Gjafmildur bítill hugsar til kvendjöfuls

Heather og Paul Það er ekki hægt að segja annað en að hinn fyrrum lánssami eðalBítill Paul McCartney sé ótrúlega gjafmildur við Heather Mills, fyrrum eiginkonu sína, í tilefni af afmæli hennar. Gefur henni úr og gjafakort. Á sama tíma hefur hún ráðið einkaspæjara til að reyna að ná myndum af honum drukknum. Held að sagan muni meta Heather sem kvendjöful sem lagðist á bítilinn til þess eins að ná peningum út úr honum og blóðmjólka hann.

Ekki er langt síðan að fregnir bárust af því að Heather hefði tekið upp samtöl sín og bítilsins í hjónabandinu til að reyna að eiga sannanir gegn honum síðar meir. Hún hefur verið að gera út af við sig síðustu mánuðina með fáránlegum absúrd-fjölmiðlaframkomum. Hún kann varla að skammast sín einu sinni og líkir sér við dýrlinga og kvenhetjur og talar gegn þeim sem lifa fyrir peninga - á meðan berst hún fyrir því að fá allt að sex milljarða úr búi bítilsins.

Það eru rúmir fjórir áratugir liðnir frá því að bítillinn Paul samdi og söng lagið When I´m 64. Lagið var um lífið er aldrinum væri náð og hugleiðingar um tilveruna. Fyrir skömmu náði hann sjálfur þessum merka áfanga að verða 64 ára. Það verður seint sagt að afmælisárið og misserin eftir það hafi verið markað af gleði og ánægju. Hans er helst minnst núna af harðvítugum skilnaðarátökum, forræðisdeilu, yfirráðum yfir peningum sínum og mannorðinu, sem konan ætlar að leggja í rúst.

Það að hann gefi henni gjafir fyrir milljón íslenskra króna vekur því athygli og eiginlega fær mann til að hugsa um hversu gjafmildur maðurinn sé þrátt fyrir allt sem gerst hefur. Dómurinn yfir Heather í huga bresku pressunnar og almennings virðist þó ljós. Þar eru henni gefin öll hin verstu nöfn og seint hægt að segja að hún hafi öðlast gullinn sess með hjónabandinu og framgöngu sinni síðan. Hún ætlaði sér að verða þekkt fyrir líknarstarf og fötlun sína en sú ímynd er farin í vaskinn.

Og nú berst hún eins og ljónynja fyrir peningum kappans og hefur afhjúpað sig og rifið niður ímynd hinnar líknandi stjörnu, sem hún var talin áður, og reynt var að kynna enn frekar framan af í sambandinu við bítilinn. Það er ekki óvarlegt að segja að ímynd hennar sem hins miskunnsama samverja hafi farið á bólakaf og eftir aðeins gráðugur kvendjöfull í huga fólks.

mbl.is Eyddi milljón í afmælisgjöf handa Mills
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Marinó Már Marinósson

Minn maður. 

Marinó Már Marinósson, 14.1.2008 kl. 23:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband