Jörð skelfur enn á Suðurlandi

Áhugavert er að fylgjast með fréttum af jarðskjálftahrinunni sem nú ríður yfir Suðurlandið, og hefur gert síðustu dagana. Ekki virðist vera að róast yfir skjálftahrinunni eins og sagt var fyrr í dag og enn ríða yfir miklir skjálftar nálægt þéttbýli, en þó er þetta vonandi að fjara út. Heyrði í vini mínum á Selfossi áðan og það er greinilegt á honum að ekki er beint að lægja yfir þó ekki hafi stærstu skjálftarnir verið toppaðir, sem betur fer.

Rúm átta ár eru frá stóru Suðurlandsskjálftunum þar sem allt nötraði á þessu svæði og miklar skemmdir urðu t.d. á Hellu og nágrannabyggðum, skjálftinn fannst vel í Reykjavík en þar var ég einmitt 17. júní 2000, þegar að þetta gekk yfir með eftirminnilegum hætti. Það er vissulega mikil lexía að búa á jarðskjálftasvæði, enda er aldrei að vita hvenær að skjálftar ganga yfir og náttúruhamfarir verða; bíða í raun eftir stóra skjálftanum og þeim hinum minni.

Við hér í Eyjafirði þekkjum sannarlega vel þá tilfinningu sem þeir á Suðurlandi finna fyrir í dag og gerðu fyrir sjö árum. Margir skjálftar hafa í áranna rás dunið á okkur Norðlendingum og segja má að Eyjafjarðarsvæðið sé mikið jarðskjálftasvæði. Ekki eru nema rúm sjötíu ár frá Dalvíkurskjálftanum, sem er sögufrægur, en þá urðu miklar skemmdir á húsum þar. Síðan hafa margir skjálftar komið, sennilega er skjálftinn árið 1963 þeirra eftirminnilegastur en ennfremur er mörgum hér fyrir norðan í fersku minni skjálftinn árið 1976, þar sem tjón varð mikið t.d. á Kópaskeri.

Það kemur öðru hverju fyrir hér að við séum minnt vel á þennan hluta náttúrunnar. Aldrei er þægilegt að upplifa það. Vonandi lægist brátt yfir þessum skjálftum.

mbl.is Snarpur kippur á Hellisheiði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hetjan Lorenzo fellur frá - eftirminnileg mynd

Lorenzo´s Oil Eftir hetjulega baráttu við taugasjúkdóm í hálfan þriðja áratug er Lorenzo Odone látinn. Honum tókst að lifa mun lengur en færustu læknum óraði fyrir og skrifaði nýjan kafla í sögu þessa sjaldgæfa sjúkdóms með baráttu sinni. Saga hans vakti heimsathygli í kvikmyndinni Lorenzo´s Oil fyrir tæpum tveim áratugum. Áður hafði ég þó lesið bók um hann og séð sjónvarpsþætti sem fjölluðu um baráttuna við sjúkdóminn.

Ekki er langt síðan að ég horfði síðast á myndina. Hef alltaf metið hana mikils, bæði er sagan mjög sterk og svo hafa þau Nick Nolte og Susan Sarandon verið meðal minna uppáhaldsleikara alla tíð, enda alveg frábær. Þau gáfu allt í túlkun sína auk þess sem drengurinn er lék Lorenzo, sem ég man því miður ekki hvað heitir, lék af innlifun. Gamli góði meistarinn Sir Peter Ustinov, sem hlaut tvisvar óskarsverðlaun á sjöunda áratugnum, átti þar sinn síðasta stórleik á litríkum ferli í hlutverki prófessorsins.

Myndin um baráttu Lorenzos var ekki skemmtiefni, enda grafalvarlegt mál. Varla er við því að búast að fólk horfi á hana sér til skemmtunar, enda eru sjúkdómamyndir svosem varla valdar til áhorfs ef fólk vill skemmta sér. Hef svosem aldrei haft sérstaklega gaman af sjúkdómamyndum, en séu þær vel leiknar og með alvöru innihald og gott handrit eru þær góðar. Þegar að horft er á slíka mynd þarf þó að gera sér grein fyrir að varla mun myndin gera mann glaðari en þegar hún hófst.

Túlkun Susan Sarandon á mömmunni var tilnefnd til óskarsverðlauna og handritið ennfremur. Susan tapaði óskarnum einum of oft á sínum ferli. Túlkanir hennar í Thelmu & Louise, The Client og þessari mynd voru allar gulls ígildi en hún vann verðlaunin loksins, seint og um síðir fyrir túlkun sína á nunnunni Helen í Dead Man Walking.

Seint verður sagt að Lorenzo´s Oil sé skemmtiefni, en það er falleg og vel gerð mynd með miklu innihaldi um baráttuna við illvígan sjúkdóm, baráttu sem gekk vel framan af, svo vel að það tókst að lifa með sjúkdómnum lengur en nokkrum óraði fyrir, varla foreldrunum einu sinni, þeim sem studdu hann best.

Mæli með myndinni við þá sem hafa ekki séð hana. Hún skilur eftir sinn sess í hjartanu, eins og allar sannar lífsreynslusögur gera.

mbl.is Drengur sem Hollywoodmynd var gerð um er látinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hæðir og lægðir barnastjörnunnar Tatum

Ryan O'Neal og Tatum O'Neal í Paper Moon Jæja, sennilega hefur óskarsverðlaunaleikkonan Tatum O´Neal náð botninum sínum með því að vera handtekin í kókaínkaupum á Manhattan um helgina og mun vonandi ná að koma lífi sínu aftur á beinu brautina. Hún ritaði bókina A Paper Life, þar sem gert var upp við fíknina og litríkan æviferil hennar allt frá því að hún var ungstjarna og fræg á einni nóttu með leik sínum.

Ekki er beint mikill stjörnuljómi yfir áru Tatum nú miðað við í denn sem leikara og stjörnu á vettvangi kvikmyndanna. Hún varð heimsfræg í upphafi áttunda áratugarins fyrir túlkun sína á hinni smellnu Addie í hinni eftirminnilegu stórmynd, Paper Moon, árið 1973, en þar lék hún á móti föður sínum Ryan O´Neal. Tatum fékk óskarsverðlaunin, yngst allra leikara í sögu Óskarsverðlaunanna, fyrir túlkun sína. Faðir hennar, sem var ein af helstu stjörnum kvikmyndanna á þeim tíma, hefur átt undir högg að sækja eins og dóttirin síðustu misserin.

Mér hefur alltaf fundist Pappírstungl ein besta mynd áttunda áratugarins. Er svo innilega heillandi og traust mynd; þar léku þau feðginin mjög útsmogin feðgin sem leggja saman í púkkið til að hafa í sig og á; hann selur biblíur til grandalausra ekkna í sorg og hún leikur með til að dæmið gangi upp. Fyndinn pakki og myndin er skylduáhorf fyrir alla sanna kvikmyndaunnendur. Tatum var aðeins tíu ára gömul er hún hlaut óskarinn og fékk fjölda tækifæra fyrst á eftir, en hvarf í skugga annarra leikkvenna eftir því sem leið á áttunda áratuginn og komst aldrei úr skugga barnastjörnunnar né heldur Addie, hlutverksins sem færði henni óskarinn.

Margir muna eftir Ryan O´Neal úr hinni rómantísku vasaklútamynd Love Story árið 1970. Þar fór hann á kostum í hlutverki ferilsins sem Oliver Barrett, sem fellur fyrir Jennifer Cavalleri en missir hana með sorglegum hætti langt fyrir aldur fram. Það er svo sannarlega súrsæt ástarsaga. Það er ekki hægt að segja annað en að sú mynd hafi verið toppur leikferla bæði O´Neal og Ali MacGraw. Myndin varð ein sterkasta mynd ársins 1970, þó sennilega sé hún einum of væmin á að horfa nú var það mynd tilfinninga og krafts. Stefið í henni er gulls ígildi - er það í spilaranum.

Nefna mætti fleiri myndir með O´Neal, en í seinni tíð hefur ferill hans verið mjög lágstemmdur. Það síðasta sem ég man eftir með honum er hlutverk Jerrys Fox í Miss Match og Rodney Scavo, pabba Tom, í Desperate Housewifes. Síðast þegar að ég vissi var Tatum að leika í þáttunum Rescue Me, en það er réttnefni fyrir ævi hennar síðustu árin, en þar hefur flest gengið illa, og ég ætla ekki einu sinni að reyna að muna hvenær hún lék í almennilegri mynd síðast.

Tatum verður sennilega alltaf í huga okkar kvikmyndaaðdáenda litla og útsjónarsama en þó saklausa stúlka í Pappírstunglinu. En eins og fleiri barnastjörnur hefur hún átt döpur örlög og átt erfitt með að komast úr barnæskuímynd ferilsins og hefur upplifað dimma daga. Vonandi nær hún að rífa sig upp af sínum botni.


mbl.is Tatum O'Neal staðin að kókaínkaupum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Styrmir hættur - þáttaskil á Morgunblaðinu

Styrmir Gunnarsson Starfslok Styrmis Gunnarssonar á Morgunblaðinu marka viss þáttaskil í fjölmiðlasögu landsins, rétt eins og þau marka auðvitað þáttaskil fyrir Árvakur og Morgunblaðið. Í dag er 43 ár síðan að Styrmir hóf þar störf og hann hefur í 36 ár af þeim verið ritstjóri blaðsins. Hann hefur ekki mikið verið í sviðsljósinu en verið mjög áhrifamikill á bakvið tjöldin og skrif hans verið umdeild og áhrifarík.

Sennilega má segja um Styrmi að hann sé síðasti maðurinn í forystu íslensks fjölmiðils sem hafði víðtæk pólitísk áhrif með störfum sínum og sótti sér viss völd með skrifum sínum. Þó að eftirmaður hans, Ólafur Þ. Stephensen, hafi vissulega verið formaður Heimdallar og tekið þátt í pólitík fyrir Sjálfstæðisflokkinn eins og Styrmir eru tímarnir aðrir - fjölmiðlar eru ekki lengur þær sterku pólitísku stofnanir og varnarrit fyrir stjórnmálastefnu eins og áður var þegar að flokkarnir áttu blöðin og þau voru í miðjum ólgusjó stjórnmálabaráttunnar.

Morgunblaðið hefur breyst mjög á síðustu árum. Ekki er blaðið lengur eins tengt Sjálfstæðisflokknum og áður var. Sennilega rofnuðu þessi bönd að miklu leyti í formannstíð Davíðs Oddssonar, þó vissulega muni Morgunblaðið alla tíð verða tengt við Sjálfstæðisflokkinn með einum eða öðrum hætti. Á Mogganum hafa forystumenn Sjálfstæðisflokksins getað átt visst skjól og trúnaðarsamband ritstjóra Morgunblaðsins við formenn og forystumenn Sjálfstæðisflokksins hafa verið mjög mikil í áranna rás. Þetta er vissulega mjög merk saga, sem síðar verður rituð af krafti. En fjarri var að Mogginn einn væri pólitískt blað. Í þessa tíð voru blöðin einfaldlega pólitísk. Voru aðrir tímar en nú.

Einn formanna Sjálfstæðisflokksins, dr. Bjarni Benediktsson, var svo auðvitað ritstjóri blaðsins þau ár sem hann var ekki ráðherra. Nægir bara að lesa vandaðar og vel ritaðar dagbækur Matthíasar Johannessen, ritstjóra Morgunblaðsins í fjóra áratugi, til að sjá hversu sterk tengingin var, en þar er trúnaðarsambandi ritstjóranna við formennina Bjarna Ben og Geir Hallgrímsson vel lýst. Fyrsta verk Styrmis Gunnarssonar sem blaðamanns Morgunblaðsins á þessum degi fyrir 43 árum var reyndar að taka viðtal við Bjarna Ben. Ekki má svo heldur gleyma að um árabil sátu blaðamenn Moggans þingflokksfundi Sjálfstæðisflokksins.

Hef heyrt margar og skemmtilegar sögur Halldórs Blöndals, fyrrum ráðherra og forseta Alþingis, af því, en hann hóf að sitja þingflokksfundi árið 1961 sem þingfréttamaður og sat fundi þingflokksins meira og minna samfellt allt þangað til að hann hætti þingmennsku fyrir rúmu ári. Sat hann þingflokksfundi með öllum formönnum Sjálfstæðisflokksins nema Jóni Þorlákssyni. Fyrir margt löngu las ég gömul blöð af Mogganum frá fyrri tíð og þótti sérstaklega áhugavert að lesa blöð frá kjördegi, en þar var oft beinn kosningaáróður fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Forsíðan frá kjördegi 1982 er eftirminnileg, en sennilega varð hún sú síðasta.

Styrmir hefur merka sögu að baki, bæði sem áhrifamaður í íslensku samfélagi og sem blaðamaður. Hann mun hafa frá mörgu að segja og verið lykilmaður í ólgusjó stjórnmála og fjölmiðla um árabil. Öruggt er að ævisaga hans mun verða merkilegt rit og væri reyndar mjög mikilvægt að hann ritaði sína sögu eða myndi fara yfir árin sín hjá Morgunblaðinu. Hversu umdeildur hann má teljast verður ekki deilt um sterkan sess hans. Með brotthvarfi hans breytist bæði Morgunblaðið og fjölmiðlalitrófið.

En með nýjum manni koma nýjir siðir og vinnubrögð. Eflaust er það öllum aðilum hollt, enda breytingar oft af hinu góða. Óska Ólafi Þ. Stephensen innilega til hamingju og færi Styrmi bestu kveðjur og þakkir fyrir allt hið góða sem hann hefur ritað um stjórnmál. Það hef ég lesið með miklum áhuga allt frá því að ég byrjaði að lesa Moggann. Nú eru breyttir tímar - vonandi munu þáttaskilin verða hinum aldargamla Mogga, sem við elskum öll hver á okkar hátt, heillarík.

mbl.is Ritstjóraskipti á Morgunblaðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vilhjálmur á að víkja - Hönnu Birnu til forystu strax

Hanna Birna Kristjánsdóttir Staða Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík er orðin svo slæm undir forystu Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar að tímabært er orðið að hann taki pokann sinn og nýr leiðtogi verði valinn, sem um leið verði borgarstjóri að ári. Annað kemur ekki til greina nema keyra eigi flokkinn í borginni til pólitískrar glötunar viljandi og af ásetningi. Ekki fer á milli mála að Hanna Birna Kristjánsdóttir nýtur yfirburða stuðnings til að taka við. Allar kannanir staðfesta að henni einni er treyst að ráði í hlutverkið.

Í sjálfu sér hefði það verið flokknum fyrir bestu að hún hefði tekið við flokknum þegar í krísunni í febrúar, er öllum var ljóst að pólitískur styrkleiki Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar var endanlega gufaður upp eftir hvert klúður hans á eftir öðru, en varla er nokkur vafi á því nú að það voru mestu pólitísk afglöp forystu Sjálfstæðisflokksins á síðustu áratugum að beita sér ekki fyrir þeim leiðtogaskiptum þá. Síðan hefur flokknum blætt hressilega og ég tel að flestir þeir sem vörðu Vilhjálm Þ. þá séu farnir að átta sig á mistökunum sem gerð voru.

Mér finnst allar kannanir nú staðfesta hversu illa sé komið fyrir flokknum á vakt Vilhjálms Þ. og um leið honum sjálfum. Hann er auðvitað bara búinn að vera sem trúverðugur leiðtogi og mun ekki ná að endurheimta þá stöðu sína sem hann hafði eftir prófkjörið 2005 og kosningarnar fyrir tveim árum. Honum var treyst til forystu og fékk sterkt umboð til þess en stóð ekki undir væntingum. Því er það óskiljanlegur pólitísk glámskyggna að hann sitji ennþá í leiðtogastólnum og forysta flokksins skuli horfa upp á það að flokknum blæði.

Auðvitað er það ábyrgðarhluti fyrir forystu Sjálfstæðisflokksins að horfa lengur þegjandi á þessa grafalvarlegu stöðu. Næstu leikir í stöðunni eiga að vera einfaldir eins og landið liggur. Skipta þarf um leiðtoga helst þegar í þessum mánuði og hefja starf til framtíðar við að byggja flokkinn upp eftir þau mistök sem gerð hafa verið. Ekki þýðir að setja lengur hagsmuni nokkurra einstaklinga í forgang umfram það sem flokknum er fyrir bestu. Nú er kominn tími til aðgerða.

Tvisvar á þessu kjörtímabili hefur það gerst að sterkir leiðtogar Sjálfstæðisflokksins í sveitarstjórnarpólitík hættu sem bæjarstjórar og flokksleiðtogar; Kristján Þór Júlíusson og Ragnheiður Ríkharðsdóttir. Eftirmenn þeirra urðu þau sem skipuðu annað sætið á framboðslista; Sigrún Björk Jakobsdóttir og Haraldur Sverrisson. Umboð þeirra var mjög skýrt og enginn efaðist um það. Hér á Akureyri var þetta ekki einu sinni rætt, þetta var svo sjálfsagt.

Tími Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar er liðinn. Honum urðu á alvarleg mistök í hlutverki sínu sem flokksleiðtoga og brást á örlagastundu flokknum og þeim sem unnu fyrir hann í prófkjöri og kosningum. Hann brást sérstaklega þeim sem kusu hann sem sterkan leiðtoga reynslunnar til verka. Honum ber að víkja og best væri ef hann sjálfur gerði sér grein fyrir stöðunni og stigi af stóli með þeirri reisn sem eftir er í stöðunni, þó það sé að verða um seinan.

Ekki þýðir lengur að velta fyrir sér hvað "Gamli góði Villi" hafi gert í fortíðinni og hvað hann geti mögulega gert fram að kosningum. Leiðtogaskipti eru þörf nú sem fyrst, til að hefja megi nýtt upphaf í borgarmálunum. Áhættan af aðgerðarleysi er of mikil til að menn setji undir hagsmuni flokksins fyrir leiðtoga sem hefur misst stöðu sína og hefur verið hafnað af kjósendum flokksins.

mbl.is Vilja Hönnu Birnu sem borgarstjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 2. júní 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband