12.7.2007 | 20:30
Sannar tilfinningar hinna þekktu í glamúrheimi

Það er oft efast um hvort að mestu glamúr-stjörnur heimsins hafi tilfinningar, hvort að þeim geti sárnað og fundið til eins og okkur meðaljónum þessa heims. Það efast margir um það að eitthvað misjafnt eða hversdagslegt gerist í lífi þessa fólks sem gengur á rauðum rósum á yfirborði frægðarinnar. En ég held, og hef alltaf haldið satt best að segja, að það fylgi ógæfa of mikilli frægð. Það hlýtur að vera ömurlegt að vera með ljósmyndara og blaðasnápa á eftir sér dag eftir dag. Það hlýtur að verða leiðigjarnt að eiga sér varla einkalíf og sömu hversdagslegu tækifærin sem ég og þú viljum eiga fyrir okkur.
Sumir njóta þessa glamúrs vissulega og nota hann sér í hag með mjög áberandi hætti. David og Victoria hafa aldrei hikað sér við að nota athyglina, að mörgu leyti með jákvæðum hætti, sumu leyti með sérkennilegum hætti. Ég sá fyrir nokkrum árum þátt með þeim sem sýndi líf þeirra, myndavélin fangaði heimilislíf þeirra og samskipti. Mér fannst það afskaplega uppstrílað líf, satt best að segja, og fannst svolítið spes að fólk virkilega lifði daginn sinn með svo strembnum hætti, allt að því upphækkuðum fjölmiðlahætti. En kannski er þetta tilveran sem þetta fólk vill velja sér og hefur gert að sinni. Vel má vera svosem, en varla er það freistandi líf.
Eflaust mun athyglin á þeim varla minnka, nú þegar að þau flytja til Bandaríkjanna og verða hluti af glamúrnum í Los Angeles. Það ætti að henta þeim vel að mörgu leyti. Það er deilt um það hvort að David Beckham sé búinn að vera sem knattspyrnumaður, hafi kannski verið slappur árum saman. Það verður fróðlegt að sjá hann fóta sig.
Það sem mér fannst þó merkilegast við þessa frétt er að sjá einlæga sönnun þess að fólkið í þessum heimi hafi tilfinningar. Það er greinilegt af orðum Victoriu Beckham í þessari frétt. En kannski er þetta bara ein leiðin til haldast enn í sviðsljósinu, hver veit.
![]() |
Victoria segir frá ástarsorg sinni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.7.2007 | 16:59
Líflegt ástarlíf litríkrar kvikmyndaleikkonu

Drew Barrymore hefur alltaf átt sér litríka ævi og verið í sviðsljósinu síðan að hún var krakki. Hún er í þekktri leikarafjölskyldu. Afi hennar, John Barrymore, var þekktur leikari og var bróðir hinna þekktu leikara gullaldartíma Hollywood, Lionel og Ethel Barrymore, sem bæði hlutu óskarinn og heimsfrægð á löngum leikferli. Faðir Drew, John yngri, var líka þekktur en var mun brokkgengari í bransanum og átti litríka ævi, sem einkenndist af mikilli óreglu og villtu líferni umfram allt annað.
Drew Barrymore varð ung stjarna og fetaði í fótspor forfeðra sinna. Drew var ekki nema sex ára gömul þegar að Steven Spielberg ákvað að velja hana í hið þýðingarmikla hlutverk Gertie í kvikmyndinni E.T. - the Extra Terrestrial, sem varð ein vinsælasta síns tíma. Hún átti ekki langan feril að baki þá en varð stjarna á einni nóttu. Samleikur hennar og hins skringilega E.T. varð gullið á hvíta tjaldinu. E.T. var reyndar fyrsta bíómyndin sem ég sá í bíó, mjög sællar minningar. En frægðin getur verið fallvölt. Sú varð reyndin hjá Drew sem eftir barnastjörnutilveruna lenti í óreglu eins og faðir hennar og var næstum orðin henni að bráð.
Eftir að hún reisti sig við aftur hefur hún átt fjöldann allan af eftirminnilegum hlutverkum. Nægir þar að nefna Ivy í Poison Ivy, Casey í Mad Love, Sugar í Batman Forever, Skylar í Woody Allen-söngvamyndinni litríku Everyone Says I Love You (þar sem hún ein leikhópsins fékkst ekki til að syngja - Allen sjálfur, Edward Norton og Goldie Hawn sungu þar með bravúr), Casey Becker í hinu nöturlega upphafsatriði Scream, Julia í hinni nostalgísku The Wedding Singer, Josie í Never Been Kissed, Dylan í Charlie´s Angels, Nancy í hinni sprenghlægilegu Duplex, Lindsey í Fever Pitch og Sophie í Music and Lyrics.
Drew hefur aldrei verið feimin í að stuða. Það verður fróðlegt að sjá hvernig að þessir rómansar hennar fari. Varla eru þeir Braff og Jonze þó glaðir við að deila sæng með hinni frægu leikkonu saman mikið lengur eftir þessar neyðarlegu fréttir. Annars hefur ástarlíf Drew aldrei verið slétt og fellt. Nægir þar að nefna hið fræga (og ótrúlega langlífa) samband hennar við grínistann Tom Green, sem þótti ekki beinlínis draumur allra tengdamæðra.
![]() |
Ástarþríhyrningur Barrymore |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.7.2007 | 13:59
Þeir undrast... en hvað mega Akureyringar segja?
Ég rak augun í yfirlýsingu Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra þar sem undrast er að ekki sé horft til samgönguframkvæmda þar í tillögum um hröðun verkefna. En hvað mega Akureyringar og í raun Eyfirðingar segja vegna þessara tillagna? Það vekur athygli að lykilmál á borð við lengingu Akureyrarflugvallar og Vaðlaheiðargöng er ekki flýtt. Á Akureyri einni búa rúmlega 15.000 manns og yfir 20.000 manns eru í Eyjafirði. Það búa því tæplega helmingi fleiri á Akureyri einni en á gervöllu Norðurlandi vestra.
Þetta eru vissulega tölur á blaði. Hinsvegar ætti öllum að vera ljóst að tillögur um flýtingu framkvæmda eru jákvæðar fyrir sum svæðin. Mér finnst það samt svolítið sláandi að samgönguráðherra, sem jafnframt er leiðtogi framboðs í Norðausturkjördæmi, líti ekki betur til þess að flýta lykilframkvæmdum hér á Eyjafjarðarsvæðinu. Það að flýta lengingu Akureyrarflugvallar hefði eitt og sér skipt miklu máli og það að setja Vaðlaheiðargöng betur á dagskrá hefði verið mjög vel þegið ennfremur.
Fáir töluðu með meira áberandi hætti í kosningabaráttunni í vor fyrir því að flýta þessum framkvæmdum en Kristján L. Möller, samgönguráðherra. Hvað varð um stóru orðin og hvað varð um hugmyndir ráðherrans, nú þegar að hann er kominn á þann stað sem hann helst vildi? Eflaust vilja allir fá sínar draumatillögur í framkvæmd, en það er samt sem áður mjög athyglisvert að ekki skuli horft til Eyjafjarðarsvæðisins í þessum tillögum.
Ég skil vel að þeir á Norðurlandi vestra vilji keyra sínar tillögur áfram, en hvað má þá stórt og öflugt svæði á borð við Akureyri og Eyjafjörð segja? Er það enn svo skrambi lélegt að við Akureyringar séum áhrifalausir í lykilákvörðunum flokkanna sem mynda ríkisstjórn, eins og var á síðasta kjörtímabili? Það virðist vera, fátt virðist hafa breyst. Þessi staða vekur mikla athygli. Hún er algjörlega óviðunandi.
![]() |
Undrast að engum vegaframkvæmdum á Norðurlandi vestra verði hraðað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.7.2007 | 12:48
Risavaxið mongólskt brúðkaup í Kína

Það hlýtur að vera skelfilegt líf - jafnvel hrein bölvun - að vera svo hávaxinn, enda þrengir það lífsskilyrðin mjög og lífsins tækifæri ennfremur. Hinsvegar hefur Bao verið lengi í sviðsljósi fjölmiðla sökum sérkennis síns, ekki ósvipað því sem að Svarfdælingurinn Jóhann Kristinn Pétursson upplifði á ævi sinni, en hann var reyndar meginþorra ævi sinnar notaður sem hreint og beint sirkusdýr. Bao hefur þó getað notað athyglina öðruvísi og mun meir sér í vil.
Það verður fróðlegt að sjá hvernig að gangi í þessu brúðkaupi. Mér skilst að hann hafi auglýst á alheimsvettvangi eftir maka og í gegnum það kynnst Xiu, konu sinni, sem er aðeins 29 ára. Þetta virka allavega mjög ólík hjón og víst er að þau þurfa að yfirvinna risavaxin vandamál áður en yfir lýkur eflaust.
![]() |
Hæsti maður heims giftir sig |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 12:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.7.2007 | 10:54
Hasar í Hnífsdal - deilt um vinnutímann

Það er ekki geðslegt að heyra lýsingar á því sem gerðist á milli hjónanna í Hnífsdal áður en karlmaðurinn á heimilinu greip til haglabyssunnar og skaut að konu sinni. Það var auðvitað með ólíkindum að heyra fyrst af því máli, en sérsveit lögreglunnar var kölluð vestur vegna þess heimilisofbeldis. Það er öllum ljóst að mjög tæpt stóð með konuna og hefði ekki miklu mátt muna svo að hún hefði látist í þessari atburðarás.
Þetta er sláandi hasar fyrir lítið byggðarlag. Þarna sannaðist þó vel mikilvægi sérsveitarinnar að mínu mati. Lögreglan brást vel og skipulega við þessari ógn að mínu mati - sérsveitin hefur þjálfun og getu til að bregðast við svona ástandi. Þetta var hrein og klár ógn, enda sást það vel af öllu verklagi og þeim viðbúnaði sem var til staðar. Þegar að maður með haglabyssu gengur laus, hefur skotið að eiginkonu sinni og er yfirbugaður er eitthvað meira en lítið að. Það blasir við öllum. Það er reyndar með ólíkindum að það sem olli látunum voru deilur um vinnutíma konunnar.
Þetta atvik minnir mjög vel á það, hversu brýnt er að lögreglan sé undir það búin að takast á við hættuleg verkefni, í takt við þetta. Fyrir nokkrum árum þótti ekki öllum sem sitja á Alþingi mikilvægt að breyta skipulagi á yfirstjórn sérsveitar lögreglunnar til að sveitin væri ávallt til taks og sveigjanlegri en áður hefði verið. Því síður virtist skilningur á því hjá fjölda fólks þá að nauðsynlegt væri að efla sérsveitina og fjölga í henni.
Þessi staða sýnir vel hversu rétta stefnu sérsveitin hefur tekið og að hún sé vel búin fyrir ástand sem getur komið úr óvæntustu átt, rétt eins og þetta heimilisofbeldi vestur á fjörðum.
![]() |
Ég sá blossa nálægt vanganum" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
12.7.2007 | 00:56
Lady Bird Johnson látin
Lady Bird Johnson, fyrrum forsetafrú Bandaríkjanna, lést í Texas í dag, 94 ára að aldri. Hún fæddist 22. desember 1912. Við eigum því sama afmælisdag, ég og Lady Bird. Hún lifði næstlengst allra eiginkvenna forseta Bandaríkjanna. Aðeins Bess Truman hefur lifað lengur, en hún varð 97 ára gömul. Lady Bird var það sem kalla mátti fyrirmynd maka stjórnmálamanna á 20. öld, hún var við hlið eiginmanns síns alla tíð og sinnti sínum verkum við hlið hans alla tíð með glæsibrag.
Lady Bird giftist Lyndon Baines Johnson í nóvember 1934. Þau eignuðust tvær dætur; Lyndu Baines, og Luci Baines. Lyndon Baines Johnson er einn litríkustu stjórnmálamanna í sögu Texas-fylkis. Hann gegndi trúnaðarstörfum fyrir Demókrataflokkinn áratugum saman og var um árabil þingmaður og var sérstaklega gamalgróinn Texas-maður. Hann þótti óheflaður og sérlundaður. Konan við hlið hans hélt vörð utan um störf hans og þau voru sterkt stjórnmálapar frá upphafi til enda.
Lady Bird var þó ekki litlaus eiginkona stjórnmálamanns. Hún átti sér sín áhugamál og lét skoðanir sínar óhikað í ljósi. Hún var ekta Texas-kona sem stóð með manni sínum í einu og öllu en talaði af krafti hafði hún skoðanir og var ekki fjarlæg í framkomu. Barátta Lady Bird fyrir umhverfismálum setti alla tíð svip á persónu hennar. Hún var eindreginn talsmaður þess að standa vörð um náttúruna og var áberandi í skógrækt og tengdum málum. Hún gróðursetti jafnan tré í opinberum heimsóknum á forsetaferli eiginmanns síns um Bandaríkin.
Lyndon B. Johnson varð atvinnustjórnmálamaður í Washington skömmu eftir giftingu hans og Lady Bird. Hann var kjörinn í fulltrúadeildina árið 1937 og átti þar sæti í tólf ár. Johnson var kjörinn í öldungadeildina árið 1949 og átti þar sæti ennfremur í tólf ár. Hann var leiðtogi demókrata í öldungadeildinni í átta ár, 1953-1961, allan tímann í meirihluta. Lyndon B. Johnson sóttist eftir forsetaembættinu fyrst árið 1956. Hann náði ekki útnefningunni í fyrstu atrennu og ekki heldur í þeirri annarri, en hann tapaði fyrir John F. Kennedy árið 1960. Það vakti mikla athygli þegar að hinn ungi Kennedy valdi suðurríkjamanninn Johnson í kjölfarið sem varaforsetaefni sitt.
John F. Kennedy og Lyndon Baines Johnson voru mjög ólíkir stjórnmálamenn en voru saman sterk pólitísk blanda sem tókst loksins að færa Demókrataflokknum tækifæri til sigurs eftir að hafa verið utan valda í Hvíta húsinu í átta ár. Kennedy var sterkur fulltrúi norðurs og Johnson var með lykilstöðu í suðrinu. Þeir unnu forsetakosningarnar 1960, en naumlega þó. Johnson tók við varaforsetaembættinu í janúar 1961. Fáum óraði fyrir því á þeim tímapunkti að hann ætti eftir að taka við forsetaembættinu. Allir töldu hinn unga Kennedy táknmynd hreystis og glæsileika - ekki myndi reyna á pólitíska klækjarefinn frá Texas sem húsbónda í Hvíta húsinu.
En allt breyttist það á föstudeginum 22. nóvember 1963. John F. Kennedy var myrtur í opinberri heimsókn í Dallas í Texas, fylki varaforsetans. Morðið á hinum unga forseta er enn í dag sama ráðgátan og blasti við á þessum sviptingasama degi sem breytti stjórnmálalitrófinu í Bandaríkjunum með nöprum hætti. Johnson varð því forseti Bandaríkjanna í einni svipan í eigin fylki. Hann sór embættiseið sinn sem 36. forseti Bandaríkjanna í forsetaflugvélinni á flugvellinum í Texas síðar sama dag, rétt áður en flugvélin hélt af stað til Washington með kistu hins fallna forseta. Starfsmenn Kennedys og fjölskylda hans höfðu þá varla áttað sig á endalokunum.
Sögufræg er ljósmyndin af Johnson að sverja embættiseiðinn í Air Force One. Við hlið hans voru Lady Bird og Jacqueline Kennedy, sem var skyndilega búin að missa hlutverk sitt, var ekki lengur forsetafrú Bandaríkjanna. Jackie var enn í blóðugu dragtinni sem hún var í er forsetinn var skotinn í miðborg Dallas og var í henni þar til seint um kvöldið er hún kom loks í Hvíta húsið. Lady Bird tók við skyldum forsetafrúar en var í skugga Jackie dagana sem framundan voru er Kennedy forseti var kvaddur. Johnson-hjónin fluttu ekki inn í Hvíta húsið formlega fyrr en í desember 1963, þegar að Jackie hafði jafnað sig á vistaskiptunum sem fylgdu dauða eiginmanns hennar.
Jackie Kennedy og Lady Bird Johnson voru ólíkar sem dagur og nótt. Jackie var tískudrottning, kona sviðsljóssins og glamúrsins. Lady Bird var annarrar kynslóðar og um leið hin sanna eiginkona stjórnmálamannsins á fyrri hluta 20. aldarinnar, konan við hlið mannsins á valdastóli. Hún var hin sterka og áberandi týpa, sem ekki barst mikið á og sinnti sínum helstu verkum með glæsileika. Margar kjaftasögur hafa gengið um samskipti Johnson-hjónanna við Jackie þann tíma sem í hönd fór eftir hin sögulegu valdaskipti um borð í forsetaflugvélinni. Ásýnd forsetaembættisins breyttist mjög er hin miðaldra suðurríkjahjón, sem voru úr allt öðru umhverfi en Kennedy-hjónin, tóku við.
Johnson var forseti Bandaríkjanna í rúm fimm ár, var endurkjörinn í nóvember 1964 með miklum meirihluta. Hann stóð fyrir fjölda mikilvægra mála og lauk t.d. lykilstefnumálum Kennedys, t.d. mannréttindamálum blökkumanna. Það voru mikil tímamót sem fylgdu því að rótgróinn suðurríkjastjórnmálamaður skyldi klára þau mál. Óvinsældir Johnsons jukust mjög á skömmum tíma vegna Víetnam-málsins og hann ákvað að sækjast ekki eftir endurkjöri vegna þess árið 1968. Johnson varð bráðkvaddur á heimili sínu í Texas í janúar 1973, nákvæmlega fjórum árum eftir að hann lét af embætti.
Lady Bird Johnson lifði langa og merkilega ævi. Hún var áberandi á stjórnmálaferli manns síns og markaði skref í stjórnmálasögu Bandaríkjanna og Texas-fylkis með hlutverki sínu við hlið Johnsons forseta. Hún var sönn suðurríkjakona og þótti sterk í sínu. Þrátt fyrir heilsuleysi kom hún reglulega fram þar til nærri undir hið síðasta. Fyrst og fremst mun svipmynd hennar við hlið Johnsons á örlagastundinni í Air Force One á föstudeginum sviptingasama sem breytti ævihlutverki hennar og manns hennar verða lengst greypt í minni þeirra sem fylgst hafa með stjórnmálum fyrr og síðar.
![]() |
Lady Bird Johnson látin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 01:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)