stórmyndir á borð við In the Name of the Father, The Crucible, The Age of Innocence og The Last of the Mohicans.
Daniel Day-Lewis hlaut óskarinn fyrir eftirminnilega túlkun sína á hinum fatlaða Christy Brown í My Left Foot, sem gat aðeins hreyft vinstri fótinn og málaði með honum. Það er ein besta túlkun kvikmyndasögunnar að mínu mati, ótrúlega sönn og sterk.
Day-Lewis hefur aðeins leikið í einni annarri mynd frá því að hann var tilnefndur til verðlaunanna síðast, árið 2002 fyrir Gangs of New York, en það var stórleikur eins og þeir gerast allra bestir og voru reyndar flestir undrandi þá að hann fékk ekki verðlaunin. En þetta er kvöldið hans og auðvitað beygði Daniel sig fyrir "drottningunni" Helen Mirren er hann tók við óskarnum.
25.2.2008 | 04:30
Munu Coen-bræður taka kvöldið á Óskarnum?

Coen-bræður eru snillingar í kvikmyndagerð. Myndir á borð við Fargo, Raising Arizona, Hudsocker Proxy, The Man who wasn´t there, O Brother Where Art Thou?, Barton Fink, Big Lebowski, Blood Simple og Miller´s Crossing segja allt sem segja þarf. Þetta eru meistaraverk og löngu kominn tími til að þeir fái leikstjóraverðlaunin og ég vona að þeir fái þau.
Fargo er reyndar ein traustasta mynd seinni tíma. Flottur tónn og hvernig blandað er saman kaldrifjuðum húmor í alla stemmningu blóðs og glæpa. Tær snilld. Þeir vonandi slá við óskarsárangrinum með Fargo í nótt.
25.2.2008 | 04:19
Hinna látnu minnst í Hollywood
Það er alltaf eitt af stóru augnablikunum við afhendingu óskarsverðlaunanna þegar að sýnd er klippa til minningar um þá sem hafa látist frá síðustu óskarsverðlaunahátíð. Hilary Swank kynnti klippuna áðan og þar voru svipmyndir af þekktum leikurum og leikstjórum sem hafa kvatt þennan heim, sumir langt um aldur fram en aðrir háaldraðir.
Meðal þeirra leikstjóra sem hafa látist síðasta árið eru Michelangelo Antoniani og Ingmar Bergman, sem voru með þeim bestu á síðustu áratugum og mörkuðu stór skref í kvikmyndasögunni. Kvikmyndatökumaðurinn Freddie Francis lést líka, en hann var í mörgum af bestu myndum síðustu áratuga. Frægir leikarar á borð við Deborah Kerr, Lois Maxwell (sem lék Moneypenny), Jane Wyman (sem var fyrri eiginkona Ronalds Reagans, forseta Bandaríkjanna) og Miyoshi Umeki. Auk þess Jack Valenti og Michael Kidd svo nokkrir séu nefndir.
Í lok klippunnar var minnst Heath Ledger, sem lést langt fyrir aldur fram í síðasta mánuði og var harmdauði fyrir alla þá sem tengjast kvikmyndum með einum eða öðrum hætti, enda var hann að ná hátindi á ferli sínum er hann kvaddi þennan heim.
25.2.2008 | 03:35
Marion Cotillard hlýtur aðalleikkonuverðlaunin

Hafði einhvern veginn aldrei heyrt af þessari leikkonu fyrr en ég heyrði að hún hefði verið valin til að leika Edith Piaf og efaðist um valið þar sem hún var ekki mikið fræg fyrir utan Frakkland. En það voru svo sannarlega óþarfar áhyggjur. Það er mjög áhugavert að sjá myndina, bæði fyrir þá sem þekkja lítið tónlistarferil og ævi Piaf og eins þeir sem eru sérfræðingar um hana. Myndin er einfaldlega frábær. Þið sem eigið eftir að sjá hana smellið ykkur á eintak í næstu búð fljótlega!
Nokkur lög eru með hinni einu sönnu Edith í spilaranum. Edith Piaf hefur verið ein af uppáhaldssöngkonum mínum alla tíð og ekki að ástæðulausu; þvílík rödd og þvílíkur karakter. Algjörlega einstök og Cotillard túlkar hana með þeim hætti í myndinni. Túlkun sem einhvern veginn verður miklu stærri en myndin sem slík og það er öllum ljóst sem sjá myndina að þarna er komin til sögunnar frábær stjarna í leik.
Og með þessu markar Cotillard söguna enda er hún aðeins þriðji leikarinn í sögu akademíunnar sem fær óskarinn fyrir að leika á öðru tungumáli en ensku. Sophia Loren fékk óskarinn árið 1961 fyrir sína ógleymanlegu rullu í La Ciociara (Two Women) og Roberto Benigni fyrir að túlka Guido í La Vita é Bella (Life is Beautiful) árið 1998 - mynd sem er algjörlega einstök. Bæði töluðu auðvitað á ítölsku.
En já, nú er komið tilefni til að setja La Vie en Rose í dvd-spilarann á morgun! Frábær mynd og þetta er mögnuð túlkun.
Kvikmyndir | Breytt s.d. kl. 03:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
25.2.2008 | 03:21
Tilda Swinton hlýtur aukaleikkonuóskarinn

Man eiginlega fyrst eftir Tildu Swinton í The Beach og Vanilla Sky en hún varð fyrst virkilega heimsfræg sem leikkona fyrir glæsilega túlkun sína á Valerie Thomas í Adaptation - þeirri frábæru kvikmynd sem verður alltaf betri og betri eftir því sem maður sér hana oftar.
En já, þarna tókst akademíunni samt að gera mig hissa. Hafði búið mig undir að Amy Ryan tæki þetta, enda fannst mér hún svo flott í Gone Baby Gone, eða þá að Blanchett myndi vinna, en það er mjög stutt síðan hún vann og ekkert sem kallaði á að hún fengi annan óskar.
En já, segiði svo að óskarinn sé ekki spennandi.
25.2.2008 | 02:40
Javier Bardem hlýtur aukaleikaraóskarinn

Bardem er alveg nístandi hrollvekjandi í hlutverki sínu í myndinni, er alveg ískaldur í gegn í drápunum og fer á þvílíkt flug í þessum karakter. Hárgreiðslan er líka svakaleg alveg. Hann verður svo nöturlegur í rullunni. Þegar að ég sá fyrstu klippurnar af Bardem í þessu hlutverki var ég viss um að hann myndi fá óskarinn. Hann hefur verið þekktur fyrir svipmikla karaktera alla tíð, en þessi er alveg magnaður. Gleymist engum sem sjá myndina.
Man fyrst eftir Bardem í La Madre, spænskri mynd frá árinu 1995, en svo var það auðvitað í Before Night Falls sem hann varð loksins heimsfrægur. Besta leiktúlkun hans finnst mér þó vera eftirminnileg tjáning hans á Ramón í The Sea Inside (Mar Adentro), en það er mynd sem heillaði mig gjörsamlega upp úr skónum og ég varð eiginlega undrandi að hann fékk ekki tilnefningu til óskars fyrir hana, enda algjörlega frábær mynd. Hann var líka góður í Collateral
Það var eiginlega varla vafi á að Bardem myndi sigra. Það var helst að litið var á Philip Seymour Hoffman og Casey Affleck sem keppinauta, en þetta er árið hans Bardems og sigurinn verðskuldaður. Þetta er líka í fyrsta skiptið sem spænskur leikari vinnur óskarinn. Merkilegur áfangi það.
Það er spenna yfir óskarsverðlaunaafhendingunni. Framundan eru stærstu flokkarnir, þegar að tækni- og umgjörðarverðlaunum kvikmyndanna lýkur. Það er góðs viti fyrir No Country for Old Men og Coen-bræður að Bardem hafi unnið og fróðlegt að sjá hvort hún taki kvöldið.
Kvikmyndir | Breytt s.d. kl. 02:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
25.2.2008 | 01:51
Óskarsverðlaunahátíðin hafin í Los Angeles

Jon Stewart byrjaði afmælishátíð óskarsins vel áðan; fínir brandarar, bæði pólitískir og showbiz-legir eins og við er að búast á hátíðinni og það á kosningaári þegar að nýr forseti Bandaríkjanna verður kjörinn. Hann gerði góðlátlegt grín að gyðingum og leikurum. Stewart er að kynna óskarinn í annað skiptið að þessu sinni.
Þó að hann sé góður er Stewart aðeins skugginn af Billy Crystal, sem er sá besti síðustu áratugina. Því miður hefur hann ekki ljáð máls á að kynna óskarinn núna í ein fjögur ár og flestir vildu fá hann á afmælishátíðina. Hann Stewart er ekki heldur betri en Ellen, sem kynnti í fyrra og stóð sig fantavel.
Þetta verður skemmtileg nótt; afmælisbragur yfir óskarnum og nóg um að skrifa þegar að stóru verðlaunin fara að detta inn. Sum þykja fyrirsjánleg, önnur ekki og fróðlegt að sjá hvernig fer. Svo er að aldrei að vita nema að þetta komi okkur allt að óvörum. Þess eru dæmi. Daniel Day-Lewis og Javier Bardem eru þó traustustu veðmál kvöldsins.
Tel að mesta spennan sé um leikkkonuflokkana, sérstaklega hvað varðar aukaleikkonuna, en þar hefur allt að þrem verið spáð sigri með traustum hætti að mati hvers og eins. Sama gildir um leikkonuflokkinn, þó flestir telji Julie Christie örugga. Spennandi að sjá svo hvort þetta verði Coen-nótt. Ræðst allt á eftir!!
Svo er kominn nýr kynnir á Óskarnum hérna heima. Ívar Guðmundsson á Bylgjunni bara hættur að kynna eftir ein tólf eða þrettán ár. Minnir að Ívar hafi byrjað að kynna á óskarsverðlaunahátíðinni 1996, þegar að Braveheart vann auk Nicolas Cage og Susan Sarandon. Langur tími að baki.
Þorfinnur Ómarsson er kominn í staðinn en hann er svosem ágætur. Var samt orðinn frekar vanur Ívari sem kynni. Vona að Þorfinnur standi sig vel bara, hann er ágætur í pásunum en virðist ekki kjafta ofan í allt eins og sumir sem taka þetta að sér. Það er gersamlega óþolandi!
En já, spennandi nótt. Nóg framundan og spennan magnast.... Verði fjör!
Kvikmyndir | Breytt s.d. kl. 01:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)