Pétur Pétursson þulur látinn

Pétur Pétursson þulur Pétur Pétursson, þulur, er látinn. Ég held að það sé á engan hallað þegar að sagt er að engin rödd hafi orðið þekktari og notalegri í áratuga sögu Ríkisútvarpsins en rödd Péturs þuls. Hann hafði ljúfa og notalega útvarpsrödd sem öllum er fersk í minni sem muna þá tíð að hann var rödd íslenska útvarpsins, sem allt til ársins 1983 var jú bara gamla góða Gufan, Rás 1.

Pétur þulur var líka mikill málræktarmaður og hikaði ekki við að koma með fróðleiksmola og vel íhugaðar hugleiðingar um íslenskt mál þegar að honum fannst að því sótt með einhverjum hætti og hann var ekki síðri málfarsráðunautur hjá Ríkisútvarpinu en Árni Böðvarsson.

Mér er rödd Péturs þuls mjög eftirminnileg frá æskuárum mínum, en hann starfaði hjá RÚV eitthvað fram eftir níunda áratugnum hið minnsta. Hann hafði mjög þýða og hljómmikla rödd sem hljómaði vel í útvarpi.

Ég votta fjölskyldu Péturs þuls samúð mína.

mbl.is Pétur Pétursson þulur látinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristján Pétursson

Málræktarmaðurinn með fallegu,hlýju og notalegu röddina, frásagnarsnillingurinn,sem hélt manni rígföstum að hlusta á gömlu gufuna,er farinn yfir móðuna miklu.Við eigum honum varanlega að þakka að kenna okkur að vanda málfar okkar og bera  sérstaka virðingu fyrir landi og þjóð´

Ég votta fjöldskyldu Péturs og aðstandendum hans samúð mína.

Kristján Pétursson, 24.4.2007 kl. 17:31

2 Smámynd: Stefán Friðrik Stefánsson

Takk fyrir kommentin.

mbk.

Stefán Friðrik Stefánsson, 25.4.2007 kl. 14:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband