8.1.2008 | 22:36
Margrét er traustur valkostur

Margrét var á þingferli sínum sá alþingismaður sem einna mest talaði um málefni þess og er vel kunnug málum þar. Hún er líka uppalin í nánasta umhverfi fangelsisins, faðir hennar vann þar sem fangavörður til fjölda ára og hún þarf enga kynningu á málum Litla-Hrauns, hefur verið þar sem ráðgjafi og er vel hæf til að fylla upp í skarðið þennan tíma. Finnst þetta því vera jákvætt skref, enda veit ég af kynnum mínum frá Stokkseyri, þar sem uppeldissystir mín bjó til fjölda ára, að Margrét er öllum málum kunnug.
Hefði verið ætlað að gefa Margréti einhvern bitling af hálfu Samfylkingarinnar hefði hún sóst eftir einhverju stærra og verðmætara en yfirstjórn þessa fangelsis, það held ég að blasi við öllum. Þá hefði verið horft eftir því að hún fengi sendiherrastól eða eitthvað slíkt. Ekki það að ég tel Margréti vel hæfa til flestra hluta. Hún er sá þingmaður Samfylkingarinnar á síðustu árum sem ég ber einna mestu virðingu fyrir. Það má vel vera að hún sé kjarnakona með alþýðutaug og hafi ekki farið í marga skóla um ævina en hún er hörkutól sem þekkir þjóðarsálina og þekkir þessi mál.
![]() |
Margrét Frímannsdóttir forstöðumaður Litla-Hrauns |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.1.2008 | 18:16
Húsafriðunarnefnd bjargar borgarmeirihlutanum

Það var til marks um hvað vinstrimeirihlutinn í Reykjavík er viðkvæmur að þetta mál ógnaði honum. Og við heyrðum hið minnsta þrjár ef ekki fjórar skoðanir frá leiðtogunum fjórum í meirihlutanum. Það fékk mann eiginlega til að hugsa um hvað þetta fólk hefði samið um málefnalega áður en það ákvað að mynda meirihlutann. Var bara samið um völdin? Freistandi að halda það.
Nú bendir allt til þess að þetta verði allt friðað og gömlu húsunum verði bjargað. Það verður gaman að sjá hvað húsafriðunarálitsgjafinn Egill Helgason bloggar um það frá Barbados.
![]() |
Ráðherra friði Laugavegshús |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 18:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
8.1.2008 | 17:45
Mun tilfinningasemi Hillary bæta stöðu hennar?
Það var merkilegt móment á lokaspretti forkosningabaráttunnar í New Hampshire að sjá Hillary Rodham Clinton sýna alvöru tilfinningar á fundi með kvenkyns kjósendum á kaffihúsi í Portsmouth. Hvort sem þetta var ekta eða fals var þetta merkileg stund, enda er þetta í fyrsta skipti sem virkilega sést að Hillary er mennsk, opnaði inn fyrir skelina og sýndi að hún getur bognað, er ekki prógrammerað eða tilfinningalaust vélmenni. Meira að segja sýndi hún ekki svona tilfinningar í mesta hita Lewinsky-málsins fyrir áratug, þegar að hefði verið full ástæða til eiginlega, en þá stóð hjónaband Clinton-hjónanna tæpast.
Það hefur verið talað fram og til baka í dag um hvort að þetta hafi verið raunveruleg viðbrögð eða innlegg á viðkvæmum tímapunkti. Tel að það skipti ekki máli, þetta voru tilfinningar sem hún varð að koma til skila. Það er líka eðlilegt að manneskja sem er undir þeirri pressu og Hillary hefur verið í sýni einhverjar tilfinningar. Pólitíkin hefur alla tíð verið megingrunnur tilveru Hillary, hún hefur verið harðskeytt og öflug í pólitískri baráttu og það er allavega orðið mjög langt síðan að hún hefur beygt af og opnað skelina sína. Þetta var allavega viðkvæmt augnablik og þarf varla að koma að óvörum, eins og staðan er eiginlega orðin.
Hillary hefur allt frá því að Clinton forseti yfirgaf Hvíta húsið verið að byggja upp eigin stjórnmálaferil, lengst af áður var hún konan við hlið eiginmannsins. Hún hefur haft ambisjónir og hefur líka haft öflugan sess á alþjóðavettvangi. Allt sem hún hefur byggt er í raun undir í New Hampshire og í þessari forkosningabaráttu. Bylgjan sem hefur verið til Barack Obama er sú mesta og óvæntasta sem hefur verið í bandarískum stjórnmálum síðan að Bill Clinton gerði Demókrataflokkinn að sínum og eðlilegt að hún bogni í þessum þunga. Ekki einu sinni fyrir mánuði hefði því verið spáð að Obama myndi fanga athygli hvítra kjósenda.
Þetta er að mörgu leyti örlagadagur fyrir Hillary. Hún má alls ekki við þungum skelli í dag. Hann gæti verið handan við hornið, fari allt á versta veg er hættan á því að öldungadeildarþingmenn sem setið hafa á sér og beðið eftir framvindu mála í þessari kosningabaráttu fari að styðja Obama og ekki verði í raun við neitt ráðið. Hillary veit því að þetta eru örlagaríkir dagar. Og það er mannlegt að bogna, meira að segja þegar að maður á fulla vasa kosningafjár og góða ferilskrá, sem virðist ekki skipta máli.
Tilfinning mín er að Hillary hafi bætt við sig fylgi eftir að hún breytti um kúrs í baráttunni á sunnudag, eftir frekar glataðan málstað og innihaldslausa baráttu, enda virkaði hún eins og róbót á kosningafundum; fjarlæg og tóm. En hvort það var of seint að breyta áherslum ræðst í kvöld. Þetta verður spennandi forkosningakvöld. New Hampshire hefur oft ráðið örlögum frambjóðenda - það gerir það hiklaust í kvöld. Sama hvernig fer.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
8.1.2008 | 15:19
Össur í vondum málum

Það vekur athygli að á sama tíma og Össur Skarphéðinsson ver ráðningu orkumálastjóra með þeim rökum að viðkomandi hafi af öllum umsækjendum haft mesta menntun, reynslu og sérþekkingu á sínu sviði að hann velji líffræðing án sérþekkingar í ferðamálum í embætti ferðamálastjóra. Val ráðherrans er hreint klúður og greinilegt að það er ólga víða vegna þess. Fæ ekki betur séð en að kenning mín frá því um daginn sé rétt, þ.e.a.s. að Össur hafi valið ferðamálastjóra til að vega upp á móti hinni ráðningunni.
Ef marka má stöðuna nú mun Ragnheiður Inga Þórarinsdóttir, aðstoðarorkumálastjóri, sem hafði reynslu af embætti orkumálastjóra, fara til umboðsmanns Alþingis eða höfða jafnréttismál. Varla verður það til góðs fyrir jafnréttisásýnd Samfylkingarinnar. Það hlýtur að teljast eðlilegt að hún leiti lengra miðað við rökstuðninginn, en athygli vekur orðalag ráðherrans um að hann hafi valið nýjan orkumálastjóra til að hleypa nýju blóði í stofnunina. Margir tala um þetta sem vinavæðingu, en ekki er langt síðan að Andrés Magnússon ritaði grein á vef sinn og fór yfir pólitísk tengsl ráðherrans og nýs orkumálastjóra.
Hvernig mun ráðherrann verja skipan ferðamálastjóra? Það væri gaman að vita. Mér finnst sú skipan hálfu verri en orkumálastjórans, þó afleit sé. Ætlar hann kannski að svara eins um að hann hafi valið líffræðing sem ferðamálastjóra vegna fagþekkingar hennar? Held að hann muni eiga erfitt að verja það með rökstuðningi. Ef hann ætlar að verja skipan ferðamálastjórans með jafnréttisrökum er hann kominn í öngstræti, eftir að hafa hafnað aðstoðarorkumálastjóra með starfsreynslu af embættinu og sem var mjög hæfur umsækjandi. Össur fellur hratt í áliti þessa dagana, hann fer allavega ekki vel af stað.
------
Leit yfir rökstuðning Árna M. Mathiesen vegna skipunar Þorsteins Davíðssonar sem héraðsdómara. Hann er vægast sagt mjög rýr í roðinu. Er það virkilega svo að ráðherrann hafi ekki haft önnur viðmið við skipan í embættið? Var að vona að það hefðu verið aðrar faglegar ástæður haldbærar, en svo virðist ekki vera. Það er full ástæða til að gagnrýna rökstuðning beggja ráðherranna í dag með sama hætti.
![]() |
Ósátt við rökstuðning ráðherra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
8.1.2008 | 13:10
Kveikt í fjölbýlishúsi
Samkvæmt fréttum hefur þremur verið bjargað úr húsinu en enn eru sjö innandyra. Það er vonandi að það gangi vel að bjarga þeim. Það er á stundum sem þessum sem maður virkilega spyr sig um hvað sé að gerast í samfélaginu, þegar að eldur er kveiktur í húsi og greinilega gert hreint tilræði við fólk sem býr þar.
![]() |
Eldur í geymslu fjölbýlishúss |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
8.1.2008 | 00:25
Sýnum samhug í verki
Nú stendur þessi fjölskylda eftir allslaus, þurfa að byggja líf sitt svo að segja frá grunni. Það er erfitt að vera á slíkum krossgötum, eins og ég vék að í gær vegna annars eldsvoða í Reykjavík. Mikilvægt er að leggja þessari fjölskyldu lið, sérstaklega strákunum sem hafa misst aleigu sína. Það er mikilvægt að sýna samhug í verki og leggja þessari fjölskyldu lið á raunastundu.
Vil votta fjölskyldu og nánustu aðstandendum mannsins sem lést innilega samúð mína.
![]() |
Söfnun fyrir drengi sem björguðust úr eldi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 00:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)