31.12.2007 | 18:03
Áramótakveðja

Ég vil sérstaklega þakka öllum þeim sem ég kynnst í gegnum þennan bloggvef minn. Hef ekki tölu á fjölda bloggfærslna ársins 2007, en ég hef haft mjög gaman af þessum skrifum og ennfremur þeim kommentum sem ég hef fengið og góðum viðbrögðum úr mörgum áttum, bæði þeirra sem ég þekki og eins þeirra sem hafa lesið og ég kynnst eftir það.
Kærar þakkir fyrir allt hið góða. Hafið það gott á nýju ári - vonandi verður það okkur öllum gjöfult og gott!
bestu nýárskveðjur frá Akureyri
Stefán Friðrik Stefánsson
Nú árið er liðið í aldanna skaut
og aldrei það kemur til baka,
nú gengin er sérhver þess gleði og þraut,
það gjörvallt er runnið á eilífðar braut,
en minning þess víst skal þó vaka.
En hvers er að minnast? Og hvað er það þá,
sem helst skal í minningu geyma?
Nú allt er á fljúgandi ferð liðið hjá,
það flestallt er horfið í gleymskunnar sjá.
En miskunnsemd Guðs má ei gleyma.
Hún birtist á vori sem vermandi sól,
sem vöxtur í sumarsins blíðum,
í næðingum haustsins sem skjöldur og skjól,
sem skínandi himinn og gleðirík jól
í vetrarins helkuldahríðum.
Hún birtist og reynist sem blessunarlind
á blíðunnar sólfagra degi,
hún birtist sem lækning við böli og synd,
hún birtist þó skærast sem frelsarans mynd,
er lýsir oss lífsins á vegi.
Nú Guði sé lof fyrir gleðilegt ár
og góðar og frjósamar tíðir,
og Guði sé lof, því að grædd urðu sár,
og Guði sé lof, því að dögg urðu tár.
Allt breyttist í blessun um síðir.
Ó, gef þú oss, Drottinn, enn gleðilegt ár
og góðar og blessaðar tíðir.
Gef himneska dögg gegnum harmanna tár,
gef himneskan frið fyrir lausnarans sár
og eilífan unað um síðir.
Valdimar Briem
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
31.12.2007 | 17:50
Freyja er maður ársins

En Freyja bloggvinkona er hetja þessa árs. Ég hef dáðst mjög að henni síðustu misserin. Freyja hefur að ég tel vakið okkur öll til umhugsunar um málefni fatlaðra, hvort sem er með útgáfu bókar sinnar, Postulín, eða með fyrirlestrum sínum víða. Hún hefur þrátt fyrir fötlun sína tekið þátt í hinu daglega lífi og lætur það ekki stöðva sig í því að reyna að nýta tækifærin sem lífið hefur upp á að bjóða.
Las rétt fyrir jólin bókina Postulín, bók eftir bloggvinkonur mínar, þær Freyju og Ölmu Guðmundsdóttur. Það var sterk og góð bók sem á að vera skyldulesning fyrir okkur öll. Að mínu mati var þetta árið hennar Freyju og hún er í huga mér maður ársins.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.12.2007 | 16:30
Svandís Svavarsdóttir valin maður ársins

Það var eiginlega óskiljanlegt að Svandís skildi ekki notfæra sér lykilstöðu sína í því sem tók við með falli meirihlutans með því að verða sjálf borgarstjóri í Reykjavík. Það hefði verið eðlilegast að hún hefði orðið borgarstjóri í nýjum meirihluta sem var myndaður. Í hugum flestra var enda Svandís sigurvegarinn í málinu og sópaði til. Þetta er þó tvíeggjað sverð fyrir hana, enda ákvað hún að fallast í faðma með Birni Inga Hrafnssyni sem var lykilmaður í spillingarfeni REI-málsins og fylkja liði með honum. Hafa þau verið að stíga taktfastan tangó síðan og vilja bæði stjórna dansinum.
Svandís hlýtur að teljast valdamest í nýja meirihlutanum þrátt fyrir að vera ekki borgarstjóri. Hún heldur á mikilvægustu valdataumunum og getur verið örlagakarakter nýja meirihlutans. Fyrst eftir myndun meirihlutans töldu margir Björn Inga Hrafnsson stóra sigurvegara málsins. Aftur á móti er hann lokaður inni núna með vinstriöflunum og hefur ekki í önnur skjól að venda. Falli meirihlutinn er hann dæmdur til minnihlutasetu enda mun Sjálfstæðisflokkurinn ekki treysta honum framar. Þannig má segja að Ólafur F. Magnússon og Svandís Svavarsdóttir séu í oddastöðu og geti spilað meira sóló og minnt á kraft sinn.
Ég tel að næsta ár verði ekki síður örlagaríkt í borgarmálunum en það sem senn líður í aldanna skaut. Vinstrimeirihlutinn er mjög brothættur og má ekki við neinu í raun. Þar geta hin minnstu átök fellt hann. Þarna eru fjögur öfl með minnsta mögulega meirihluta, svo að tæpt telst það. REI-listinn er enginn R-listi. Það blasir við öllum. Þar var tekið saman höndum án málefnasamnings og haldið í vegferð út kjörtímabilið án veganestis í málefnaformi. Það hlýtur að teljast erfið vegferð.
Svandís er orðin lykilpersóna í íslenskum stjórnmálum. Það mun koma að því fyrr en síðar, tel ég, að hún verði leiðtogi VG á landsvísu. Eðlilega er það orðin ein stærsta spurning íslenskra stjórnmála hvenær að Steingrímur J. yfirgefi sviðið og hætti, enda fór hann illa út úr stjórnarmyndunarfléttunni í vor, og Svandís taki við forystu flokksins, enda er hún sterkasta leiðtogaefni hans, skelegg og ákveðin eins og faðir hennar, sem var einn helsti leiðtogi vinstrimanna á síðustu áratugum.
Finnst blasa við að henni sé ætlaður lykilsess í stjórnmálum. Óska Svandísi til hamingju með titilinn og vona að hún standi sig áfram í málefnum Orkuveitunnar og fari ekki að kóa með vitleysunni sem hún barðist áður gegn. Svandís hefur risið upp sem fullskapaður leiðtogi á skömmum tíma og hún gæti orðið einn sterkasti leiðtogi vinstrimanna á landsvísu fyrr en síðar ef hún stendur sig áfram í borgarmálunum.
![]() |
Svandís maður ársins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
31.12.2007 | 14:38
Áramótabrennum frestað vegna veðurs

Það er miklu áhugaverðara að vita hvernig flugeldaveðrið verður. Vonandi mun allt ganga þar og slysalaust. Það er mikilvægt að fólk sé vel vakandi við að skjóta upp flugeldum í kvöld og taki engar óþarfa áhættur. Það er því miður svo að varla eru áramót án slysa vegna flugeldanna. Vonandi verður ekki meira af því en ella vegna roksins. Það ætti allt að fara vel fram ef allir fara rólega að þessu og passi vel upp á allt.
Alla mína ævi hefur áramótabrennan skipt máli og það er hluti áramótanna. Það breytir í sjálfu sér engu hvort hún er haldin sólarhring fyrr eða síðar. Miklu mikilvægara er að hugsa um að ekki verði of mikil áhætta og því mikilvægt að bíða með þær. Annars vona ég að allir eigi gott kvöld við að skjóta upp flugeldum og allt verði stórslysalaust.
![]() |
Engar brennur í Reykjavík |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
31.12.2007 | 12:54
Farið yfir árið með Gesti og Hrafnhildi

Það er fjarri lagi að bloggbólan sé eitthvað að springa eins og svo margir spekingar spáðu um í upphafi ársins 2007. Þvert á móti virðast bloggheimar sífellt að eflast og bætist í hópinn á hverjum degi. Þetta er vinsælasta tjáningarform nútímans, það blasir við öllum. Nú eru birtar tilvitnanir úr bloggum í dagblöðum og vitnað í það í öðrum fréttamiðlum. Það blasir við að bloggið er lykilmiðill í raun og þar verða fregnirnar ferskastar á meðan að blöðin og hinir hefðbundnu miðlar fylgja æ oftar á eftir umræðunni. Þetta er nútíminn í hnotskurn sennilega.
Ætli að Lúkasarmálið margfræga sé ekki eitt heitasta bloggmál ársins. Eftir að hinn margfrægi hundur hvarf sporlaust hér á Akureyri í sumar hófst mikið fár sem lauk með því að hann reis upp frá dauðum. Strák var kennt um að hafa komið hundinum fyrir kattarnef. Heit orð féllu í bloggheimum í garð hans. Eitthvað varð minna um afsökunarbeiðnir til hans eftir að hundurinn kom fram heill á húfi eftir vist upp á Glerárdal vikum saman. Hitinn í því máli varð mörgum lexía. Það er betra að hafa hemil á orðum sínum, það verður að skrifa af ábyrgð á blogginu eins og öðrum stöðum.
Enda hefur strákurinn sem var sótt að höfðað mál gegn þeim sem töluðu helst gegn honum. Það verður sennilega líflegt fréttamál næsta árs að sjá hvernig það fer allt saman og hver örlög bloggaranna sem höfðu ekki hemil á sér verður. Það var mikið talað um femínistana á blogginu, ekki má gleyma samúðarbylgjunni til Randvers eftir að hann var rekinn úr Spaugstofunni, Anna Nicole og Britney voru í annarri hverri bloggfærslu vissan part ársins eftir að önnur dó og hin rakaði af sér hárið, er Ísland floppaði í Eurovision, brúðkaup ársins og auglýsingamál RÚV.
Er þá aðeins fátt nefnt. Ekki má svo gleyma stjórnmálunum, en ný ríkisstjórn og meirihluti í borgarstjórn í kjölfar hins útúrtogaða REI-máls stendur þar hæst ásamt sögulegu falli Framsóknarflokksins, sem virðist í tilvistarkreppu í lok ársins. Komumst alls ekki yfir allt í morgun. En þetta var skemmtilegt spjall og gaman að líta um öxl.
Morgunspjall með Gesti Einari og Hrafnhildi
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
31.12.2007 | 08:10
Mun verða gott flugeldaveður?

Siggi stormur var að siða fólk til nýlega er hann minnti það á að nota rokeldspýtur og sleppa því að skvetta í sig framyfir flugeldatíðina, hið seinna á reyndar alltaf við. Það verður frekar ömurlegt ef að ekki verður hægt að halda í gamlar hefðir og skjóta upp flugeldum. Fólk hefur haldið tryggð við að styrkja björgunarsveitirnar og það á fólk að gera sama hvernig veðrið er.
Það finnst tími seint og um síðir eflaust til að skjóta upp verði bálhvasst í kvöld. Vonandi mun veðrið ekki eyðileggja fyrir okkur gleði kvöldsins og þetta reddast eins og flest annað.
![]() |
Stormviðvörun í nótt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.12.2007 | 00:49
Aftakaveður við árslok
Dagurinn hefur verið heldur betur stormasamur. Sennilega hefur veðrið verið verst fyrir austan og sunnan. Hér hefur þetta verið öllu rólegra. Hef fengið margar lýsingar á þessu veðri í spjalli við vini og ættingja fyrir austan, en þar hefur verið rafmagnslaust stóran hluta dagsins og versta veður hreinlega í manna minnum. Svona óveður eru alltaf ömurleg. Við verðum oft ansi hjálparlaus þegar að máttarvöldin minna á sig.
Björgunarsveitarmenn hafa staðið sig frábærlega vel í dag. Sanna enn og aftur mátt sinn - þeir eru stoð sem við viljum ekki vera án á svona stundum. Fagmenn sem leggja margt á sig til bjargar þeim sem eru í nauð. Sérstaklega var það auðvitað með fólkið á Langjökli sem var bjargað úr háska. Skil samt ekki í fólki að leggja á hálendið eins og staðan var, en þessu veðri hafði verið spáð dögum saman og ætti varla að koma þeim að óvörum sem hafa fylgst með fjölmiðlum og veðurspám. Talað hefur verið um yfirvofandi aftakaveður um áramótin síðan á jóladögunum.
Finnst sérstaklega vont að fólk leggi illa búið á hálendið með svona veðurspár í öllum fjölmiðlum og taki börn með sér. Þetta er afleitt. En gleðilegt er að björgunin hafi þó gengið vel. En þetta er enn eitt dæmi þess að fólk kynni sér veðurspá og stöðu mála áður en haldið er í svona ævintýralega ferð. Hugsunarleysi af þessu tagi verður alltaf metið harkalega í samfélaginu, enda var þetta veður sem átti ekki að vera nein stórtíðindi fyrir veðuráhugafólk.
Það er annars eðlilegt að hræðsla grípi um sig í svona veðri og gott að fólk leiti til fagmanna í þeirri stöðu. Það er mikilvægt að styrkja vel björgunarsveitarfólk með því að kaupa af því flugelda, leggja þeim lið er þeir óska eftir hjálp okkar.
Annars er flugeldaveðrið frekar dapurt og ansi margt sem bendir til að brennurnar verði settar af á gamlárskvöldi og væntanlega verður ævintýri líkast að ætla að skjóta upp flugeldum í þessu aftakaveðri og varla gerlegt.
![]() |
Munum varla eftir öðru eins" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)