Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Margdæmdur barnaníðingur fer í biblíuskóla

Ég varð alveg gáttaður þegar ég heyrði fyrst í fréttum að Ágúst Magnússon, margdæmdur kynferðisbrotamaður og barnaníðingur, sem er á reynslulausn, hafi fengið að fara í biblíuskóla í Uppsölum. Greinilegt er að fyrirkomulag á reynslulausn fanga á Ísland er mjög ábótavant og hlýtur að þurfa að stokka þau mál eitthvað upp.

Hver vill eiga börn á þessu skólasvæði með dæmdan kynferðisbrotamann á svæðinu. Sá í fréttum vitnað í að átján ára íslensk stelpa hafi verið í þessum skóla og ekki vitað hver maðurinn hafi verið. Ekki var tilkynnt öðrum á svæðinu að þarna væri margdæmdur barnaníðingur. Finnst það alveg fyrir neðan allt að hann hafi getað farið og það ekki verið tilkynnt sérstaklega.

Ekki aðeins þarf að svara hvers vegna þetta hafi átt að vera leyndarmál nokkurra einstaklinga heldur hver vilji verja siðferðislega þetta biblíuskólanám mannsins.

mbl.is Fjallað um Íslending á reynslulausn í Svíþjóð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Barack Obama kallar Söru Palin svín með varalit


Ég er ansi hræddur um að Barack Obama hafi skotið sig illilega í fótinn með því að kalla Söru Palin svín með varalit í ræðu í Virginíu í kvöld. Engum duldist hvert skotið var ætlað. Obama virðist vera að missa sig algjörlega í persónulegum árásum á Söru Palin. Árásir gegn henni hafa orðið mjög persónulegar af hálfu Obama og Biden í dag, en sá síðarnefndi talaði frekar óviðeigandi um fimm mánaða son Palin, sem er með Downs heilkenni.

Hafði mest gaman af að skoða umræðurnar um klippuna á YouTube. Áhugavert spjall. McCain og Palin munu eflaust notfæra sér mjög vel þessi ummæli - fróðlegt að sjá hvaða áhrif þetta furðulega skot frambjóðandans muni hafa á kvennafylgið. Kannanir gefa til kynna að McCain hafi náð forskoti með kvennafylgið. Því er kannski varla furða að Obama sé orðinn eitthvað óstöðugur.

Hann er greinilega kominn í vörn og reynir að sækja að Palin til að endurheimta sess sinn í baráttunni fram að þessu. Palin hefur tekið það af honum, eins og ég benti á í bloggfærslu fyrr í kvöld. Er ekki viss um að þessar árásir styrki Obama mikið. Hann fær á sig allt aðra ímynd með svona ergju og virðist vera að fara á taugum í fylgistapinu.

Engin hreyfing á viðræðum við ljósmæður

Mikil vonbrigði eru að ekki hafi tekist að semja við ljósmæður. Var að vonast til að það myndi takast í kvöld. Get ekki betur séð en engin hreyfing sé í viðræðunum. Þetta er allt stopp og hlýtur að vera áhyggjuefni ef ekki tekst að klára þessi mál fljótlega. Eins og ég sagði í skrifum hér um daginn styð ég málstað ljósmæðra og finnst eðlilegt að þær setji upp kröfur eins og staðan blasir við þeim.

Væntanlega er þetta ekki besti tíminn fyrir þær að koma með miklar kröfur. Tímasetningin vinnur gegn þeim. Hinsvegar finnst mér mjög hart ef þær eiga að sitja hjá enn eina ferðina og ekki verði hægt að bæta kjör þeirra af alvöru að þessu sinni.

Annars finnst mér þjóðin almennt styðja ljósmæður og kröfur þeirra. Enginn vafi á því. Vona bara að samningar náist fljótlega, þó mér finnist hafa gengið ekki neitt í viðræðunum og fátt gerst sem skipti máli.

mbl.is Samningar tókust ekki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sarah Palin í aðalhlutverki - Obama kominn í vörn

SarahPalin2Sarah Palin, varaforsetaefni repúblikana, hefur haft mikil áhrif á baráttuna um Hvíta húsið og náð þar traustu aðalhlutverki. Hún skyggir mjög á Joe Biden og hefur á nokkrum dögum tekist að gera meira fyrir framboð John McCain en nokkur annar sem hefur lagt honum lið í kjölfar þess að hann náði útnefningu repúblikana fyrir hálfu ári. Best sást þetta í dag er flytja varð framboðsfund hennar og McCain í Virginíu á annan stað þar sem áhuginn er mun meiri á framboðinu.

Ef marka má kannanir hefur Sarah Palin gjörbreytt stöðu mála í kosningabaráttunni. Forysta McCains í könnunum hefur aukist í dag og verður traustari í lykilfylkjunum, nú hefur McCain t.d. náð forskoti í Virginíu, sem Obama hefur lagt mikið á sig að vinna, fyrstur demókrata frá árinu 1964. Hvítar konur styðja nú McCain í auknum mæli og hann hefur stóraukið forskot sitt meðal óháðra kjósenda og þeirra sem eru ákveðnir að mæta á kjörstað.

Ekki fer á milli mála að Sarah Palin hefur sótt sér traustan sess í baráttunni og hún er nú bæði ferskasti frambjóðandinn í baráttunni og líka sú sem gæti tryggt mestar breytingar í Washington. Allt í einu er Barack Obama kominn í mikla vörn - hefur misst frumkvæðið í átökunum. Nú þarf hann að verja sjálfskipaðan sess sinn sem maður breytinganna í Washington. Greinilegt er að Obama tekur því mjög illa að vera ekki lengur ferskasti frambjóðandinn í þessari kosningabaráttu og reynir allt sem hann getur til að slá Palin við.

Lykilpunktur í velgengni Obama allt frá upphafi í forkosningum demókrata var að hann væri sá sem myndi tryggja breytingar í Washington og væri ferskasti frambjóðandinn. Ef hann missir þann sess hefur hann misst trausta undirstöðu undir framboð sitt. Því er ekki óeðlilegt að demókratar séu hræddir og óttist sterka frammistöðu Söru. Fram til þessa hafa árásir á hana ekki haft nein áhrif. Hún virðist styrkjast við hverja raun og hverja atlögu demókrata og blaðamannahópsins í Washington.

Ef Obama nær ekki að endurheimta fyrri stöðu og styrkleika er illt í efni fyrir hann. Ég hallast að því að Obama muni ekki ná að tækla Söru Palin. Staða hennar er augljós sem frambjóðanda breytinganna í forsetaslagnum. Því verður ekki neitað. Hún hefur aldrei búið eða starfað í Washington. Vonlaust verður fyrir Obama að tengja hana við þá sem ráða þar för. Dæmt til að mistakast. Eina leið Obama felst í því að ráðast að McCain og verkum hans í Washington.

Í gær var Hillary Rodham Clinton í Flórída með fund fyrir Obama. Hún réðst þar ekki beint að Söru Palin og greinilegt að hún ætlar ekki að vera varðhundur fyrir Obama og taka að sér skítverkið sem felst í árásum á Palin. Vonbrigði fyrir Obama. Biden virðist ekki ná neinu sviðsljósi og þetta er allt undir Obama sjálfum komið. Hann þarf að verja eigin sess með beinum árásum á Palin.

Fjarri því er víst að það takist. Það gæti komið út sem karlrembulegar árásir og hroki hans við að verja sess sem önnur manneskja hefur tekið af honum. Þetta er því viðkvæm staða og demókratar eru í vörn, hafa misst hluta af veigamestu undirstöðunni undir Obama og reyna að sækja þann sess aftur. Mistakist það er baráttan töpuð.

Staðan er einfaldlega sú að Palin hefur sess við hlið beggja forsetaefnanna á meðan Biden er til hliðar. Æ augljósara er að Obama veðjaði þar á rangan hest, mann sem virðist dæmdur til að gleymast í átökunum.


mbl.is Palin fékk dagpeninga fyrir að vera heima
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Árni leggur ekki í að kæra Agnesi

Árni Johnsen Ekki kemur að óvörum að Árni Johnsen, alþingismaður, hafi hætt við að höfða mál gegn Agnesi Bragadóttur, blaðamanni, og leggi í að fara með það fyrir dómstóla. Hann hafði mjög veikt mál í höndunum og tók skynsömustu ákvörðunina í stöðunni. Vissulega er það virðingarvert að Árni taki þessa afstöðu á þessum tímapunkti, bakki með málið áður en lengra var haldið.

Ég var hjartanlega sammála margfrægum yfirlýsingum Agnesar. Fannst þær eðlilegar í ljósi Moggagreinar Árna um Baugsmálið í sumar. Sú grein var sorgleg að öllu leyti. Enda er greinilegt að flestir sjálfstæðismenn skammast sín fyrir þennan þingmann og hvernig hann kemur fram. En þessi ákvörðun er hans skynsamasta í mjög langan tíma og hlýtur að styrkja hann að einhverju leyti. Frekari málarekstur hefði ekki gert honum sjálfum neitt gott.

Pólitísk staða Árna er ekki beysin. Honum hefur ekki verið treyst fyrir trúnaðarstörfum innan flokksins eftir að flokksmenn í Suðurkjördæmi völdu hann á þing en felldu hann síðar um sæti á kjördegi. Hann hefur verið utangarðsmaður í þingflokknum. Var ekki treyst fyrir formennsku eða varaformennsku í þingnefndum á kjörtímabilinu, né öðrum embættum, þó hann hafi átt fjórtán ára þingferil áður að baki er hann sneri aftur á þing.

Árni hefur strikað sig út í þjóðmálaumræðunni og hefur jafnmikil eða minni pólitísk áhrif og óbreyttir stjórnarandstöðuþingmenn. Sjálfstæðismenn eru ekki sáttir við endurkomu hans og munu aldrei sætta sig við að hann hafi komist aftur á þing. Held að sagan muni dæma endurkomu hans á þing sem mistök og mér finnst forysta flokksins hafa fellt þann dóm vel með því að velja Árna ekki til neinna trúnaðarstarfa.

mbl.is Árni fellur frá málssókn á hendur Agnesi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flóttafólk á Skaganum - allir læri sína lexíu

Flóttafólkið komið til ÍslandsÁnægjulegt er að sjá að flóttafólkið fær góðar móttökur á Akranesi eftir þá pólitísku ólgu sem var vegna komu þeirra fyrir nokkrum mánuðum. Ætla rétt að vona að allir hafi lært sína lexíu á þessu máli og séð hversu rétt þessi ákvörðun var, bæði þá og nú.

Akranes hefði litið afkáralega út í íslensku samfélagi hefði það afþakkað að taka þátt í þessu verkefni. 6000 manna sveitarfélag hefði þá orðið að athlægi þegar mörg mun minni sveitarfélög hefðu gert hið sama, með mjög skömmum fyrirvara og leyst verkefnið mjög vel. Þarna var spurt um hvort Akranes gæti það sama og mun minni sveitarfélög.

Sú pólitíska mannvonska sem sumir sýndu í þessu máli gleymist varla í bráð. En ég vona að allir hafi lært af þessu. Þarna er um að ræða konur með börn sín og ég held að það pólitíska moldviðri sem sumir á Skaganum reyndu að þyrla upp hafi skaðað aðallega þá sem hæst létu. En þeir vonandi átta sig á því að það verður að sýna kærleika í þessum heimi til að vera metinn einhvers.


mbl.is Flóttafólkið brosti við heimkomuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

McCain nær forystu í baráttunni um Hvíta húsið

macÁ morgun eru átta vikur þar til forseti Bandaríkjanna verður kjörinn. Allar skoðanakannanir í dag gefa til kynna að John McCain hafi nú náð forskoti á Barack Obama í baráttunni um Hvíta húsið og hafi fengið trausta fylgissveiflu í kjölfar flokksþingsins og valsins á Söru Palin sem varaforsetaefni. Greinilegt er að valið á Palin hefur styrkt Repúblikanaflokkinn og hann er sameinaðri nú en lengi áður, jafnvel allt frá valdadögum Reagans forseta.

Fyrir nokkrum mánuðum töldu flestir stjórnmálaskýrendur að repúblikanar ættu enga möguleika á að vinna Hvíta húsið og jafnvel var talið formsatriði fyrir Barack Obama að klára þessar kosningar þegar hann náði loksins útnefningu demókrata í júníbyrjun eftir harðvítugan slag við Hillary Rodham Clinton. Sjálfur taldi ég að þessi slagur væri búinn í júnímánuði. Taldi að McCain myndi eiga erfitt með að velja varaforsetaefni sem gæti styrkt framboðið og hann myndi eiga erfitt með að berjast við stjörnuljóma Obama-fjölskyldunnar.

En með því að velja Palin hefur honum tekist að snúa dæminu við. Obama hefur ekki haft alvöru forskot um nokkuð skeið. Fyrir flokksþingið hafði dæmið meira og minna jafnast út en Obama fékk flokksþingssveiflu. Hún jafnaðist út ótrúlega hratt og lifði ekki af flokksþing repúblikana. Staðan er því þannig að báðir frambjóðendur fengu allt sem þeir gátu fengið út úr flokksþingum sínum og koma tiltölulega sterkir af velli. Clinton-hjónin lögðu þó meira á sig en Obama til að ná að sameina demókrata með því að bakka Obama upp í Denver.

Greinilegt er á könnunum að demókratar hafa þó ekki sameinast. Obama mistókst að nota sér tækifærið með því að velja Hillary sem varaforsetaefni. Hefur sennilega ekki talið sig þurfa á henni að halda til að sameina flokkinn. Valdi Biden til að hífa upp reynsluna. Eflaust átti Obama von á traustu varaforsetavali hjá McCain, allt var búið undir að það yrði annað hvort Pawlenty eða Romney. Þeir voru kjaftstopp þegar Sarah Palin var kynnt, höfðu ekkert auglýsingaefni tilbúið gegn henni og voru í vandræðalegri stöðu. Fyrst í stað leit út fyrir að fjölmiðlarnir myndu auðvelda þeim að ráðast á Palin og eftirleikurinn yrði auðveldari.

Þeir sáu þó ekki fyrir stjörnuframmistöðu Söru Palin í St. Paul. Þar kom hún til sögunnar sem pólitískt hörkutól, flutti trausta og flotta ræðu og svaraði hressilega fyrir sig. Hún tók flokksþingið með trompi og hefur nú náð ótrúlegum vinsældum, meiri en þeir sem hafa atast í slagnum í rösklega eitt og hálft ár. Hún hefur sannað sig og um leið styrkt McCain. Hann tók mikla áhættu með valinu á henni, en veðjaði rétt og hefur heldur betur dottið í lukkupottinn.

Fylgisaukning McCain eftir flokksþingið er meiri en ég átti von á. Í besta falli taldi ég að McCain myndi geta jafnað Obama eða vera prósenti undir. En hann hefur tekið forystuna. Misjafnt er þó vissulega hversu traust sú forysta er en hún mælist allsstaðar. Fjarri því er að úrslit í þessum forsetakosningum séu ráðin. Framundan eru forseta- og varaforsetakappræðurnar. Þær fyrstu eru föstudaginn 26. september. Þá fyrst hefst hinn alvöru lokasprettur baráttunnar.

Stjörnuglansinn virðist vera að gufa upp hjá Obama. Hann náði að sigra Hillary en hann hefur veðrast alveg gríðarlega upp á mjög skömmum tíma, loftið er farið að leka úr blöðrunni og tímaspursmál hvort honum takist að komast á leiðarenda með framboðið. Þetta er allt í mikilli óvissu og væntanlega ræðst þetta á því hvort honum tekst að fá Clinton-hjónin með sér. Hann á allt sitt að verulegu leyti undir henni og frammistöðu þeirra hjónanna.

Ég hef skoðað nokkrar umsagnir um baráttuna í dag eftir að kannanir tóku að sýna forskot John McCain í baráttunni um Hvíta húsið. Margir eru ósammála um slaginn en allir sammála um eitt: Barack Obama gerði gríðarleg mistök með því að velja ekki Hillary sem varaforsetaefni. Hann hefði getað skotið niður þann möguleika að McCain myndi velja konu með því að taka Hillary með sér og slegið margar flugur í einu höggi. En hann gerði það ekki.

Vel má vera að Barack Obama fari með Hillary með sér hringferð um Bandaríkin til að tala upp kvennafylgið í baráttunni gegn konunni sem getur orðið fyrsti kvenkyns varaforseti Bandaríkjanna. En Hillary er ekki í framboði. Hann treysti henni ekki fyrir varaforsetahlutverkinu og vildi ekki hafa hana með sér; ofmat með því styrk sinn og vanmat John McCain. Kannski verður sú ákvörðun honum að falli.

mbl.is Forsetaslagurinn hafinn af fullum krafti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Oprah fórnar trúverðugleikanum í pólitískri baráttu

Sarah Palin Augljóst er að Oprah Winfrey gerði mikil mistök með því að bjóða ekki Söru Palin, varaforsetaefni repúblikana, í þátt sinn í aðdraganda forsetakosninganna. Með því fórnar hún trúverðugleika sínum sem óhlutdrægur þáttastjórnandi og gerir út af við frægt orðspor sitt sem málsvari jafnréttis og kvenréttinda á ári þegar kona getur orðið varaforseti Bandaríkjanna. Enda er mikil ólga meðal starfsmanna þáttanna og uppnám meðal kvenna.

Ég fjallaði um þetta mál í bloggfærslu fyrir helgina, áður en íslensku netmiðlarnir fjölluðu um það. Fór þar yfir skoðanir mínar á þessu máli og aðkomu Opruh að þessari kosningabaráttu þar sem hún ákvað að styðja Barack Obama frekar en Hillary Rodham Clinton. Ég held að enginn sé að fara fram á að Oprah lýsi yfir stuðningi við Söru Palin eða hafi hana í uppstríluðu drottningarviðtali. Enda hefur Oprah alla tíð ráðið sjálf umgjörð þáttanna og haft viðtölin eftir eigin stíl.

Óánægjan er fyrst og fremst vegna þess að konu í framlínu forsetaframboðs, aðeins annarri konunni í sögu stóru flokkanna tveggja, sé ekki boðið í þennan kvennaþátt þegar nýr kafli getur verið skrifaður í jafnréttindabaráttuna í bandarískum stjórnmálum. Öllum er ljóst að það mun gerast verði Sarah Palin kjörin varaforseti Bandaríkjanna og er þar með komin á forsetavakt fyrst kvenna í stjórnmálasögu landsins. Auðvitað yrðu það þáttaskil. Kannanir líta þannig út núna að það er mjög líklegt að Palin verði varaforseti. Því er þessi ákvörðun mjög undarleg.

Oprah er greinilega bara að hugsa um Barack Obama og hagsmuni hans í þáttastjórnun sinni. Hún býr í Chicago, heimaborg Obama, og tekur þætti sína upp þar. Væntanlega óttast hún að Palin komi mjög vel út úr viðtalinu og auki aðeins á stjörnuljóma hennar nú eftir flokksþing repúblikana. Engin önnur raunhæf ástæða ætti að vera fyrir þessari ákvörðun. Þarna tekur Oprah afstöðu með öðru framboðinu. Þetta hefði litið öðruvísi út ef karlmaður væri varaforsetaefni repúblikana.

Jafnréttishliðin á þessu máli opnar umræðuna, enda gæti þetta verið ár kvenna í bandarískum stjórnmálum þó Hillary Rodham Clinton hafi verið ýtt út af sviðinu. Og Oprah situr hjá og fórnar með því trúverðugleikanum og skaðar mjög stöðu sína sem málsvari kvenréttinda.

mbl.is Oprah vill ekki Söruh Palin í þátt sinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spennandi kosningar - Sarah Palin breytir leiknum

Sarah Palin og John McCainFlest stefnir í jafnar og spennandi forsetakosningar í Bandaríkjunum eftir 56 daga. John McCain hefur tekist ásamt Söru Palin að tryggja repúblikunum raunhæfa möguleika á að halda Hvíta húsinu. Þau komu mjög sterk út úr flokksþinginu og sérstaklega er ljóst að Sarah Palin hefur tryggt stöðu sína, enda mælist hún nú vinsælli en bæði forsetaefnin.

Þegar demókratar unnu báðar þingdeildirnar fyrir tæpum tveimur árum taldi ég nær óhugsandi að repúblikanar myndu halda Hvíta húsinu, einkum vegna óvinsælda George W. Bush. Þá voru demókratar með pálmann í höndunum og þá blasti við að Hillary Rodham Clinton yrði næsti forseti Bandaríkjanna næði hún útnefningunni. Svo fór að hún náði ekki alla leið. Athygli vekur að Barack Obama hefur aldrei haft traust forskot í þessum slag og tókst ekki í aðdraganda flokksþinganna að stinga McCain af í baráttunni. Hann náði engri uppsveiflu á varaforsetavalinu en fékk bara hefðbundna flokksþingssveiflu.

Barack Obama gerði þau miklu pólitísku mistök að velja ekki Hillary Rodham Clinton sem varaforsetaefni. Með því hefði hann getað tryggt sér traust og gott forskot framyfir flokksþing repúblikana. Með því hefði samstaða demókrata verið staðfest, þó Obama hefði vissulega þurft að brjóta odd af oflæti sínu og bjóða fornum keppinaut með í framboðið. Vissulega hefði hann þurft að sætta sig við að deila stjörnuljómanum en hann hefði fengið trausta fylgissveiflu. Í staðinn valdi hann reynslumikið varaforsetaefni án stjörnuljóma, mann sem skyggði ekki á hann.

McCain var eini frambjóðandinn í forkosningum repúblikana sem hafði raunhæfa möguleika á að ná alla leið, enda voru sumir hinna frambjóðendanna mjög tengdir George W. Bush. McCain kemur úr annarri átt innan Repúblikanaflokksins. Barátta hans við Bush um útnefninguna árið 2000 var harkaleg og þar var vegið mjög að McCain. Á flokksþingi repúblikana mátti vel finna að Bush var haldið frá sviðsljósinu. Óvinsældir hans réðu þar nokkru en ekki síður að þarna tók McCain við flokknum og réði för. Hann sýndi með því vald sitt þar og tókst að notfæra sér það.

John McCain tók mikla pólitíska áhættu með því að velja Söru Palin, ríkisstjóra í Alaska, sem varaforsetaefni sitt. McCain gerði það sem Obama þorði ekki að gera, velja konu við hlið sér og spilaði þar á augljósan veikleika hans. Allar kannanir sýna að McCain veðjaði rétt. Palin hefur stóraukið fylgi hans, einkum meðal kvenna og er að sækja óákveðna kjósendur. Fylgisaukningin er traust og sýnir vel að McCain á góða möguleika á að vinna þessar kosningar. Eftir framkomuna við Hillary eru margar konur óánægðar og þær horfa í aðrar áttir.

Sarah Palin kom, sá og sigraði á flokksþingi repúblikana. Ekki aðeins var ræðan sem hún flutti traust og flott heldur flutti hún ræðuna alveg meistaralega og stimplaði sig inn í pólitísk átök á stóra sviðinu. Enginn efast lengur um hæfileika hennar, metnað og pólitískan kraft. Eins og staðan er núna er frúin frá Alaska að breyta þessum kosningaslag með afgerandi hætti. Enn er vissulega spurt að leikslokum en hún kom með ferskan blæ í baráttuna og tók stöðu Hillary á sviðinu.

Erfitt er að spá um á hvorn veginn þetta muni fara. Ljóst er að repúblikanar eiga trausta möguleika á að halda velli. Barack Obama hefur mistekist með varaforsetavali sínu að klára þennan slag, sá ekki fyrir að McCain myndi taka áhættu í sínu vali og situr eftir með sárt ennið. Honum hefur ekki tekist að ná traustu forskoti þrátt fyrir allar kjöraðstæður demókrata til að klára þessar kosningar löngu fyrir kjördag.

Nú er Obama búinn að gera sér grein fyrir því að hann er að missa kvennafylgi og ætlar að fá Hillary Rodham Clinton með sér í fleiri fylki en hann ætlaði sér áður og sækir aðrar konur með sér í baráttuna. En hann valdi ekki konu sem varaforsetaefni og vanmat pólitíska áhættu McCain sem hann græddi svo á. Ef Obama hefði valið Hillary væri hann ekki í þessum vanda sem nú blasir við.

Ef Barack Obama nær ekki að snúa þessum slag við eftir velheppnað varaforsetaval John McCain mun sagan meta valið á honum stór pólitísk mistök og allir demókratar munu sjá eftir því að hafa snúið baki við Hillary Rodham Clinton.


mbl.is McCain nær forskoti á Obama
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ráðist á lögguna - mun lögreglan fá rafbyssur?

Varla er að verða stórfréttir að heyra eða sjá umfjöllun um fjöldaátök eða að hinn og þessi hafi annað hvort verið barinn í klessu eða stunginn í skjóli nætur, eða jafnvel hreinlega verið drepinn. Árásir á lögreglumenn við skyldustörf eru mjög alvarlegt mál. Ofbeldið sem við heyrum sífellt meira um í fréttaumfjöllun verður sífellt grófara og verra. Gengið er alltaf lengra í grimmu ofbeldi og ekki hugsað um afleiðingar þess.

Ég yrði ekki hissa ef svo myndi fara að árásir á lögreglumenn að undanförnu verði notað sem helstu rökin, bæði af hálfu þeirra og stjórnvalda, fyrir því að vopnvæða lögregluna enn frekar og það er þegar augljós undiralda í þá átt nú þegar að lögreglan þurfi að fá rafbyssur til að verjast.

Hef ekki verið hlynntur því að lögreglan noti rafbyssur en það er ljóst að þeir sem ráðast að löggunni veita lögreglunni og þeim sem ráða þar för sterk rök fyrir máli sínu að taka upp þessi vopn.

mbl.is Réðust á lögreglu - fimm handteknir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband