Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Merkileg yfirlýsing - biðleikur og næturfundir

Vonbrigði landsmanna með niðurstöðu maraþonfundanna í Ráðherrabústaðnum er greinilega mikil. Eftir stendur þó að stjórnvöld hafa sent bönkunum þau skilaboð að taka til og selja eignir upp í skuldir. Biðleikur ríkisstjórnarinnar er þó algjör, enn hefur enginn rammi um aðgerðir komið á þeim bæ. Virðist eiga að bíða átekta ef marka má orð forsætisráðherrans.

Velti samt fyrir yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar í skjóli nætur, rúmlega tvö, um að sparifé landsmanna verði tryggt. Þessi yfirlýsing virðist sett fram til að róa þá sem eru óttaslegnir eftir að aðgerðarpakkinn lá ekki fyrir eftir öll fundahöldin. Eftir alla biðina eftir engu, nema því sem augljósast var í stöðunni, er eðlilegt að velta fyrir sér hvað gerist á morgun.

Engin niðurstaða felst í atburðum helgarinnar. Enn erum við öll á vissum byrjunarreit málsins enn, eins ótrúlegt og það hljómar. Fundirnir með erlendum bankamönnum eykur enn á óvissuna en samt sem áður virðist vera sem stjórnvöld ætli að sjá til hvað morgundagurinn ber í skauti sér.


mbl.is Árétting frá ríkisstjórninni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aðgerðarleysi er orð kvöldsins

Ég varð alveg gáttaður þegar ég heyrði það áðan að aðgerðarleysi væri niðurstaðan af maraþonfundum helgarinnar. Hélt fyrst að þetta væri lélegt og síðbúið aprílgabb. Eftir allar gestakomurnar í Ráðherrabústaðnum er niðurstaðan engin og allir eru jafn hugsi yfir því hver staðan verði næstu vikuna. Var þetta kannski allt bara í plati? Ekki nema von að spurt sé.

Hvers vegna er enginn aðgerðarpakki kynntur? Á hverju strandar eða hvað stendur í vegi þess að það sé kynnt sem allir hafa búist við síðustu dagana? Kannski var hægt að afsaka aðgerðarleysið í sjálfri stefnuræðunni með því að það sé verið að vinna að einhverju, en er það hægt öllu lengur? Á virkilega ekkert að liggja á borðinu áður en markaðir opna með morgni?

Þetta er vægt til orða tekið mikil vonbrigði og hlýtur að vekja spurningar um hvort ríkisstjórnin ráði við að díla við sjálfa sig, hvað þá kreppuna.

Ég vorkenni samt pressunni að standa úti í kuldanum alla helgina að fá svo að heyra það í helgarlok að það sé ekkert að frétta í raun.

mbl.is Ekki þörf á aðgerðapakka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lífeyrissjóðir færa 200 milljarða til landsins

Allir bíða eftir niðurstöðu helgarfundanna í Ráðherrabústaðnum þar sem tugir manna labba inn og út af fundi Geirs Haarde, forsætisráðherra, og Össurar Skarphéðinssonar, starfandi utanríkisráðherra og leiðtoga Samfylkingarinnar. Ég bíð samt eftir því að vita hvernig það fari í fólk að 200 milljarðar af erlendum eigum lífeyrissjóðanna verði fluttar til landsins og notaðar í björgunaraðgerðirnar margfrægu. Finn vel að skoðanir eru skiptar um það.

Sögusagnirnar af því hverjar tillögurnar munu verða eru reyndar orðnar svo margar að erfitt er að vita hver sé sönn. Þó er eitt ljóst að eitthvað fer að gerast, fréttamönnum til gleði og ánægju. Mér skilst reyndar að fréttamenn fái ekki einu sinni að fara á klósettið í Ráðherrabústaðnum, svo mikil er leyndin, þar sem fundað er í öllum herbergjum.


mbl.is Biðlað til helstu vinaþjóða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Biðin mikla við Ráðherrabústaðinn

Ég er eiginlega farinn að vorkenna öllum fréttamönnunum sem standa úti í haustkuldanum við Ráðherrabústaðinn í biðinni eftir einhverjum tillögum frá ríkisstjórninni. Biðin er orðin löng og ég vona fréttamannanna vegna, auk okkar landsmanna allra að sú bið fari að taka enda. Held að það megi þó gleðjast yfir því að varla er langt í það miðað við lykiltímasetningar málsins, það sem unnið er að dag og nótt.

En að fylgjast með fréttamönnunum núna minnir á biðina við Höfða fyrir 22 árum þegar öll heimsbyggðin beið eftir Reagan og Gorbachev. Ætla að vonbrigðin eftir þá bið verði ekki eins mikil núna.

mbl.is Ráðherrar og þingmenn koma og fara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kuldalegt haust - timburmennirnir eftir veisluna

Þetta haust hefur verið kuldalegt að mörgu leyti. Góðærisfylleríið er svo sannarlega búið og timburmennirnir orðnir svæsnir og verða það á næstunni. Mitt í öllum erfiðleikunum hér heima á Fróni er áhugavert að heyra sjónarmið annarra á vandamálin sem steðja að okkur. Fannst fróðlegt að' lesa ítarlega umfjöllun Sunday Telegraph og svo sá ég fína samantekt á Sky um þetta og þar voru umræður í setti þar sem okkur var ekki beint spáð góðu.

Áhugi breskra fjölmiðla á ástandinu hér er mjög mikill og þeir virðast dekka okkur ansi vel í fréttatímunum og á netinu. Einn sérfræðingurinn sagði að það væri sérstaklega áhugavert fyrir sig sem fræðimann að skoða svona míkró-vandamál efnahagslega, þar sem ekki væri einu sinni hægt að beila út bankana eftir allt fylleríið. Merkilegar yfirlýsingar.

En vonandi verður veturinn betri en haustið, segi ég eins og einn grínistinn.


mbl.is Veislan búin á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábær þáttur hjá Spaugstofunni

Held að það sé orðið óralangt síðan að ég hef hlegið eins mikið að Spaugstofunni og var í kvöld. Þeir fóru yfir Glitnis-málið með glæsibrag og gerðu sitt allra besta í mörg ár. Tengingin við Apaplánetuna var ansi sniðug og útrásarvíkingunum velt upp úr háðinu.

Spaugstofan hefur jafnan verið best í stuttum þáttum með heilsteyptum brag um eitt lykilmál í kastljósi fjölmiðlanna - þáttur unninn í hraða stórmálanna. Ég hef stundum gagnrýnt Spaugstofuna þegar ég hef verið ósáttur við þá en hrósa þeim núna.

Mun ESB-hnútukastið verða stjórninni að falli?

Mér finnst nú svolítið sérstakt ef umræðurnar á milli aðilanna í Ráðherrabústaðnum um efnahagsaðgerðir séu að snúast upp í hnútukast um Evrópusambandsaðild og Evruna. Mér sýnist sem aðilar séu að reyna að læða þeim tillögum inn í pakkann, sem skiptimynt fyrir aðild sína að viðræðum. Því má búast við að mikil ólga sé á fundinum og tekist á um áherslur ef það á að vera leið til niðurstöðu málsins.

Ég velti því fyrir mér hvort ríkisstjórnin muni kannski springa á ESB-talinu. Hvað gerist ef Samfylkingin setur þetta sem skilyrði. Er þá ekki stjórnin sprungin miðað við afstöðu Sjálfstæðisflokksins? Ef það gerist er VG komið í oddastöðu í íslenskum stjórnmálum.


mbl.is Tekist á um ESB-tillögu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Barnaleg ályktun hjá UJ

Mér finnst svosem allt í lagi að UJ sé ósátt við Davíð Oddsson. Þau mega það mín vegna. Orðalagið finnst mér hinsvegar barnalegt, svo ekki sé nú fastar að orði kveðið. Að tala um gjöreyðingarvopn í sömu andrá og Davíð Oddsson finnst mér kostulegt. Ég veit ekki hvað yrði sagt um SUS, t.d., ef þaðan kæmi ályktun eða flutt yrði ræða þar sem embættismanni, sem er flokksbundinn í Samfylkingunni, yrði líkt við gjöreyðingarvopn.

En kannski tekur enginn þessa ræðu trúanlega - mun frekar sem gríni. Má vera.


mbl.is Krefjast þess að Davíð víki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Löngu tímabær fundur - beðið eftir niðurstöðu

Mér finnst það traustvekjandi að loksins sitjist við sama borðið allir forystumenn samfélagsins og ræði efnahagskreppuna og aðgerðir til lausnar henni. Svona fundur hefði átt að halda fyrir löngu síðan. Nú er bara að vona að stutt sé í traustar og samhentar aðgerðir allra aðila við borðið sem geti tekið á stöðunni. Þörf er á því nú, ekki aðeins til bjargar samfélaginu heldur til að tryggja hag fólksins í landinu.

Steingrímur J. sagði í umræðum um stefnuræðuna að sitja ætti á fundi þar til lausn væri í sjónmáli. Ég er sammála því. Fólkið við borðið á helst ekki að fara þaðan út fyrr en eitthvað traust stendur eftir sem hægt er að ná saman um og vonandi fer það svo, sem fyrst. Því er ekki óvarlegt að ætla að fundurinn standi fram eftir kvöldi.

Í veikindum Ingibjargar Sólrúnar hefur Össur Skarphéðinsson tekið tímabundið við embætti utanríkisráðherra og greinilega stjórnar nú málum af hálfu Samfylkingarinnar. Enginn vafi leikur lengur á því hver er næstráðandi ISG þar á bæ. Þeir Geir sitja allavega saman hlið við hlið andspænis þeim sem rætt er við.

Ég vona að fundurinn gangi vel. Allir landsmenn bíða eftir einhverju alvöru tillögum í stað mikils blaðurs um það sem allir vita.

mbl.is Geir: Langur fundur að hefjast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skuldsett æska landsins - ófjárráða skuldarar

Mér finnst það ískyggilegt hvað æska landsins er skuldsett. Mér finnst það merkileg staðreynd að ófjárráða einstaklingar skuldi að meðaltali tæpar 250 þúsund krónur hvert. Þetta eru ekki beint skuldir þeirra, enda geta þau ekki skuldsett sig nema forráðamenn þeirra samþykki það. Þetta eru því skuldir foreldranna í raun og veru. Við verðum ekki fullorðin og sjálfráða að öllu samkvæmt lagabókstaf fyrr en átján ára.

Því væri áhugavert að vita hvað þeir skulda sem í raun eru ábyrgir fyrir sínum skuldum, þeir sem hafa náð átján ára aldri. En kannski er þetta ein lexían enn. Þegar æska landsins er orðin skuldug upp fyrir haus er ekki von á góðu, meira að segja ungt fólk sem er ekki fjárráða. Hinsvegar heyrir maður margar sögur af þeim sem hafa skuldsett sig mikið fyrir tvítugt og eiga mjög erfitt þessa dagana.

mbl.is Íslensk ungmenni eru mörg mjög skuldsett
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband