Færsluflokkur: Dægurmál

Mikil mildi að ekki fór illa

Brá verulega þegar að ég las þessa frétt um leik unglinganna með fiskikarið á Suðurnesjum. Þetta er stórhættuleg iðja og þarf ekki mikið að fara úrskeiðis til að verulega illa fari. Það er mikilvægt að fjalla um þetta til að vekja hættuna á þessari iðju ef fólk er ekki með á hana. Þetta er ekki hlutur sem á að vefja í dularhjúp.

Fyrir þrem áratugum varð sviplegt slys hér í Eyjafirði þegar að nokkrir unglingsstrákar gerðu slíkt hið sama. Þeir fórust í slysinu og fundust aldrei. Það var mikil og dapurleg sorgarsaga.


mbl.is Stórhættulegur leikur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Söguleg vanþekking væntanlegs forsætisráðherra

Yves Leterme Það virðist nær öruggt að Yves Leterme, leiðtogi kristilegra demókrata í Flæmingjalandi, verði næsti forsætisráðherra Belgíu eftir sigur hægriaflanna í þingkosningum í júní. Mitt í önnum erfiðra stjórnarmyndunarviðræðna vekur þó mesta athygli vanþekking Leterme á belgískri sögu. Hann kunni ekki þjóðsönginn né gat sagt hvers vegna 21. júlí er þjóðhátíðardagur Belgíu. Hann gat hinsvegar farið með franska þjóðsönginn og virtist taka hann fyrir þann belgíska.

Það er ljóst að breytingar eru framundan í belgískum stjórnmálum. Ríkisstjórn Guy Verhofstadt, sem mynduð hefur verið af frjálslyndum og sósíalistum undir forsæti hans síðustu átta árin, féll í kosningunum í júnímánuði og hafa viðræður staðið um myndun nýrrar stjórnar undir forsæti Leterme vikum saman. Hefð er fyrir því að viðræður um stjórnarmyndun taki hið minnsta mánuð í Belgíu og hefur Leterme leitt þær viðræður sem afgerandi sigurvegari þingkosninganna. Á meðan hefur fráfarandi stjórn ríkt sem starfsstjórn.

Það hlýtur að teljast veruleg vanþekking að þekkja ekki sögu landsins síns og vera vanbúinn á því að svara lykilspurningum af þessu tagi. Þessi sögulega vanþekking hins væntanlega forsætisráðherra mun þó varla stöðva það að hann taki við völdum af Verhofstadt innan skamms, þó vissulega hljóti þetta að teljast neyðarleg frammistaða á lokastigi stjórnarmyndunar og varla líklegt til að styrkja hann í sessi.

mbl.is Kunni ekki textann og þekkti ekki söguna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er flugið öruggasti ferðamátinn?

Iceland Express Brá talsvert þegar að ég sá fréttina um að elding hefði lent í væng flugvélar frá Iceland Express og taldi kannski að um eitthvað slys hefði orðið að ræða. Svo var sem betur fer ekki. Allt fór eins vel og á var kosið við þessar aðstæður. En þetta opnar auðvitað hugleiðingar um það hvort að flugið sé öruggasti ferðamátinn.

Sjálfur hef ég mikið notað innanlandsflugið og flogið talsvert. Aldrei hefur mér liðið eitthvað illa í flugi eða fundist það óöruggur ferðamáti, þvert á móti hefur mér liðið frekar vel með að ferðast þannig. Hinsvegar er það auðvitað ljóst að allt getur gerst og aldrei hægt að koma í veg fyrir að slys verði. Það er eins og í umferðinni að slysin gerast og þau gera heldur aldrei boð á undan sér með neinu móti.

Hef sem betur fer aldrei lent í neinu óhappi á öllum þessum árum, í mesta falli orðið fyrir ónotum af því að flugvél lendir í vindi og rásar til sem leiðir til smáfiðrings. Sjálfum finnst mér miklu skemmtilegra til dæmis að fara fljúgandi milli Akureyrar og Reykjavíkur. Þau eru teljandi á fingrum annarrar handar skiptin sem ég hef farið á bíl á milli síðustu fimm árin til dæmis. Finnst flugið einfaldlega miklu betra. Það er bæði hraðvirkur og einfaldur ferðamáti að mörgu leyti. Gott að losna við langar bílferðir innanlands.

En flugið verður aldrei hættulaust. Um leið og við pöntum okkur flugmiða innanlands eða út í heim vitum við að allt getur gerst. Það er alveg eins þegar að við förum keyrandi á milli staða. Við vitum aldrei hvort við komumst heil heim, en við auðvitað vonum alltaf hið besta.

mbl.is Eldingu laust í þotu Iceland Express
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jennifer Aniston slítur vinaböndin

VinirÞað er mikið sjokk fyrir hörðustu aðdáendur sjónvarpsþáttanna Friends að Jennifer Aniston hafi ákveðið að slíta vinaböndin með því að útiloka að leika Rachel Green aftur og koma í veg fyrir endurkomu Vina á hvíta tjaldinu eða í sjónvarpsmynd. Aniston hefur alla tíð verið mest þekkt fyrir þetta hlutverk en ætlar að reyna að leita frægðarinnar á nýjum vettvangi og leika alvarlegri hlutverk. Þetta er svipuð ákvörðun og Kim Cattrall tók er hún neitaði að leika í kvikmyndaútfærslu af Sex and the City, en hún skipti síðar um skoðun.

Friends varð gríðarlega vinsæll sjónvarpsþáttaröð, með þeim vinsælli í sjónvarpssögunni. Rúmlega 50 milljón manns horfðu t.d. á lokaþáttinn þegar að hann var sýndur í Bandaríkjunum 6. maí 2004. Þættirnir um Vini voru alla tíð vinsælir reyndar og það varð aldrei lát á þeim vinsældum allt frá því að fyrsti þátturinn var sýndur þann 22. september 1994. Þættirnir voru á þessum áratug sýndir í um 100 löndum.

Aðalleikararnir: Jennifer Aniston, Courtney Cox Arquette, Lisa Kudrow, Matt Le Blanc, Matthew Perry og David Schwimmer (alltaf kynnt í byrjun hvers þáttar í þessari röð) voru öll nær óþekkt við upphaf sýninga þáttanna. Við leiðarlok minnir mig að þau hafi fengið um eina milljón dollara, um 70-75 milljónir íslenskra króna fyrir hvern þátt. Fylgdist ég með þáttunum um Vini alla tíð og á þættina á DVD. Þetta er einfaldlega sá þáttur sem helst stendur upp úr frá tíunda áratugnum, náði gríðarlegum vinsældum og hafði sterka stöðu.

Það eru því viss vonbrigði að ekki verði framhald á af einhverju tagi, það er ekki hægt að segja annað. En það er svo sannarlega gott að við eigum þó allavega þættina á DVD og getum notið þeirra alla tíð. Nú verður fróðlegt að sjá hvort að Jennifer beygir sig undir það síðar meir að gera framhald á vinasögunni í New York.


mbl.is Ekki meiri Vinir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skelfilegt slys

Það er skelfilegt að heyra fréttir af enn einu slysinu, nú þar sem að hjólreiðamaður verður fyrir bíl. Það er úrslitaatriði við þær aðstæður jafnan hvort hjólreiðamaðurinn hefur hjálm. Það virðist vera sem að hjálmurinn hafi sprungið í slysinu og því hafi höfuðhöggið orðið mjög mikið. Jafnan hefur hjálmurinn mikið að segja um að ekki fari enn verr og veit ég af slysum þar sem það hefur haft allt að segja að hjálmur hafi verið til staðar.

Sjálfur nota ég alltaf hjálm þegar að ég fæ mér hjóltúr og vonandi er það orðið svo að flestir noti hjálm. Lengi vel fannst mörgum það ekki flott að vera með hjálm en ég held að flestir hafi yfirstígið þær hugsanir. Vona það allavega. En þó að hann sé auðvitað notaður til að auka öryggi getur svo farið að hann komi ekki í veg fyrir vonda áverka og virðist þetta vera eitt þeirra tilfella.

Það er alltaf stingandi að heyra fréttir af svona slysförum, enda er leitt að hjálmarnir taki ekki algjörlega höggið sem verður í slysinu. Það er vonandi að sá sem lenti í þessu slysi nái sér að fullu.

mbl.is Ekið á reiðhjólamann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rósrauð augnabliksfrægð Páls Óskars á netinu

Páll Óskar Hjálmtýsson hefur aldrei átt í erfiðleikum með að stuða og vekja athygli, enda mjög ófeiminn í allri framkomu. Þóttist vita um leið og ég sá myndbandið við nýjasta lagið hans, Allt fyrir ástina, að það ætti eftir að vekja mjög mikla athygli. Enda er myndbandið mjög rósrautt og litríkt, svo vægt sé til orða tekið. Þó hafa sennilega fæstir búist við að sú athygli myndi ná út fyrir landsteinana, rétt eins og honum tókst með söngatriði sínu í Eurovision fyrir áratug. Þá breytti hann keppninni með eftirminnilegum og áberandi hætti.

Páll Óskar komst nefnilega í umræðuna á vefsíðu Perez Hilton (sem er ekki skyldur glamúrgellunni París Hilton svo það sé tekið fram) sem er ein sú vinsælasta í heimi. YouTube er auðvitað orðinn mjög öflugur miðill, enda flest sem leita þarf að þar, og svo virðist vera sem að Hilton hafi þar séð myndbandið. Hann skilur auðvitað ekki orð í því sem söngvarinn lætur frá sér fara, en yfirbragð myndbandsins fær hann til að tala mjög opinskátt. Og ekki eru kommentin rólegri, en þar er engin tæpitunga sjáanleg.

Þetta myndband er auðvitað með öllum mögulegum klisjum í bókinni varðandi ást og fer enn lengra. Svona er bara stíll Páls Óskars. Við þekkjum þann stíl eiginlega orðið of vel til að kippa okkur upp við hann. Er reyndar mjög klisjukennt myndband, það er sennilega hægt að taka misafgerandi til orða um það. Þessi skrif virðast hafa kippt verulega upp heimsóknunum á myndbandið og Páll Óskar fær sínar 15 mínútur frægðarinnar. Hún verður eflaust gleymd eftir helgina og þegar að gúrkutíðinni lýkur hérna heima.

Annars er auðvitað ljóst að þetta er einn öflugasti sumarsmellurinn hérna heima. Er mikið spilaður í útvarpi og er á vinsældalistum. Hinsvegar toppar hann ekki á tónlist.is en strákarnir í Sprengjuhöllinni eru þar enn í efsta sæti með sumarsmellinn sinn og virðast ná að bægja rósrauðum smelli Páls Óskars frá því að verða vinsælasta lag sumarsins.

Reyndar minnti myndbandið hans Páls Óskars að hluta á draumasenuna rósóttu og mögnuðu úr kvikmyndinni American Beauty fyrir tæpum áratug er Lester Burnham (í frábærri túlkun Kevin Spacey) upplifir rósrauðar hugsanir. Klárlega litið aðeins þangað, en líka á fleira. Þetta er sambland af mjög mörgu í einu myndbandi.


mbl.is Páll Óskar á frægustu slúðursíðu heims
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Líflaust yfir Ríkissjónvarpinu fyrir norðan

Var að koma heim og ætlaði aldrei þessu vant að stilla á Ríkissjónvarpið og horfa aðeins á það á laugardagskvöldi. Þá blasti við mér ekkert nema korn á sjónvarpsskjánum, alveg steindautt yfir öllu. Hélt fyrst að ríkið hefði gefist upp á að bjóða mér andstæðingi ríkisvæddrar fjölmiðlunar afnot af sér en heyrði svo áðan í vini mínum og hann hafði svipaða sögu að segja. Steindautt yfir ríkissjónvarpinu hérna fyrir norðan semsagt. Sá svo áðan á vef RÚV að sendirinn á Vaðlaheiði hefði lent í einhverri bilun.

Þannig að það fer lítið fyrir ríkisvæddu sjónvarpi hér á þessu laugardagskvöldi.

Simpson-kvikmyndin frumsýnd í kvöld í Vermont

Simpson-fjölskyldanÍ kvöld verður kvikmyndin um Simpson-fjölskylduna frumsýnd í Springfield í Vermont. Lengi hefur verið beðið eftir kvikmynd um fjölskylduna og eftirvænting aðdáendanna eftir henni orðinn nokkur. Fjöldi bæja með nafnið Springfield börðust um að fá frumsýningarréttinn á myndinni, en staðsetning fjölskyldunnar var valin á sínum tíma í Springfield vegna þess að það var það staðarnafn sem var í flestum ríkjum landsins. Vermont varð fyrir valinu, þó ég hafi reyndar alltaf tengt Springfield við Illinois.

Það eru að verða tveir áratugir liðnir frá því að fyrsti þátturinn um hina óborganlegu og stórskemmtilegu fjölskyldu var sýndur í bandarísku sjónvarpi. Það var í desember 1989. Er þátturinn orðinn lífseigasti gamanþáttur í sögu bandarísks sjónvarps og nýtur enn gríðarlegra vinsælda. Er hann enn sýndur á besta sýningartíma og hefur haldið stöðu sinni og áhorfendatölum í gegnum þykkt og þunnt í öll þessi ár. Engin merki eru um það að sýningar á þáttunum hætti á komandi árum, vinsældirnar eru enn miklar og eftirspurn eftir ævintýrum fjölskyldunnar haldast óbreyttar.

Er óhætt að fullyrða að fáir ef nokkrir af forystumönnum Fox-sjónvarpsstöðvarinnar hafi átt von á þessum miklu vinsældum er þátturinn hóf göngu sína og hafi spáð fyrir um þau áhrif sem hann hefur haft í gegnum tíðina. Fyrstu þættirnir sem sýndir voru í desember 1989 og janúar 1990 áttu einungis að verða prufuþættir, til að kanna hvort þeir myndu ná einhverjum vinsældum. Þeir slógu í gegn og eftir það var ákveðið að klára 24 þátta seríu fram á árið 1990 til að kanna hvort eftirspurn yrði eftir frekari þáttum um fjölskylduna. Söguna þekkja allir, þættirnir ganga enn og vinsældirnar hafa eins og fyrr segir ekkert dalað.

Þátturinn hefur náð athygli almennings og verið miðpunktur í lífi fólks allan tímann og hafa á þessum tveim áratugum eignast breiðan áhorfenda- og aðdáendahóp. 400. þátturinn var sýndur núna í maí 2007. Homer, Marge, Bart, Lisa og Maggie eru svo sannarlega fjölskylduvinir heimsbúa allra, enda er þátturinn sýndur um allan heim. Samningur um gerð þáttanna stendur til ársloka 2009 á tuttugasta afmælisárinu. Verður þá tekin ákvörðun um frekari þáttagerð.

Simpson-fjölskyldan varð til í kolli Matt Groening árið 1987 og vann hann hugmyndina ítarlega áður en framleiðsla hófst formlega. Groening hefur eins og vænta má auðgast mjög á gerð þáttanna og er enn í dag einn af aðalhandritshöfundum þeirra og yfirstjórnendum. Hef ég fylgst með þáttunum vel allt frá byrjun, óneitanlega er Simpson-fjölskyldan eitt af því sem mín kynslóð og þær sem á eftir hafa komið hafa alist upp við.

Simpson-fjölskyldan er án vafa eitt af táknum tíunda áratugar 20. aldarinnar. Það verður gaman að sjá myndina og fróðlegt eiginleg að sjá hvort að framtíð Simpson-fjölskyldunnar verði í kvikmyndaformi eða hvort þetta er aðeins tilraun. Það ræðst væntanlega mikið af viðtökum myndarinnar, sem ég tel öruggt að verði smellur, enda hefur fjölskyldan haldið velli árum saman og er enn mjög vinsæl.

Simpson-stefið margfræga eftir Danny Elfman er í spilaranum hér á vefnum.


mbl.is Simpsons kvikmyndin heimsfrumsýnd í Springfield
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Löng andvökunótt hjá aðdáendum Harry Potter

Aðdáandi les Aðdáendur ævintýrasagnanna um Harry Potter áttu andvökunótt við að lesa sjöunda og síðasta bindið um galdrastrákinn um allan heim. Margar sögusagnir hafa gengið um endalokin og er það nú í höndum lesenda að komast að því hvernig fer að lokum. Um allan heim, allt frá Íslandi til Nýja-Sjálands, biðu aðdáendur bókarinnar í röðum eftir að komast yfir eintak af bókinni, margir biðu í vel yfir 30 klukkustundir. Aðrir pöntuðu bókina fyrirfram og fá hana senda heim í pósti og slepptu langri bið.

Bækurnar um Harry Potter hafa komið út í tíu ár og hafa allar notið mikilla vinsælda. Langar biðraðir hafa myndast í hvert skipti eftir þeim. Fyrsta bókin, Harry Potter og viskusteinnin, er ein mest selda bók heims, sú níunda eða tíunda mest selda að mig minnir, naut allavega gríðarlegra vinsælda. Áhuginn fyrir bókunum hefur alltaf verið mikill og hefur æðið sem myndaðist utan um ævintýrabálkinn verið áberandi. Fá ævintýri hafa náð betur til fólks á öllum aldri og eitt er víst að lesendahópurinn er ekki bara börn eða unglingar. Bækurnar hafa enda verið fjölskyldulesning og áhuginn eftir því.

Bækurnar um Harry Potter hafa opnað magnaðan ævintýraheim. Sennilega er J.K. Rowling ekki besti rithöfundur sögunnar en henni tókst með ævintýralegum hætti að búa til heim sem lesendur gátu gleymt sér í og fangaði ævintýraþörf fólks. Þetta er ekki ósvipað og Hringadróttinssaga eftir J.R.R. Tolkien. Flestir muna eftir tilhlökkuninni eftir myndunum þrem á hinum gömlu og góðu bókum, sem fæstir höfðu lesið áður en þeir sáu fyrstu myndina. Það varð visst spennufall hjá aðdáendum sagnanna þegar að þriðja og síðasta myndin varð opinber og sama mun eflaust gerast meðal aðdáenda Harry Potter nú, sem geta þó beðið eftir næstu tveim kvikmyndum.

Mér finnst merkilega lítið hafa heyrst um sögulokin. Eflaust vill hver og einn lesa bókina á sínum hraða. Sumir þjófstarta með því að líta fyrst á síðasta kaflann til að eyða óvissunni. Það er þó aldrei gaman að lesa bók sem vitað er hvernig endað, svo að sennilegast lesa flestir bókina á eðlilegum hraða. Það er þó svo með Harry Potter-bækur að það hleypur enginn á hundavaði í gegnum þær. Enda eru þær mjög þykkar og yfirgripsmiklar.

Harry Potter and the Deathly Hallows er 608 blaðsíður, svo að löng helgarlesning er framundan hjá þeim sem biðu sem lengst.

mbl.is Harry Potter allur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tíu ára bið eftir sögulokum hjá Harry Potter á enda

J.K. Rowling Tíu ára bið eftir sögulokum ævintýrisins um galdrastrákinn Harry Potter er á enda. Lokabindið varð opinbert fyrir klukkustund þegar að sala hófst á því um allan heim. Nú ráðast örlögin. Víða hefur sögulokunum verið lekið, en með misjöfnum endum að því er virðist. Kjaftasagan segir að Voldemort og Ron muni deyja, en J.K. Rowling hafði fyrir margt löngu sagt að tvær sögupersónur myndu deyja í lokabindinu í uppgjörinu mikla.

Þetta hefur auðvitað verið gríðarlegt ævintýri, eins og ég sagði frá hérna fyrr í dag. Að baki eru tíu ár frá útkomu fyrstu bókarinnar, sex ár frá því að fyrsta kvikmyndin varð opinber og Daniel Radcliffe færði eina athyglisverðustu sögupersónu breskra bókmennta yfir á hvíta tjaldið og færði honum líf á nýjum vettvangi. Þessi sex ár hafa ekki verið síðra ævintýr fyrir Daniel Radcliffe, sem er orðinn heimsfrægur af túlkun sinni, en J.K. Rowling sem er ein auðugusta kona heims, og þarf ekki frekar en hún vill að pára meira á sinni ævi.

Það verður fróðlegt að sjá hvernig fer að sögulokum. Nú hafa aðdáendur um allan heim hafist handa við að lesa bókina og svala forvitni sinni. Sumir þora sennilega varla að byrja að lesa af ótta við að Potter verði allur í sögulok. Hef samt alltaf verið viss um að Harry myndi ekki verða skrifaður út, svo að möguleikinn á að framhald af einhverskonar tagi haldist inni í myndinni. Það er mjög ólíklegt að J.K. Rowling endi með svo drastískum hætti. Þess vegna er tilgátan um dauða Rons mjög líkleg og eiginlega langsennilegust í raun.

Nóttin verður sennilega löng fyrir aðdáendur Harry Potter. Margir þeirra hafa beðið klukkustundum saman eftir því að fá eintak af bókinni á ensku, enda þýðendum ekki treyst fyrir leyndarmálinu mikla frekar en mörgum öðrum. Fáar bækur hafa verið verndaðar meira en þetta lokabindi, verndaðar frá því að plottið þeirra berist ekki út. En nú verða sögulokin ljós og skemmtilegar pælingar eflaust framundan frá þeim sem mestan áhuga hafa á Potter. Við hin bíðum auðvitað.

mbl.is Biðin á enda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband