Færsluflokkur: Dægurmál
26.2.2008 | 17:40
Gaukur áfrýjar bloggdómi til Hæstaréttar
Það er eiginlega varla komið alvöru fordæmi um niðurstöðu í dómum um bloggskrif nema að Hæstiréttur felli úrskurð í málinu. Það er því vonandi að Gaukur áfrýji og farið verði með málið alla leið í réttarkerfinu hérna heima. Mér finnst reyndar ákjósanlegt að það sé ljóst hvað megi og megi ekki. Fari svo að Ómar vinni í Hæstarétti er enda kominn upp viss siðferðisrammi yfir það sem skrifað er á netinu, einkum í bloggheimum, um persónur og eitthvað fordæmi um hvernig slík mál fara.
Mér fannst reyndar Gaukur ganga mjög langt í orðavali sínu og skil vel að Ómar hafi ekki viljað sitja undir slíkum nafngiftum og hann fékk í skrifum Gauks. En það eru ekki allir sem nenna að eltast við slík skrif um sig, enda held ég að mjög margir hafi lent í einhvers konar skítkasti og leiðindum í bloggheimum. En þess þá betra er að setja upp ramma um hvernig skrifa skal í bloggheimum og ágætt að til staðar sé dómur sem hægt er að vitna í þegar að deilt er um bloggskrif, hvernig svo sem þau eru og hversu slæmt skítkastið verður.
Ég hef bloggað í mörg ár og eiginlega finnst mér merkilegt hvað svona dómur kemur seint hérna heima þar sem bloggið er til umfjöllunar. Það eru orðnar mjög margar bloggsíðurnar hér heima sem eru virkar og bloggbólan er fjarri því sprungin, eins og svo margir hafa spáð árum saman. Því er það til hins góða að svona mál fari fyrir dómstóla og þessi umræða um skítkast í bloggheimum fari í dómssali en verði ekki bara virk í netpælingum.
![]() |
Dómi líklega áfrýjað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
26.2.2008 | 14:02
Bloggari dæmdur - Gaukur tapar fyrir Ómari
Ég hef alltaf verið þeirrar skoðunar að fólk verði að gá að sér þegar að það skrifar á blogg. Eitt er að hafa skoðanir, annað er að ráðast ómerkilega að fólki og með ósmekkleg ummæli. Það sést í þessu máli þar sem ummæli sem greinilega fóru langt yfir markið eru dæmd dauð og ómerk og bloggari verður að greiða miskabætur til þess sem hann fjallaði um. Eflaust verða málin fleiri síðar meir en þetta er sögulegur dómur og mjög merkilegur vegna þess fordæmis sem hann setur um ábyrgð á orðavali og umfjöllun í bloggheimum.
Það er ágætt að svona standard sé settur yfir, að fólk passi sig á því hvað það skrifar. Það er ágætt að tjá sig vel um þau mál sem eru í gangi en það verður að gera af ábyrgum og siðlegum hætti en ekki með blammeringum í allar áttir. Þessi dómur verður sem ágætis lexía í þeim efnum.
![]() |
Sekur um meiðyrði á bloggi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
26.2.2008 | 10:58
Ódýrara að fara í Hvalfjarðargöngin

Annars hefur umferðin um göngin verið mun meiri en áður var talið og þeir eru fáir sem keyra Hvalfjörðinn. Man að þegar að göngin voru vígð voru áætlanir um að það tæki sautján ár að borga göngin með þeim vegtolli sem þá var lagt upp með.
Það eru tíu ár liðin frá opnun og mér minnir að tölur hafi sýnt að um 95% sem fara leiðina, hið minnsta, fari göngin og sleppi Hvalfirðinum. Það segir allt sem segja þarf um hversu mikil samgöngubót Hvalfjarðargöngin voru.
![]() |
Veggjald í Hvalfjarðargöngum lækkar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
26.2.2008 | 01:36
Algjört ógeð
Þess eru reyndar dæmi að þetta hafi verið gert við karlmenn líka, að konur hafi sett ólyfjan í drykki þeirra. Þetta er ógeðslegur heimur sem felst í notkun svona lyfja og er dapurlegt að öllu leyti.
![]() |
Grunaðir um að hafa sett lyf í drykki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
25.2.2008 | 13:49
Stórsigur Eurobandsins - ekki skipt um söngvara
Enda er nákvæmlega engin þörf á að skipta um söngvara í laginu. Þjóðin valdi þau enda með afgerandi hætti til að fara út og greinilegt að það er verið að koma á flot kjaftasögum til að reyna að rýra sigur þeirra eða skemma fyrir þeim með einhverjum hætti. Það virðist þó ekki hafa tekist, enda hefur höfundur lagsins nú talað afgerandi um þetta.
Sigur Eurobandsins í keppninni var traustur og afgerandi. This Is My Life hlaut meira en helmingi fleiri atkvæði en næsta lag á eftir, Ho Ho Ho, We Say Hey Hey. Það deilir því vonandi enginn um úrslitin. Þjóðin valdi þetta lag og ekkert meira um það að segja.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
23.2.2008 | 14:08
Þorsteinn Már tekur til hjá Glitni
Ég held að bruðlið vegna samningsins við Lárus Welding hafi skaðað orðspor Glitnis að undanförnu. Það er bara þannig að fólki, hvort sem það er í viðskiptum við Glitni eður ei, blöskrar það að borga þurfi Lárusi 300 milljónir sem grunngreiðslu fyrir það eitt að hefja störf. Þetta er díll sem fólk skilur ekki og virkar mjög undarlega séð frá þeirri stöðu sem blasir við á þessum tímapunkti þar sem viðskiptaheimurinn nötrar og allt virðist á hverfanda hveli. Það þarf greinilega að fara út í það að taka til við þær aðstæður.
Það var góð byrjun hjá Máa að lækka laun stjórnarmanna í Glitni og næstu skilaboð hans sem stjórnarformanns sýna vel að það á að stokka hlutina upp. Líst vel á hans boðskap í þessu, enda þarf að taka til. Það sjá það allir sem líta á stöðu mála.
![]() |
Ekki fleiri starfslokasamninga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.2.2008 | 18:57
Blessað barnalán?
Það væri áhugavert að heyra hvernig umræðan væri hér heima ef stelpa á þessum aldri ætti sjö börn áður en lögaldri er náð. Það væri sennilega víða hneykslun í þeirri stöðu, enda ekki undarlegt að þetta veki heimsathygli. En það er sem betur fer margt ólíkt með Argentínu og Íslandi í þessum efnum, sem og öðrum.
![]() |
Unglingsstúlka eignast aftur þríbura |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 18:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.2.2008 | 17:19
Lýst eftir ungu fólki
Um er að ræða ólögráða ungmenni og eðlilegt er að spurningar vakni. Svörin við aðstæðum þeirra sem hverfa með þessum hætti eru mörg og ólík, en stundum þó með svipaða forsögu. Oft er um að ræða ungmenni sem eru í neyslu af einhverju tagi eða sinnast á við foreldra sína. Á okkar tímum er mikill vandi víða og þar geta ungmennin farið út af sporinu og eiga erfitt með að rata á beinu brautina aftur.
Fékk ég mörg ágætis komment á umræðuna fyrr í vikunni. Var áhugavert að heyra skoðanir annarra. Er vissulega rétt að lýsa eftir þeim unglingum sem ekki skila sér heim, í þeim efnum er biðin ekki góð. Sé eitthvað óvenjulegt eða þau koma ekki heim á eðlilegum tíma ber að lýsa eftir þeim. En þetta er orðið mjög algengt, allt að því sláandi og eðlilegt að spurningar vakni.
![]() |
Lýst eftir 14 ára gamalli stúlku |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
21.2.2008 | 15:15
Dapurlegt
Það hefur verið áhugavert að fylgjast með fréttum af þessu slysi. Erfiðast hefur verið að bíða eftir alvöru fregnum af slysstað, enda er leiðin löng og erfitt að eiga við slys af þessu tagi út á rúmsjó. Vonandi tekst að bjarga þessum flugmanni, þó vonin sé veik vissulega.
![]() |
Ekkert sést til flugvélarinnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
21.2.2008 | 12:56
Hræðileg frétt
Enn verra er að veðrið er vont á þessum slóðum og gerir það allar aðstæður enn verri. Vonandi mun Gæslunni takast að bjarga manninum um borð.
![]() |
Eins hreyfils flugvél í sjóinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)