20.9.2007 | 23:46
Fimm menn í varðhald - dópmál fyrir austan

Það hlýtur að hafa verið visst krydd í tilveruna fyrir Austfirðinga að verða miðpunktur umræðunnar á þessum degi. Á Fáskrúðsfirði var allt krökkt af fjölmiðlamönnum og lögreglufólki og allir fjölmiðlar horfa þangað í dag. Þetta er vissulega mjög merkilegt mál. Eins og blasir við er ástæðan fyrir því að farið var þangað sú að þar var líklegast að ekkert kæmist upp, en séð var við því. Það var áhugavert að sjá viðtölin við heimamenn. Það virðist ekki vera að heimamaður fyrir austan hafi komið nálægt þessu máli og þá horfir það öðruvísi við. En þetta er sérstakt mál fyrir litla byggð og sýnir mjög vel hversu mikill vandinn er orðinn og hversu farið er í kringum hlutina.
Þetta er reyndar ekki nýtt mál þannig séð fyrir austan. Það eru aðeins þrjú ár frá líkfundarmálinu í Neskaupstað. Eins og flestum er í fersku minni var það fyrsta sem fannst þegar að viðkomandi maður var krufinn mikið magn eiturlyfja og mikil umfjöllun var um það mál. Farið hafði verið með manninn austur og honum varpað í sjóinn, væntanlega til að varðveita efnin en allt komst upp. Þá var lögreglan fyrir austan og samfélagið þar í miðpunkti allrar umræðu, en nú kemur mál sem er sama eðlis að sumu leyti aftur upp í austfirskri byggð.
Það er eflaust visst flashback fyrir Austfirðinga að upplifa svona mál aftur, svo skömmu eftir líkfundarmálið á sínum tíma.
![]() |
Fimmmenningarnir úrskurðaðir í gæsluvarðhald |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.9.2007 | 20:08
Sigurjón talar hreint út - átakafundur frjálslyndra
Átakafundur stuðningsmanna Frjálslynda flokksins stendur nú yfir á Grand Hótel ef marka má fréttir. Þar mun verða talað hreint út um samskiptavanda almennra flokksmanna við forystuna og ólguna sem skapast hefur vegna ráðningar framkvæmdastjóra. Sigurjón Þórðarson, fyrrum alþingismaður, hefur nú sagt opinberlega að Guðjón Arnar Kristjánsson hafi lofað sér framkvæmdastjórastöðu flokksins í aðdraganda kosninga næði hann ekki endurkjöri hér í Norðausturkjördæmi.
Lengi vel vildi Sigurjón ekki tala um ágreininginn vegna ráðningar framkvæmdastjóra en hefur rofið þögnina vegna þessa máls. Það er nokkuð um liðið frá því að ég fékk frá áreiðanlegum heimildum fregnir um þennan ágreining og sagði frá honum hér á vefsíðunni síðsumars. Allt sem þar var sagt hefur reynst rétt og hefur síðar verið staðfest af Sigurjóni sjálfum í fjölmiðlum. Sögusagnir hafa verið um að framkvæmdastjórn Frjálslynda flokksins hafi gengið frá ráðningu Magnúsar Reynis Guðmundssonar í stöðuna fyrir tíu dögum en flokksforystan hefur ekki viljað opinbera það formlega, sem sýnir ólgu málsins.
Sigurjón Þórðarson hefur gefist upp á þægilegheitum í þessu máli eftir stigmagnandi ólgu milli flokksforystunnar og grasrótar flokksmanna sem styðja Sigurjón. Það er greinilegt að tekist er á, að mestu hefur það verið bakvið tjöldin en ólgan er að koma æ betur upp á yfirborðið og farið er að tala í fjölmiðlum um þessi mál með mun hvassari hætti en áður. Það vekur athygli að Sigurjón tali svo áberandi um stöðu mála, eins og mun hafa verið í Fréttablaðinu í morgun og í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins.
Fundurinn sem fyrr um ræðir átti fyrst að vera á Sægreifanum en þess í stað verður hann á Grand Hótel. Það verður fróðlegt að heyra af honum og ekki síður hvort að forysta flokksins mæti til fundar til að tala við almenna flokksmenn. Frjálslyndi flokkurinn er löngu þekktur fyrir eigin sundurlyndi og innan við ár er síðan að stofnandi flokksins og dóttir hans, Margrét Sverrisdóttir, yfirgáfu hann. Varla virðist horfa til bjartari tíðar ef marka má þessa ólgu sem við blasir.
20.9.2007 | 17:19
Vönduð vinnubrögð lögreglunnar

Öllum er ljóst að fara átti með efnin á Fáskrúðsfjörð vegna þess að þar væri líklegast að koma þeim í land án þess að lögreglan væri með viðbúnað og gæti gert upplýst málið. Það er gott að það staðfestist hversu vel lögreglan getur tekið á slíkum vanda og viðbúnaðurinn fyrir austan segir í sjálfu sér allt sem segja þarf um hversu vel var unnið og skipulega var haldið utan um alla verkferla.
Ef marka má fréttir og orðróminn á bakvið þær eru yfir 50 kíló af fíkniefnum um borð í skútunni og málið hið stærsta hérlendis. Umfangið segir allt sem segja þarf um málið og það hversu alþjóðlegt það er sýnir vel hversu mjög lögreglan hefur unnið með Europol. Fimm hafa verið handteknir og aðgerðir voru í þrem löndum og handtökur víðar en á Íslandi. Sannarlega alþjóðlegt mál sem fær sinn klímax á Fáskrúðsfirði.
Það verður fróðlegt að heyra viðbrögð stjórnvalda. Þau hafa lítið komið fram finnst mér. Enda er þetta stórmál í sjálfu sér sem ætti að hafa einhver áhrif út fyrir rannsóknina. Áhugavert verður að sjá hvort að þetta leiði til þess að eftirlit með umferð til landsins, flugvélum og skipum t.d. verði endurskoðað að einhverju leyti.
![]() |
Sakborningar fluttir til Reykjavíkur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.9.2007 | 14:49
Guðlaugur Þór sparkar Don Alfredo

Í pistli á vef mínum þann 27. maí sl, nokkrum dögum eftir að Guðlaugur Þór Þórðarson varð heilbrigðisráðherra, spurði ég mig um stöðu Alfreðs Þorsteinssonar í þessari byggingarnefnd og ítrekaði það í öðrum pistli fyrir hálfum mánuði þar sem ég fór yfir fyrstu 100 daga ráðherrans í nokkrum orðum. Þar eiginlega fannst mér vanta að þessi nefnd yrði stokkuð upp og haldið í aðrar áttir. Það er gott að heilbrigðisráðherrann er sama sinnis og snúi hlutum til annars vegar.
Það er kómískt að það skuli vera Guðlaugur Þór Þórðarson sem slái Alfreð af. Eins og flestir vita tók Gulli við af Alfreð sem stjórnarformaður í Orkuveitunni. Það er þó varla undrunarefni sé litið til sögu þeirra saman í stjórnmálum, sérstaklega innan stjórnar Orkuveitunnar þegar að Alfreð vann sem kóngur í ríki sínu í fyrirtækinu og hélt minnihlutafulltrúum Sjálfstæðisflokksins algjörlega í skugganum.
![]() |
Stjórnin tekin af Alfreð Þorsteinssyni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.9.2007 | 11:51
Stærsta fíkniefnamál sögunnar á Fáskrúðsfirði
Það hefur mikið gengið á austur á Fáskrúðsfirði. Þar hefur stærsta fíkniefnamál Íslandssögunnar verið afhjúpað og nokkrir einstaklingar handteknir. Verið er að tala um tugi kílóa af efnum. Gríðarlegt umfang og ánægjulegt hversu vel lögreglan hefur tekið á því að afhjúpa þetta mál. Einn sem ég þekki fyrir austan sagðist ekki hafa séð aðrar eins aðgerðir þar og því mikið um að vera. Að þessu komu sérsveitin og lögregluyfirvöld fyrir austan og þetta hefur verið unnið með fagmennsku.
Þetta sýnir okkur mjög vel hversu dópvandinn er rosalegur sem við er að eiga. Það er samt greinilegt að reyna á að smygla efnum á rólegum stöðum út á landi og reyna að stóla á að löggæslan þar sé það veik að ekki komist upp um neitt. En það er gott að þetta var afhjúpað og umfangið er auðvitað sláandi mikið og þetta er gott sýnishorn á þann vanda sem við er að eiga.
![]() |
Tugir kílóa af fíkniefnum í skútu í Fáskrúðsfjarðarhöfn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)