Eiga dómarar í Hćstarétti ađ velja eftirmenn sína?

HćstirétturBjörn Bjarnason, dómsmálaráđherra, mun á nćstu dögum skipa dómara viđ hćstarétt Íslands, í stađ Hrafns Bragasonar, sem lćtur af embćtti um mánađarmótin eftir tveggja áratuga setu í réttinum. Hrafn er eini dómarinn í réttinum nú sem skipađur var áđur en Sjálfstćđisflokkurinn fékk dómsmálaráđuneytiđ áriđ 1991, en fjórir ráđherrar hafa setiđ í nafni flokksins ţar á ţessum sextán árum; Ţorsteinn Pálsson, Davíđ Oddsson, Sólveig Pétursdóttir og Björn Bjarnason.

Nú hafa starfandi dómarar viđ Hćstarétt Íslands, ţar á međal Hrafn Bragason, fráfarandi dómari viđ réttinn, skilađ áliti um hćfni umsćkjenda. Međ ţessu verklagi á undanförnum árum hafa dómarar t.d. tekiđ sér ţađ bessaleyfi ađ rađa umsćkjendum í hćfnisröđ og stillt ţeim upp ađ eigin hćtti. Frćgust varđ ţessi hćfnisröđ áriđ 2004 ţegar ađ eftirmađur Péturs Kr. Hafsteins var skipađur í réttinn og vćntanlega urđu deilurnar um hana ţá mestar. Hefur mér jafnan fundist ţađ vera algjörlega óviđunandi ađ sitjandi dómarar viđ réttinn setjist niđur og plotti um hverjir eigi ađ starfa međ ţeim í réttinum og hvort jafnvel einhverjir sćki um ţví sumum ţar lítist ekki vel á einhvern fyrri umsćkjenda eins og orđrómur var um áriđ 2004.

Ađ mínu mati eiga dómarar ađeins ađ leggja ţađ mat hverjir séu hćfir til ađ gegna störfum í Hćstarétti, eins og fram kemur í 4. grein dómstólalaga frá árinu 1998. Reyndar má spyrja sig ţeirrar spurningar hvort fyrirkomulag viđ skipan dómara sé ekki orđiđ úrelt og hvort rétt sé ađ dómarar viđ réttinn felli mat međ ţessum hćtti hverjir séu hćfir og hverjir ekki. Er ekki eđlilegra ađ breyta lögunum međ ţeim hćtti ađ nefnd lagaspekinga leggi mat á hćfni umsćkjenda og skili úrskurđi ţar um, en ekki sitjandi dómarar ađ fella mat yfir ţví hverjir séu hćfari en ađrir til ađ vinna međ ţeim í réttinum á komandi árum eđa taka ţá viđ af ţeim sem eru á útleiđ úr réttinum.

Hćfnisröđ dómara viđ fyrri skipanir í réttinn hafa vekiđ upp margar spurningar. Ađ mínu mati er nauđsynlegt ađ breyta lögum um réttinn og sérstaklega binda enda á ađ sitjandi dómarar hafi eitthvađ um ţađ ađ segja hverjir taka sćti í réttinum. Ţađ er nauđsynlegt ađ stokka ţessa 4. grein upp, láta óháđa ađila sem ekki eiga sćti í réttinum meta umsćkjendur međ ţessum hćtti. Annar valkostur er ađ val ráđherrans fari fyrir ţingiđ til stađfestingar, ekki ósvipađ og gerist t.d. í Bandaríkjunum. Međ ţví yrđi valiđ ekki ađeins eins manns hefur löggjafarsamkundunnar allrar.

Ţađ verđur vćntanlega erfitt verkefni fyrir ráđherra ađ velja einn af umsćkjendum til starfa. Um er ađ rćđa nokkra mjög hćfa einstaklinga sem sćkja um og reynda á sínu sviđi. Ţađ bćtir hinsvegar ekki úr skák, hvorki fyrir umsćkjendur né ráđherra sem hefur skipunarvaldiđ varđandi stöđu dómara, ađ dómarar viđ Hćstarétt taki upp á ţví ađ rađa mönnum í röđ eftir geđţótta sínum eđa velji út menn sem ţeim er ekki ađ skapi og setji ţá aftar í hćfnisröđina en reynsla ţeirra segir til um eins og gerđist t.d. áriđ 2004.

Fagna ég ţví ađ Jón Steinar Gunnlaugsson og Ólafur Börkur Ţorvaldsson hafi skilađ séráliti og međ ţví komiđ međ sterk skilabođ í ţá átt ađ ţeir taki ekki ţátt í ţessu hćfnisferli umsćkjenda. Ţađ er ekki fjarri lagi ađ horfa til uppstokkunar á ţessu ferli međ einum hćtti eđa öđrum. Annars er öllum ljóst ađ valdiđ til ađ skipa dómara nú er dómsmálaráđherrans, enda er vald réttarins ađeins ađ skila ráđgefandi umsögnum um hćfi og hćfni umsćkjenda.

Ţađ verđur fróđlegt ađ sjá hvern ráđherra muni velja í ţetta lausa dómarasćti.


mbl.is Ţrír hćfastir í Hćstarétti
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gestur Guđjónsson

Er ekki eđlilegt ađ miđa viđ aukinn meirihluta Alţingis?

Gestur Guđjónsson, 27.8.2007 kl. 11:37

2 Smámynd: Hreiđar Eiríksson

Eins og stađan er í dag mun ţađ vera Forseti Íslands sem skipar dómara í Hćstarétti samkvćmt tillögu dómsmálaráđherra.  Ekki sé ég ţess merki ađ foretanum sé skylt ađ skipa ţann sem dómsmálaráđherra gerir tillögu um en hingađ til hefur aldrei skorist í odda međ ráđherra og forseta um ţetta atriđi.  Sé ţađ hins vegar skilningur manna ađ vald forseta, ađ ţessu leiti, sé ekkert í raun ţá spyr mađur sig vissulega, hve eđlilegt er ađ dómsmálaráđherra taki einn ákvörđun um skipun í embćttin.

Reyndar vil ég snúa spurningunni viđ og spyrja:  "Er eđlilegt ađ dómsmálaráđherra, sem skipar í allar dómarastöđur í landinu, skipi jafnfram saksóknara og lögreglustjóra og teljist einnig ćđsti stjórnandi löggćslu í landinu?"  Hvernig fer ţá međ trúverđugleika rannsókna á meintum brotum lögreglunnar eđa lögreglumanna ef lögreglan, ákćruvaldiđ og dómstólarnir eru settir undir einn og sama hattinn?

Hugmyndin um faglega umfjöllun Hćstaréttar, tillögu dómsmálaráđherra, samţykki aukins meirihluta Alţingis og undirskrift forseta hljómar vel í mínum eyrum. 

Hreiđar Eiríksson, 27.8.2007 kl. 22:14

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband