15.5.2008 | 12:37
Mótmæli bílstjóranna að renna út í sandinn
Núna telja þeir málstað sínum best borgið með því að öskra á alþingismenn við störf í þinghúsinu. Er hættur að skilja þessi mótmæli, það vantar forystuna og strategíuna í pakkann og eftir er ekkert nema vandræðaleg mótmæli úr fókus. Innan við 100 manns svöruðu kalli bílstjóranna og tóku þátt í mótmælum þeirra. Þeir fengu vissa samúðarbylgju fyrstu vikurnar í baráttunni. Þeir sendu út statement um stöðu sína og náðu athygli en höfðu ekki kraft og klókindi til að fara með þá baráttu alla leið.
Held að engum hópi með kröfur gegn ríkinu hafi áður tekist að klúðra sínum málum jafn illa og bílstjórunum. Þeim tókst ekki að ná samstöðu með þjóðinni - fóru fram úr sér og verða víst að bíta úr nálinni með það. Held að þeir hafi fyrst og fremst byrjað á vitlausum enda í mótmælunum og gert þetta rangt, enda standa þeir eftir mjög einir. Þetta eru ekki mótmæli fjöldans.
![]() |
Hrópað af þingpöllum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.5.2008 | 01:44
Magnús Þór flýgur fram af hengifluginu

Magnús Þór hefur farið hamförum í tali sínu og gengisfellt sig (toppað fyrri klúður) og Frjálslynda flokkinn endanlega sem einhverskonar andstæðing innflytjenda. Hvers vegna eigum við ekki að taka á móti erlendu flóttafólki og styðja við bakið á því. Við hér fyrir norðan höfum tekið við fjölda innflytjenda; til Dalvíkur komu fjöldi flóttamanna frá Kósóvó árið 1999 og hingað til Akureyrar komu sex fjölskyldur frá fyrrum Júgóslavíu árið 2003. Þetta fólk aðlagaðist okkar samfélagi vel og eru mætir íslenskir þegnar í dag. Enginn hefur talað um vandræði vegna þess.
Skil ekki þetta vandamálatal í frjálslyndum þegar kemur að innflytjendum. Bíður við svona tali og finnst það einum flokki til skammar að hafa talsmann á borð við þann sem við horfðum á í Kastljósinu í kvöld, sem elur á vandamálum og efasemdum um komu innflytjenda til landsins í samræmi við alþjóðsamþykktir. Við erum aflögufær og eigum að leggja okkar að mörkum. Það er mitt mat.
Undarlegast finnst mér tal Magnúsar Þórs um Karen Jónsdóttur. Þetta er konan sem hann valdi prívat og persónulega til að leiða listann á Skaganum og taldi rétta kostinn þá. Undarlegt er að hún hafi breyst eitthvað. Sennilega hefur það eitt breyst að hún fékk nóg af ofríki hans og lét eigin sannfæringu ráða för, en ekki skoðanir Magnúsar Þórs.
Finnst hann tala niður til Karenar, bæði sem konu og stjórnmálamanns. Gerir lítið úr hæfileikum hennar og verkum, á þeim forsendum að hún hafi nú aldrei verið hæf. Hvers vegna valdi hann þá hana? Sem strengjabrúðu sína í einu og öllu? Ef svo er verður skiljanlegra hvers vegna hann er fúll núna.
Mikið er annars þessi stjórnmálamaður auvirðilegur. Vonandi kemst hann aldrei til neinna áhrifa í íslenskum stjórnmálum, nema þá kannski að drepa endanlega þennan flokk.
![]() |
Lýsa yfir stuðningi við Magnús Þór Hafsteinsson |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.5.2008 | 00:54
Þorgerður Katrín talar hreint út um lykilmál

Enda ekki óeðlilegt þar sem kannanir á stöðu mála í borginni eru alvarlegt mál sem Sjálfstæðisflokkurinn á ekki að sætta sig við og eru alvarleg áminning um að flokksmenn haldi vöku sinni. Þögn eða afneitun á þeirri alvarlegu stöðu á ekki að vera valkostur. Sérstaklega sárnar þeim sem vilja flokknum vel hversu mjög hefur verið haldið illa á málum og afleitt ef ekki á að ákveða sem fyrst hver verði borgarstjóri. Óvissan mánuðum saman hefur skaðað flokkinn mjög og verður að taka á því sem fyrst.
Hvað varðar Evrópumálin fagna ég því að forystumaður innan flokksins tekur frumkvæði í umræðunni og kemur með afgerandi stefnu. Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, hefur talað mjög skynsamlega um þessi mál en mér hefur þótt vanta að formaður eða varaformaður flokksins kæmu með skýr svör við þeim mikilvægu spurningum sem brenna á fólki. Tvöföld þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB hljómar vel og ég held að það sé rétt skref sem felst í því að láta þjóðina taka af skarið um þessi mál, en láta ekki aðeins stjórnmálamenn móta vegvísinn í áttina að því að meta hvort við viljum tilheyra ESB.
Þorgerður Katrín talar af krafti og ábyrgð um þessi mál. Fyrir það verður að þakka. Hef ekki alltaf verið sammála henni, en met það helst við hana að hún er einbeitt og ákveðin í tali sínu um lykilmál. Það er alltaf mikilvægt að stjórnmálamenn hafi skýrar línur og leiði mál áfram og taki af skarið en láti ekki hlutina dankast og vera of lengi í biðferli. Svör hennar á fundinum sýna vel að þar fer leiðtogi sem þorir að tjá sig hreint út.
![]() |
Hefur áhyggjur af borgarmálum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.5.2008 | 23:41
Edwards styður Obama - útnefning í augsýn

Hillary Clinton hefur barist af krafti síðustu vikur en nær útilokað er fyrir hana að snúa töpuðu spili við. Ræða Obama í kvöld var augljóslega sett fram sem sterk skilaboð um að hann vill tryggja sameinaðan flokk að baki sér í forsetakosningunum þegar að hann nær útnefningunni á næstu vikum. Þar fái allir sem hafi barist við hann um útnefninguna sitt pláss og hann ætli að tryggja sterkt framboð flokksins með þeim brag að hann fari sameinaður í kosningarnar. Þetta eru skýrustu skilaboðin til þessa um að þegar Hillary viðurkennir ósigur muni hann rétta fram sáttahöndina til hennar.
Stóra spurningin í þessum forkosningaslag er ekki lengur um hver nái útnefningunni heldur hver verði varaforsetaefni Barack Obama í forsetakosningunum. Eðlilega er velt því fyrir sér hvort Obama muni til að styrkja flokkinn og sameina sundraðar hjarðir í honum bjóða Hillary sess við hlið sér og með því tryggja að hann eigi auðveldar með að ná stuðningi þeirra sem hafa tryggt henni kraft til að taka baráttuna svo lengi þó vitað hafi verið vikum saman að hún muni ekki ná á leiðarenda. Þessir hópar hafa fært henni sigur þegar allir telja hana af og augljóst er að það styrkir hana alla leið út forkosningaferlið.
Sigur Hillary í Vestur-Virginíu var fyrst og fremst táknrænn, enda sáust þá mjög vel veikleikarnir á framboði Obama, eins og ég fjallaði um hér í gærkvöldi. Þrátt fyrir mjög sterka stöðu og að vera með útnefninguna í sjónmáli nær hann ekki að sigra Hillary í fylkjum hvítra þar sem hún hefur lykilstöðu. Fólkið þar styður Hillary þó æ ólíklegra sé að hún nái útnefningunni. Í því felast skilaboð og augljóst á umsögn allra stjórnmálaskýrenda vestanhafs í dag að framboð hans er veikt ef hann nær ekki þessum lykilhópum á sitt band.
Óvissuferðin er framundan fyrir Obama þó útnefningin sé hans á næstu vikum. Í þeim efnum skiptir máli að hann sameini flokkinn að baki sér og sætti þá sem studdu Hillary við að styðja framboð sitt. Þetta er mikilvægasta verkefnið fyrir Obama á næstu vikum. Hann verður að sameina flokkinn í aðdraganda flokksþingsins í Denver. Í þeim efnum verður áhugavert að sjá hvernig Hillary lýkur baráttu sinni og hversu erfið lokahrinan í slagnum verði.
Hillary er þegar farin að dempa sig niður, eins og sást af ræðunni í Vestur-Virginíu og hún er að færast nær Obama. Væntanlega vill hún klára forkosningarnar fimm sem eru eftir á næstu þrem vikum, þó allir viti hvernig fer að leiðarlokum. Og stóra spurningin er hvernig hún mun færa sig nær Obama og hvort að þau sættist á að fylkja saman liði, hann með sína styrkleika og hún með sína.
![]() |
Edwards lýsir stuðningi við Obama |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.5.2008 | 18:21
Svarti dagurinn hjá Glitni - erfið uppstokkun

Auðvitað er það alltaf kuldalegt og erfitt að vera í þeim bransa sem er á niðurleið og vita að það á að stokka upp - það vill enginn verða fyrir þeim niðurskurði. Hið versta í þessu er að flestir vita að þetta er ekki endapunktur hagræðingar og uppstokkunar. Búast má við að tekið verði á bruðlinu í kringum þessi fyrirtæki og horft í hvert horn eftir hagræðingarleiðum og ekki útilokað að fleirum verði sagt upp. Óvissan er mikil og ekki hægt annað en vorkenna þeim sem verða fyrir því.
Var fyrir nokkrum vikum á fundi með forstjóra í fjármálafyrirtæki. Þar skipti hann starfsmönnum í þrjá hópa; þann fyrsta sem væri eðalstarfsfólkið á vinnustaðnum, öðrum í miðlungshóp sem stæði sig ágætlega en væri að fljóta í og með á afrekum fyrsta hópsins og svo þeim þriðja sem væri sísta starfsfólkið sem væri að fljóta á því góða frá báðum efri hópunum. Eflaust kemur uppstokkun fyrst niður á lægri hópum þeirrar greiningar þegar sverfir að. Haldið er í toppfólkið en hinir mæta afgangi og eru fyrst skornir niður.
Þá reynir virkilega á góðu verkin í fyrirtækinu og hverjir standa sig. Farið hefur verið með uppsagnirnar í bönkunum, sem voru hafnar fyrir misseri síðan, hálfpartinn sem mannsmorð. Mörgum uppsögnum var lokið með starfslokasamningum svo að lítið var rætt um uppstokkanir. Öðrum er boðið að taka á sig lægri laun og þeir ganga svo út. Fyrir suma verður uppsögnin og uppstokkun á vinnustaðnum skiljanlega mjög erfið, enda er kuldalegt fyrir alla að vera sagt upp í svona tíðarfari.
En í öllum breytingum felast viss tækifæri. Vonandi er hið fornkveðna rétt að góðu fólki séu allir vegir færir, meira að segja í kuldatíð.
![]() |
88 sagt upp hjá Glitni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.5.2008 | 17:11
Hlægilegar ásakanir Magnúsar Þórs um valdarán
Finnst nú frekar fyndið að Magnús Þór Hafsteinsson saki Karen Jónsdóttur og Gísla S. Einarsson um valdarán með því að ganga í Sjálfstæðisflokkinn. Held að Magnús eigi sjálfur allan heiðurinn af því að Karen yfirgaf F-listann og vildi ekki sætta sig við afstöðu hans í flóttamannamálinu.
Sýnist á öllu að Magnús Þór hafi staðið algjörlega einn í því ferli, allir bæjarfulltrúar og helstu embættismenn bæjarkerfisins hafi sameinast gegn því sem hann í hlutverki formanns nefndarinnar í bæjarkerfinu hafði um málið að segja. Þarna hefur brostið strengur í samskiptum fólks og bæjarfulltrúinn hefur ekki séð sér fært lengur að vinna með varamanni sínum.
Held að áhugavert væri fyrir einhvern að kanna flóttamannamálið sem umlykur flóttamannamálið mikla á Skaganum - það sem snýr að því hversu marga Magnús Þór hefur hrakið frá Frjálslynda flokknum með vinnubrögðum sínum. Eins og frægt er orðið yfirgáfu þrír kjördæmaleiðtogar frjálslyndra á síðasta kjörtímabili flokkinn og þeir eru miklu fleiri. Eins og flestir muna fór varamaður Guðjóns Arnars Kristjánssonar og Sigurjóns Þórðarsonar á síðasta kjörtímabili í Norðvesturkjördæmi úr flokknum, kona á Akranesi. Þetta væri áhugaverð flóttamannasaga að skrifa um.
Magnús Þór virðist vera sífellt að einangra sig í pólitíkinni, ekki aðeins á heimavelli sínum í pólitíkinni með því að missa bæjarfulltrúann úr sinni liðssveit heldur flokksmenn um allt land, suma í miklum ábyrgðarstöðum fyrir Frjálslynda flokkinn. Þessi flokkur þarf greinilega ekki á óvinum að halda með þennan varaformann í brúnni.
![]() |
Magnús gagnrýnir nýjan meirihluta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.5.2008 | 14:37
Af hverju á að banna sjálfráða fólki að tjalda?
Ég hef hvergi á nokkrum vettvangi sem ég hef fylgst með og heyrt rökstuðninga með og á móti þessum fáránlegu aldurstakmörkum heyrt þeirri spurningu svarað af hverju mörkin voru sett við 23 ára aldur. Af hverju ekki 22 ára, nú eða 24 ára, eða kannski 25 ára? Þessi tala meikar verulega lítinn sens í huga mér og hef ég velt þessu máli verulega fyrir mér. 20 ára aldurstakmark hefði kannski verið skiljanlegt að vissu marki vegna áfengiskaupaaldurs, þó að það sé samt á gráu svæði í huga margra.
Ég stóð í þeirri trú fyrir verslunarmannahelgina í fyrra að tekin hefði verið sú ákvörðun að hafa aldurstakmarkið 18 ár. Enda var það í sjálfu sér varla svo fáránlegt viðmið. Við erum öll sjálfráða 18 ára og getum gert flest það sem okkur dettur í hug. Það að taka ákvörðun um að fara til Akureyrar og dvelja þar yfir helgi telst varla ólöglegt þegar að maður hefur náð átján ára aldri og getur sett sér sínar lífsins reglur að mestu leyti sjálfur með tilliti til lagabókstafsins í það minnsta.
Það að fá sér í glas ætti líka að vera eigin ákvörðun á þessum aldri. Það leiðir vissulega hugann að því hversvegna áfengiskaupaaldri hefur ekki verið breytt og hann settur við hlið 18 ára aldurs. Það fór mjög í taugarnar á mér að Sjálfstæðisflokkurinn á Akureyri stóð að því að setja slík aldursviðmið. Bæjarfulltrúar flokksins hafa ekki enn réttlætt þessa ákvörðun með alvöru rökum og satt best að segja efast ég um að þeir hafi allir verið spurðir áður.
Nú eru aðrir að apa sömu vitleysuna upp og allt á þeirri forsendu að öllum á aldrinum 18-23 ára sé ekki treystandi til að fara á tjaldsvæði á stórhátíðum. Eðlilegt er að spyrja hvort að sjálfræðisaldurinn sé ekki marktækur í 18 árum. Ef ekki á að hækka hann sennilega til að þóknast þeim sem vilja færa viðmiðin annað.
![]() |
Yngri en 23 ára bannað að tjalda nema í fylgd með fullorðnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.5.2008 | 13:43
Karen Jónsdóttir sparkar í Magnús Þór
Ekki kemur það að óvörum að Karen Jónsdóttir hafi sparkað í Magnús Þór Hafsteinsson eftir sérkennilega framkomu hans í flóttamannamálinu. Velur hún þann góða kost að ganga í Sjálfstæðisflokkinn og tryggja þar með hreinan meirihluta hans og um leið áhrifaleysi Magnúsar Þórs, sem greinilega hefur fælt bæjarfulltrúann sinn frá sér eins og svo marga aðra.
Eins og flestir muna eftir sagði Karen sig reyndar úr Frjálslynda flokknum í mars 2007, í aðdraganda alþingiskosninga, en hún var mjög ósátt við ákvörðun forystu Frjálslynda flokksins að bjóða Kristni H. Gunnarsson, kjörnum þingmanni Framsóknarflokksins í alþingiskosningunum 2003, annað sætið á lista Frjálslynda flokksins í Norðvesturkjördæmi. Staða hennar er því svipuð stöðu Ólafs F. Magnússonar sem var óháður borgarfulltrúi F-listans í Reykjavík lengi vel áður en hann gekk formlega í flokkinn árið 2005.
Ólafur F. hefur nú fyrir margt löngu sagt skilið við frjálslynda ennfremur, eins og sést hefur af köstum vissra lykilmanna frjálslyndra í hans garð, þó Margrét Sverrisdóttir, fjandvinkona Magnúsar Þórs, hafi reyndar ákveðið að segja skilið við hann líka. Ekki vantar það að frjálslynda pólitíkin þeirra er ansi óskiljanleg og gaman fyrir einhverja eflaust að skrifa krónológíu um meirihlutafulltrúana þeirra tvo á þessu kjörtímabili. Ekki væri svosem verra að fara yfir sögu þeirra sem hafa leitt lista í nafni flokksins á landsvísu.
Karen virðist hafa fyrir löngu yfirgefið Magnús Þór í raun og veru, en nú virðist flóttamannamálið, skiljanlega, hafa verið kornið sem fyllti mælinn. Man vel eftir því þegar að F-listinn á Skaganum hélt fund um REI-málið skömmu áður en meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks sprakk í október 2007 að þar talaði Magnús Þór digurbarkalega um stöðu mála og virtist vega þar að Gunnari Sigurðssyni, leiðtoga Sjálfstæðisflokksins, sérstaklega. Á fundinum var Karen Jónsdóttir hvergi sjáanleg né til viðtals.
Þannig að eflaust á þetta allt sér langan aðdraganda en nú er komið að endalokunum. Eftir er Magnús Þór í kuldanum en Karen orðin fullgildur bæjarfulltrúi í nafni Sjálfstæðisflokksins. Óska henni til hamingju með góða ákvörðun og færi sjálfstæðismönnum á Skaganum hamingjuóskir með hreinan meirihluta.
![]() |
Sjálfstæðismenn með hreinan meirihluta á Akranesi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
14.5.2008 | 10:48
Veruleikafirring Vilhjálms - snúa þarf vörn í sókn

Velti því reyndar mjög fyrir mér hvernig þeim líði núna sem unnu fyrir Vilhjálm Þ. baki brotnu í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins haustið 2005 og sögðu hann vera með reynsluna sem þyrfti í leiðtogastöðuna. Hann fór sérstaklega fram þá með slagorð tengd rúmlega tveggja áratuga borgarfulltrúaferli sínum og löngu starfi fyrir flokkinn. Frægar sögur eru af símtölum þar sem stuðningsmenn Vilhjálms Þ. töluðu gegn Gísla Marteini vegna þess að hann væri svo óreyndur og gæti aldrei orðið sterkur leiðtogi, annað en Vilhjálmur Þ. sem hefði reynsluna og aldurinn í hlutverkið.
Mjög dapurlegt hefur verið að fylgjast með pólitískri framgöngu Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar á þessu kjörtímabili. Hann fékk gullið tækifæri til að leiða Sjálfstæðisflokkinn rétta leið eftir tólf ára minnihlutasetu en mistókst það með vinnubrögðum sínum, sérstaklega í haust þar sem hann hafði samstarfsfólk sitt í borgarstjórn Reykjavíkur ekki með í ráðum og vann bakvið tjöldin með afleitum hætti. Gamaldags vinnubrögð úrelts leiðtoga. Ofan á allt annað voru fyrri mistök rifjuð upp í febrúar og Vilhjálmur Þ. náði ekki að ljúka málum með virðugleika og sóma fyrir flokkinn á örlagastundu.
Farsælast væri fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík að Vilhjálmur léti sem fyrst af leiðtogahlutverkinu og tryggði flokknum tækifæri til að stokka sig upp í skugga þessarar vondu stöðu sem eru eftirmæli leiðtogasetu hans. Áfellisdómur kjósenda yfir forystu Vilhjálms Þ. er greinilegur í þessari könnun og kallað eftir uppstokkun, sýnt verði myndugleika og flokknum tryggð sterk forysta til að taka á vandamálunum. Kjósendur flokksins yfirgefa hann vegna mistakanna á vakt Vilhjálms Þ. Heiðarlegast er að leiðtoginn axli ábyrgð á slíku klúðri.
Við blasir að það verður að taka af skarið fljótlega og tryggja styrka forystu fyrir flokkinn, nú þegar að leiðtoginn er rúinn trausti og trúverðugleiki hans gufaður upp. Svarið við stöðunni er ekki sú veruleikafirring sem felst í orðum hans, að umræðan ein hafi skaðað flokkinn. Enda langur vegur þar frá. Ekki þýðir að benda á aðra, heldur horfast í augu við stöðuna og reyna að snúa vörn í sókn.
![]() |
Umræðan Sjálfstæðisflokknum afar erfið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.5.2008 | 01:01
Hillary afhjúpar veikleika Obama með sigri í WV
Sigur Hillary Rodham Clinton í Vestur-Virginíu sýnir mikla veikleika í framboði Barack Obama en mun væntanlega ekki koma í veg fyrir að hann nái útnefningunni á næstu vikum. Hillary hefur barist af miklum krafti síðustu dagana gegn öllum þeim sem hafa talið hana af og sýnt að hún er mjög dugleg og einbeitt í baráttu sinni þrátt fyrir að valkostunum í baráttunni fækki.
Þó að sífellt verði erfiðara að sannfæra aðra um að framboðið nái á leiðarenda ferðast hún um fylkin sem eiga eftir að kjósa og talar eins og hún eigi enn alvöru séns. Hvernig sem allt fer á næstunni má hún vera stolt af sinni framgöngu og eiginlega hefur hún sýnt alla bestu kosti sína síðustu vikurnar, rétt eins og baráttan gekk illa framan af og hún missteig sig á lykilhluta baráttunnar. Sennilega voru mestu mistökin eftir kosninguna í Suður-Karólínu og í kjölfar stóra þriðjudags í febrúar.
Hillary hefur nefnilega verið að standa sig mjög vel að undanförnu og náð að eiga endurkomu í slaginn með mikilvægum sigrum síðustu vikurnar eftir að hafa höktað. Þau mistök verða henni dýrkeypt en hún hefur með sigrunum að undanförnu sýnt að Obama á erfitt með að sparka henni úr slagnum. Sama hversu illa hefur verið talað um hana og þrátt fyrir kjöraðstæður Obama að ná að klára dæmið skýst hún alltaf aftur í slaginn og nær að fá alla til að velta fyrir sér hvort að hann geti verið sterkur frambjóðandi þrátt fyrir að tölfræðin í þessum slag sýni að hann sé í raun búinn.
Efasemdir um Obama eru miklar, einkum vegna þess að greinilegt er að honum tekst mjög illa að ná alþýðufylginu; verkafólki, konum og eldri borgurum. Auk þess er hann veikur í hópi hvítra kjósenda í fylkjum síðustu vikurnar. Hann hefur aldrei náð þessum hópum almennilega á sitt band og þar er stærsta spurningamerkið í stöðunni. Þetta er aðaltrompið hennar Hillary, er eiginlega að verða það eina sem eftir er fyrir hana að tala fyrir eftir því sem slagurinn verður langdregnari og alltaf verði undrunin meiri af hverju Obama hafi ekki náð að klára dæmið.
Möguleikar Hillary eru mestir í baráttunni með því að benda á veikleika Obama, sem skýrast koma fram í Vestur-Virginíu. Þrátt fyrir að flokkselítan og ofurfulltrúar séu að færast á band Obama er enn spurt hversvegna hann geti ekki náð að klára dæmið með sigrum í þessum týpísku fylkjum hvítra kjósenda sem helst hafa stutt Hillary.
Þó að dæmið sé metið búið og allt virki slétt og fellt, Obama í hag, nær hann ekki að slá Hillary út sannfærandi og án hiks. Þetta eru stóru efasemdirnar núna, sem verða bráðum aðalpælingin um hvort hann geti sigrað í nóvember. Ekki er hægt að segja annað en þessar veigamiklu staðreyndir séu hróplega áberandi þessa dagana.
Nú sýna kannanir að flestir demókratar vilji að Hillary verði við hlið Obama í forsetakosningunum í nóvember, sem varaforsetaefni hans, þó minnihluti stuðningsmanna Obama vilji það. Sá möguleiki er uppi á borðinu, enda blasir við að Obama verður að fá stuðning þeirra sem styðja Hillary eigi hann að geta unnið í nóvember.
Hið stóra verkefni Obama, þegar hann nær útnefningunni, verður að svara þeirri spurningu með strategíusnillingum sínum hvernig hann höfði til þeirra sem stutt hafa Hillary síðustu vikurnar og tryggt henni baráttukraft svo lengi í slag við mann sem hefur nóg af peningum og allt sem þarf til að klára dæmið.
Ef hann vill ekki Hillary sér við hlið verður hann að horfa í þá átt engu að síður, þ.e.a.s. ef hann vilji vinna kosningarnar. Veikleikar hans eru augljósir og Hillary er að sýna þá allra best með því að lengja lokahrinu baráttunnar.
![]() |
Clinton vann í Vestur-Virginíu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
13.5.2008 | 18:40
Fylgishrun D-listans í RVK - nýjan leiðtoga strax!

Fylgishrunið er afgerandi merki þess að kjósendur flokksins sætta sig ekki við forystuleysið og vandræðaganginn sem einkennir stærsta flokk borgarmálanna á kjörtímabilinu. Eftir REI-málið og vandræðaganginn í febrúar sem náði hámarki með klaufalegasta blaðamannafundi íslenskrar fjölmiðla- og stjórnmálasögu er borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins í alvarlegum vandræðum og fylgismæling Gallups eru afgerandi skilaboð til flokksmanna í borginni og um land allt að taka af skarið og krefjast þess að þar verði unnið úr málum og tekið á vandanum.
Þetta fylgishrun eru sterk skilaboð sem verður að taka mjög alvarlega, einkum meðal flokksmanna í hverfisfélögum Sjálfstæðisflokksins. Þetta er áfall sem verður að vinna sig úr, ekki aðeins í lokuðum herbergjum í Valhöll heldur með fundum í flokksfélögum í borginni. Man ekki eftir svona mælingum hjá Sjálfstæðisflokknum í borgarmálunum frá því í aðdraganda stofnunar R-listans í ársbyrjun 1994. Markús Örn Antonsson sagði af sér sem borgarstjóri í mars 1994 eftir að flokkurinn hafði verið að mælast í 25-30% um skeið gegn sameinuðu framboði félagshyggjuaflanna. Það var þá, en flokkurinn hafði þá verið við völd í tólf ár.
Ef ekki verður tekið á málum mjög fljótlega og línur skýrðar með vali nýs leiðtoga og borgarstjóra að ári stefnir Sjálfstæðisflokkurinn í mikið afhroð í næstu kosningum. Ekki er viðunandi að flokkurinn mælist með svo lítið fylgi og andstæðingar hans með meirihlutafylgi, þar af Samfylkingin á mörkum þess að hljóta hreinan meirihluta og fella fimmta mann Sjálfstæðisflokksins. Þetta eru váleg tíðindi og afgerandi merki þess að Sjálfstæðisflokknum hefur mistekist að taka völdin af ábyrgð og krafti eftir tólf ára minnihlutasetu. Allar hrakfaraspár þeirra sem vildu leiðtogaskipti í febrúar og hreinar línur, en ekki sama hjakkið hafa því miður ræst.
Svona mælingar hefðu verið skiljanlegar á fyrstu valdadögum nýs meirihluta F- og D-lista en eftir hundrað daga er ljóst að meirihlutinn hefur verið dæmdur úr leik af kjósendum. Enda hefur hann verið afskaplega slappur og mál ekki verið leidd áfram af myndugleik og krafti. Farsinn í borgarmálunum virðist endalaus og skiljanlegt að fólki sé nóg boðið. Í veikri stöðu Vilhjálms Þ. í febrúar sagði ég reyndar í einni bloggfærslu að þeir tímar væru liðnir að kjósendur létu bjóða sér upp á veika forystu og stjórnleysi. Sjálfstæðisflokkurinn þyrfti að hugsa sín mál. Það hafa reynst orð að sönnu.
Staðan er alvarleg. Nú verður forysta Sjálfstæðisflokksins í höfuðvígi hans á landsvísu að fara að sýna myndugleik og taka á slæmri stöðu flokksins í borgarmálunum. Þetta er skrípaleikur sem flokksmenn á landsvísu sitja ekki þegjandi undir.
![]() |
Fylgi Sjálfstæðisflokks minnkar mikið í Reykjavík |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
13.5.2008 | 17:04
Ráðist á Guðmund í Byrginu
Ofbeldi er ekki lausnin til að refsa Guðmundi í Byrginu. Bíða á eftir endanlegri niðurstöðu dómstóla í máli hans og frekar leitt að einhver telji rétt að ráðast á hann eða skemma fyrir honum með því að taka bílinn hans fyrir. Finnst þetta frekar sorgleg viðbót við þetta dapurlega mál.
13.5.2008 | 14:28
Unglingadrykkjan og samræmdu prófin
Þegar að ég kláraði tíunda bekk var mikil gleði og ég held að flestir sem hafi upplifað þessi tímamót hafi viljað upplifa eitthvað virkilega skemmtilegt. Varla er til sá tíundi bekkur landsins þar sem ekki var pressa í hópnum fyrir því að gera þetta svona, nema þá í seinni tíð þar sem tekið hefur verið á málum sérstaklega af foreldrunum fyrirfram með dagskrá til að fagna tímamótunum án áfengis.
Greinilegt er að æska landsins lifir hátt. Veit ekki hvort það er of hátt, má vera. Freistandi er að vera á þeirri skoðun eftir umfjöllunina um þessa Skagagleði í próflokatíð. Foreldrarnir verða að hugsa um afkomendur sína þar til þeir hafa vit og aldur til samkvæmt landslögum. Það getur enginn gert betur en foreldrarnir í að hugsa um börnin sín.
Þeirra er hlutverkið að hafa vit á hvað sé rétt og rangt. Þess vegna er svolítið sorglegt að heyra sögur af því að sumir foreldrar reddi börnunum sínum víni. Sumir gera það að sögn til að þau fari ekki í ógeð eins og landa hreinlega. Vilja að þau fái alvöru vín frekar en vont sull. Taka því að sér að redda börnunum veigum.
Besta leiðin til að koma í veg fyrir unglingadrykkju próflokanna er að vera með óvissuferð og einhverja skipulagða dagskrá á vegum foreldranna. Sé það ekki gert fer það auðvitað svo að krakkarnir slái upp partý með léttum veigum.
![]() |
Fjöldaflutningar á ölvuðum unglingum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.5.2008 | 00:40
Morðaldan í London heldur áfram

Eins og ég sagði hér í færslu fyrir rétt um sólarhring lagði Boris Johnson, borgarstjóri, mikla áherslu á að berjast gegn morðöldunni í borginni í kosningabaráttu sinni fyrir nokkrum vikum og hefur talið mjög afgerandi í þá átt síðustu dagana. Nú reynir mjög á hvaða forystu Boris mun færa borgarbúum og hvort hægt verði að taka á þessum skelfilega vanda.
Þetta er svolítið sláandi fyrir okkur hér á Íslandi að heyra af þessari stöðu svo nálægt okkur. Þrettán unglingar hafa verið myrtir í borginni aðeins á þessu ári. Algengast er að framin séu stungumorð og oft ekki af miklu tilefni, annað hvort eru þetta slagsmál sem lýkur með að lagt er til einhvers eða að gengi ráðist á einhvern af handahófi. Mörg morðmál að undanförnu bera merki sérstaklega merki hins síðarnefnda.
Hef horft á umfjöllun um þetta á bresku fréttastöðvunum. Er alltaf jafn sorglegt, sérstaklega þegar að birtar eru myndir af börnum og unglingum sem hafa verið stungin til bana, myrt með hrottalegum hætti. Aðdáunarvert fannst mér að sjá viðbrögð móður drengsins sem myrtur var í gær, en hún var ótrúlega sterk og talaði af stillingu og tilfinningu um þennan mikla harmleik.
Þessi morðalda hvílir sem mara yfir heimsborginni London. Vonandi mun takast að vinna bug á þessu mikla meini.
![]() |
Myrtur á Oxfordstræti um miðjan dag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
12.5.2008 | 22:58
Hefner vill fá eina fimmtán ára á forsíðuna sína

Ekki er hægt að segja að Hefner sé að segja eða gera eitthvað nýtt með þessu umdeilda boði til hinnar ungu og saklausu sjónvarpsstjörnu sem komst reyndar í fréttirnar um daginn fyrir umdeilda mynd í Vanity Fair sem gerði húsbændur hennar hjá Disney alveg snarkandi illa. En sennilega bliknar það í samanburðinum við þetta boð Hefner sem greinilega vill með því bæði stuða þá sem hafa haft horn í síðu hans og ennfremur vekja athygli á sér og sínum bissness.
Reyndar keppast yngismeyjar um að fara til hans á setrið og vera í blaðinu hans, misjafnlega frægar. Sá frétt af því um helgina að hin tæplega þrítuga Holly Madison, sem er víst aðalhúsfreyjan á Playboy-setrinu, sé að reyna allt til að fá hinn hálfníræða glaumgosa til að giftast sér en hann hafnar á þeirri forsendu að hjónaband sé partur af fortíðinni hans. Fröken Madison er víst tilbúin til að gera gamla karlinum allt til geðs til að verða frú Hefner og hljóta góðan bita af ríkidæminu sem hann hefur safnað að sér á ferlinum.
Sama er hversu Hefner verður gamall og slitinn, alltaf nær hann athygli út á líferni sitt og hann er ekki beint feiminn við sviðsljósið. Kyndir frekar undir eldinn gegn sér og er slétt sama um þá sem helst gagnrýna hann og Playboy-lífið á setrinu margfræga. Meðal annars hafa verið gerðir raunveruleikaþættir um lífið þar og hafa þeir ekki síður vakið athygli fyrir hversu lífsglatt gamalmenni Hefner er fyrir húsfreyjurnar sínar.
Ætli að Hefner deyji ekki ekki sæll og glaður á þessu setri? Allavega er nokkuð öruggt að öldruðum er búið þar áhyggjulaust ævikvöld.
![]() |
Hefner vill nektarmynd af Cyrus í Playboy |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
12.5.2008 | 15:01
Leyndarmál fortíðarinnar

Áhugavert verður að sjá hver niðurstaða verður í rannsókninni, hver séu svörin við leyndarmálum gömlu konunnar í þessu húsi.
![]() |
Barnslík fundust í kassa á Englandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.5.2008 | 01:28
Morðalda í London - þrettán unglingar myrtir

Finnst alltaf jafn nöturlegt að heyra fréttir af þessum morðum á unglingum í London og ekki nema von að þar sé ein helsta spurningin hvað sé hægt að gera í stöðunni. Þeir á Sky hafa fjallað jafnan um þessi mál af ábyrgð og talað um allar hliðar þessara sorglegu morða og reynt að varpa ljósi á þá þætti sem mestu skipta. Þetta hefur sett þungan svartan blæ yfir allt mannlíf í borginni. Virðist fátt vera til ráða, blasir við að um uppsafnaðan vanda í samfélaginu sé að ræða.
David Cameron, leiðtogi Íhaldsflokksins, hefur bent á að þessir atburðir endurspegli alvarlega bresti í bresku samfélagi. Telur hann hættulega framkomu, einmanaleika og þunglyndi ungmenna m.a. stafa af ábyrgðarleysi fullorðinna og mjög skorti á ást og umhyggju í samfélaginu. Vísa forystumenn Íhaldsflokksins óspart á það að upplausn í fjölskyldum og agaleysi sé alvarlegt vandamál og hafa vísað á nýlega skýrslu Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna. Þar eru bresk börn á botninum hvað snertir hamingju og ánægju í lífinu.
Þetta mál virðist erfitt fyrir Verkamannaflokkinn sem skiljanlega vill ekki staðfesta að alvarlegir brestir séu í bresku samfélagi. Eftir áratug við völd er varla við því að búast að bresk stjórnvöld taki undir það mat að breskt samfélag sé á botninum hvað þetta varðar. Það er ljóst að þarna er fyrst og fremst um að ræða samfélagsbresti og sumir vilja ekki greina þá.
Þetta eru dökkir dagar í London. Þetta var eitt þeirra mála sem Boris Johnson, borgarstjóri, nefndi mikið í kosningabaráttu sinni og hefur talað mikið um nú um helgina eftir að Jimmy Mizen var myrtur. Vonandi mun takast að stöðva þessa morðöldu í heimsborginni London.
![]() |
Myrtur eftir að hafa neitað að taka þátt í slagsmálum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.5.2008 | 21:40
Eftirlaunalögin felld úr gildi - tímabær ákvörðun
Mér líst vel á þá ákvörðun stjórnarflokkanna að fella eftirlaunalögin umdeildu úr gildi. Þau voru meingölluð frá fyrstu stundu og á þeim eru augljósir annmarkar sem hefði átt að taka af skarið með mun fyrr. Einn stærsti gallinn var að fyrrum ráðherrar gætu þegið eftirlaun á sama tíma og þeir væru á fullum starfslaunum hjá hinu opinbera.
Eftirlaunalögin voru samþykkt í pólitískum hita rétt fyrir jólin 2003. Fyrst stóðu þingmenn allra stjórnmálaflokka landsins að málinu sem flutningsmenn frumvarpsins í þinginu. Á örfáum dögum skipti stjórnarandstaðan meira og minna um kúrs og snerist við. Sérstaklega eru dramatískar og eftirminnilegar frásagnir af viðsnúningi innan Samfylkingarinnar. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, þáverandi varaformaður flokksins, tók forystu gegn lögunum og vann þeim málstað fylgis á kvöldfundum í þinghúsinu og tók forystu málsins af Össuri Skarphéðinssyni.
Er yfir lauk studdi aðeins Guðmundur Árni Stefánsson, einn af varaforsetum Alþingis, málið af hálfu stjórnarandstöðunnar og fylgdi eftir hlutverki sínu við að leggja frumvarpið fram. Deilt hefur verið um málið alla tíð síðan. Samfylkingin talaði mjög afgerandi fyrir því að fella lögin úr gildi fyrir síðustu þingkosningar. Hefur fréttastofa Stöðvar 2 minnt á þá afstöðu Ingibjargar Sólrúnar og Samfylkingarinnar síðustu dagana æ ofan í æ í áberandi fréttaflutningi, sem hefur verið mjög umdeildur. Var Ingibjörg Sólrún greinilega ósatt við þá framsetningu fréttastofunnar.
Tvöfaldar launagreiðslur til ráðherra, sem fyrr eru nefndar, eru ekki hið eina sem er umdeilt við eftirlaunalögin. Allt frá því frumvarpið var rætt hefur mér fundist óeðlilegt að þingmenn njóti sérréttinda í lífeyrismálum og óviðunandi með hvaða hætti það var ákveðið. Starfskjör þingmanna eru að mínu mati orðin það góð að þeir ættu að geta náð vænum lífeyrisauka fyrir eftirlaunaárin sín með frjálsum lífeyrissparnaði. Engin sérréttindi eiga að vera þar.
Eitt annað sem ég man eftir og fannst sérstakt var að ákvæðum um þingfararkaup alþingismanna var breytt og tekin sú ákvörðun að greiða formönnum flokkanna 50% álag ofan á laun. Eru þetta atriði sem varla er hægt að sætta sig við, enda hefur samfélagið ekki tekið þessum lögum vel og kominn tími til að taka loksins á þessu.
Tel að þetta sé farsæl og góð ákvörðun - vonandi mun nást heildarsamstaða um þær ákvarðanir sem stjórnarflokkarnir virðast hafa orðið sammála um.
![]() |
Eftirlaunalög Alþingis verða felld úr gildi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.5.2008 | 19:57
Veik staða Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík

Mér finnst heiðarlega og vel skrifað um málefni borgarstjórnarflokksins í Reykjavíkurbréfi Morgunblaðsins í dag. Allir vita að eitthvað er stórlega að hjá flokknum í borginni. Þar vantar alvöru forystu og myndugleika. Ef ekki verður snúið við blaðinu á næstu mánuðum mun Sjálfstæðisflokkurinn í borginni verða fyrir þungu áfalli í borgarstjórnarkosningunum eftir tvö ár að mínu mati. Hópurinn verður aldrei sterkari en leiðtoginn, sé hann veikburða verður hópurinn það allur. Tel að þetta sé aðalvandamálið nú.
Stóra lausnin, og sú eina rétta, á þessum málum er að velja sem allra fyrst nýjan borgarstjóra í Reykjavík, sem tekur við af Ólafi F. Magnússyni í mars 2009. Óþarfi er að geyma það val lengi og mjög óheppilegt fyrir Sjálfstæðisflokkinn að hafa þau mál í lausu lofti lengur en fram á haustið, þó helst væri betra að taka af skarið helst í sumar með það. Með vali nýs forystumanns munu markast nýjar og skýrar línur í aðdraganda næstu kosninga og tekið af skarið með það sem tekur við.
Mikilvægt er að gefa nýjum leiðtoga góðan tíma til að vinna sig í sessi og því hefði þetta val átt að fara fram í febrúar. Þegar að vandræðin geisuðu vegna veikrar stöðu Vilhjálms Þ. í febrúarmánuði fannst mér hið eina rétta að hann myndi segja af sér leiðtogastöðunni en sæti áfram sem borgarfulltrúi. Það hefði verið rétti leikurinn þá, en mikilvægt er að ljúka þessum málum fljótlega.
Mikilvægt er fyrir Sjálfstæðisflokkinn á landsvísu að öflugur leiðtogi taki við forystunni í borgarmálunum. Forystuleysið og vandræðgangurinn sem hefur verið áberandi mánuðum saman mun aðeins líða undir lok með skýrum línum og vali á eftirmanni Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar.
![]() |
Ástandið veldur sjálfstæðismönnum áhyggjum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
11.5.2008 | 17:53
Glæsilegt hjá Man Utd - 17. titillinn í höfn

Enda hefði það verið stílbrot ef leikmenn Manchester United hefðu sjálfir fært Chelsea meistaratitilinn. Til þess að vinna ekki titilinn hefðu þeir sjálfir þurft að klúðra og færa andstæðingunum hnossið mikla. Auðvitað var það ekki í stöðunni og sigurinn sætur í dag að sjálfsögðu fyrir þá fjölmörgu sem styðja Manchester United.
Chelsea og Manchester United eiga spennandi rimmu framundan í Moskvu eftir hálfan mánuð aftur, þá um bikarinn í Meistaradeildinni. Sá leikur verður sögulegur hvernig sem fer, enda eru þá bresk lið að berjast í úrslitaleiknum í fyrsta skiptið til þessa.
Sigurinn í dag og fögnuðurinn yfir þessum titli gerir það vonandi ekki að verkum að liðið sofni á verðinum í Moskvu. Glæsileg endalok yrðu það nú á keppnisárinu að hampa bikarnum volduga í Moskvu.
![]() |
Manchester United er enskur meistari 2008 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)