Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Sorglegt mál úr fortíðinni

Breiðavíkurnefndin Breiðavíkurmálið er einn dökkasti bletturinn yfir samfélaginu frá liðnum áratugum og hefur fylgt okkur inn í nýja öld. Skýrsla Breiðavíkurnefndarinnar er áfellisdómur yfir öllu málinu, þar sem mörg alvarleg mistök voru gerð af hálfu stjórnvalda á þeim tíma. Það er hið eina rétta að stjórnvöld nú biðji þá sem urðu fyrir skaða þar afsökunar og borgi þeim skaðabætur.

Það var sláandi að hlusta á lýsingar af því sem gerðist á drengjaheimilinu í Breiðavík fyrir áratugum í Kastljósþættir fyrir rúmu ári; sorglegt og nísti í hjartastað. Það hversu lengi þögnin stóð um afbrotin í Breiðuvík er vitnisburður um það að það verður að tala um kynferðislegt ofbeldi hreint út og því miður hefur komið í ljós að þeim sem var treyst fyrir velferð brothættra barna í vanda brugðust stórlega.

Það að lýsingar á kynferðisofbeldinu og líkamlegum barsmíðum sem börn þurftu að þola komist fyrst í umræðuna fyrir alvöru nú er að mínu mati stóralvarlegt mál. Hversvegna var þetta mál í þagnarhjúpi öll þessi ár? Hvar var eftirlitið á þessum tíma eiginlega og hvar voru þeir sem báru ábyrgð á málaflokknum? Með skýrslunni er mörgum spurningum svarað, en eðli afbrotanna hvílir enn sem mara og mun væntanlega gera það alla tíð.

Þetta er mikill áfellisdómur yfir þeim sem héldu á málum á þessum tíma. Það er því ekki til of mikils mælst að stjórnvöld dagsins í dag biðji þessa menn opinberlega afsökunar á því að hafa verið neyddir til vistar á þessum vítisstað sem þetta heimili hefur verið.

mbl.is Urðu fyrir margskonar ofbeldi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Össur bítur höfuðið af skömminni

Össur Skarphéðinsson Mér fannst Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra, bíta höfuðið af skömminni þegar að hann reyndi að réttlæta og verja lágkúruleg bloggskrif sín um Gísla Martein í Kastljósi í kvöld. Það er greinilega of mikils til mælst af honum að biðja Gísla Martein hreinlega afsökunar á þessum götustrákaskrifum sem að mínu mati hæfa ekki ráðherra í ríkisstjórn. Hann er maður að minni í kjölfarið.

Það eru ansi margir sem spyrja sig að því hvort Össur hafi verið drukkinn þegar að hann skrifaði þessa bloggfærslu. Það er ekki óeðlilegt. Mér fannst þessi skrif í besta falli bera vitni um dómgreindarbrest og kjánaskap kjörins fulltrúa sem skrifar og talar eins og einfeldningur úti í bæ. Hann hefur svosem klikkað stórlega áður í skrifum sínum. Hver man ekki eftir bréfinu fræga til Baugsmanna fyrir sex árum þar sem hann sem flokksformaður hótaði þeim öllu illu, vegna þess að bróður hans hafði verið sagt upp störfum á þeirra vegum. Þar fór dómgreindin lönd og leið.

Oft hefur Össur verið á grensunni í bloggskrifum og verið á mörkum þess að skrifa eins og maður sem hefur skynsemi til að fara með völd og áhrif. Þessi skrif toppa þó allt annað sem hann hefur sett á vef sinn. Það er ekki spennandi að fara í stjórnmál til að fá önnur eins persónuleg skítaskrif yfir sig. Ég hef reyndar íhugað mjög lengi hvort stjórnmál séu þess virði að standa í. Það er allavega ljóst að svona skrif færa stjórnmálin á lægra plan og gera það að verkum að margir nenna ekki að leggja þátttöku þar á sig. Það er freistandi að telja miklu betra líf utan stjórnmála þegar að maður sér önnur eins skrif og frá Össuri koma.

22. janúar sl. skrifaði Össur svo á vef sinn:

"Það þarf mjög öfluga og þykkskinna menn til að standa af sér langvinnar persónulegar árásir. Við þær aðstæður koma inn þættir, sem stjórnmálamenn þurfa endranær ekki að hafa áhyggjur af - líðan fjölskyldu þess sem siglir pólitíska brotsjói. Við, sem höfum siglt gegnum brim í stjórnmálum og hörð átök, þekkjum hversu það er erfitt að halda börnum frá því að lesa og heyra það versta sem við þær aðstæður getur beinst persónulega að manni.

Þeir tímar hafa komið í mínu pólitíska lífi – sem betur fer skammvinnir – að ég hef sjálfur gert það að fyrsta verki dagsins að fara yfir blöðin og henda þeim, sem ég vildi ekki að dætur mínar læsu. Ég minnist ótrúlega rætinnar greinar Einar Kárasonar, rithöfundar, sem smó gegnum greipar mínar, og ég náði ekki að forða frá augum dóttur mínnar, sem flóðu fyrir vikið. Á þeirri stundu hefði ég heldur viljað kasta frá mér formannstitli og stjórnmálaferli en upplifa varnarleysið og vanlíðanina sem hellist yfir þegar saklausar sálir lenda í innri eldi af föðurvöldum."

Það er merkilegt að sami maður og skrifaði þessi orð um Björn Inga Hrafnsson þegar að hann hætti í stjórnmálum fyrir nokkrum vikum hafi sjálfur skrifað ómerkilegan pistil um mann sem á vel læs börn og hafa vit á að skynja skrif af því tagi sem frá honum komu. Minnir á hálfgerðan hræsnara satt best að segja. Það er ljóst að þessi umhyggja sem Össur ber fyrir eigin börnum og heimili var víðsfjarri honum þegar að skrifað var um Gísla Martein. Það virðast gilda einhver önnur lög um aðra einstaklinga en hann sjálfan. Össur hefði gott af því að spá meira í þessum skrifum sínum sem virðast honum gleymd svo skömmu síðar.

Það var hálfraunalegt að sjá þá Samfylkingarfélaga Lúðvík Bergvinsson og Mörð Árnason reyna að verja þessi skrif Össurar í dægurmálaþáttunum í kvöld. Lúðvík var þó til í að tjá einhvers konar óánægju með skrifin og varði þau ekki algjörlega í gegn. En Mörður var ekki beint að kippa sér upp við svona skrif og varði sinn mann út í rauðan dauðann. Hann er reyndar svo flokkshollur og trúr sínu fólki að hann myndi sennilega síðastur manna finna eitthvað að á þeim slóðum og finna vankantana á eigin flokki. Er svo gjörsamlega fyrirsjáanlegur - hefur þó sjaldan staðið sig verr við að verja glataðan málstað og í kvöld.

Hef stundum varið Össur í skrifum. Fann til dæmis mjög til með Össuri þegar að hann var rassskelltur af Ingibjörgu Sólrúnu í formannskjöri í Samfylkingunni fyrir þrem árum - hlaut sem sitjandi formaður aðeins einn þriðja greiddra atkvæða gegn varaformanni sínum sem niðurlægði hann með eftirminnilegum hætti, svo mjög að heyra mátti pínleg svipuhöggin um allt land. Þá var farið illa með hann, en kannski verður sú útreið skiljanlegri eftir svona skrif? Finnst hann vera að floppa allsvakalega þessa dagana og vera sá ráðherra sem hefur valdið mér mestum vonbrigðum eftir síðustu kosningar.

Össur hefur ekki verið að standa sig og ekki óeðlilegt að spyrja sig hversu lengi hann verði í forystusveit Samfylkingarinnar. Össur hefur með skrifum sínum veikt stöðu sína mjög innan samstarfsflokksins og alveg ljóst að ekki mun fólk þar leggja lykkju á leið sína til að verja hann. Það er ljóst að traustið er takmarkað í hans garð. Mun Solla kannski senda hann í sendiráð á kjörtímabilinu?

Hvað vakir fyrir Össuri með skrifunum um Gísla?

Össur Skarphéðinsson Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra, varð sér til skammar með lágkúrulegum og nauðaómerkilegum næturskrifum um Gísla Martein Baldursson, borgarfulltrúa, á bloggsíðu sína. Það er ekki nema von að spurt sé hvað vaki fyrir Össuri með þessum skrifum. Þau ganga lengra en allt sem eðlilegt telst og lágmark að hann skýri þau.

Össur vildi ekki kommenta á þessi næturskrif í kvöldfréttum Sjónvarps, en hann sást þó í sama fréttatíma borðandi góðgæti við setningu Food and fun-hátíðarinnar, þó mjög þungt hugsi. Málið var rætt á þingflokksfundi Sjálfstæðisflokksins. Árás með þessu tagi á kjörinn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins frá ráðherra samstarfsflokks hans er eðlilega metin alvarlega og eðlilegt að ráðherrann svari fyrir sig.

Mér finnst þessi skrif ekki lyfta stjórnmálabaráttunni upp á hærra plan og vona að það sé ekki það sem koma skuli að ráðist sé svo ómálefnalega að fólki. Það er eitt að vera ósammála einhverjum um eitthvað en þessi skrif Össurar lykta af einhverju öðru. Það verður hann að skýra út ítarlega, svona ómerkileg skrif og hnífakast undir rósrauðri kratarós er Össuri og Samfylkingunni til skammar.

mbl.is Pistill Össurar ræddur á þingflokksfundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pókerfés Birkis Jóns - hlægileg sinnaskipti

Birkir JónÞað er vandræðalegt fyrir Birki Jón Jónsson, alþingismann, að það hafi komist upp um að hann hafi spilað póker ólöglega. Enn vandræðalegra er þó að hann breytist allt í einu í opinberan talsmann lögleiðingar pókerspils þegar að hann er böstaður, tekinn all illilega eins og raun ber vitni.

Efast mjög verulega um að Birkir Jón hefði lagt í að stíga fram með þennan boðskap nema vegna þess að hann er með buxurnar á hælunum eftir að hafa verið nappaður. Er að reyna að redda sér úr klúðrinu. Það hefði verið þægilegt að heyra hann tala frelsismáli áður en hann var nappaður allavega.

Þessi sinnaskipti hljóma fjarri því trúverðug og missa marks. Þrátt fyrir að Birkir Jón setji nú upp pókerfésið til að halda andlitinu stendur eftir að hann braut lög og verður að bera byrðar þess klúðurs síns sem kjörinn fulltrúi almennings.


mbl.is Tvískinnungur að aðrar reglur gildi um póker
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Össur slær skjaldborg um stjórnendur OR

Össur Skarphéðinsson Mér finnst Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra, fara yfir strikið í skítkasti sínu á Gísla Martein Baldursson, borgarfulltrúa, í næturpistli. Orðaflaumurinn og persónulegt hatur fer yfir öll mörk. Það er þó sérstaklega athyglisvert hversu mjög Össur nennir að slá skjaldborg um stjórnendur Orkuveitu Reykjavíkur á þessum síðustu og verstu tímum þeirra, en margir hafa krafist þess að þeir taki pokann sinn vegna REI-klúðursins.

Hef enga séð nenna að leggja sömu lykkju á leið sína og verja þessa menn með sömu áfergju og Össur reynir að gera með frekar hlægilegum hætti. Það leynir sér ekki að Össur er enn mjög sorrí yfir því hvernig fór með REI og virðist frekar en gagnrýna allt klúðrið reyna að kóa það. Í þeim efnum ræðst hann persónulega að Gísla Marteini, sem mér finnst eiginlega einum of mikill barnaskapur. Hann má ekki gleyma því að almenningur hefur fengið nóg af skítabissnessnum sem einkenndi REI.

Það má vel vera að Össur og Gísli Marteinn eigi eitthvað persónulegt óuppgert. Hef ekki hugmynd um það. Þessi skrif eru þó þess eðlis að þar talar frústreraður maður vegna þess að skýjaborgir hans verða ekki að veruleika.

Sterk staða Hönnu Birnu - Vilhjálmur rúinn trausti

Hanna Birna Kristjánsdóttir Það kemur mér ekki að óvörum að Hanna Birna Kristjánsdóttir njóti afgerandi stuðnings sem næsti borgarstjóri í Reykjavík. Sterk staða hennar er augljós. Um leið er ljóst að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, fyrrverandi borgarstjóri, er rúinn trausti og hefur ekki styrk eða stuðning flokksmanna og borgarbúa til að taka aftur við embætti borgarstjóra. Það er alveg greinilegt að hann hefur misst stuðning þeirra sem völdu hann til forystu.

Veik staða Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík í könnun Gallups er mikið áhyggjuefni og áfall fyrir forystu Sjálfstæðisflokksins sem hefur ekki enn tekið af skarið varðandi veika stöðu leiðtogans, sem hefur misst allan þann stuðning sem hann hafði eftir prófkjör og kosningar þar sem hann var valinn til forystu af hálfu flokksins. Hann hefur misst umboð sitt og á því verður að taka. Það er kominn tími til að Vilhjálmur Þ. horfist í augu við þessa veiku stöðu og axli ábyrgð með því að segja af sér leiðtogastöðunni. Það hefur verið beðið of lengi!

Það er kominn tími til að forysta Sjálfstæðisflokksins í höfuðvígi hans horfist í augu við þá stöðu sem uppi er. Leiðtoginn er rúinn trausti og verður úr þessu aðeins þung byrði fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Það skiptir engu máli hversu traustur hann hefur verið fyrir vissa aðila í flokknum og unnið lengi á vettvangi borgarmála og flokksins. Með mistökum sínum hefur hann skaðað stöðu Sjálfstæðisflokksins svo eftir er tekið og hann verður að taka á sig þessa veiku stöðu sem blasir við.

Vilhjálmur ætti að vera búinn að sjá það fyrir löngu að hann hefur skemmt mjög fyrir Sjálfstæðisflokknum með því að taka ekki af skarið og segjast hið minnsta ekki taka að sér embætti borgarstjóra að nýju. Ég treysti því að sjálfstæðismenn í borginni fari að ná áttum í þessari stöðu og horfast í augu við það óhjákvæmilega í stöðunni.

Hvað varðar þessa könnun finnst mér hún svo afgerandi traustsyfirlýsing við Hönnu Birnu Kristjánsdóttur að það eigi ekki að leika neinn vafi á því að hún eigi að taka við forystu flokksins í borginni sem allra fyrst, og um leið við embætti borgarstjóra í Reykjavík þann 22. mars 2009.

mbl.is Flestir vilja Hönnu Birnu sem borgarstjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hálfrar aldar valdaferli Fidel Castro lokið

Fidel Castro Það eru stórmerkileg pólitísk tíðindi að Fidel Castro hafi ákveðið að segja af sér öllum pólitískum embættum sínum og láta Raúl bróður sínum eftir völdin, þó það þurfi ekki að koma að óvörum. Að baki er litríkur valdaferill og hann hefur setið af sér níu forseta í Bandaríkjunum, en hann hefur tekist á við þá allt frá upphafi valdaferilsins árið 1959, sem náði hámarki með Kúbudeilunni árið 1962.

Kúbudeilan er reyndar einn merkilegasti sögulegi atburður síðustu áratuga. Á þrettán sögulegum dögum í októbermánuði 1962 var heimurinn á barmi kjarnorkustyrjaldar. Bæði Bandaríkin og Sovétríkin höfðu þá vígbúist af kappi og reyndu ákaft að fylgjast með öllu því sem hinn aðilinn gerði. Njósnir urðu sífellt mikilvægari þáttur í starfsemi ríkjanna og þegar bandarískur kafbátur tók myndir af sovéskum kjarnorkueldflaugum á Kúbu ætlaði allt um koll að keyra því þeim var jú beint að Bandaríkjunum, vöggu kapitalismans í heiminum.

Kennedy Bandaríkjaforseti fékk eldskírn sína í embætti, á stuttum valdaferli, á þessum októberdögum. Hann var á báðum áttum um hvað átti að gera. Hershöfðingarnir vildu að forsetinn heimilaði að ráðist yrði tafarlaust inn í Kúbu og eyjan hertekin með valdi, en það þýddi um leið hörð viðbrögð Sovétmanna og væntanlega kjarnorkustyrjöld stórveldanna og stór hluti þjóðarinnar yrði jafnvel þurrkaður út á einu augnabliki. Þessu máli eru gerð ítarleg og góð skil í vönduðum þáttum CNN um kalda stríðið, sem gerðir voru í lok aldarinnar. Þrátt fyrir ólgu og viðskiptabann sat Castro af sér fjölmarga forseta og varð þaulsetnari en margir töldu í upphafi.

Hef misst tölu á hversu oft hefur verið reynt að drepa þennan umdeilda leiðtoga, sem hefur stuðað fólk um allan heim og líka heillað suma á alþjóðavettvangi. Castro er í senn einn umdeildasti þjóðarleiðtogi tuttugustu aldarinnar og sá litríkasti, leiftrandi persónuleiki sem stýrði veldi sínu með persónulegum styrk og krafti. Castro hefur verið leiðtogi krafts og hefur verið svolítið merkilegt að sjá þennan leiftrandi leiðtoga á sjúkrabeði. Hann hefur barist við erfið veikindi að undanförnu og ekki undarlegt að hann fari á meðan að hann hefur enn ráð og rænu.

Það að vera ráðandi í stjórnmálum snýst að mörgu leyti um það að koma vel fram. Betur en margir aðrir veit Fidel Castro þetta. Hann hefur stjórnað með sýnilegu valdi á Kúbu í tæpa hálfa öld, þar sem stormandi boðskapur hans hefur skipt sköpum fyrir hann að halda völdum og geta ríkt þar þetta lengi. Að því kemur á ævi hans sem og allra annarra að halla tekur undan fæti. Það er óhjákvæmilegt, sama hver um er að ræða. Framkoma í stjórnmálum á okkar fjölmiðlatímum snýst oftast nær um það hvernig fólk kemur fram. Komi það ekki fram eða er fjarverandi hlýtur kastljósið að beinast að fjarverunni.

Í landi eins og Kúbu snýst allt um að sýna fram á vald sitt, sýna að ægivaldið mikla sé enn til staðar en hafi ekki veikst með veikum leiðtoga. Það hefur Castro gert og gerði margoft meðan að hann var veikur fyrir nokkrum árum er hann féll illa á opinberri samkomu og lærbrotnaði. Það vakti því athygli að það sem sást aðeins til Castro eftir margfrægt valdaafsal til Raúls sumarið 2006 vegna veikinda hafi verið myndir af honum alvarlegum á svip í adidas jogging-galla (talandi um sannkallaða kaldhæðni) og greinilega fölan á brá að reyna að staulast nokkur skref með dagblaði í hendi sem sýnir tímasetninguna.

Þetta var orðið eins og í gíslatöku þegar að gíslinn er sýndur með nýjasta dagblaðið í hendinni, til að sýna að hann sé örugglega enn þessa heims. Þetta hefur verið í senn bæði skondið og skemmtilega óraunverulegt í sinni fyndnustu merkingu. Það hefur mistekist að telja fólki trú um að Fidel sé enn við stjórnvölinn. Hann er aðeins gamall maður sem hefur hvorki heilsu né styrk lengur til að vera sá leiðtogi valdsins sem hann hefur verið í hálfa öld. Sá tími er liðinn - tími Fidels er liðinn um leið. Þetta er aðeins staðfesting endaloka sem hafa blasað við.

Það er mjög erfitt að vera yfirgnæfandi í lokuðu samfélagi eins og Kúbu, með einræði og engum alvöru kosningum, þar sem leiðtoginn er heilsuveill og sá sem með völdin á að fara á meðan sést varla heldur. Þetta er því eðlileg staða - að veik staða Fidels sé staðfest. Nú verður áhugavert að sjá hvað taki við í valdatóminu sem skapast við afsögn Fidels. Það er ósennilegt að staðan breytist að ráði meðan að hann er lifandi, en allt geti breyst þegar að hann hefur kvatt þennan heim og kúgaða þjóð einræðisins síns.

Að því kemur vonandi fyrr en síðar að breytt staða, án ægivalds byltingarhöfðingjans, veki kúbverja til meðvitundar í samfélagi sem hefur vanist einræði og einum leiðtoga, án kosninga, til áratuga - og þar verði haldið í lýðræðisátt.

mbl.is Kastró segir af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vissi Jón Ásgeir ekki alla söguna á bakvið FL?

Jón Ásgeir Jóhannesson Það var áhugavert að horfa á hádegisviðtalið við Jón Ásgeir. Það sem vakti mesta athygli mína er að þar gefur hann í skyn að hafa ekki vitað um hinn mikla rekstrarkostnað FL Group er Baugur bjargaði fyrirtækinu frá hruni undir lok síðasta árs. Væri gott að hann talaði enn betur um þennan veigamikla þátt málsins. Öllum er ljóst að FL Group hefði verið gert upp og fyrirtækið bútað niður og selt úr því hefði Baugur ekki leidd endurfjármögnun og uppbyggingu.

Það er reyndar ótrúleg saga á bakvið fall FL Group síðustu misserin og hefur ekki mikið farið fyrir Hannesi Smárasyni eftir þau endalok öll á skýjaverkefnum hans. Eðlilega hefur verið deilt á starfslokasamning hans, en hann er veglegur og óheyrilegur miðað við þann ávöxt sem hann skildi eftir sig af starfinu með hnignun fyrirtækisins sem var á leið til glötunar þegar að Baugur fór í björgunaraðgerðir til að reisa það við. Taprekstur fyrirtækisins á liðnu ári er enda Íslandsmet og væri saga frá að segja víðar.

Það er alveg ljóst að Jón Ásgeir ætlar að rífa FL Group upp. Hann gaf ungum manni góð tækifæri með því að gera hann að forstjóra og ætlar að setja mark sitt á endurreisnina. Greinilegt er að hann ætlar sér að skera enn meira niður í rekstrarkostnaðinum en Jón Sigurðsson hefur reyndar boðað og virðist varla vanþörf á. Enda ekki óeðlilegt að hann sendi skýr skilaboð um markvissa endurreisn en ekkert hálfkák. Þarna er margt undir.

Eftir stendur að gott væri að vita hvort veigamiklir þættir í skelfilegri stöðu FL Group undir lok forstjóraferils Hannesar Smárasonar hafi verið haldir leyndir fyrir Jóni Ásgeiri, manninum sem bjargaði fyrirtækinu frá grimmum örlögum. En það var þó gefið í skyn í dag.

mbl.is Eignir FL Group á brunaútsölu ef ekki hefði verið gripið inn í
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samningar í höfn - farsæl niðurstaða

Samningar undirritaðir Það er jákvætt og gott að kjarasamningar hafi náðst með farsælum hætti. Það hefur verið góður tónn í viðræðum síðustu dagana og núningur og hvöss orð víðsfjarri, sem eru góðar fregnir. Umfram allt er um að ræða allt skynsamlega niðurstöðu til efnahagslegra aðstæðna. Fór enda vel á með mönnum í kvöld við lok viðræðna.

Framlag ríkisstjórnarinnar leikur lykilhlutverk í lausn mála eins og svo oft áður - þar er um að ræða mikilvægt framlag á flestum sviðum. Lækkun tekjuskattar og hækkun persónuafsláttar stendur þar upp úr og komið er til móts við ýmsa hópa samfélagsins, t.d. með hækkun barnabóta og húsaleigubóta.

Í fyrsta skipti koma forystumenn Samfylkingarinnar að lausn kjarasamninga sem afl í ríkisstjórn landsins frá stofnun flokksins. Tengsl ASÍ við flokkinn hafa verið mikil, eins og allir hafa séð, og sem dæmi má nefna að forseti ASÍ situr SAMAK-fundi norrænna jafnaðarmannaleiðtoga með kollegum sínum af öðrum norðurlöndum á hverju sumri. Bein tengsl flokka og verkalýðssamtaka eru reyndar óskiljanleg. ASÍ hefur alla tíð bundið miklar vonir við Samfylkinguna og eru vonandi sáttir með niðurstöðu samninganna.

Framan af mátti merkja gremju þar yfir að ríkisstjórn með aðild flokksins ætlaði ekki að hliðra nægilega til við gerð samninga, en flestum er í fersku minni stuðningur forystu ASÍ við Ingibjörgu Sólrúnu í formannskjöri fyrir þrem árum. Vonandi er sátt á þeim bænum með niðurstöðuna. Las þó í dag pistil Guðmundar Gunnarssonar, formanns Rafiðnaðarsambandsins, á Eyjunni þar sem greina mátti að ekki hefði verið nóg að gert. Eflaust má alltaf gott bæta.

Mest er um vert að tryggja undirstöðu að stöðugleika, sem vonandi tekst með þessu. Fróðlegt verður að sjá stöðu mála undir lok samningstímans, þegar að tveir áratugir verða liðnir frá hinum sögulegu þjóðarsáttasamningum, sem Ásmundur Stefánsson, núv. ríkissáttasemjari og þáv. forseti ASÍ, og Guðmundur Jaki, þáv. formaður VMSÍ, handsöluðu við Einar Odd Kristjánsson, þáv. formann VSÍ og síðar alþingismann.


mbl.is Taxtar hækka um 18.000 krónur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Repúblikanar bíða færis að méla Obama niður

Barack Obama Það er greinilegt að repúblikanar ætla sér að méla persónu Barack Obama niður muni hann ná útnefningu sem forsetaefni demókrata í kosningabaráttunni síðar á árinu. Las umfjöllun Sunday Times, en þar er dregin upp mynd af honum sem vinstrisinnaðasta frambjóðanda í forsetakjöri frá því George McGovern var og hét og hann sé á mála hjá spilltum auðmönnum.

Það er löngu orðið þekkt að áróðursvél repúblikana hlífir ekki andstæðingum og greinilegt að öllum steinum verður velt við muni Obama fara gegn John McCain í forsetakosningunum og reynt að draga upp ófagra mynd af honum. Reyndar er það nú svo að ótrúlega lítið er í raun vitað um Obama. Hann talar lítið um stefnumál, hefur ekki ljáð máls á kappræðum síðustu dagana og flytur innlifaðar ræður um breytingar án þess að gera vel grein fyrir stefnumálum sínum. Margir vita ekki hver þessi maður er og fyrir hvað hann stendur.

Það er kannski varla óeðlilegt sé það rétt að hann sé vinstrisinnaðasti maður í forsetakjöri frá því á áttunda áratugnum sem á raunhæfa möguleika á Hvíta húsinu. Ekki talar hann sem slíkur og virðist frekar vera að reyna að leyna bakgrunni sínum en tala hreint út um málefni. Mér finnst Obama allt að því magnaður predikari með sjarma en mér finnst vanta áþreifanlega að hann tali hreint um lausnir á málefnum, tali um hugsjónir sínar og það sem hann ætlar að gera nái hann völdum. Það vantar málefnapælingarnar í allar draumsýnirnar um breytingar.

Það er greinilegt að hann verður að tala mun skýrar þegar að hann mætir áróðursvél repúblikana. Hillary Rodham Clinton hefur verið hrædd við að impra á fortíð Obama og hjóla í persónu hans af ótta við að það springi framan í hana sjálfa. Svo virðist sem að repúblikanar ætli að taka það verkefni að sér án þess að hika. Tengsl Obama við peningamenn með miður gott orðspor í Chicago mun ekki styðja hann og greinilegt að repúblikanar ætla sér ekki að taka hann með silkihönskum verði hann keppinautur þeirra.

Ef marka má orðróminn mun fyrri harkaleg persónuleg átök síðustu forsetakosninga blikna í samanburði við það skítkast og árásir sem blasa við í kosningunum eftir tæpa níu mánuði.

mbl.is Áróðursherferð gegn Obama í undirbúningi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband