Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Bandarískt forsetaefni með túrban - hörð barátta

Obama í búningnum Það er greinilegt að baráttan milli Hillary Rodham Clinton og Barack Obama er orðin persónuleg og harðskeytt og að ná miklum hæðum í árásum af ýmsu tagi á hvort annað. Það verður seint sagt að myndin af Obama með túrban sé heppileg fyrir hann í forsetaslagnum og eiginlega er það mjög nýtt að sjá bandarískt forsetaefni í slíkri múnderingu. Enda stuðaðist frambjóðandinn og liðssveit hans mjög við myndbirtinguna.

Það hlýtur að vera áhyggjuefni fyrir demókrata hversu hvöss og kuldaleg baráttan á milli Hillary og Obama er orðin. Það er engu líkara en þarna sé baráttan um forsetaembættið í nóvember en ekki forkosningaslagur flokkssamherja. Þetta virðist stefna í að verða álíka kuldalegt einvígi og það sem John McCain og George W. Bush háðu fyrir átta árum þar sem var gengið mjög langt í almennu skítkasti og dregið upp allt sem mögulegt mátti vera til að skaða frambjóðendur. Sú barátta lauk þó á ofur-þriðjudegi og var því ekki það langvinn að skaða flokkinn sem slíkan.

Þarna er enn slegist harkalega um hvern þingfulltrúa, enn sem komið er hið minnsta, og fari svo að Hillary nái að slá Obama við í næstu viku mun slagurinn standa fram eftir aprílmánuði hið minnsta. Það eru reyndar öll teikn á lofti um það að Hillary ætli að keppa eins lengi og hún geti og slagurinn verði alvöru í nokkurn tíma enn. Það veltur þó allt á því hvað gerist í Texas og Ohio.

En þessi myndbirting er lýsandi um stemmninguna í baráttunni. Hillary var æf um helgina og í baráttuhug, með stingandi reiðisvip hélt hún á auglýsingasnepli frá Obama sem rangtúlkaði stefnumál hennar og flutti þrumandi skammarræðu yfir honum. Það er greinilegt að þessi mynd af Obama með túrban er andstæðingum hans vel að skapi.

Það hvort myndin hafi áhrif skal ósagt látið en það er allavega merkilegt að sjá bandarískt forsetaefni klætt í þessa múnderingu og greinilega framsetning sem Obama vill ekki að sjáist.

mbl.is Mynd af Obama veldur uppnámi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sama gamla útslitna einræðið áfram á Kúbu

Raúl Castro Afsögn Fidels Castro breytir ekki miklu á Kúbu. Þar heldur sama kynslóð kommúnista um völdin með járnhendi án lýðræðislegra kosninga. Hinn roskni Raúl Castro-bróðir tekur þar við og er að sjálfsögðu einn í kjöri, nema hvað. Það hefur aldrei verið stíll einræðishópsins þar að láta almenning ákveða eitt né neitt.

Það vekur líka nokkra athygli að maður af sömu kynslóð og Castro-bræður tekur við sem næstráðandi. Það eru því ekki mörg skrefin stigin til framtíðar þegar að Castro gefst upp og fer á ellilífeyrir, orðinn heilsulaus og útslitinn af löngum ræðuhöldum og ofríki. Það voru sumir að spá kynslóðaskiptum þar, en það er ekki beint á dagskrá að yngja upp forystuna eftir alla þessa áratugi einræðisins.

Og Castro vakir yfir öllu saman, hann á víst að vera til eilífðarnóns hugsjónastjórnandi flokksins og Kúbu allrar, sérstakur alvaldur í stefnumótun til framtíðar. Það er þá framtíðin sem valin er í einræðinu.

mbl.is Raúl Castro kjörinn forseti Kúbu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hanna Birna sækist eftir því að verða borgarstjóri

Hanna Birna KristjánsdóttirÞað er ekki hægt að sjá annað en að Hanna Birna Kristjánsdóttir, forseti borgarstjórnar, stefni að því að verða borgarstjóri í mars á næsta ári, ef marka má ummæli hennar í dag. Enda varla óeðlilegt eftir að hún fékk trausta og góða stuðningsyfirlýsingu frá borgarbúum og flokksmönnum í könnun Gallups fyrir nokkrum dögum. Það væri mjög undarlegt ef hún myndi ekki stefna að því í ljósi þess og að Vilhjálmur Þ. virðist rúinn trausti samkvæmt sömu könnun.

Mér finnst reyndar þetta samkomulag vera hvorki fugl né fiskur. Þetta er engin allsherjar niðurstaða á vandamálum Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Það eru engin teikn á lofti um það að staða Vilhjálms muni styrkjast á næstunni. Umboðsmaður Alþingis vill ítarlegri svör frá honum og umfjöllun í gær um lóðamál í borgarstjóratíð Vilhjálms voru ekki beint til að styrkja stöðu hans. Það er þó ljóst að með þessu er fyrst og fremst verið að gefa Vilhjálmi tíma til að fara frá síðar og jafnvel undir öðrum aðstæðum en við blasa. En það er ekkert sem bendir til að staðan muni batna.

Staða Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík ræðst ekki með þessari yfirlýsingu, þó að hún skýri þær línur að ekki er gefið að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson verði borgarstjóri. Tel ég mjög litlar líkur á því að hann muni taka við. Þar er opið á að fram komi önnur borgarstjóraefni, jafnvel verði sótt leiðtogaefni út fyrir borgarstjórnarflokkinn. Mér finnst það mjög vond lausn í málinu. Það er ekki farsælt ef það á að verða niðurstaðan að gera aðila utan hópsins að borgarstjóra.

Mér finnst þessi svokallaða lausn ekki vera nein í sjálfu sér, þetta er aðeins frestur sem vissir aðilar eru að kaupa sér og virkar hálf vandræðalegur. Sumir tala um að enginn einn maður eigi að vera merkilegri en Sjálfstæðisflokkurinn. Þessi langavitleysa í Reykjavík er að sýna okkur allt annað. Þetta er bara persónuplott því miður.


mbl.is Styður yfirlýsingu Vilhjálms
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hillary sýnir vígtennurnar og pólitíska veiðieðlið

Hillary Rodham Clinton Það þarf ekki að koma að óvörum að Hillary Rodham Clinton hjóli í Barack Obama í aðdraganda forkosninganna í Ohio og Texas. Það er að duga eða drepast fyrir hana í þessari stöðu og öllum ljóst að það verður að slá í klárinn til að geta staðið næstu níu daga af sér og ná að sigra. Þar þarf að leggja undir.

Það er ekki valkostur fyrir Hillary að vera settleg og pólitískt krútt sem brosir framan í alla á þessum lokaspretti fyrir forkosningarnar sem ráða örlögum forsetaframboðs hennar. Hillary hefur barist árum saman fyrir því að fara í forsetaframboð, beið rétta tækifærisins, að hennar mati, og ætlaði að taka þetta með trompi. Barack Obama varð henni skeinuhættari keppinautur en henni óraði fyrir og baráttan er alvöru, ekkert fals eða óekta við hana.

Ég hef ekki séð Hillary bíta frá sér með öðrum eins bravúr mjög lengi. Reiði hennar er skiljanleg. Verið er að snúa út úr tillögum hennar og kosningabaráttumálum með frekar ódýrum hætti, greinilega ala Karl Rove og því eðlilegt að vopnin séu dregin fram. Þetta er jú barátta um Pennsylvaníu-stræti 1600, sjálft Hvíta húsið. Ekkert smotterí undir. Og í miðjum klíðum þess að veiðieðlið er sýnt er Hillary með tilfinninganæmar auglýsingar um sig í fylkjunum. Ætlar að keyra á þeim til loka.

Þetta er orðið að lykilbaráttu stjórnmálaferils Hillary. Þar er allt lagt undir og þar er sýnt að veiðieðlið er sannarlega enn til staðar hjá Clinton-hjónunum. Tap hennar yrði tap hans og því er teflt á tæpustu vöð og spilað djarft. Enda ekkert annað í boði fyrir þetta pólitíska par.

mbl.is „Skammastu þín, Obama"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vilhjálmur heldur áfram - ekki aftur borgarstjóri

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson Það blasir við að yfirlýsing Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar um að halda áfram í leiðtogahlutverkinu felur í sér að hann verður ekki aftur borgarstjóri í Reykjavík en velja eigi nýjan leiðtoga síðar, væntanlega með leiðtogaprófkjöri á síðari hluta kjörtímabilsins. Í þeim efnum á greinilega að líta framhjá prófkjöri flokksins í nóvember 2005, sem var hið fjölmennasta í Íslandssögunni.

Það eru mikil vonbrigði að þessi kapall sé ekki stokkaður upp strax, enda tel ég að það veiki aðeins flokkinn úr þessu að Vilhjálmur sé leiðtogi í Reykjavík. Það er á við tímasprengju sem geti sprungið endanlega þá og þegar. Það sést af fréttum dagsins. Það sem skiptir þó mestu máli er að ljóst sé að Vilhjálmur verði ekki aftur borgarstjóri í Reykjavík. Yfirlýsingin er í raun um að nýr borgarstjóri verði valinn í prófkjöri eða með öðrum hætti.

Það vekur um leið upp spurningar um hvort eigi að ganga framhjá borgarfulltrúum í þeim efnum og reyna að koma með utanaðkomandi aðila í embætti borgarstjóra og leiðtogastólinn. Þessi framlenging á vondri stöðu er verulega áhættusöm, sérstaklega fyrir Sjálfstæðisflokkinn, sem má varla við meiri vandræðagangi og klúðri í borginni en þegar er orðið.

Með þessari ákvörðun felast vissulega pólitísk endalok Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar, enda verður hann ekki aftur borgarstjóri og væntanlega verður flokksmönnum í borginni falið að velja eftirmanninn þegar að líða tekur á tímabilið. Það er vissulega rétt skref úr því sem komið er, en það veikir þó hópinn að leiðtogaskipti fari ekki fram strax.

Þarna eru áhættur sem eru teknar - það verður dýrkeypt lexía verði sú áhætta flokknum ekki hagstæð.

mbl.is Ákvörðun síðar um borgarstjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson riðar til falls

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson Það er greinilegt að hverfafélögin í Reykjavík eru byrjuð að snúa baki við Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni sem leiðtoga Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík og er það endanleg staðfesting þess að hann riðar til falls. Nú eru Landssamband sjálfstæðiskvenna og Hvöt að undirbúa ályktanir til stuðnings Hönnu Birnu Kristjánsdóttur sem næsta leiðtoga í borgarmálunum.

Ekkert við þetta þarf að koma að óvörum. Grasrótin í flokknum er búin að fá nóg af þeirri atburðarás sem hefur staðið yfir í forystusveit flokksins í borginni og kallar eftir því að tekið verði á þessum vanda sem fyrst. Það er ekki lengur neinn valkostur að horfa þegjandi á þessa atburðarás. Það er nú mikilvægt að fólk tjái sig og fari yfir skoðanir sínar opinskátt.

Það er vandséð hvernig Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson geti horft framhjá þessari stöðu sem upp er komin og þeirri atburðarás sem komin er upp eftir að barst út að hann ætlaði að halda áfram eins og ekkert hefði í skorið.

mbl.is Hverfafélag vill ekki Vilhjálm sem borgarstjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Endatafl Vilhjálms Þ. - hver mun taka af skarið?

Borgarstjórnarflokkurinn Ég fæ ekki betur séð en að það sé endanlega að fjara undan Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni. Sögusagnir um að bæði Geir H. Haarde og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir hafi snúið við honum baki eru að ég tel réttar. Þegar að við bætist að Vilhjálmur hefur misst stuðning flokksmanna og borgarbúa eins og kannanir sýna er öllum ljóst að örlög hans eru ráðin. Honum er ekki sætt lengur.

Það væri réttast að Vilhjálmur myndi hætta að hugsa um eigin hag og nokkurra annarra, sem ég tel hann hafa því miður gert með því að kaupa sér tíma þegar að allir með snefilsvit á stjórnmálum vita hvernig landið liggur. Eins og staðan er orðin nú er Vilhjálmur aðeins að skaða Sjálfstæðisflokkinn með leiðtogasetu sinni og blasir við öllum að hann er rúinn trausti. Staðan er orðin þannig að verði ekki tekið af skarið með þessi mál strax um helgina eða hið síðasta á mánudag mun allur borgarstjórnarflokkurinn skaðast á leiðtogasetu Vilhjálms og ég tel að flokkurinn muni finna verulega fyrir því á landsvísu. Mistök Vilhjálms Þ. fylgja þá flokknum sem mara.

Það er eðlilegt að það sé spurt um það núna hver muni taka af skarið og segja hingað og ekki lengra. Sá sem það myndi gera gæti fengið á sig þann stimpil að hafa bjargað flokknum úr þessari vitleysu sem hefur staðið síðustu vikurnar, hefur staðið alltof lengi. Það hefði mátt binda enda á þennan farsa fyrir blaðamannafundinn misheppnaða í Valhöll fyrir tæpum tveim vikum. En betra er seint en aldrei. Það er alveg ljóst að dugi ekki til að Vilhjálmi séu gefin skilaboð um að hætta þurfi að grípa til aðgerða, annað hvort með íhlutun formanns Sjálfstæðisflokksins eða vantrausti innan úr borgarstjórnarflokknum.

Fréttir dagsins sýna mjög vel að REI-málið mun fylgja Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni úr þessu. Það er brennimerkt honum og öll mistök þess máls verða hans mistök. Verði ekki tekið af skarið hið allra fyrsta munu þau mistök verða brennimerkt öllum borgarfulltrúunum styðji þeir Vilhjálm áfram, að ég tali nú ekki um ef hann verður aftur gerður að borgarstjóra. Þegar að við bætist ávirðingar um spillingu í lóðamálum er komin upp staða sem er óviðunandi. Vilhjálmur verður að fara, sem fyrst!

Ég sem sjálfstæðismaður í trúnaðarstöðum fyrir flokkinn til fjölda ára tel þetta ástand ekki ganga lengur. Það er ekki valkostur hjá mér að sitja og þegja þessa vitleysu af mér. Það verður að hafa á því skoðanir þegar að hagsmunir nokkurra einstaklinga eru settar ofar flokkshag.

Tel að það sé stutt í stór tíðindi af þessum forystukapal. Það er ljóst að stuðningur flokksforystunnar við Vilhjálm er ekki lengur fyrir hendi. Þar er hugsað um heill og hag flokksins. Nú er spurt um hvort Vilhjálmur Þ. hugsar í raun um hagsmuni flokksins, ofar prívathag.

mbl.is Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson víkur ekki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hversu mikið mun Vilhjálmur Þ. skaða flokkinn?

Vilhjálmur Þ. VilhjálmssonÞað hefur nú verið allt að því staðfest í fjölmiðlum að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson ætlar sér að leiða flokkinn í Reykjavík áfram þrátt fyrir lítinn stuðning í könnunum og veika stöðu. Ég skrifaði pistil um ákvörðun Vilhjálms í dag og fór þar yfir skoðun mína. Fannst heiðarlegt að tjá mig hreint út um þau mál, enda tel ég það ekki til þess fallið að styrkja flokkinn að Vilhjálmur haldi áfram eins og ekkert hafi í skorist.

Það sem skiptir þó mestu máli er að fram komi hvort Vilhjálmur Þ. ætli sér að vera borgarstjóri aftur. Mér finnst það hið versta af öllu að hann leiði flokkinn sem borgarstjóri síðasta árið fyrir kosningar, sérstaklega ef hann ætlar sér ekki að fara í framboð aftur. Finnst það mjög ólíklegt að það verði niðurstaðan að Vilhjálmur verði borgarstjóri aftur. Öll staða málsins lyktar af því að verið sé að geyma borgarstjórastöðuna og það eigi að koma öðrum í hana en kjörnum fulltrúa úr borgarstjórnarflokknum. Ljótt er ef satt er.

Mér finnst öll staða Vilhjálms ekki traustvekjandi og sterk og finnst það satt best að segja fjarstæðukennt að hann verði borgarstjóri að nýju. Það er ekki nema von að spurt sé hvernig hann ætli sér að ná trausti aftur, miðað við könnun sem sýnir hann innan við tíu prósenta stuðning borgarbúa og rétt rúmlega það meðal sjálfstæðismanna í borginni. Það þarf engan pólitískan sérfræðing til að segja sér að Vilhjálmur er ekki lengur sá sterki leiðtogi sem hann var eftir prófkjörið 2005 og kosningarnar 2006. Þar hefur allt breyst.

Það er fjarri því að hugsað sé um heill og hag Sjálfstæðisflokksins með þessari ákvörðun. Mér finnst hún afleit og ekki til sóma fyrir þá sem ráða för í Reykjavík. Þar virðast hagsmunir eins manns ganga fyrir öllu öðru.


mbl.is Vilhjálmur ætlar að sitja áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vilhjálmur Þ. ætlar að halda áfram sem leiðtogi

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson Sögusagnir herma að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson hafi tekið þá ákvörðun að sitja áfram sem leiðtogi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík og borgarfulltrúi. Sú ákvörðun er mjög áhættusöm fyrir flokkinn á landsvísu en ekki Vilhjálm, sem samkvæmt könnunum er rúinn öllu trausti og orðinn pólitískt landlaus í raun enda ætlar ekki aftur í kosningar.

Mér finnst það virðingarvert að Vilhjálmur hafi loks tekið ákvörðun og virt í þeim efnum tímarammann sem Geir H. Haarde, forsætisráðherra, valdi handa honum í viðtalinu hjá Agli um daginn. Það virðist þó vera að í þeim efnum hugsi Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson frekar um eigin heill og hag en það sem best er fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Það á að vera skylda allra þeirra sem gegna trúnaðarstörfum fyrir flokkinn að hugsa fyrst og fremst um það sem kemur honum best.

Ég hef tjáð mig tæpitungulaust um stöðu Vilhjálms Þ. og pólitísku stöðuna sem blasir við Sjálfstæðisflokknum vegna þess klúðurs sem varð á vakt Vilhjálms í höfuðvígi hans. Það eru mistök sem er ekki nóg að biðjast afsökunar á, heldur þarf í þeim efnum að axla ábyrgð. Það er öllum ljóst að staða mála er með þeim hætti að flokkurinn á landsvísu hefur skaðast af þessu klúðri í borginni og er eiginlega ábyrgðarhluti að ekki hafi verið tekið á því af alvöru, eftir fíaskó-blaðamannafundinn fyrir rúmri viku.

Vilhjálmur tekur engar persónulegar áhættur með þessari ákvörðun, en þess í stað áhættur fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Hann er og verður táknmynd REI-klúðursins úr því sem komið er og áminning um lélega forystu sjálfstæðismanna í borgarmálunum eftir að R-listinn var gerður upp. Í þeim efnum verður engu breytt. Áhættan gæti orðið mikil fyrir flokkinn en ekki mann sem er á útleið úr pólitík, rúinn trausti hjá flokksmönnum og borgarbúum samkvæmt könnunum.

Obama á sigurbraut - erfið barátta fyrir Hillary

Obama og HillaryÞað verður æ ólíklegra með hverju augnablikinu sem líður að Hillary Rodham Clinton verði frambjóðandi demókrata í forsetakosningunum 4. nóvember nk. Staða hennar hefur veikst mjög eftir ofur-þriðjudaginn og er svo komið að hún verður að stóla á góða sigra eftir hálfan mánuð í Ohio og Texas til að halda framboði sínu á floti. Tap þar yrðu augljóslega endalok fyrir þessa kjarnakonu, sem talin var ósigrandi nær allt síðasta ár.

Það er þó mjög varhugavert að afskrifa Clinton-hjónin strax, þó að mjög á móti blási. Hillary er í þeirri stöðu að hún má ekki við meiri mistökum og áföllum. Barátta hennar er mjög brothætt og í raun eðlilegt að velta því fyrir sér hvort hún geti stöðvað bylgjuna til Obama. Henni tókst það í New Hampshire og náði að halda í við hann á ofur-þriðjudegi með því að taka stóru fylkin. Síðan hefur allt gengið á afturfótunum og ósigurinn í Wisconsin var sérstaklega skaðlegur þar sem Obama náði að taka stóran hluta af kjarnafylgi Hillary.

Þó að Clinton-hjónin séu í baráttu við tímann til að bjarga forsetaframboði Hillary og eina tækifæri hennar til að hljóta forsetaembættið er eðlilegt að bíða forkosninganna eftir hálfan mánuð til að meta stöðuna endanlega. Sagan hefur einfaldlega sýnt mjög vel að þau geta snúið aftur með bravúr. Clinton-hjónin hafa verið kraftaverkafólk í stjórnmálum, pólitískir klækjarefir sem hafa getað snúið glataðri pólitískri stöðu í persónulegan sigur sem stirnir af. Þeir sem muna eftir forsetakosningunum 1992, Whitewater-hneykslinu og Lewinsky-málinu vita hver máttur þeirra er. Það er þeim fátt betra gefið en berjast af krafti fyrir sínu.

Staðan virðist hafa breyst mjög á undanförnum mánuðum. Fyrir nokkrum árum töldu allir Hillary nær örugga um útnefninguna og baráttan yrði nær engin. Það hefur verið ljóst allt frá því að Barack Obama gaf kost á sér að þetta yrði alvöru barátta. Hann hefur reynst erfiður keppinautur, ekki vegna þess að hann er svo mikill ofjarl hennar í málefnalegri baráttu eða hafi af merkum verkum að státa heldur mun frekar vegna þess að hann er ferskt andlit í fjöldanum; boðberi nýrra tíma sem talar af krafti og heitir nýjum tímum. Hillary Rodham Clinton virðist ekki vera að hagnast af langri reynslu sinni og ekki heldur góðum verkum.

Það virðist vera sem nýjabrumið sem fylgir Obama og máttur hans sem ræðumanns sé að færa honum útnefninguna. Umfram allt sýnist mér það vera vegna þess að fólk vill breytingar. Hinsvegar er öllum ljóst að Obama er nær algjörlega óskrifað blað, ekki einu sinni stuðningsmenn hans geta talið upp afrek stjórnmálaferils hans. En kannski er ekki spurt um áratugalanga ferilskrá að þessu sinni. Eftir átta ára forsetaferil George W. Bush virðist vera ákall eftir nýjum tímum. Það er líka í Repúblikanaflokknum sem hefur þegar valið keppinaut Bush um útnefninguna fyrir átta árum og hógværari málsvara hægristefnu.

Það sem Hillary getur gert núna er að berjast. Er ekki sammála því að ummæli hennar í kappræðunum hafi verið merki um að hún sé að gefast upp. Hún er að reyna að sýna mýkri hliðina á sér; sýna auðmýkt og alþýðleika. Hillary hefur alla tíð haft á sér yfirbragð vægðarlausrar baráttukonu án pólitískra tilfinninga. Hún er stödd á þeirri vegferð núna að verða að sýna auðmýkt og mildari karaktereinkenni til að eiga von á að snúa bylgjunni við sem fylgir Obama innan flokksins. Kannski tekst það - kannski er það þegar orðið of seint.

Það stefnir í spennandi forsetakosningar. Það blasir við öllum að repúblikanar muni höggva óhikað í Obama nái hann útnefningunni og beita öllum brögðum til að reyna að ná af honum geislabaugnum. Þetta verður harkaleg barátta um valdahnossið. Það er ákall um breytingar í loftinu í þessum kosningum. Í þeirri bylgju virðist boðberi nýrra tíma svífa hátt á meðan að reynslumiklu fólki sem hefur kraft til verka er hafnað.


mbl.is Vöngum velt yfir ummælum Clinton í kappræðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband