6.10.2007 | 20:51
Ólafur Ragnar flýgur um heiminn í boði auðmanna

Mér finnst þetta ekki eðlileg þróun og finnst þetta til skammar fyrir forsetaembættið. Ef forsetinn getur ekki ferðast í almennu millilandaflugi á hann að óska eftir því að ríkisstjórnin kaupi einkaflugvél handa honum til að geta sinnt sínum verkum. Það er mun skárra heldur en að vera að fylgja eftir hinum ríku með þessum hætti. Það er reyndar mjög kaldhæðnislegt að fyrrum formaður Alþýðubandalagsins ferðist með þessum hætti og er dæmi um það hvernig tímarnir eru sífellt að breytast.
Það eru vissulega nýjir tímar víða, en það er samt sem áður einum of að forsetinn sé að snapa sér far með auðmönnum til að geta mætt á fundi með þjóðhöfðingjum og eða sinnt öðrum mikilvægum verkum. Þetta er ný sýn á veruleikann sem blasir þarna við og eðlilegt að við spyrjum okkur að því á hvaða leið þessi forseti er að fara með embættið.
![]() |
Ólafur Ragnar flaug til Kína í boði Glitnis |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.10.2007 | 19:12
Mun Guðni gera upp við Halldór í ævisögu sinni?

Áhugaverðast verður, að mínu mati, að lesa þar um love/hate-samband Guðna og Halldórs Ásgrímssonar innan Framsóknarflokksins árum saman. Fyrir nokkrum mánuðum gerði Guðni það upp í DV með flennifyrirsögninni: "Halldór vildi mig ekki". Gremja Guðna yfir atburðarásinni sumarið 2006 þar sem greinilega var reynt að koma í veg fyrir að Guðni tæki við flokknum af Halldóri Ásgrímssyni situr enn þungt í honum samkvæmt því og varla verður ævisaga þessa manns rituð án þess að þar verði talað tæpitungulaust um Halldór, sem var formaður Framsóknarflokksins í tólf ár.
Orðrétt sagði Guðni í viðtali við Björn Þór Sigbjörnsson um samskiptin við Halldór í Fréttablaðinu í maí 2007 (þar sem vikið er að pólitískum endalokum Halldórs): "Halldór taldi mig ekki þann réttborna arftaka sem Framsóknarflokkurinn ætti að fá. Ég veit ekki hvers vegna það var, hvort hann treysti mér ekki fyrir flokknum eða hvort andstaða mín við þessa Evrópusambandshugsun hans réði því." Ískuldi var orðinn í samskiptum Halldórs og Guðna er þarna var komið sögu og ekki var hægt að leyna innri átökum þeirra.
Guðni hefur jafnan talað tæpitungulaust í stjórnmálum og verið maður margra hnyttinna orða. Það hvernig Guðni gerir upp við Halldórsarminn, sem ætlaði að gera hann upp pólitískt sumarið 2006 með Halldóri verður áhugavert að lesa um í ævisögunni fyrir jólin. Það er eflaust enn litríkari saga í heild en þær slitrur sem við höfum heyrt til þessa.
![]() |
Ævisaga Guðna Ágústssonar gefin út |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.10.2007 | 17:43
FH-ingar bikarmeistarar eftir baráttu við Fjölni
Fyrirfram taldi ég að FH-ingar myndu fara létt með að ná bikarnum og jafnvel nokkuð traustvekjandi, enda sterkara lið á öllum alvöru pappírum knattspyrnunnar. En það var framlengt og Fjölnir stóð sig bara virkilega vel. Þeir í Grafarvoginum geta, þrátt fyrir tap, glaðst með árangurinn, enda hefði sá maður utan Grafarvogs verið talinn galinn sem hefði í sumarbyrjun spáð þeim sess í bikarleiknum á Laugardalsvelli.
Óska FH-ingum til hamingju með sigurinn og ekki síður óska ég Fjölni til hamingju með glæsilegt gengi í sumar. Hlakka til að sjá þá í úrvalsdeildinni að vori.
![]() |
FH er bikarmeistari í knattspyrnu í fyrsta skipti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.10.2007 | 16:14
Alfreð kemur Vilhjálmi til varnar á erfiðum tímum

Ég held að það sé óhætt að segja að Vilhjálmur sleiki harðan botninn í borgarmálunum þegar að eini maðurinn sem fer í fjölmiðla og leggur honum lið sé Alfreð Þorsteinsson, sem í tólf ár vann með umdeildum hætti innan OR. Mér finnst þetta REI-mál vera risarækjuskandall í sparifötunum og er því ekki hissa þó að Alfreð sé einn manna mættur til varnar. Ég sé að Björn Bjarnason hugleiðir sitt vegna ummæla Alfreðs í Kastljósinu í gær. Það er eðlilegt.
Eftir allt sem gekk á í valdatíð R-listans er afleitt að Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík taki upp sama verklag, t.d. innan Orkuveitunnar. Það voru að ég tel mikil pólitísk mistök að borgarfulltrúi var ekki settur yfir Orkuveituna og svo er stórundarlegt að borgarstjórinn sjálfur sitji þarna inni. Það að kjörnir fulltrúar séu ekki hafðir með í ráðum er alvarlegt mál. Þetta mál allt er afleitt og ég finn það víða að fólk hefur fengið nóg af verklagi Vilhjálms.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.10.2007 | 15:44
Gordon Brown þorir ekki að boða til kosninga
Eftir margra vikna daður við möguleikann um kosningar fyrir jól blasir nú við að Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, þorir ekki að leggja í slaginn og boða til þeirra. Kannanir voru Brown góðar og stefndi flest í að hann léti vaða, enda var forysta Verkamannaflokksins allt upp í tíu til ellefu prósentustig þegar að mest var. En það má segja að hann hafi daðrað við þennan möguleika of lengi og ákvörðun um að hætta við mun veikja forsætisráðherrann, allavega fyrsta kastið á eftir.
100 dagar voru í vikunni liðnir frá því að Gordon Brown varð forsætisráðherra, eftir þrettán ára bið eftir völdunum. Tony Blair var orðinn rúinn trausti meðal flokksmanna og almennings og Brown kom sterkur til leiks. Flokkurinn náði aftur góðum mælingum í skoðanakönnunum. En hveitibrauðsdagar forsætisráðherrans eru liðnir og komið að alvöru leiksins. Íhaldsmenn, sem leitt höfðu kannanir mánuðum saman, misstu forystuna til forsætisráðherrans nýja og fóru til flokksþings í Blackpool með kosningar yfirvofandi og þurftu nauðsynlega að ná athyglinni með áberandi hætti.
David Cameron, sem kom sem riddarinn á hvíta hestinum fyrir tveim árum í forystu íhaldsmanna, hafði misst aðeins fótanna í niðursveiflunni sem blasti við eftir að Brown varð forsætisráðherra. Hann þurfti að gera allt sitt besta til að snúa taflinu við, snúa vörn í sókn. Cameron tók mikla áhættu á flokksþinginu - ákvað að ávarpa þingið blaðalaust og án þess að hafa punkta meðferðis. Hann flutti klukkustundarlanga ræðu frá hjartanu um málefni samtímans, framtíðina og þau málefni sem mestu skipta í aðdraganda kosninga. Þetta var gríðarlega áhætta en reyndist vera það sem hann þurfti á að halda.
Ræðan var vel heppnuð. Cameron lék eftir það sem hann gerði í sama sal fyrir tveim árum er hann talaði sig upp sem leiðtogaefni í flokknum. Hann barðist um leiðtogahlutverkið eftir Michael Howard við reynda flokkshesta. Flestir töldu á þeim tímapunkti David Davis nær öruggan um leiðtogastólinn. Svo fór að Cameron varð maður nýrra tíma, kom með eitthvað ferskt í umræðuna og hann varð alvöru keppinautur Davis. Er yfir lauk í baráttu þeirra hlaut Cameron 2/3 greiddra atkvæða og það sem flestir kalla krýningu þó einvígi sé. Síðan hefur hann upplifað hæðir og lægðir á leiðtogaferlinum og þurfti á sterkri endurkomu að halda. Það tókst honum í Blackpool.
Fyrir nokkrum dögum blöstu kosningar við þann 1. nóvember. Brown var innst inni búinn að ákveða að taka áhættuna, ætlaði að láta vaða. Hann vissi að það var áhætta. Tap í kosningunum hefði þýtt að hann væri sá maður sem skemmst hefði setið á forsætisráðherrastóli Bretlands, sigur myndi færa honum fimm ár, nýtt umboð fyrir nýja tíma undir hans leiðsögn. En íhaldsmönnum tókst það sem þeir ætluðu sér að gera í Blackpool. Cameron náði eyrum fólks, talaði af krafti og vindarnir hafa snúist aftur. Kannanir hafa sýnt að annaðhvort eru flokkarnir jafnir eða Verkamannaflokkurinn hefur naumt forskot.
Það er of naumt til að Gordon Brown taki áhættuna. Það er rétt sem William Hague sagði á flokksþingi íhaldsmanna að Brown er calculation-stjórnmálamaður en ekki hugsjónastjórnmálamaður. Hann veit að áhættan er mikil, niðurstaðan gæti orðið sigur íhaldsmanna í kosningunum sem hann ætlaði að boða til (kannanir sýna að hægrimenn eru líklegri nú en vinstrimenn að fara á kjörstað t.d.) eða að meirihluti kratanna gæti minnkað. Það er á of mikið að tefla, sérstaklega í ljósi þess að hann getur setið í tæp þrjú ár án þess að boða til kosninga.
Niðurstaðan er því að Gordon Brown hopar. Það er vandræðalegt eftir allt sem sagt hefur verið. Enda var vinnan hafin á fullu innan Verkamannaflokksins við kosningastarfið og strategían var komin á fullt. Það sást vel af ferð Browns til Íraks á meðan að flokksþingi íhaldsmanna stóð og tilkynningu um fækkun hermanna í landinu. Væntanlega brosa íhaldsmenn breitt í dag yfir því að hafa tekist að setja Gordon Brown út af laginu og lagt áætlanir hans í rúst.
![]() |
Brown sagður útiloka kosningar í haust |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.10.2007 | 13:42
Andi Díönu lifir enn í fjölmiðlaumræðunni
Áratug eftir andlát Díönu, prinsessu af Wales, og Dodi Al Fayed er enn rætt um alla þætti málsins og reynt að varpa ljósi á síðustu tólf klukkustundirnar áður en bílslysið örlagaríka átti sér stað í miðborg Parísar. Myndirnar úr öryggismyndavélum Ritz-hótelsins gefa mun fyllri heildarmynd af síðustu klukkustundunum. Nú fyrst hafa þessar myndir verið opinberaðar, en sumar þeirra voru þó birtar í september 1997, í vikunni eftir andlát prinsessunnar.
Eftir áratug er vandséð hvað geti talist nýtt í þessu sorglega máli. Myndirnar eru athyglisverðar en þær eru umfram allt viðbót, sem gefa ekkert meira upp en vitað var. Díana hefur hvílt á eyjunni í Althorp í áratug og fjölskylda hennar hefur náð þeim áfanga að halda áfram eftir langa sorg sína. Ég hélt satt best að segja að búið væri að kanna alla hluti þessa máls. Tími væri kominn til þess að prinsessan fengi að hvíla í friði.
Vissulega eru myndirnar af henni í lyftunni mjög fallegar og vekja athygli, en þær minna okkur bara á það hversu falleg Díana var og hversu mikill harmdauði hún var. Ég hef alla tíð talið að ástæða þessa skelfilega slyss sé einföld. Bílstjórinn hafði fengið sér í glas og hann lenti í aðstæðum sem enginn átti von á. Allt fór úr böndunum og afleiðingarnar urðu sorglegar.
Ég trúi því ekki að stórt samsæri hafi verið framið um að myrða Díönu, prinsessu af Wales. Finnst það of fjarstæðukennt að MI6 hafi unnið að skipan konungsfjölskyldunnar að drepa hana. Algjörlega út í hött. Þó að kalt hafi verið milli aðila vildi enginn neinn feigan. Díana lenti bara í aðstæðum sem leiddu til bílslyss og hún slasaðist það illa að henni var ekki ætlað líf.
Þessi endir verður enn sorglegri þegar að litið er á myndirnar. Þessar myndbirtingar og endalaus málarekstur til að upplýsa hið augljósa hlýtur að vera sem fleinn í syni prinsessunnar og fjölskyldu hennar. En kannski verður að fara yfir allt málið enn einu sinni til að ljúka því. En það er kominn tími til að fjölmiðlaprinsessan fái að hvíla í friði.
![]() |
Áður óbirtar myndir af Díönu prinsessu vekja athygli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 13:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.10.2007 | 13:35
Ljóðmæli Helga
Hafði virkilega gaman að lesa bókina og fara yfir ljóðin, enda mörg þeirra virkilega falleg og bera vel vitni ást hans til Austfjarða og sum bera vel vitni stjórnmálaskoðunum hans, en hann var snemma vinstrimaður og hefur í áratugi unnið í stjórnmálum, bæði fyrir Alþýðubandalagið og VG.
Finnst eitt ljóð sérstaklega fallegt og læt það fylgja hér með:
Friðarbæn
Helgnýr heiminn skekur,
herlúðrarnir gjalla.
Feigðarvofu vekur
vítt um heima alla.
Harm ber fólk í hljóði,
hugsjónirnar víkja.
Vargöld, vígaslóði,
vá og skelfing ríkja.
Hatrið grimma gellur,
geigvænt fylgir stríðum.
Sprengjufjöldi fellur,
feigðarboði lýðum.
Ríkir grimmdin gráa,
gjafi illra verka.
Vei þeim veika og smáa,
valdið er hins sterka.
Máttvana fólk mænir
í myrkrið ógnarsvarta.
Hljóðar bærast bænir
bljúgar innst frá hjarta.
Stríðsins hopi helsi,
hatrið burtu víkir.
Gefist friður, frelsi,
fagurt kærleiksríki.
Ljóð | Breytt s.d. kl. 13:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
6.10.2007 | 00:04
Helga bannað að vera með þátt á RVKFM

Eftir því sem kjaftasagan segir mun Óli Palli á Rás 2 hafa orðið fúll, en honum var víst boðið að vera í einhverjum sjónvarpsþætti, veit ekki alveg hvaða þáttur það er en sennilega var það dómarahlutverk í þættinum þar sem söngvari bandsins hans Bubba er valinn. Ýmisleg dæmi eru um að starfsmönnum sé ekki leyft að vinna í kross, en þetta virkar spes í ljósi þess að þetta er þáttur á útvarpsstöð og mun minna áberandi, en hefði þetta verið t.d. þáttur á Bylgjunni.
Það er skrýtið að útvarpsstjóri grípi fram fyrir hendurnar á dagskrárstjóranum með þessum hætti. En hann er sennilega að reyna að hafa alla góða, enda dæmi vissulega um að ólga hafi verið vegna þess að starfsmenn sinni verkum utan Efstaleitis. Það verða semsagt engin Helgispjöll hjá Helga á RVKFM og fróðlegt hvað komi í staðinn á sunnudögum.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)