11.6.2007 | 18:56
Hanna Katrín Friðriksson aðstoðar Guðlaug Þór

Hanna Katrín er mjög frambærileg kona og sannað kraft sinn í þeim verkefnum sem hún hefur sinnt. Ég sat fyrir nokkrum árum námskeið um greinaskrif sem hún var með á vegum SUS og Sjálfstæðisflokksins og sannfærðist þá mjög vel um það að Hanna Katrín er farsæl í því sem hún tekur sér fyrir hendur og er líkleg til að skila árangri í þeim verkefnum sem henni er treyst fyrir.
Í morgun sá ég "skúbb" hjá Andrési Jónssyni þar sem sagði að Erla Ósk Ásgeirsdóttir, formaður Heimdallar, yrði aðstoðarmaður Guðlaugs Þórs Þórðarsonar. Það vekur athygli að sjá fregnir um ráðningu Hönnu Katrínar á sama degi. Andrés verður eitthvað að kanna heimildarmennina betur.
![]() |
Hanna Katrín Friðriksson aðstoðarmaður heilbrigðis-og tryggingamálaráðherra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
11.6.2007 | 16:01
Gréta Ingþórsdóttir ráðin aðstoðarmaður Geirs
Gréta Ingþórsdóttir hefur verið ráðin aðstoðarmaður Geirs H. Haarde, forsætisráðherra, í stað Ragnheiðar Elínar Árnadóttur, alþingismanns. Þetta er mjög gott val hjá Geir. Gréta er mjög traust og öflug kona sem hefur unnið vel fyrir Sjálfstæðisflokkinn í áranna rás og skilað öllu því sem hún hefur gert með glæsilegum hætti. Ég hef kynnst Grétu í flokksstarfinu, hún hefur verið öflug í þeim hópi alla tíð sem ég hef starfað innan flokksins og ávallt hefur hún sannað hversu vinnusöm og dugleg hún er.
Mér kemur val Geirs á aðstoðarmanni ekki að óvörum. Ég átti aldrei von á því að Geir myndi velja ungliða sem aðstoðarmann þrátt fyrir þrálátar sögusagnir þar um á fjölda vefsíðna. Það var alltaf mun líklegra að Geir myndi velja reynda flokksmanneskju með tengsl í alla flokkskjarna, manneskju sem nyti trausts og virðingar innan alls flokksins. Þá stöðu hefur klárlega Gréta Ingþórsdóttir. Hún er vel að þessu komin.
Ég óska Grétu innilega til hamingju með nýja starfið.
![]() |
Nýr aðstoðarmaður forsætisráðherra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.6.2007 | 14:16
Í minningu Ástu Lovísu

Það er ekki auðvelt að lifa svona baráttu svo opinbert og halda reisn sinni og glæsileik allt til enda. Það tókst Ástu Lovísu. Öll vonuðum við að hún næði að sigrast á meininu og þrátt fyrir bakslögin undanfarnar vikur sem fram komu á blogginu var andlátsfregn hennar fyrir rúmlega tíu dögum sláandi og var mikið áfall. Slíkur varð krafturinn á bakvið baráttu hennar að hún virkaði aldrei vonlaus, þó erfið væri. Hún barðist enda allt til hinstu stundar.
Ég tel að við öll sem höfum bloggað í dagsins önn minnumst Ástu Lovísu sem eins af þeim fremstu í okkar bloggveröld. Hún þorði að skrifa frá hjartanu og opna hug sinn og hjarta þó á raunastundum væri. Hún talaði með bjartsýni að leiðarljósi hvort sem um sigra eða ósigra á vegferðinni var að ræða. Hún kenndi okkur öllum að lífið getur oft verið ein barátta út í gegn, en það skipti máli að berjast brosandi og vonast ávallt eftir bjartari tíð.
Ég votta fjölskyldu hennar samúð mína og vona að Guð styrki þau í þeirra miklu sorg.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 14:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
11.6.2007 | 13:05
Valgerður kjörin varaformaður í Framsókn
Valgerður Sverrisdóttir hefur verið kjörin varaformaður Framsóknarflokksins. Ég vil óska henni til hamingju með þann merka áfanga í sínu pólitíska starfi eftir langan stjórnmálaferil. Valgerður er kjarnakona, sem hefur aldrei hikað og hefur unnið af krafti í stjórnmálum alla tíð. Hún hefur sýnt það og sannað hér í kjördæminu í tveim síðustu þingkosningum hversu öflug hún er. Í bæði skiptin hefur hún leitt flokkinn til sinna stærstu sigra á landsvísu.
Besti vitnisburðurinn um styrkleika Valgerðar innan Framsóknarflokksins er einmitt það að í þingflokknum koma þrír af sjö þingmönnum á landsvísu héðan úr Norðausturkjördæmi. Mjög var að henni sótt sérstaklega í kosningunum 12. maí sl. Þrátt fyrir afhroð um allt land náði hún áberandi varnarsigri hér. Henni tókst að halda Framsókn stærri en báðum vinstriflokkunum, þrátt fyrir vondar kannanir og að flestir töldu stöðu hennar vondaufa um að ná slíkum árangri aðeins nokkrum vikum fyrir kosningar. Hvernig henni tókst að sigrast sérstaklega á vinstriflokkunum voru stærstu tíðindi kosninganna hér í kjördæminu, utan auðvitað sigurs Sjálfstæðisflokksins.
Staða Valgerðar innan Framsóknarflokksins hefur í ljósi þessa styrkst mjög auðvitað. Það var mjög eðlilegt og auðvitað hið eina rétta að hún myndi sækja fram til æðstu forystu flokksins eftir þessar þingkosningar þegar að Jón Sigurðsson ákvað að draga sig í hlé, verandi í erfiðri stöðu. Er reyndar mjög athyglisvert að henni skyldu ekki falin trúnaðarstörf af þessu kalíberi við brotthvarf Halldórs Ásgrímssonar fyrir ári, en þá hefði verið réttast að láta henni eftir formennsku flokksins að mínu mati. Það hefði verið taktískt öflugt fyrir flokkinn og skapað honum aðra ímynd en ella varð. En hún fær nú þann sess í uppbyggingu Framsóknar.
Valgerði hefur reyndar alla tíð verið treyst fyrir miklum lykilembættum innan Framsóknarflokksins: hún var fyrsta þingkona flokksins í marga áratugi og aðeins sú önnur í sögu hans, síðar þingflokksformaður og loks iðnaðar- og viðskiptaráðherra og utanríkisráðherra í tæp átta ár. Hún hefur lengst íslenskra kvenna setið í ríkisstjórn. Valgerður hefur verið einn sterkasti landsbyggðarleiðtogi flokksins, rétt eins og Guðni Ágústsson. Úrslit kosninganna 12. maí sl. eru með þeim hætti að byggja verður flokkinn upp frá landsbyggðinni í raun, enda varð afhroð flokksins mest í Reykjavík.
Valgerður hefur verið þingmaður hér í tvo áratugi, frá árinu 1987. Þó stundum hafi oft verið harkalega að henni sótt sigraði hún alla slagina. Þó að ég hafi verið pólitískur andstæðingur hennar mjög lengi hef ég alla tíð virt mjög og dáðst af krafti hennar. Hún hefur aldrei sótt fram sem eingöngu kona í stjórnmálum. Hún hefur farið fram sem persóna og lagt sín verk í dóm. Aldrei hefur hún verið kynnt undir merkjum þess eins að vera kona. Enda þarf Valla að ég tel ekki þau merki einvörðungu.
Ég óska henni góðs í forystuverkum þeim sem hún hefur verið kjörin til. Hún hefur unnið fyrir þeim sess með pólitískum verkum sínum í gegnum tíðina, og það meira að segja fyrir löngu.
![]() |
Valgerður kjörin varaformaður Framsóknarflokksins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.6.2007 | 11:52
Kajakræðarar finnast við Sjöundá
En mestu skiptir að fólkið sé heilt á húfi. Það skiptir ekkert annað máli í raun við þessar aðstæður.
![]() |
Kajakræðarar fundnir heilir á húfi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.6.2007 | 23:54
KR skrapar botninn í úrvalsdeildinni

KR-liðið er samansett af stjörnuleikmönnum á öllum póstum. Það sést þó hvorki af spilamennsku liðsins né árangrinum, sem telst varla viðunandi fyrir neitt lið með sjálfstraust, allra síst stórveldi á borð við KR. Staða Teits Þórðarsonar sem þjálfara hlýtur að teljast að verða vonlaus og hlýtur sæti hans að vera tekið að volgna allverulega og óvissa um hvort honum sé þar sætt lengur.
Þessi botnmennska KR er farin að minna á sumarið 2001 þegar að ekkert gekk hjá liðinu og þar var spilað vörn allt sumarið og naumlega tókst að tryggja sæti í úrvalsdeildinni. Það eru fáir plúsar í svona stöðu og hlýtur að fara um kjarnastuðningsmenn KR, sem eru flestu öðru vanir en botnskrapi. Þó ekki sé langt liðið á fótboltasumarið er þessi staða að verða glötuð nú þegar og fátt gott sem blasir við.
![]() |
KR enn án sigurs eftir 3:1 tap gegn ÍA |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Breytt 11.6.2007 kl. 00:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
10.6.2007 | 23:30
Hægrisveifla í Frakklandi - stórsigur Sarkozy
Nicolas Sarkozy, forseti Frakklands, hefur öll tromp á hendi í frönskum stjórnmálum næstu fimm árin eftir stórsigur hægrimanna í frönsku þingkosningunum í dag. Nú hefur hann fullt umboð landsmanna til að setja stefnu sína í framkvæmd og gera framtíðarsýn sína úr forsetakosningunum í apríl og maí formlega í framkvæmd. Sigur hægrimanna er meiri en kannanir höfðu gefið í skyn og leikur enginn vafi á stöðu mála, þó um fyrri umferð hafi verið að ræða.
Þessi sigur er mikilvægur pólitískur áfangi fyrir Nicolas Sarkozy á fyrsta mánuði sínum sem húsbóndi í Elysée-höll. Sarkozy hefur notið mikils stuðnings, hins mesta sem nýkjörinn franskur forseti frá valdadögum Charles De Gaulle fyrir hálfri öld og ennfremur nýtur stjórn hans, undir forsæti Francois Fillon, náins pólitísks samstarfsmanns hans í áraraðir, umtalsverðs stuðnings landsmanna. Sarkozy vissi alltaf að sigurinn í síðasta mánuði væri ekki nóg, hann yrði að hafa þingið með sér og trygga stjórn sín megin vildi hann koma málum sínum fram með afgerandi hætti. Það umboð fær hann nú, enginn vafi leikur á því.
Sósíalistar fara mjög illa út úr þessum þingkosningum, aðeins mánuði eftir að vonarstjarna þeirra, Segolene Royal, fékk skell í seinni umferð forsetakosninganna er hún beið lægri hlut fyrir Nicolas Sarkozy. Algjör uppstokkun blasir þar nú við, enda virðist stefna í að flokkurinn geti tapað um eða jafnvel vel yfir þriðjungi þingsæta sinna. Það er þungur skellur eftir allt annað sem gengið hefur á frá tvöföldu tapi flokksins árið 2002 fyrir Jacques Chirac og stjórn hans þá.
Hægrisveiflan í Frakklandi í dag eru mikil pólitísk tíðindi, eftir tólf ára samfellda forsetatíð hægrimanna og fimm ár þeirra samfelld í forystu ríkisstjórnar landsins. Sósíalistar unnu mjög þýðingarmikinn kosningasigur í júní 1997, þegar að Chirac gerði þau afdrifaríku mistök að flýta kosningum og enda með andstæðing sinn í kosningunum 1995, Lionel Jospin, sem forsætisráðherra. Brotlending Jospin árið 2002 styrkti Chirac en hann missti kraftinn úr höndum sér í senn hratt og pólitískt séð áberandi með því að ná ekki tökum á stöðunni.
Nú hefur Nicolas Sarkozy öll trompin á sinni hendi og fullt umboð landsmanna á öllum póstum stjórnkerfisins. Nú reynir á þennan vinsæla forseta Frakka hvort að hann stendur undir nafni og hvort þessi afgerandi hægribylgja haldist í gegnum forsetaferilinn, allavega til forsetakosninganna 2012.
![]() |
Útlit fyrir stórsigur hægri manna í Frakklandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.6.2007 | 17:23
Verslar Jónína Ben í Bónus?
Það má kannski vera að fólki finnist það skondið en ekki finnst mér það þó nein frétt. Það er þó eflaust stigsmunur á því í hugum einhverra ef marka má umræðuna.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
10.6.2007 | 14:18
Guðni gerir upp hið liðna - Framsókn fer til vinstri

Það er ljóst af ræðu Guðna að hann ætlar að leiða flokkinn til nýrra tíma, leiða hann í aðrar áttir en forverar hans, Halldór Ásgrímsson og Jón Sigurðsson, gerðu í formannstíð sinni. Horft er mjög ákveðið til vinstri í þeim efnum. Hann talaði mjög ákveðið í þá átt að samstaða flokksmanna hefði brostið og ennfremur gerði hann Íraksmálið að umtalsefni, mál sem hefur verið eins og mara á sál flokksins allt frá sumrinu 2003 og gerði að mjög áberandi leyti út af við pólitískan styrkleika Halldórs Ásgrímssonar í forsætisráðherratíð hans og fylgdi flokknum áfram eftir þó að Halldór yfirgæfi hið pólitíska svið, enda gerði Halldór ekki upp við málið í kveðjuræðu á flokksþingi Framsóknarflokksins í ágúst 2006.
Guðni fór mjög ákveðið inn á öll helstu veikleikasviðin sem leiddu til kosningaósigursins í vor. Sagði hann að Framsóknarflokkurinn hefði tapað kosningunum og þar sé aðeins við flokkinn sjálfan að sakast. Þarna kveður við nýjan tón hjá Guðna og meiri sjálfsrýni fólgin í þessum orðum en áður hefur verið á þessu vori. Þarna er horfið af braut alls tals um Baug og undarlegan orðaflaum um að eitt blað á vegum þeirra hafi markað stærstu þáttaskil flokksins í kosningunum, þegar að vel er vitað að innri sundrung og átök voru stærsta ástæða afhroðsins. Guðni þorir að gera upp veiku hliðarnar og um leið að horfa til nýrra tíma, hvernig hann geti gert þennan flokk að sínum við þessar vondu aðstæður.
Það hefur aldrei farið leynt að Guðni féll ekki í kramið hjá svokölluðum Halldórsarmi, nánasta samstarfsmannahópnum í valdatíð Halldórs Ásgrímssonar. Þegar kom að pólitískum endalokum Halldórs vildi Guðni ekki fara með honum og gerði tilraun til að taka flokkinn yfir. Þær tilraunir mætti harðri andspyrnu Halldórsarmsins sem tefldi Jóni Sigurðssyni fram til ráðherrasetu og síðar formennsku, þó að hann væri eldri en Halldór Ásgrímsson. Guðni hélt þó sínum áhrifum er á hólminn kom og varð formaður án mótspyrnu við afsögn forverans, sem missti pólitískt hlutverk sitt og vettvang í landsmálum og var illsætt eftir að mistakast að komast á þing.
Guðni Ágústsson hefði eflaust viljað taka við Framsóknarflokknum við gleðilegri aðstæður en þær sem blasa við nú. Framsóknarflokkurinn er illa farinn eftir vondan kosningaósigur og þar er algjör endurhæfing á öllum sviðum. Það blasir við af ræðunni á Grand Hótel hvert er stefnt. Fyrirmynd Guðna í uppbyggingunni er hinn gamli lærifaðir hans innan flokksins í fjölda ára, Steingrímur Hermannsson, fyrrum forsætisráðherra. Það má búast við miklum vinstriblæ á Framsókn á komandi árum. Þar verður Framsóknarflokkur Steingríms sá sem rís upp úr öskustó kosningaafhroðsins.
Þar verður nú horft til nýrrar framtíðar, sagt skilið við hægrihliðar formannstíðar Halldórs sem sótti fram á höfuðborgarsvæðinu. Nýir tímar kristallast af uppbyggingu frá landsbyggðinni, með formann og varaformann sem héraðshöfðingja flokksins í sterkum landsbyggðarkjördæmum. Það verður fróðlegt að sjá hvort að Guðna takist að byggja flokkinn til verkanna. Þar reynir á hann. Ella gæti næsta flokksþing orðið vettvangur harðvítugs uppgjörs gamalla arma.
![]() |
Innri samstaða framsóknarmanna brast |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.6.2007 | 12:20
Stefnir í kjör Valgerðar - tímamót í Framsókn

Kona hefur aldrei áður verið kjörin formaður eða varaformaður, en Siv Friðleifsdóttir hefur ein kvenna til þessa gefið kost á sér til þessara embætta. Hún tapaði varaformannskjöri fyrir Finni Ingólfssyni árið 1998 og formannskjöri fyrir Jóni Sigurðssyni árið 2006.
Valgerður Sverrisdóttir hefur setið lengst allra kvenna hérlendis í ríkisstjórn. Valgerður sat í ríkisstjórn í yfir 2.700 daga, eða í tæplega sjö og hálft ár: hún varð fyrst kvenna iðnaðar- og viðskiptaráðherra árið 1999 og utanríkisráðherra árið 2006.
Valgerður hefur setið á Alþingi frá kosningunum 1987 og hefur verið áhrifakona innan Framsóknarflokksins nær allan þann tíma. Þrátt fyrir að hún hafi verið lykilmanneskja í forystunni í raun allt frá árinu 1999 og leitt flokk sinn til kosningasigra hefur hún aldrei fyrr verið kjörin beint til forystu.
Það má telja stórmerkilegt að hún hafi ekki farið fram til formennsku fyrir ári þegar að Halldór Ásgrímsson dró sig í hlé og líklegt má telja að flokknum hafi vegnað betur undir hennar forystu. Það verður fróðlegt að fylgjast með uppbyggingu flokksins, en þar blasa mörg verkefni við forystunni.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
10.6.2007 | 01:12
Vangaveltur um pólitíska stöðu Kristjáns Þórs

Kristján Þór fær þó vissulega mikilvægan sess sem varaformaður fjárlaganefndar en staða hans hlýtur þó að hafa veikst við að hafa ekki sterkari stöðu til lykilhlutverks í flokksforystunni. Kristján Þór mun halda áfram verkum sínum í bæjarpólitíkinni meðfram þingmennsku eftir þessa niðurstöðu innan þingflokksins. Það sést klárlega af því að Kristján Þór var endurkjörinn forseti bæjarstjórnar Akureyrarbæjar þann 5. júní sl. til eins árs. Áður hafði Kristján Þór fengið kjör sem forseti þann 9. janúar í stað Sigrúnar Bjarkar Jakobsdóttur, er hún varð bæjarstjóri í hans stað.
Það er ekki undrunarefni að hann sitji áfram í bæjarstjórn og gegni sínum verkum þar út kjörtímabilið fyrst hann fær ekki veigameiri hlutverk í landsmálunum en raun ber vitni. Fyrst og fremst eru skilaboð flokksforystunnar til Kristjáns Þórs að því er virðist að þingmenn Sjálfstæðisflokksins fái ekki lykilhlutverk í upphafi fyrsta kjörtímabils. Þessi skilaboð verða mjög áberandi þegar um er að ræða mann eins og Kristján Þór, sem verið hefur áberandi í pólitík í yfir tvo áratugi og leiddi flokkinn til sögulegs sigurs í þingkosningum í kjördæmi sem aldrei hefur verið lykilvígi Sjálfstæðisflokksins. Það er erfitt að halda því fram að hann sé pólitískur nýliði en hann er samt sem áður flokkaður sem slíkur af forystu flokksins.
Það hefur ekki farið framhjá neinum að sjálfstæðismenn á Akureyri eru ósáttir við þessa niðurstöðu flokksforystunnar. Persónulega tel ég það áfall fyrir okkur að leiðtoga flokksins eftir slíkan sigur séu ekki færð öflugari verkefni en raun ber vitni. Það er ljóst af stöðu mála undanfarinna daga að Kristján Þór ætlar sér að vinna áfram á bæði vettvangi sveitarstjórnarmála og landsmála. Hann mun klára kjörtímabil sitt sem bæjarfulltrúi hér og verður forseti bæjarstjórnar áfram, er forystumaður bæjarstjórnar í verkum sínum eftir sem áður.
Það blasir merkileg staða við Sjálfstæðisflokknum á Akureyri á næstu árum. Eftir tvö ár verður leiðtogi Samfylkingarinnar á Akureyri bæjarstjóri hér í samstarfi við okkur sjálfstæðismenn. Árið fyrir næstu sveitarstjórnarkosningar hefur flokkurinn því hvorki embætti bæjarstjóra né ráðherrasæti, að óbreyttu. Það er afleit staða og vekur okkur öll hér til umhugsunar.
9.6.2007 | 23:43
Speedy Sarko á miklu vinsældaflugi í Frakklandi

Stuðningur landsmanna við Sarkozy og forsætisráðherrann Francois Fillon er mjög mikill og þeim er treyst til verka. Sarkozy hefur í upphafi valdaferilsins slegið öll vopn úr höndum sósíalista og miðjumanna undir forystu Francois Bayrou og þeir munu væntanlega taka hressilega dýfu í kosningunum. Það vakti mikla athygli þegar að Sarkozy valdi sósíalistann og friðarverðlaunahafa Nóbels dr. Bernard Kouchner sem utanríkisráðherra stjórnar sinnar. Sósíalistar vita varla í hvorn fótinn hefur átt að stíga og þeir beindu gremjunni að Kouchner með lítt glæsilegum hætti.
Fyrir nokkrum mánuðum var Segolene Royal vonarstjarna franskra vinstrimanna og talin nokkuð líkleg um að geta hlotið forsetaembættið. Svo fór að hún tapaði nokkuð illa fyrir Sarkozy. Kannanir á lokaspretti kosningabaráttunnar gerðu aldrei ráð fyrir sigri hennar og munurinn á henni og Sarkozy varð að lokum nokkuð áberandi mikill, sá mesti milli sósíalista og hægrimanns til þessa. Sarkozy vann með öflugum hætti og Royal varð fyrir áberandi niðurlægingu.
Pólitísk framtíð hennar er mjög óviss og verður fróðlegt að sjá hvaða stefnu Sósíalistaflokkurinn, sem leiddur er af eiginmanni Royal, Francois Hollande, tekur gangi spár um vont gengi í þingkosningunum eftir. Þá er hætt við að sósíalistar verði að ganga í gegnum allsherjar naflaskoðun og uppstokkun á kjarna sínum og mannskap, enn meiri en varð eftir afhroð Lionel Jospin í forsetakosningunum 2002 og flokksins í þingkosningunum sama ár.
Á meðan brosir Sarkozy út í eitt. Það stefnir allt í að hann fái fullnaðarumboð landsmanna til verka, til að setja stefnu sína í framkvæmd. Á meðan muni sósíalistar sleikja sár sín. Sarkozy stefnir á breytingar, hann kynnti breytingar og nýja tíma í kosningabaráttunni fyrir nokkrum vikum. Nú reynir á þessa nýju tíma eftir að hann fær umboð til verka. Nú er spurningin aðeins um hversu öflugt það umboð verður.
Nicolas Sarkozy hefur sannað sig á fyrsta mánuði sínum sem húsbóndi í Elysée-höll sem maður breytinga, maður sem horfir í aðrar áttir. Það sýnist og sannar af frjálslegri framkomu hans, t.d. skokktúrana um götur miðborgarinnar í kringum forsetahöllina. Það verður fróðlegt að fylgjast með verkum hans. Það stefnir allt í að hann fái full völd til að setja framtíðarsýn sína í framkvæmd.
![]() |
Fyrstu atkvæðin greidd í frönsku þingkosningunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.6.2007 | 22:45
Veikburða heilsufar á bandarískri varaforsetavakt
Allt frá því að George W. Bush tilkynnti um valið á Dick Cheney sem varaforsetaefni sínu í júlí 2000 hefur verið mikil umræða um það í bandarísku samfélagi hvort hann gæti vegna hjartveiki sinnar og fjölda hjartaáfalla gegnt embættinu til fulls. Umræður um það urðu heitar í báðum forsetakosningunum sem Bush sigraði í og sérstaklega vöknuðu efasemdir um heilsufar varaforsetans í nóvember 2000 er hann fékk hjartaáfall í fjórða skiptið nokkrum sólarhringum eftir lok kosningabaráttu.
Cheney hefur því verið þjakaður af heilsuleysi allan valdaferilinn. Það leikur að mínu mati enginn vafi á því að Dick Cheney var einn helsti lykilmaðurinn í sigri Bush forseta fyrir sjö árum. Hann hefur alla tíð verið límið í hersveit hans og leitt starf þar. Af því leiðir að Cheney er án nokkurs vafa valdamesti varaforseti Bandaríkjanna til þessa. Aðeins Al Gore hefur komist nærri Cheney í áhrifum á valdaferli forsetans sem leiðir þjóðina á varaforsetavakt þess sem með honum starfar. Jafnan hefur varaforsetinn verið litlaus hliðarmaður án valda og áhrifa. Það á svo sannarlega ekki við um Cheney.
Cheney er auðvitað mjög öflugur maður valdsins og hefur mikinn kraft og einbeitingu til verka. Hann hefur þó ekki verið mikið í fjölmiðlum og hefur nær alveg unnið sitt verk í kyrrþey og á bakvið tjöld fjölmiðlaathyglinnar. Hann hefur fjarri því verið mest áberandi varaforseti bandarískrar stjórnmálasögu í fjölmiðlum og mjög ólíkur Al Gore að því leyti. En hann hefur haft völd með mun áberandi hætti en aðrir forverar hans og gætt varaforsetaembættið öðrum blæ í ljósi þess. Cheney hefur verið lykilmaður í bandarískum stjórnmálum í áraraðir. Hann var áberandi í starfsliði Nixons og var starfsmannastjóri Hvíta hússins í forsetatíð Gerald Ford.
Cheney var einn valdamesti maður Bush-stjórnarinnar 1989-1993 og sat sem varnarmálaráðherra á mikilvægum tímum Persaflóa-stríðsins sem var fyrsta sjónvarpsstyrjöldin ef svo má segja. Þegar að Bush eldri tapaði fyrir Bill Clinton hvarf Cheney af pólitíska sjónarsviðinu með honum og fór til annarra verka. Þegar að George W. Bush sóttist eftir forsetaembættinu við lok valdaferils Clintons leitaði hann til Dick Cheney, lykilmanns í pólitískum samráðshópi föður síns, til að stýra vali á varaforsetaefni sínu. Eftir langa leit og samráð við Cheney ákvað hann að leita ekki langt yfir skammt. Svo fór að Cheney var talinn maðurinn sem Bush þurfti á að halda og það vakti mikla athygli þegar að formaður valnefndarinnar varð sjálfur varaforsetaefnið.
Ég man mjög vel eftir því að fyrsta hugsun mín þegar að ég heyrði af vali Bush á Cheney væri hvort að hann hefði heilsufar í að vera varaforseti Bandaríkjanna eftir allt sem á undan var gengið hjá honum. Það var líka fyrsta fréttin sem fylgdi valinu í heimspressunni. Það var ekki undrunarefni. Þó að varaforseti sé allajafna litlaus hliðarmaður og ekki maður lykilvaldsins er hann þó á varaforsetavakt, er því sá sem tekur við embættinu komi eitthvað fyrir þann sem leiðir þjóðina. Það verður því að vanda til valsins. Bush vissi að faðir hans hafði alla tíð séð mjög eftir valinu á hinum misheppnaða Dan Quayle árið 1988 og vildi traustan mann sér við hlið. Hann sá þann mann í Cheney.
Mikil umræða varð einhversstaðar í pressunni og utan hennar árið 2004 um það hvort að Cheney yrði áfram við hlið Bush og færi fram með honum þá. Það voru mjög undarlegar vangaveltur og algjörlega út í hött. Það kom enda aldrei til greina að skipta um og Cheney var áfram við hlið forsetans. Það hefði verið algjört stórpólitískt klúður hjá Bush að skipta um varaforseta á þeim tímapunkti. Hinsvegar voru stór mistök hans eftir kosningarnar að hafa Donald Rumsfeld á sínum pósti. Hann var mun umdeildari en Cheney og það var mjög skaðlegt fyrir forsetann að hafa hann með. Ég tel að skellur repúblikana í þingkosningunum í nóvember 2006 hefði orðið minni hefði Rumsfeld verið settur af fyrr.
Dick Cheney er maður sem hefur unnið af skyldurækni fyrir forseta sinn og þjóðina meðfram erfiðum veikindum. Allur hans lykiltími við völd hefur einkennst af vangaveltum um veikburða heilsufar. Þrátt fyrir allt það hefur Cheney byggt upp embætti sitt sem valdamikinn póst í bandarísku stjórnskipulagi, mun valdameira en áður hefur jafnan þekkst. Þrátt fyrir það hefur hann verið varaforseti sem allir vita að aldrei yrði forseti Bandaríkjanna nema á hreinni örlagastund þar sem eitthvað kæmi fyrir George W. Bush. Hann hefur aldrei alið forsetadrauma, hann vildi aldrei verða varaforseti heldur, tók þeirri áskorun aðeins vegna áskorana.
Cheney fer frá völdum samhliða Bush eftir rúmlega eitt og hálft ár. Það leikur enginn vafi á því að þrátt fyrir heilsufarið verður Cheney ekki síðri lykilmaður þessa valdaskeiðs en forsetinn sjálfur. Slík eru áhrif hins hálfsjötuga varaforseta. Hann er og verður alla tíð metinn mikill lykilmaður bandarískra stjórnmála á fyrsta áratug 21. aldarinnar.
![]() |
Skipta þarf um rafhlöður í Cheney |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.6.2007 | 20:36
George W. Bush sýpur bjór í Heiligendamm

Allt frá því að talað var um fortíð hans í forsetakosningunum 2000 og dregið var fram í dagsljósið á elleftu stund kosningabaráttunnar uppljóstranir um að hann hefði verið tekinn við stýrið undir áhrifum hefur það verið leiðarstef að hann væri þurr og hefði verið allt frá 1976 er fyrrnefnt atvik átti sér stað. Margir hafa talið að einlæg framkoma hans við uppljóstranirnar árið 2000 hafi tryggt honum fjölda atkvæða og skipt máli á sigurstundinni.
Það vakti mikla athygli daginn eftir bjórdrykkjuna að Bush var sagður hafa magaverki og gat ekki komið fram fyrir hádegi þann dag vegna þessa. Til að fyrirbyggja misskilning og kveikja upp sögusagnir var fullyrt að bjórdrykkja hefði ekki verið ástæða þess og að forsetinn hefði drukkið óáfengan bjór á meðan að aðrir borðfélagar í frjálslegu garðspjalli leiðtoganna við hótelið hafi drukkið ekta bjór.
Þrátt fyrir það var þetta kostulegt fjölmiðlamóment og vakti sögusagnir sem erfitt var að þagga niður og grassera eflaust meir í Evrópuferð forsetans þessa dagana, þar sem hann á erfitt með að liggja slappur í magakveisu, af hvaða völdum sem það annars er.
9.6.2007 | 19:16
Súrsætt fjölmiðladrama í Hollywood

Það er kostulegt að fylgjast með of-umfjölluninni um þetta mál. Þetta að sýna þennan farsa í beinni var svona aðeins over the top. Það er reyndar stundum svolítið spes að fylgjast með umræðunni um líf stjarnanna í glysheimum. Áhugi pressunnar á lífi þeirra virðist æði oft ótakmarkaður. Gott dæmi um fórnarlömb glamúrsins sem verða margtuggnar er Paris Hilton einmitt, aðrir nefna eflaust þær Britney Spears og Anna Nicole Smith. Sú síðarnefnda dó í kastljósi fjölmiðlanna og fylgst var með örlögum líkamsleifa hennar meira að segja í fjölmiðlum.
Ég ætla að vona að við fáum öll hinn vænsta frið af Paris meðan að hún afplánar dóminn sinn, segi ekki annað. Efast þó stórlega um að sú verði raunin.
![]() |
Hilton send aftur í fangelsið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 19:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
9.6.2007 | 16:29
Umhverfi og þróunaraðstoð í brennidepli hjá G8
Leiðtogafundur átta helstu iðnríkjanna fór fram í Heiligendamm í Þýskalandi í vikunni og var þetta sá 33. í röðinni. Hópur leiðtoga valdamestu iðnríkja heims var stofnaður árið 1975. Fyrst í stað voru sex lönd í samstarfinu: Bandaríkin, Bretland, Frakkland, Ítalía, Japan og V-Þýskaland. Það var í nóvember 1975 sem þáverandi leiðtogar landanna hittust í fyrsta skipti saman í Rambouillet í Frakklandi í boði Valéry Giscard d'Estaing, þáv. forseta Frakklands, og ákveðið var að funda framvegis árlega að sumarlagi.
Alla tíð síðan hafa þjóðirnar skipst á að halda fundinn og leiða starfið á fundinum. Ári eftir fyrsta fundinn, árið 1976, bættist Kanada í hóp þjóðanna sex. Hópurinn var óbreyttur í rúma tvo áratugi eftir það. Allt frá árinu 1991, við lok kalda stríðsins, hefur Rússland þó verið hluti fundarins en varð ekki fullgildur aðili í hópnum fyrr en árið 1998, er Boris Jeltsin, þáverandi forseti Rússlands, varð fyrsti leiðtoginn frá þessu forna fjandveldi vesturríkjanna til að vera tekinn í þeirra hóp. Rússland var gestgjafi G8-fundanna fyrst fyrir ári, en þá var fundað í St. Pétursborg.
Fundað var í Heiligendamm vegna þess hversu staðurinn er fjarlægur og auðvelt að loka leiðtogana af án truflunar. 12 kílómetrum frá fundarstaðnum á Kempinski Grand Hotel var lokað á alla aðkomu og því voru leiðtogarnir vel fjarlægir öllum mögulegum mótmælum. Fundinn sátu Angela Merkel, kanslari Þýskalands, Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, Vladimir Putin, forseti Rússlands, George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, Stephen Harper, forsætisráðherra Kanada, Nicolas Sarkozy, forseti Frakklands, Romano Prodi, forsætisráðherra Ítalíu, og Shinzo Abe, forsætisráðherra Japans. Þetta er aðeins í annað skiptið í sögu félagsskapar þjóðanna sem kona er gestgjafi fundar þeirra, en Margaret Thatcher var gestgjafi leiðtogafundarins í London í júlí 1984.
Fyrirsjáanlegt er að Blair og Putin sitji nú sinn síðasta leiðtogafund. Blair mun láta af embætti eftir átján daga. Ljóst hefur verið frá 10. maí sl. að Blair myndi láta af embætti 27. júní, þrátt fyrir að Gordon Brown hefði enga samkeppni hlotið um leiðtogastöðu Verkamannaflokksins og hann hefur verið í biðleik eftir völdunum í um mánuð. Kjörtímabili Putins lýkur í mars á næsta ári og skv. stjórnarskrá getur hann ekki boðið sig fram að nýju. Ægivald hans er mikið í Rússlandi og hann náði að sigra kosningarnar 2004 strax í fyrri umferð. Hann hefur ekki lokað á það að gefa kost á sér í kosningunum 2012. Af þeim leiðtogum sem sitja fundinn hefur Blair setið flesta, enda hefur hann verið forsætisráðherra Bretlands allt frá því í maímánuði 1997.
Það er ekki undarlegt að umhverfismál og þróunaraðstoð hafi verið aðalmál fundarins að þessu sinni. Þetta eru lykilmál á veraldarvísu og munu verða um nokkuð skeið. Það blasir við. Þau þáttaskil urðu í Heiligendamm að leiðtogarnir náðu samkomulagi í loftslagsmálum. Samkomulagið var mikill persónulegur sigur fyrir gestgjafann, Angelu Merkel, þó að vissulega hefðu tillögur fundarins ekki náð því sem hún sóttist fyllilega eftir, en hún vildi að útblástur yrði minnkaður um helming fyrir árið 2050. Andstaða Bandaríkjanna, sem er alkunn og sást t.d. í því verklagi Bandaríkjastjórnar að staðfesta ekki Kyoto-samkomulagið, varð til þess að stoppa alhliða tímamótasamkomulag.
Stórt mál fundarins voru augljós kólnunarmerki í samskiptum vesturveldanna og Rússlands vegna fyrirhugaðs eldflaugavarnarkerfis Bandaríkjanna í Póllandi og Tékklandi. Pútín hótaði því í aðdraganda fundarins að beina kjarnorkuvopnum lands síns að Evrópuríkjum ef af áformunum yrði. Lýstu Tony Blair og Angela Merkel sérstaklega yfir áhyggjum sínum og töldu hótunartal Putins afleitt. Það var merkilegt að sjá á fundinum stemmninguna milli Bush og Putins. Þar voru fögur bros en mjög kalt á bakvið. Það styttist í pólitísk endalok Putins og verður fróðlegt að sjá hvað taki við í Rússlandi þegar að pólitísku ægivaldi hans sleppir, en allt frá afsögn Jeltsins hefur Putin verið sem risi þar.
Á leiðtogafundi G8 í Gleneagles í Skotlandi sumarið 2005 voru þróunarmálin lykilmál og beitti Tony Blair sér sérstaklega fyrir fundarsamþykktum í þeim efnum. Samkomulag milli þjóðanna um stóraukið fé til þróunarmála í Afríku var þar kynnt. Ekki hefur verið staðið við það að fullu að mati Bob Geldof og Bono. Voru þeir sem skuggi á eftir leiðtogunum allan fundinn í Þýskalandi. Var á lokadegi fundarins samþykkt að setja jafnvirði 60 milljarða Bandaríkjadala, um 3600 milljarða íslenskra króna, í baráttuna gegn alnæmi í Afríku. Geldof og Bono voru ekki sáttir og kölluðu eftir efndum þess sem kynnt var í Gleneagles. Kallaði Geldof fundinn í Heiligendamm farsa.
Að ári verður leiðtogafundur átta helstu iðnríkja heims haldinn í Toyoko í Hokkaido í Japan. Gestgjafi fundarins þá verður forsætisráðherra Japans. Alls óvíst er hver hann verði á þessari stundu. Pólitísk staða Shinzo Abe, forsætisráðherra Japans, er mjög ótrygg vegna hneykslismála þar í landi. Fjarri því er öruggt að honum takist að halda völdum í þingkosningum í sumar. Fyrir þá sem vilja kynna sér dagskrá fundarins og meginatriði um hann er eindregið bent á að líta á heimasíðu hans.
![]() |
G8-ríkin samþykkja að veita 60 milljarða dala í baráttunni gegn alnæmi í Afríku |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.6.2007 | 13:51
Hasar í Hnífsdal - mikilvægi sérsveitarinnar

Það er napurt að heyra af því að sérsveit lögreglunnar hafi þurft að yfirbuga byssumann sem skaut að konu sinni í Hnífsdal. Þetta er sláandi hasar fyrir lítið byggðarlag. Þarna sannaðist þó vel mikilvægi sérsveitarinnar. Lögreglan brást vel og skipulega við þessari ógn að mínu mati - sérsveitin hefur þjálfun og getu til að bregðast við svona slæmu ástandi.
Þetta atvik minnir mjög vel á það, hversu brýnt er að lögreglan sé undir það búin að takast á við hættuleg verkefni, í takt við þetta. Fyrir nokkrum árum þótti ekki öllum sem sitja á Alþingi mikilvægt að breyta skipulagi á yfirstjórn sérsveitar lögreglunnar til að sveitin væri ávallt til taks og sveigjanlegri en áður hefði verið. Því síður virtist skilningur á því hjá fjölda fólks þá að nauðsynlegt væri að efla sérsveitina og fjölga í henni.
Þessi staða sýnir vel hversu rétta stefnu sérsveitin hefur tekið og að hún sé vel búin fyrir ástand sem getur komið úr óvæntustu átt, rétt eins og þetta heimilisofbeldi vestur á fjörðum.
![]() |
Byssumaður yfirbugaður í Hnífsdal |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
9.6.2007 | 13:05
Hátíðisdagur í Fjarðabyggð - álverið opnar
Það er mikil hátíð á Austurlandi í dag, þegar hið nýja álver Alcoa verður formlega opnað. Baráttan fyrir því að tryggja þessar framkvæmdir á Austurlandi hefur verið í senn löng og tekið á. Í mörg ár biðu Austfirðingar eftir því að þessi framkvæmd yrði að veruleika og það hefur sannast að Austfirðingar hafa stutt framkvæmdina með mjög áberandi hætti.
Átökin um framkvæmdirnar fyrir austan hafa þó mun frekar snúist að byggingu Kárahnjúkavirkjunar en því að reisa álverið sjálft í Reyðarfirði. Virkjunin var þó algjör forsenda þess að álver yrði að veruleika. Ég held að allir sem fari til Fjarðabyggðar og hafi kynnt sér aðstæður þar hafi sannfærst um það að þar hefur uppbyggingin, sem er á öllum sviðum og blasir við öllum sem líta yfir svæðið, verið markviss og hún hefur byggt svæðið upp sem lykilkjarna á Austfjörðum. Það leikur enginn vafi á því.
Ég held að allir sem fari í gegnum Reyðarfjörð á ferð sinni hafi séð hversu mjög framkvæmdir við byggingu þessa álvers og aðra þætti sem þeirri uppbyggingu hafi fylgt hafi gjörbreytt Austurlandi, og það til góðs. Áður var Reyðarfjörður hnignandi staður sem var vonum snauður, átti fá almenn tækifæri á vegferðinni og virtist að fjara út mjög markvisst. Síðan að ákvarðanir voru teknar um þessa uppbyggingu hefur Reyðarfjörður risið úr öskustónni. Þar hefur risið alþjóðlegur stórbær þar sem öll tækifæri eru til staðar. Það mun ekki líða á löngu þar til að Reyðarfjörður verður lykilstaður á Austfjörðum, ef hann er ekki hreinlega þegar orðinn það. Uppbygging þar á innan við fjórum árum er gríðarleg og fer ekki framhjá neinum sem þangað kemur.
Þessari uppbyggingu hafa fylgt markviss tækifæri. Þau hafa verið nýtt vel. Það var sérstaklega ánægjulegt að fara austur á síðustu dögum og kynna sér stöðuna. Ég er ættaður úr Fjarðabyggð að stórum hluta og hef unnað þeirri byggð allt mitt líf. Allt frá sumrinu 2004 hefur verið einstaklega gaman að leggja þangað leið sína og sjá markvissa uppbyggingu stig af stigi. Sérstaklega gleymist mér ekki ferðin þangað í janúar 2005, en þá var álverið sjálft tekið að rísa. Það var ógleymanleg sjón og þá fyrst varð umfang framkvæmdanna og upprisa Reyðarfjarðar sem lykilstaðar á Austfjörðum endanlega ljós í augsýn manns. Það var gleðistund.
Það er leitt að geta ekki verið fyrir austan á þessum gleðidegi. En ég vil senda góðar kveðjur til fólksins þar, fyrst og fremst óska þeim til hamingju með að hafa náð sínum markmiðum. Það er mikið gleðiefni, sem við öll sem unnum austfirskum byggðum hugsum stolt til að hafa tryggt með einum hætti eða öðrum. Sigur fólksins þar og krafturinn sem hefur einkennt þann mikla sigur á langri vegferð mun lengi verða í minnum hafður.
![]() |
Álverið á Reyðarfirði opnað í dag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 15:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.6.2007 | 22:59
Er Sigurjón að bíða af sér biðlaunin?
Það hefur vakið mikla athygli að enn hefur Sigurjón Þórðarson, fyrrum alþingismaður, ekki verið formlega ráðinn framkvæmdastjóri Frjálslynda flokksins, þrátt fyrir orðróm um það úr öllum áttum. Það er að verða mánuður liðinn frá því að Sigurjón missti þingsæti sitt og honum vantar því eflaust verkefni. En hann er enn á biðlaunum og verður svo í sumar. Þar virðist stranda helst á málum, enda má viðkomandi ekki vera í launuðum verkefnum á meðan að biðlaunatíma stendur.
Sigurjón gagnrýndi Kristján Þór Júlíusson, leiðtoga Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi, mjög harkalega í kosningabaráttunni hér í vor fyrir að þiggja biðlaun sem hann átti rétt á skv. samningum og þau réttindi sem almennt fylgja er hann lét af embætti bæjarstjóra á Akureyri í janúar 2007. Nú er hann sjálfur á biðlaunum og þiggur þau réttindi sem starfi sínu fylgdi og mun njóta þess í þá þrjá mánuði sem líða frá því að hann missti þingsætið. Þetta er nokkur kaldhæðni eflaust að einhverra mati sem heyrði á tal Sigurjóns í kosningabaráttunni hér.
Það er ekki óeðlilegt að forysta Frjálslynda flokksins vilji halda Sigurjóni í pólitískum störfum þó að þingsætið hafi tapast. Hann þekkir til stjórnmálastarfa og hefur starfað í þeim bransa sem helstur er í pólitíkinni, enda verið alþingismaður í fjögur ár. Hann verður þeim eflaust góður starfskraftur í forystunni þegar að biðlaununum sleppir og hann hefur tekið til starfa.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 9.6.2007 kl. 15:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
8.6.2007 | 19:21
Var S&H-viðtalið við konu Kalla Bjarna skáldað?
Það hefur mikið verið rætt og ritað um fíkniefnasmygl söngvarans Kalla Bjarna. Viðtal Séð og heyrt við sambýliskonu hans hefur vakið mikla athygli eftir að hún fullyrti að blaðið hefði skáldað það upp. Í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni fyrir stundu svaraði Eiríkur Jónsson þeim ásökunum. Þar vakti athygli er hann sagði að viðtalið hefði farið fram og að því hefðu verið fjögur vitni. Það hefði þó ekki verið hljóðritað og vitnin hefðu aðeins séð að hann hringdi og spurði spurninga.
Þetta mál er allt hið undarlegasta. Þetta er ansi líkt málinu fyrir tveim árum er Eiríkur fjallaði um Bubba Morthens og einkalíf hans í áberandi forsíðuumfjöllun blaðsins Hér og nú, sem þótti hafi á sér frekar harkalegan blæ. Hörð umræða varð um vinnubrögð hans í viðtölum og málið endaði fyrir dómstólum. Að lokum fór það svo að blaðið tapaði málinu og fræg ummæli um að Bubbi væri fallinn voru dæmd dauð og ómerk en með fylgdu myndir af Bubba að reykja.
Vinnubrögð Eiríks Jónssonar hafa verið mjög umdeild vissulega lengur en það og er þetta mál með viðtalið í Séð og heyrt enn eitt merki þess. Ekki virðist þessi umfjöllun vera mjög til þess fallin að efla orðspor þessa umdeilda blaðamanns. Þetta virðist eitt annað málið sem dregur orðspor hans niður eða efasemdir vakna um það.
Hvað varðar þetta mál með Kalla Bjarna er það allt hið sorglegasta og leitt að sjá hversu harkalegt fall þar hefur átt sér stað. Eðlilega verður umfjöllun um það mál í ljósi frægðar söngvarans. Verst er þó ef deilt er um vinnubrögð fjölmiðla, eins og svo greinilega er gert í tilfelli Séð og heyrt nú.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)