3.6.2008 | 23:03
Obama nær útnefningunni - Hillary við hlið hans?
Barack Obama, öldungadeildarþingmaður frá Illinois, hefur nú náð útnefningu sem forsetaefni Demókrataflokksins í kosningunum 4. nóvember og hlýtur þann sögulega sess að verða fyrsti blökkumaðurinn sem á raunhæfa möguleika á embætti forseta Bandaríkjanna. Atburðarásin hefur verið hröð í dag - fjöldi ofurfulltrúa hefur lýst yfir stuðningi við Obama síðustu klukkutímana og hann hlaut útnefninguna nú á ellefta tímanum að íslenskum tíma.
Úrslitin eru því ljós áður en tölur taka að berast frá Montana og Suður-Dakóta, síðustu forkosningum demókrata í þessu langvinna og harðvítuga forkosningaferli þar sem sögulegir frambjóðendur, fyrsta konan og fyrsti blökkumaðurinn sem áttu raunhæfa möguleika á útnefningu annars af stóru flokkunum í Bandaríkjunum tókust á. Og baráttan var leiftrandi frá fyrstu stund til hinnar síðustu. Og flokkurinn er svo að segja klofinn eftir átökin og þar tekur sameiningarvinna við.
Þetta hefur verið stórmerkileg barátta allt frá því að ljóst varð að Obama ætlaði að gefa kost á sér gegn Hillary Rodham Clinton og frá fyrsta degi varð ljóst að baráttan yrði á milli þeirra og hún varð sú harðvítugasta fyrir demókrata frá árinu 1968. Um tíma stefndi í að baráttan færi alla leið á flokksþingið í Denver en það hefur orðið æ ólíklegra eftir því sem liðið hefur á ferlið. Demókratar hafa heldur ekki efni á átökum á gólfinu á þinginu.
Nú þegar heyrast sögusagnir úr innstu herbúðum Hillary Rodham Clinton að hún vilji verða varaforsetaefni Obama í forsetakosningunum. Rökin fyrir því eru mjög einföld. Hún hafi breiðan hóp að baki sér sem Obama þarf á að halda. Auk þess muni það tryggja sameinaðan flokk. Hillary tókst að halda það lengi lífi í framboðinu að hann þarf á henni að halda. Er á hólminn er komið hefur hún kjarnastuðning sem verður ekki litið framhjá.
Sá áðan að John McCain lofar Hillary nú í bak og fyrir. Hann er klókur karlinn og er þegar farinn að reyna að kroppa í fylgi Hillary úr forkosningaslagnum, ná þeim sem eru ósáttir við Obama yfir á sitt band. Hann gæti tryggt sér forsetastólinn á þessu óánægjufylgi þeirra sem hafa stutt Hillary í gegnum þykkt og þunnt, jafnvel á glötuðustu augnablikum framboðs hennar síðustu mánuði. Allavega er þessi lofsöngur hans engin tilviljun.
Nú þegar að forkosningaslagnum er lokið í Demókrataflokknum stendur eftir lykilspurningin - hversu auðvelt verði að sameina brotin tvö í flokknum sem mynduðust með þessu harðvítuga einvígi. Þau liggja fjarri því saman og er mikil vinna framundan þar fyrir forsetaefnið Obama og stuðningsmenn hans. Viðræðurnar við Hillary í þeim efnum að sameina flokkinn munu verða hinn stóri eftirmáli þessa sögulega slags.
Á stund tapsins hefur Hillary Rodham Clinton þrátt fyrir allt tromp á hendi og þegar er spinnið hafið fyrir því að hún fái sess við hlið Obama. Draumateymið var það kallað frá fyrsta degi og enginn vafi er á því að sameiginlegt framboð þeirra er sterkasti framboðskostur demókrata í þessum forsetakosningum.
![]() |
Obama tryggir sér útnefningu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
3.6.2008 | 17:58
Umdeildur lokatónn í skagfirskum Ísbjarnarblús
Um fátt hefur verið fjallað meira í dag en dauða ísbjarnarins í Skagafirði, lokatónn hins skagfirska Ísbjarnarblús er mjög umdeildur. Hef misst tölu á hversu margar myndir eru komnar á netið af dýrinu og sérstaklega virðist vinsælt að láta mynda tennur dýrsins og veiðimennirnir létu auðvitað mynda sig við ísbjarnarhræið.
Allar eru þessar myndir umdeildar, eins og sést hefur í bloggheimum í dag. Kemur kannski varla að óvörum að náttúrusinnar noti málið til að slá sér upp og tala gegn því að fella slík villidýr. En annað er um að tala en vera á staðnum og þurfa að taka ákvarðanir. Sérstaklega virðist reiðin beinast að Þórunni umhverfisráðherra, sem þó vill greinilega enga ábyrgð taka þó hún hafi veitt leyfi til verksins.
Eðlilegt er að velta því fyrir sér hvað hægt var að gera annað en skjóta dýrið. Ekki voru svefnlyf tiltæk og tómt mál um að tala að bíða til morguns með að fella dýrið eða þá ella taka aðra ákvörðun um framtíð þess. Held að ekkert annað hafi verið í stöðunni. En margt er afleitt í þessu máli. Sérstaklega er vont að vegurinn hafi ekki verið lokaður af og utanaðkomandi fólki hafi verið leyft að komast á svæðið meðan að dýrið var á lífi. Margt í þessu var gert með þeim hætti að umdeilt verður.
Vonandi læra allir á þessu. Mesta athygli vekur að engin áætlun er til staðar ef slíkt ástand kemur upp að ísbjörn, stórhættulegt villidýr, kemur til landsins og greinilegt að ekki eru svefnlyf til reiðu til að nota á slík dýr. Margt er því að og eflaust þarf að hugsa málin upp á nýtt. Dauði þessa dýrs vekur vonandi vangaveltur um hvað megi bæta og hvort eðlilegt sé að fella slík dýr, þegar að óljóst er hvað hægt sé að gera annað í stöðunni.
![]() |
Hefði átt að loka veginum" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
3.6.2008 | 16:13
Hillary viðurkennir ósigur - leitar eftir samningi

Ekki er nokkur vafi á því að Hillary er sterkari frambjóðandi nú en fyrir sex til sjö vikum. Með sigrum síðustu vikurnar hefur hún styrkt stöðu sína í mótlætinu og sýnt mjög vel að hún hefur sterkan hóp að baki sér sem hefur fylgt henni þó allt benti til að framboðið var glatað og gæti ekki náð á leiðarenda. Í sjálfu sér er það styrkleiki sem vigtar langt út fyrir öll eftirmæli framboðsins frá andstæðingum hennar. Frá 5. mars hefur Hillary enda hlotið 6,8 milljón atkvæða á móti 6,2 milljónum atkvæða sem Obama hefur hlotið. Hún hefur því átt betri vikur að undanförnu en Obama. Mistök á fyrri hluta baráttunnar kostuðu hana því sigurinn.
Þegar að Barack Obama hlýtur útnefninguna mun allt snúast um að sameina flokkinn fyrir forsetakosningarnar í nóvember. Í þeim efnum þarf Obama á stuðningi Clinton-hjónanna að halda. Fjölmargir stuðningsmenn hennar vilja ekki sjá Obama og mikil reiði er meðal innsta hrings Hillary í garð Obama og þeirra sem leitt hafa kosningabaráttu hans. Flokkurinn er klofinn eftir átökin og sérstaklega hafa átök seinni hluta baráttunnar hleypt illu blóði í marga. Hillary hefur með sigrum á síðari hluta baráttunnar og góðri strategíu-vinnu í mótlætinu afhjúpað veikleika Obama. Því skiptir hún meira máli nú en hún gerði t.d. frá ofur-þriðjudegi þar til hún vann Ohio, Texas og Pennsylvaníu.
Þegar þessum langvinna slag lýkur mun Obama því verða að koma til móts við Hillary um næstu skref. Þó hún hafi tapað hefur hún ekki hlotið neinn skell í þessu kjöri. Forkosningaferlinu er lokið í dag og því er lokið án þess að Obama hafi hlotið útnefninguna. Því er erfitt að tala um afgerandi sigurvegara, þó Obama muni verða forsetaefni flokksins. Því mun það skipta hann máli að Hillary fylki liði með honum og þau semji pólitískan frið. Vel verður fylgst með út á hvað sá friður muni ganga og hvernig þau nái saman um að horfa til framtíðar eftir harðvítug og persónuleg átök mánuðum saman.
Barack Obama þarf því mun meira á Hillary Rodham Clinton að halda nú en hann gerði fyrir sex vikum. Staða hans hefur veikst á þeim tíma og ólgan innan flokksins hefur eiginlega aukist eftir því sem liðið hefur á ferlið. Sennilega er það stóri sigur Hillary að henni tókst að eiga endurkomu í forkosningaslagnum eftir áföllin í kjölfar ofur-þriðjudags, en náði þó ekki að stöðva sigur Obama. Því mun hún skipta máli þó ósigurinn blasi við.
Clinton-hjónin hafa lokið baráttu sinni, eru ekki í Suður-Dakóta eða Montana á lokadegi baráttunnar, í síðustu forkosningaátökum þessarar langvinnu pólitísku baráttu. Þau sitja nú í þungum þönkum á heimili sínu, hringja í stuðningsmenn og marka endalok þessarar baráttu. Flestir töldu hana örugga um sigur þegar haldið var af stað. Hún komst nálægt sigri en náði þó ekki hnossinu mikla við ákjósanlegar aðstæður.
Með því að binda ekki enda á framboðið að öllu leyti eru þau að minna á að þau hafa sína samningsstöðu í þessu ferli enn sem komið er. Þau hafa afl til að verða örlagavaldar, bæði fyrir flokkinn og forsetaefnið Obama. Nú er stóra spurningin hvernig þau muni sameinast um næstu skref. Í þeim efnum verður spurt um hlutverk Hillary í þeim átökum sem framundan eru.
Obama mun þurfa á þeim að halda til að tryggja sameinaðan flokk og eflaust verður spurt um hvort að hann muni sætta sig við hana sem varaforsetaefni eftir öll átökin. Strategía dagsins gefur til kynna að Clinton-hjónin ætli að fara af velli með sárabótarverðlaun eftir samningaviðræður. Fróðlegt verður að sjá hvernig þeim gangi að landa samstöðu fyrir flokkinn.
![]() |
Clinton mun játa sig sigraða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.6.2008 | 12:51
Ísbjörninn felldur - hver tók ákvörðunina?
Væntanlega mun Þórunn með þessu fá bylgju af óánægju umhverfissinna vegna drápsins, rétt eins og Össur Skarphéðinsson fyrir 15 árum. Fór yfir það mál í morgun. Eðlilega er þegar farið að bera þessi tvö mál saman, þó eitt og annað sé ólíkt í þeim. Umhverfissinnar hjóluðu í Össur vegna málsins og fróðlegt verður að sjá hversu harkalega Þórunn verði dæmd vegna þessa máls nú.
Hér fylgir mynd af ísbirninum. Eins og vel sést er þetta stór og mikil skepna, sem ekki er fýsilegt að mæta og því skiljanlegt að þeir sem eru á vettvangi finnist réttast að fella dýrið. Þetta er grimmt villidýr sem við munum aldrei flokka sem aufúsugesti eða þau dýr sem við viljum hafa í kringum okkur. Því er eðlilegt að þeir sem eru á vettvangi líti öðruvísi á málið en umhverfissinnar hinumegin á landinu, sem flestir hafa aldrei horfst í augu við dýr af þessu tagi.
Sennilega spyrja sig allir núna hvað verði um dýrið. Húsdýragarðurinn var þegar búinn að óska eftir dýrinu áður en það var drepið og fróðlegt að sjá hvort að það verði stoppað upp og sett þangað og Þórunn umhverfisráðherra muni svo svipta hulunni af því þegar að það verður formlega sett þangað.
![]() |
Ísbjörninn felldur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
3.6.2008 | 11:45
Ísbjarnarblús í Skagafirði - mun björninn lifa?

Mér skilst að Þórunn Sveinbjarnardóttir, umhverfisráðherra, ætli að beita sér fyrir því að björninn lifi, verði svæfður og fái að lifa. Spurning hvort að hún vilji að hann verði lokaður inni í safni eða verði fluttur til sinna heimkynna. Þarna mun enn sjást hvort Þórunn nái að heilla umhverfissinnanna eða ergja þá, svipað eins og í Helguvíkurmálinu.
Frægt varð þegar að ísbjörn var drepinn fyrir fimmtán árum, í umhverfisráðherratíð Össurar Skarphéðinssonar, vestur á fjörðum. Umhverfissinnar kenndu honum um að dýrið fékk ekki að lifa en var drepið með mjög umdeildum hætti.
Fróðlegt verður því að sjá hvað verður um þennan björn, hvort hann lifi og lifi því innilokaður á safni, uppstoppaður eður ei.
![]() |
Ísbjörn við Þverárfjall |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.6.2008 | 00:32
Hillary á leiðarenda - hver verður útgönguleiðin?

Þetta er erfið pólitísk staða sem mikilvægt er að Clinton-hjónin komist út úr eins heil og ósködduð og mögulegt má vera í þessu auðmýkjandi tapi. Ekki aðeins er pólitískur ferill Hillary undir heldur söguleg pólitísk arfleifð Bill Clinton sem 42. forseta Bandaríkjanna, baráttumannsins og sjarmatröllsins frá smábænum Hope í Arkansas sem markaði söguleg þáttaskil með forsetasetu sinni, þó umdeildur hafi verið. Þau hafa verið pólitískar fjölmiðlastjörnur Demókrataflokksins og drottnað í krafti þess, haft flokkinn í sínum höndum. Tapið nú er skaðlegt, enda er allt þeirra pólitíska kapítal í óvissu nú.
Ekki þarf að efast lengur um að þessi langvinni forkosningaslagur er kominn á leiðarenda. Hillary er komin á leiðarenda í draumaferð sinni til Hvíta hússins, sem átti að ljúka með sigri í nóvember og sögulegu pólitísku ári kvenna þar sem hún stæði uppi sem sigurvegari. Hún hefur aldrei tapað kosningum og þau hjón þekkja ekki tilfinninguna að tapa illa - orðið er ekki einu sinni til í orðabókinni. Nú er leitað að útgönguleið sem er óhjákvæmileg nú. Í þeim efnum er spurt um rétta tímapunktinn og réttu eftirmælin á framboðið og augljós merki þess hvað Hillary geri nú þegar að draumurinn mikli er runninn út í sandinn.
Langur slagur úr þessu í hinu tapaða spili mun skaða ekki aðeins hana heldur sögulega pólitíska arfleifð eiginmanns hennar. Hún vill eiga sér pólitískt líf handan þessarar baráttu og leitar að útgönguleið. Þrátt fyrir tapið getur Hillary hrósað sigri að mörgu leyti í þessum slag. Hillary og Bill gerðu mörg skelfileg mistök, þau mistök kostuðu hana sigurinn og hún reyndi að bæta úr þeim mistökum á síðari stigum baráttunnar og náði að eiga endurkomu, en það var alltof seint til að snúa taflinu við. Þetta hefur verið töpuð barátta um nokkurra vikna skeið, en samt tókst Obama ekki að slá hana út með krafti.
Ef Obama tapar getur hún átt pólitíska endurkomu með því að segja að hún hafi haft rétt fyrir sér með lykilfylkin og styrkleika sína. En það reynir ekki á það í þessum kosningum, nema hún verði varaforsetaefni hans. Hún yrði fyrsta konan sem varaforseti ef Obama myndi vinna, en ella búa í haginn fyrir forsetakosningarnar 2012. Hvernig sem fer getur hún átt sóknarfæri. Efast um að hvorugt þeirra vilji vera saman sem samlokur fram í nóvember. Til þess að það megi ganga hafa fallið of harkaleg orð og verið of mikið persónulegt skítkast þeirra á milli. Flest er það geymt en ekki gleymt.
Stóra spurningin er hvernig Clinton-hjónin binda enda á baráttuna fyrir Hvíta húsið. Þau eru særð á eftir, en ekki úr leik. Margir bera mjög mikla virðingu fyrir þeim, þó margir þeirra hafi snúið við þeim baki nú. Þau eru pólitísk hörkutól sem hafa áður risið úr vondri stöðu og getað spinnað hana sér í hag. En þau þekkja ekki auðmýkjandi tap og eru eflaust að hanna atburðarásina sem hentar þeim, hvort sem Obama nær að komast í Hvíta húsið eður ei.
Hillary á sín tromp í stöðunni. Hún gæti orðið flokksleiðtogi demókrata í öldungadeildinni og forsetaefni síðar með sáttum. Auk þess gæti verið að hún sækist eftir ríkisstjóraembættinu í New York. Allt er opið. En á árinu sem átti að vera hennar eru Clinton-hjónin skyndilega komin í pólitíska óvissuferð sem þau eru að reyna að ná tökum á en geta það ekki. Spurningarnar eru margar.
Stóra spurningin er hvort hún hætti þegar á morgun og fari út úr þessu með þeirri reisn sem eftir er í stöðunni, tryggi sameinaðan flokk og vinni að því að tryggja Obama vist í Hvíta húsinu. Þó að þau hafi tapað þessum slag eru þau fjarri búin að vera. Þau hafa mörg tækifæri og hvernig sem á taflið er litið mun Obama þurfa að leita til þeirra um stuðning.
Alveg ljóst er því að þetta endatafl hins langvinna demókrataslags mun ráða miklu um það hversu sameinaður Demókrataflokkurinn fer af flokksvelli og í þau átök sem mestu skipta, um það hver verði eftirmaður George W. Bush í Hvíta húsinu. Clinton-hjónin geta verið örlagavaldar í þeim slag ef þau halda rétt á spilum, þó tapið sé staðreynd.
![]() |
Gaf í skyn að Clinton ætli að hætta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |