25.4.2008 | 17:24
Freaky Friday á Miklubraut

Hef aldrei verið á móti því að æska landsins hafi skoðanir á hitamálum og berjist fyrir einhverju sem það telur rétt. Sjálfur var ég einu sinni á þessum aldri og hafði mínar skoðanir, enda mjög pólitískur alla tíð og fylgdist vel með fréttum og stjórnmálum. Eðlilegt er að allt ungt fólk finni hugsjónum sínum farveg og berjist fyrir pólitískum áherslum eða það sem það einlæglega telur rétt.
En það er öllu verra þegar að æska landsins berst fyrir einhverju sem það hefur enga tilfinningu fyrir eða skilur ekki neitt í því. Því miður sást vel á mótmælunum á miðvikudaginn, sem enduðu í móa í orðsins fyllstu merkingu, að unga fólkið sem var að kasta eggjum var bara að gera það vegna þess að þeim þótti það kúl og flippaði með í takt við bílstjórana á staðnum. Ekki voru það neinar hugsjónir sem þar réðu för, allavega gátu þau ekki útskýrt hversvegna þau væru þarna. Þeim fannst þetta bara flott og spáðu ekki meira í því.
Stemmningin á Miklubraut virkar svipuð. Eitthvað flipp á föstudegi. Eða hvað?
![]() |
Rýmingu lokið á Miklubraut |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.4.2008 | 16:15
Ungmenni feta í fótspor atvinnubílstjóranna

Sýnist að flestir séu orðnir langþreyttir á mótmælum bílstjóranna. Þeir hafa reyndar klúðrað þeim sjálfir með sínu verklagi síðustu dagana og talsmaður þeirra hefur slúffað þeim alveg hjálparlaust. Svolítið sérstakt er að sjá ungmenni landsins leggja þeim lið núna, en varla er hægt að líta á þetta nema sem móralskan stuðning við bílstjóranna.
Í kvöldfréttum Stöðvar 2 á miðvikudag voru nokkur ungmenni við Olís-stöðina spurð af hverju þau væru að kasta eggjum. Ein stelpan sagði að það væri bara stemmning í þessu og var greinilega ekki mjög kjaftstopp þegar að leitað var eftir alvöru ástæðum. Þetta leit út eins og sport fyrir þeim. Enda var þetta komið út í stjórnlaust rugl, sannkallaðan skrípaleik.
Væri gaman að vita fyrir hverju ungmennin eru að berjast með mótmælastöðu sinni. Eru þau bara að tjilla út á föstudegi eða eru þau að leggja fram móralskan stuðning við Sturlu og félaga?
![]() |
Ungmenni tefja umferð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.4.2008 | 14:12
Lára axlar ábyrgð á dómgreindarbresti sínum
Í þessum efnum var fyrst og fremst spurt um trúverðugleika fréttastofu Stöðvar 2. Um leið og ljóst var að Lára hefði látið þessi umdeildu ummæli falla varð augljóst að fréttamannsheiðri hennar yrði í raun ekki bjargað. Stóra spurning málsins varð um það lykilatriði hvernig yfirmenn hennar myndu taka á málunum. Að óbreyttu hefði trúverðugleiki fréttastofunnar beðið hnekki af og bæði Láru og einkum yfirmönnum hennar varð ljóst að ekkert yrði lagað í þessu nema að Lára tæki ábyrgð á ummælunum og segði upp, ella yrði látin hætta.
Lára er manneskja að meiri að taka sjálf þessa ákvörðun og hverfa á braut. Dapurlegt er vissulega að hún hafi brugðist sínu hlutverki með ummælum sínum, sem ekki var hægt að taka trúanlegt að hefðu aðeins verið sett fram í gríni. Hefði það átt að verða gild afsökun hefði tónninn í röddinni þurft að verða annar og jafnvel þurft að fylgja hlátur með. Enginn trúði því að þetta væri aðeins húmor. Eftir stóðu aðeins óafsakanleg mistök á fréttamannsvakt.
![]() |
Hættir sem fréttamaður á Stöð 2 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
25.4.2008 | 10:29
Ágústi sleppt - óánægja vegna ummæla Sturlu
Óánægja mun vera meðal bílstjóra í kjölfar þess að Sturla Jónsson vildi ekki kannast við að þekkja Ágúst Fylkisson, þó að hann hafi verið mjög virkur í mótmælum þeirra, eftir að hann sló lögregluþjón á Kirkjusandi. Sturla missti út úr sér að Ágúst væri nýkominn úr hnéaðgerð en sagðist í sömu andrá ekki þekkja hann. Deilt er um hæfileika Sturlu til forystu, öllum er ljóst að hann hefur skaðað mótmælin með orðavali sínu.
Auðvitað er það lélegt hjá Sturlu að vilja ekki kannast við mann sem hefur fylgt honum eins og skugginn í mótmælunum og tala um hann eins og þar fari maður sem ekkert tengist hópnum sem hefur verið að mótmæla að undanförnu. Enda finnur maður það vel á viðbrögðunum að þeir sem ekki höfðu snúið baki við bílstjórunum séu orðnir mjög hugsi og velta fyrir sér hæfileikum Sturlu til að fronta þennan hóp og hversu mikinn skaða hann hafi unnið.
Talað hefur verið um að bílstjórar utan af landi myndu fara suður til að leggja félögum sínum þar lið. Eftir atvikið í gær mun hafa sljákkað í þeim fyrirætlunum.
Þess má reyndar geta að bróðir hins umdeilda Ágústs, Guðmundur Fylkisson, er aðalvarðstjóri hjá Ríkislögreglustjóra.
![]() |
Sleppt úr haldi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
25.4.2008 | 00:18
Stóra klúðrið - trúverðugleiki bílstjóra gufar upp
Vilji menn leita að einni stórri ástæðu þess að bílstjórum tókst að eyðileggja fyrir sér þessa réttindabaráttu sína með mótmælunum ættu þeir að líta á talsmann sinn, Sturlu Jónsson, sem var afleitur í hlutverki sínu sem verkalýðsleiðtogi og traustur talsmaður málstaðar fjöldahreyfingar, hversu umdeild baráttan og baráttuaðferðirnar mega vera. Talsmaðurinn stóð ekki undir nafni, spilaði illa úr sínum spilum og frontaði ekki hópinn með þeim hætti sem vænlegt yrði til árangurs fyrir þá.
Undarlegt er að Sturla ljúgi nú um tengslin við þann sem sló lögregluþjóninn og vita vonlaust í sjálfu sér að ætla að leika þann leik. Fjölmiðlar hafa afhjúpað hver þessi maður er og allir vita um tengsl hans við mótmælin. Þetta er ekki bara einhver maður úti í bæ. Hann fylgdi hópnum og var með þeim á vettvangi sem stuðningsmaður og væntanlega bílstjóri ennfremur. Þetta er alvarlegt klúður hjá Sturlu, sem reynir í vandræðum sínum og rugli að afneita þeim sem fylgdi honum að málum og hefur verið myndaður með honum oftar en tölu verður á komið, enda hafa þeir fylgst að í gegnum mótmælin.
Bílstjórarnir hafa spilað algjörlega út og talsmaðurinn hefur slúffað þessu fyrir þeim, með framkomu sinni og lélegum stælum. Þvílíkt megaklúður.
![]() |
Sturla: Ekki á okkar ábyrgð" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |