Áramótakveðja

Gleðilegt ár Í þessari síðustu bloggfærslu minni á árinu 2007 vil ég færa lesendum vefsins og vinum mínum og kunningjum, nær og fjær, mínar innilegustu nýárskveðjur, með þakkir fyrir allt hið gamla og góða. Óska ég þeim farsældar á nýju ári og þakka þeim samfylgdina á árinu sem er að líða. Þeim sem ég hef kynnst á árinu vil ég þakka fyrir notaleg kynni.

Ég vil sérstaklega þakka öllum þeim sem ég kynnst í gegnum þennan bloggvef minn. Hef ekki tölu á fjölda bloggfærslna ársins 2007, en ég hef haft mjög gaman af þessum skrifum og ennfremur þeim kommentum sem ég hef fengið og góðum viðbrögðum úr mörgum áttum, bæði þeirra sem ég þekki og eins þeirra sem hafa lesið og ég kynnst eftir það.

Kærar þakkir fyrir allt hið góða. Hafið það gott á nýju ári - vonandi verður það okkur öllum gjöfult og gott!


bestu nýárskveðjur frá Akureyri
Stefán Friðrik Stefánsson


Nú árið er liðið í aldanna skaut
og aldrei það kemur til baka,
nú gengin er sérhver þess gleði og þraut,
það gjörvallt er runnið á eilífðar braut,
en minning þess víst skal þó vaka.

En hvers er að minnast? Og hvað er það þá,
sem helst skal í minningu geyma?
Nú allt er á fljúgandi ferð liðið hjá,
það flestallt er horfið í gleymskunnar sjá.
En miskunnsemd Guðs má ei gleyma.

Hún birtist á vori sem vermandi sól,
sem vöxtur í sumarsins blíðum,
í næðingum haustsins sem skjöldur og skjól,
sem skínandi himinn og gleðirík jól
í vetrarins helkuldahríðum.

Hún birtist og reynist sem blessunarlind
á blíðunnar sólfagra degi,
hún birtist sem lækning við böli og synd,
hún birtist þó skærast sem frelsarans mynd,
er lýsir oss lífsins á vegi.

Nú Guði sé lof fyrir gleðilegt ár
og góðar og frjósamar tíðir,
og Guði sé lof, því að grædd urðu sár,
og Guði sé lof, því að dögg urðu tár.
Allt breyttist í blessun um síðir.

Ó, gef þú oss, Drottinn, enn gleðilegt ár
og góðar og blessaðar tíðir.
Gef himneska dögg gegnum harmanna tár,
gef himneskan frið fyrir lausnarans sár
og eilífan unað um síðir.

Valdimar Briem


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Takk og sömuleiðis kæri vinur. Þakka þér fyrir að birta textann, langaði að eiga hann í tölvunni.

Ásdís Sigurðardóttir, 1.1.2008 kl. 01:14

2 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Góðan dag og gleðilegt nýtt ár

Jónína Dúadóttir, 1.1.2008 kl. 09:15

3 Smámynd: Stefán Friðrik Stefánsson

Takk kærlega fyrir kveðjurnar Ásdís og Jónína. Þakka kærlega fyrir liðna árið og öll góðu kommentin ykkar hérna á vefinn. Þetta verður vonandi gott ár.

kær kveðja

Stefán Friðrik Stefánsson, 1.1.2008 kl. 12:09

4 Smámynd: Óðinn Þórisson

Stefán ég óska þér og fjölsk. þinni gleðilegs nýs árs og haltu sama striki í þínum skrifum.

Óðinn Þórisson, 1.1.2008 kl. 12:26

5 Smámynd: Stefán Friðrik Stefánsson

Takk kærlega fyrir kveðjuna Óðinn. Óska þér og þínum gleðilegs árs og þakka góð samskipti á liðna árinu.

bestu kveðjur

Stefán Friðrik Stefánsson, 1.1.2008 kl. 20:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband