5.2.2008 | 22:08
Mun Obama láta drauma dr. King rætast?

Það er alveg ljóst að sigri Barack Obama í forkosningunum í Kaliforníu, eins og sumar spár gefa sterklega til kynna, hefur blökkumaður þegar unnið stærsta sigur sinn í bandarískum stjórnmálum. Ekki einu sinni dr. King hefði látið sér detta í hug þegar að hann talaði um draumsýn sína í Washington á sjöunda áratugnum að það gæti gerst í upphafi nýrrar aldar. Flestir áttu eflaust von á að sú barátta tæki lengri tíma að blökkumaður ætti raunhæfa möguleika á Hvíta húsinu, þó að handritshöfundar hafi gert blökkumanninn Palmer að forseta í hasarþáttunum 24 í upphafi áratugarins.
Hann hefur rakað að sér stuðningi síðustu dagana úr öllum áttum. Ethel Kennedy ákvað að styðja Obama með þeim orðum að hann væri eini maðurinn sem hefði komið til sögunnar í bandarískum stjórnmálum í áratugi sem minnti sig á eiginmann sinn, Robert F. Kennedy, og Maria Shriver ákvað að rjúfa hlutleysi sitt sem demókrata við hlið repúblikans, eiginmanns síns, á ríkisstjórastóli í Kaliforníu með því að styðja Obama. Og Caroline Kennedy Schlossberg sagðist styðja hann því að í honum sæi hún hugsjónir og kraft föður síns. Þær tóku sömu afstöðu og Ted frændi, sem ræður ferðinni í Kennedy-fjölskyldunni og hafði markað línur fyrir börn fallinna bræðra sinna, sem hann gekk í föðurstað.
Barack Obama er fersk pólitísk stjarna. Hann kom, sá og sigraði á flokksþingi Demókrataflokksins í Boston í júlí 2004 með glæsilegri ræðu. Gleymi þeirri ræðu aldrei, enda var hún að mínu mati stærstu tíðindi þess þings, þvílík stjörnuframmistaða. Það fundu allir fyrir því að þar fór sannkölluð vonarstjarna. Enda er hann alvöru, það má kannski deila um hvort að hann sé ekta algjörlega í gegn en hann svo sannarlega hljómar og virkar þannig á alla sem hlusta á hann. Hann er ekki bara stjórnmálamaður, hann er einstakur pólitískur predikari sem nær til fólks og hefur áhrif á það. Hann er stjarna þessa forkosningaslags hvort sem hann nær að sigra Hillary eður ei.
Eðlilega finnst mörgum demókrötum Barack Obama vera ferskur valkostur, unglegur og heillandi, og hugsa ósjálfrátt til Kennedys forseta, sem heillaði bandarísku þjóðina fyrir hálfri öld er hann hóf forsetaframboð sitt og naut mikils stuðnings allt þar til að öllu lauk svo snögglega er hann féll fyrir morðingjahendi í Dallas á nöprum föstudegi sem markaði mikil þáttaskil í bandarískum stjórnmálum. Ólíkt er vissulega með Obama og Kennedy að sá síðarnefndi hafði að baki setu í bæði öldungadeildinni og fulltrúadeildinni í 13 ár er hann varð forseti en Obama á aðeins að baki þriggja ára setu í öldungadeildinni.
Hann er því talinn reynsluminni og það er einmitt það sem margir nefna sem helstu veikleika hans. Margir segja það ekki skipta máli, hann hafi ferskleikann sem flokkinn vanti og hafi vantað frá gullaldardögum Bill Clinton fyrir einum og hálfum áratug er hann komst í Hvíta húsið á stjörnuljóma, snúnum frösum og gullnum spinntöktum. Það verða stórpólitísk tíðindi nái hann, eftir allt sem á undan er gengið og hina löngu bið eftir pólitísku tækifæri Hillary, að stela frá henni pólitísku tækifæri ferils hennar; aðgöngumiða flokksins að Hvíta húsinu og að hefja seinni hluta Clinton-tímabilsins.
Sigri Obama í Kaliforníu í dag hefur draumur dr. Martins Luthers Kings í raun þegar ræst. Þá er sannað að litaraft skiptir ekki lengur máli, allir hafa jöfn tækifæri til að láta að sér kveða og það sem meira er að með því er staðfest að blökkumaður getur orðið valdamesti maður heims. Það eitt og sér verður stærsti sigur blökkumanna frá því að King leiddi þá með táknrænni draumsýn sinni í leiftrandi ræðu. En Obama hugsar lengra og getur farið lengra náist sá tímamótasigur í dag.
![]() |
Obama með forskot í Kaliforníu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.2.2008 | 21:34
24 stundir er að verða besta dagblað landsins

Það sást vel að Fréttablaðið svaraði tilkomu 24 stunda í stað Blaðsins með mikilli auglýsingaherferð og ef marka má stöðuna mega þeir fara að passa sig með toppsætið. Þetta blað er í mikilli sókn og ég tel að þessi lestraraukning marki ekki hápunkt þeirrar bylgju sem það er að fá með sér eftir breytinguna á blaðinu með nýju nafni og umgjörð.
Það hefur mikið verið spáð í hvort að Ólafur verði eftirmaður Styrmis á Mogganum, en hann hættir í október - verður sjötugur í mars eins og flestir vita. Hann yrði mjög vænlegt ritstjóraefni þar og er að sýna með verkum á 24 stundum að hann kann sitt fag. Það kannski fer svo að hann vilji ekkert fara og halda áfram með góð verk á þeim miðli sem er í sókn.
![]() |
Lestur á 24 stundum eykst |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
5.2.2008 | 18:04
Vinnusamar köngulær - pödduhræðslan fræga

Ég hef séð ótrúlega margar kvikmyndir þar sem köngulær hafa komið við sögu og ekkert kippt mér svosem upp við það. Þó er ein mynd þar sem könguló tókst að kippa mér aðeins til og ég varð svona aðeins nervös. Það var Lord of the Rings: The Return of the King, hin margverðlaunaða óskarsverðlaunamynd og lokapunktur trílógíunnar ógleymanlegu. Þar er risaköngulóin Shalob svo sannarlega í stóru hlutverki um miðja myndina og eltingarleikur hennar við Fróða er bæði spennandi og nett ógnvekjandi, enda er köngulóin miskunnarlaus og vel úthugsuð.
Aðrar myndir um skordýr sem vekja alltaf tilfinningar eru t.d. The Giant Spider Invasion, Arachnophobia, Mimic (skelfilega spennandi skordýramynd - risapöddurnar gleymast ekki svo glatt), Them (nett scary :), Mothra (skáldleg og merkilega falleg innst inni), Eight Legged Freaks (þessi gleymist ekki fyrstu næturnar), Tarantula (nema hvað :), The Monster that Challenged the World (ekta skordýrakölt), Starship Troopers (sannarlega ekki gamanmynd), Tremors (gleymi henni aldrei hehe), The Deadly Mantis og The Wasp Women. Þær eru miklu fleiri en þessar koma fyrst upp í hugann. Slær þó enginn þeirra út Shalob í LOTR: ROTK held ég.
Skordýr eru hluti tilverunnar. Samt skelfa þær fólk, mismikið þó. Sumir leika sér að hræðslunni í nett pirrandi kvikmyndum, bækur hafa verið skrifaðar og heimildarþættir gerðir. Gleymi aldrei löngum þætt fyrir nokkrum árum þar sem Attenborough skannaði hugarheim köngulóanna. Ógleymanlegur þáttur. Sá maður er reyndar algjör snillingur en hann fór ansi nærri því að toppa sig í þeirri skordýraþáttaröð.
En sennilega fer aldrei hræðslan í huga fólks. Það er þó misjafnt hvernig fólk lifir með hræðslunni. Ráðlegg þeim sem eru verst haldnir fóbíunni að horfa alls ekki á fyrrnefndar myndir. Það gæti orðið svolítið nastý kvöldstund yfir þeim með popp og kók. Þá er nú betra að horfa frekar á góða pöddulausa spennumynd eða rómantískan sykursnúð, ekki satt??.
![]() |
Tarantúlan reyndi að flýja |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt 5.9.2008 kl. 23:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
5.2.2008 | 13:59
Bankarán brúnkulitaða FM-hnakkans upplýst
Annars vantar Ásgeiri Hrafni ekki reynslu í ránum; hafandi bæði rænt 10-11 verslun og Select. En eitthvað hefur honum gengið illa í þessu ráni og löggan rakti slóð hans á aðeins örfáum klukkutímum og allt hafði verið upplýst fyrir síðdegið. Vel gert hjá lögreglunni.
Það er ekki nema von að gárungarnir segi að þetta rán sé best súmmerað með því að gefa því eina öxi.
![]() |
Bankaránið upplýst |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
5.2.2008 | 12:54
Kuldalegir vetrardagar
Það hefur verið vetrarríki á Norðausturlandi síðustu dagana. Það segir allt sem segja þarf þegar að maður verður að grafa sig í fönn til að eiga lífsvon og þegar að lítil stelpa er í lífshættu hér á Akureyri og fær yfir sig snjóhengu ofan af þakinu heima. Blessunarlega fór vel í báðum tilfellum, Guðs mildi sannarlega. Hér snjóaði og snjóaði á föstudag og laugardag og kuldinn var nístandi. Finnst ég í fyrsta skipti frá snjóárinu 1995 vera að upplifa alvöru vetur með kulda og fönn, fönn, fönn.
Þetta er allavega mesta vetrarríki sem ég hef upplifað síðan að ég flutti í Þórunnarstrætið fyrir fimm árum. Það var nóg að gera við að moka sig hreinlega út á laugardag og sunnudagurinn fór í að moka upp bílinn og stéttina hérna úti, svona svo að manni liði ekki eins og snjóhúsabúa hreinlega. Við höfum eiginlega ekki upplifað vetur með stóru vaffi síðasta áratuginn og verið ótrúlega heppin, eiginlega haft sælutíð að vetri miðað við það sem búast má við hér nyrst í Ballarhafinu.
Ætla samt að vona að það róist aðeins yfir þessu núna. Samt er þetta hressileg upplifun, kannski er betra að hafa vetur þegar að hann stendur samkvæmt tímatalinu og fá frekar brakandi gott sumar. Heiðarlegt mat. Það er allavega á við væna ískalda vatnsfötu að upplifa svona tíð með öllum kostum og göllum.
Þetta er allavega mesta vetrarríki sem ég hef upplifað síðan að ég flutti í Þórunnarstrætið fyrir fimm árum. Það var nóg að gera við að moka sig hreinlega út á laugardag og sunnudagurinn fór í að moka upp bílinn og stéttina hérna úti, svona svo að manni liði ekki eins og snjóhúsabúa hreinlega. Við höfum eiginlega ekki upplifað vetur með stóru vaffi síðasta áratuginn og verið ótrúlega heppin, eiginlega haft sælutíð að vetri miðað við það sem búast má við hér nyrst í Ballarhafinu.
Ætla samt að vona að það róist aðeins yfir þessu núna. Samt er þetta hressileg upplifun, kannski er betra að hafa vetur þegar að hann stendur samkvæmt tímatalinu og fá frekar brakandi gott sumar. Heiðarlegt mat. Það er allavega á við væna ískalda vatnsfötu að upplifa svona tíð með öllum kostum og göllum.
![]() |
Gróf sig í fönn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)