24.1.2008 | 13:08
Hvar voru þessir ungliðar í október 2007?
Það er mjög sérstakt að sjá vinstrisinnaða ungliða gera sig að fíflum á fundi borgarstjórnar Reykjavíkur. Svona mótmæli eru eins og ég hef áður vikið að barnaleg og heimsk. Mér finnst það fyrir neðan allar hellur að breyta fundi lýðræðislega kjörinna fulltrúa í hálfgerðan fótboltaleik.
Þeir sem sitja fundinn hafa umboð úr kosningum til fjögurra ára og því verður ekki breytt þó einn meirihluti falli og fylgismenn hans hafi ekki þroska eða vitsmuni til að virða lýðræðið.
Hvar voru þessir ungliðar í október 2007? Svari hver sem vill.
Þeir sem sitja fundinn hafa umboð úr kosningum til fjögurra ára og því verður ekki breytt þó einn meirihluti falli og fylgismenn hans hafi ekki þroska eða vitsmuni til að virða lýðræðið.
Hvar voru þessir ungliðar í október 2007? Svari hver sem vill.
Hávær mótmæli í Ráðhúsinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:11 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Síðuritari
Stefán Friðrik Stefánsson
Ég er í fáum orðum sagt: bjartsýnn, jákvæður, áhugamaður um pólitík, sjálfstæður, kaldhæðinn, skapheitur, kvikmyndafrík, bókaormur, Akureyringur, tónlistarspekúlant og Brekkusnigill. Netfang (MSN): stebbifr@simnet.is
Nýjustu færslur
- Gert upp við úrslit kosninga á Akureyri
- Afgerandi umboð Boris - pólitískar áskoranir nýs leiðtoga
- Boris Johnson og Jeremy Hunt berjast um Downingstræti 10
- Boris með fullnaðartök í leiðtogakjöri Íhaldsflokksins
- Boris hálfnaður í mark - ráðherraslagur um sæti í einvíginu
- Aukin spenna í einvíginu um Downingstræti 10
- Boris Johnson á sigurbraut
- Sögulegur sigur hjá Trump - áfall fyrir demókrata
- Boris í lykilráðuneyti - klókindi hjá Theresu May
- Kvennabylgja fylgir Theresu May í Downingstræti 10
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Bloggvinir
- Adda bloggar
- Adda Laufey
- Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
- Aðalheiður Ámundadóttir
- Agnar Freyr Helgason
- Agný
- Alfreð Símonarson
- Alma Guðmundsdóttir og Freyja Haraldsdóttir
- Anna
- Anna Benkovic Mikaelsdóttir
- Anna Kristinsdóttir
- Anna Steinunn Þengilsdóttir
- Anton Þór Harðarson
- Arnljótur Bjarki Bergsson
- Atli Fannar Bjarkason
- Atli Fannar Ólafsson
- Auðbergur Daníel Gíslason
- Auðun Gíslason
- Auður Björk Guðmundsdóttir
- Axel Jóhann Axelsson
- Ágúst Bogason
- Ágúst Dalkvist
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Ármann Kr. Ólafsson
- Árni Árnason
- Árni Helgason
- Árni Matthíasson
- Árni Torfason
- Árni Þór Sigurðsson
- Ásdís Rán
- Ásgeir Guðmundsson
- Ásgerður Jóna Flosadóttir
- Ásta Möller
- Baldur Hermannsson
- Baldur Kristjánsson
- Baldur Smári Einarsson
- Baldvin Jónsson
- Barði Bárðarson
- Bárður Ingi Helgason
- Bergur Thorberg
- Bergur Þorri Benjamínsson
- Bessí Jóhannsdóttir
- Birgir Ármannsson
- Birgir Leifur Hafþórsson
- Birgir R.
- Birgir Örn Birgisson
- Birgir Örn Birgisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Birna Steingrímsdóttir
- Bjarni Benedikt Gunnarsson
- Bjarni Harðarson
- Bjarni Kjartansson
- Bjarni Kristjánsson
- Bjartmar Oddur Þ Alexandersson
- Björgvin Þóroddsson
- Björk Vilhelmsdóttir
- Björn Emilsson
- Björn Kr. Bragason
- Björn Magnús Stefánsson
- Bleika Eldingin
- Blog-andinn Eyvar
- Borgar Þór Einarsson
- Bókaútgáfan Hólar
- Braskarinn
- Breki Logason
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Bryndís Haraldsdóttir
- Bryndís Helgadóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Brynjar Davíðsson
- Brynja skordal
- Bumba
- Bwahahaha...
- Böðvar Sturluson
- Carl Jóhann Granz
- Daði Einarsson
- Dagný
- Daníel Sigurður Eðvaldsson
- Davíð
- Davíð Jóhannsson
- Davíð Þór Kristjánsson
- Deiglan.com - Vefrit um þjóðmál
- DÓNAS
- Dóra litla
- Dunni
- Dögg Pálsdóttir
- Egill Bjarnason
- Egill Rúnar Sigurðsson
- Eiður Svanberg Guðnason
- Einar B Bragason
- Einar Bragi Bragason.
- Einar Helgi Aðalbjörnsson
- Einar Kristinn Guðfinnsson
- Einar Sigurjón Oddsson
- Einar Örn Gíslason
- Einhver Ágúst
- Eiríkur Sjóberg
- Elfur Logadóttir
- Elinóra Inga Sigurðardóttir
- Elín Katrín Rúnarsdóttir.
- Elliði Vignisson
- Ellý Ármannsdóttir
- Elmar Geir Unnsteinsson
- Emma Agneta Björgvinsdóttir
- E.Ólafsson
- Erla Margrét Gunnarsdóttir
- Erla Ósk Arnardóttir Lilliendahl
- Erla Ósk Ásgeirsdóttir
- Erna Friðriksdóttir
- Erna Hákonardóttir Pomrenke
- ESB
- Ester Júlía
- Ester Sveinbjarnardóttir
- Eygló Sara
- Eygló Þóra Harðardóttir
- Eyjólfur Kristinn Vilhjálmsson
- Eyþór Árnason
- Eyþór Ingi Jónsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Fannar frá Rifi
- Fannar Gunnarsson
- Fararstjórinn
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Fishandchips
- FreedomFries
- Freyr Árnason
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Friðrik Óttar Friðriksson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Fræðingur
- Gaukur Úlfarsson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Gerald Häsler
- Gestur Guðjónsson
- Gils N. Eggerz
- Gísli Aðalsteinsson
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Gísli Birgir Ómarsson
- Gísli Blöndal
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Gísli Sigurðsson
- Gísli Steinar Jóhannesson
- Gísli Tryggvason
- Grazyna María Okuniewska
- Grímur Gíslason
- gudni.is
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- Guðfinna S. Bjarnadóttir
- Guðfinnur Sveinsson
- Guðjón Baldursson
- Guðjón Helmut Kerchner
- Guðmundur Auðunsson
- Guðmundur Ásgeirsson
- Guðmundur Gunnlaugsson
- Guðmundur H. Bragason
- Guðmundur Helgi Helgason
- Guðmundur Jóhannsson
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Guðmundur Magnússon
- Guðmundur Pálsson
- Guðmundur Rafnkell Gíslason
- Guðmundur Ragnar Björnsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Guðmundur St Ragnarsson
- Guðmundur Örn Jónsson
- Guðný Jóhannesdóttir
- Guðrún Magnea Helgadóttir
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Guðrún Una Jónsdóttir
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Gunnar Axel Axelsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Gunnar Freyr Steinsson
- Gunnar Gunnarsson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Gunnar R. Jónsson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Gunnsteinn Þórisson
- Gylfi Björgvinsson
- Gylfi Þór Þórisson
- Götusmiðjan
- HAKMO
- Halla Gunnarsdóttir
- Halldóra Hjaltadóttir
- Halldór Baldursson
- Halldór Borgþórsson
- Hallgrímur Óli Helgason
- Handtöskuserían
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Hannes Sigurbjörn Jónsson
- Hannibal Garcia Lorca
- Haraldur Haraldsson
- Haraldur Huginn Guðmundsson
- Haraldur Pálsson
- Haukur Kristinsson
- Haukur Már Helgason
- Haukur Nikulásson
- Hákon Unnar Seljan Jóhannsson
- Heidi Strand
- Heiða
- Heiða Þórðar
- Heiðrún Lind
- Heimir Hannesson
- Heimir Lárusson Fjeldsted
- Heimskyr
- Heimssýn
- Helga Dóra
- Helga Lára Haarde
- Helga Nanna Guðmundsdóttir
- Helga skjol
- Helgi Jóhann Hauksson
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Helgi Már Barðason
- Helgi Seljan
- Helgi Vilberg
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Hersir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Hilmar Dúi Björgvinsson
- Himmalingur
- Hjörleifur Guttormsson
- Hlini Melsteð Jóngeirsson
- Hlynur Hallsson
- Hlynur Kristjánsson
- Hlynur Sigurðsson
- Hlöðver Ingi Gunnarsson
- Hommalega Kvennagullið
- Hrafn Jökulsson
- Hrannar Baldursson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hreiðar Eiríksson
- Hugrún Jónsdóttir
- Hugsanir
- Hulda Haraldsdóttir
- Huld S. Ringsted
- Hægrimenn í Menntaskólanum á Akureyri
- Icelandic fire sale
- Inga Dagný Eydal
- Inga Lára Helgadóttir
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Ingi Björn Sigurðsson
- Ingi Þór Ágústsson
- Ingólfur Ásgeir Jóhannesson
- Ingólfur Gíslason
- Ingólfur H Þorleifsson
- Ingólfur Þór Guðmundsson
- Ingvi Hrafn Jónsson
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Íslendingur
- Ívar Jón Arnarson
- Jakob Falur Kristinsson
- JEA
- Jens Guð
- Jens Sigurjónsson
- Jóhann Alfreð Kristinsson
- Jóhann Ágúst Hansen
- Jóhannes Þór Skúlason
- Jóhann Hauksson
- Jóhann Kristjánsson
- Jóhann Waage
- Jóhann Þorsteinsson
- Jón Agnar Ólason
- Jónas Björgvin Antonsson
- Jónas Jónasson
- Jónas Tryggvi Jóhannsson
- Jón Axel Ólafsson
- Jón Baldur Lorange
- Jón Gerald Sullenberger
- Jón Hjörleifur Stefánsson
- Jón Ingi Cæsarsson
- Jón Ingi Stefánsson
- Jónína Benediktsdóttir
- Jón Lárusson
- Jón Magnússon
- Jón Ragnar Björnsson
- Jón Sigurðsson
- Jón Sigurgeirsson
- Jón Svavarsson
- Jón Valur Jensson
- Jón Þór Ólafsson
- Jórunn Ósk Frímannsdóttir
- jósep sigurðsson
- Júlíus Garðar Júlíusson
- Júlíus Sigurþórsson
- Júlíus Valsson
- Kafteinninn
- Karl Gauti Hjaltason
- Katrín Anna Guðmundsdóttir
- Kári Finnsson
- Kári Sölmundarson
- Kári Tryggvason
- Ketilás
- Killer Joe
- Kjartan Magnússon
- Kjartan Pálmarsson
- Kjartan Vídó
- Kolbrún Baldursdóttir
- Kolbrún Gígja Gunnarsdóttir
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Kristinn Ágúst Friðfinnsson
- Kristinn Ingi Jónsson
- Kristin stjórnmálasamtök
- Kristín Björg Þorsteinsdóttir
- Kristín Einarsdóttir
- Kristín Erla Kristjánsdóttir
- Kristín Hrefna
- Kristján Freyr Halldórsson
- Kristján Hreinsson
- Kristján L. Möller
- Kristján Pétursson
- Kristján P. Gudmundsson
- Kristlaug M Sigurðardóttir
- Krummi
- Lára Stefánsdóttir
- Leikhópurinn Lotta
- Lilja G. Bolladóttir
- Lilja Ingimundardóttir
- Listasumar á Akureyri
- Lísa Björk Ingólfsdóttir
- Logi Már Einarsson
- Maður dagsins
- Magnús Paul Korntop
- Magnús Þorlákur Lúðviksson
- Margrét Birna Auðunsdóttir
- Margrét Elín Arnarsdóttir
- Margrét Sverrisdóttir
- Marinó Már Marinósson
- María Anna P Kristjánsdóttir
- María Guðjóns
- María Magnúsdóttir
- MARKAÐSSETNING Á NETINU
- Marta Guðjónsdóttir
- Matthias Freyr Matthiasson
- Mál 214
- Methúsalem Þórisson
- MIS
- Morgunblaðið
- Móðir, kona, sporðdreki:)
- Myndlistarfélagið
- Nanna Katrín Kristjánsdóttir
- Námsmaður bloggar
- Oddur Helgi Halldórsson
- Óðinn
- Óðinn Þórisson
- Ólaf de Fleur Jóhannesson
- Ólafur fannberg
- Ólafur N. Sigurðsson
- Ólafur Th Skúlason
- Ólafur Valgeirsson
- Ólafur Þór Gunnarsson
- Ólafur Örn Nielsen
- Óli Sveinbjörnss
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Ólöf Jóhanna Pálsdóttir
- Ólöf Kristín og Ólöf Rut
- Ólöf Nordal
- Ómar Pétursson
- Ómar Ragnarsson
- Ómar Örn Hauksson
- Óskar Sigurðsson
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Óskar Örn Guðbrandsson
- Óttar Felix Hauksson
- Óttarr Makuch
- Óþekki embættismaðurinn
- Panama.is - veftímarit
- Paul Nikolov
- Pálína Erna Ásgeirsdóttir
- Páll Heimisson
- Páll Ingi Kvaran
- Páll Kristbjörnsson
- Páll Rúnar Elíson
- Páll Sævar Guðjónsson
- Páll Vilhjálmsson
- Pálmi Freyr Óskarsson
- Pálmi Gunnarsson
- peyverjar
- Pétur Björgvin
- Pétur Sig
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Pjetur Stefánsson
- Pollurinn
- Púkinn
- Rafn Gíslason
- Ragnar Arnalds
- Ragnar Bjarnason
- Ragnar Ólason
- Ragnar Páll Ólafsson
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Ragnheiður Ólafía Davíðsdóttir
- Ragnheiður Ríkharðsdóttir
- Ragnhildur Sverrisdóttir
- Reynir Antonsson
- Reynir Jóhannesson
- Róbert Þórhallsson
- Ruth
- Rúnar Birgir Gíslason
- Rúnar Haukur Ingimarsson
- Rúnar Óli Bjarnason
- Rúnar Þórarinsson
- Rýnir
- Samtök Fullveldissinna
- Saumakonan
- Señorita
- Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
- Sigfús Sigurþórsson.
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Sigmar Guðmundsson
- Sigríður Gísladóttir
- Sigríður Hrönn Elíasdóttir
- Sigurbjörn Svavarsson
- Sigurður Á. Friðþjófsson
- Sigurður Ingi Jónsson
- Sigurður Jónsson
- Sigurður Kári Kristjánsson
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Þórðarson
- Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
- Sigurjón Benediktsson
- Sigurjón Sveinsson
- Sigurjón Þórðarson
- Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
- Sigvaldi Kaldalóns
- Sindri Kristjánsson
- Sjálfstæðissinnar
- Sjensinn Bensinn
- Skafti Elíasson
- Snorri Bergz
- Snorri Sigurðsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Stefanía
- Stefanía Sigurðardóttir
- Stefán Jón Hafstein
- Stefán Þór Helgason
- Stefán Þórsson
- Stefán Örn Viðarsson
- Steingrímur Helgason
- Steini Bjarna
- Steinn E. Sigurðarson
- Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir
- Stjórn Eyverja
- Sunna Dóra Möller
- Svala Jónsdóttir
- Svanur Kári Daníelsson
- Svanur Sigurbjörnsson
- Svavar Alfreð Jónsson
- Sveinn Arnarsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Sveinn Ingi Lýðsson
- Sveinn Tryggvason
- Sverrir Einarsson
- Sverrir Stormsker
- Sverrir Þorleifsson
- Sverrir Þór Garðarsson
- Sædís Ósk Harðardóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Sævar Finnbogason
- Sæþór Helgi Jensson
- TARA
- Thelma Ásdísardóttir
- Theodór Bender
- ThoR-E
- Tiger
- Tíðarandinn.is
- TómasHa
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Trúnó
- Tryggvi F. Elínarson
- Tryggvi Gíslason
- Tryggvi H.
- Unnur Brá Konráðsdóttir
- Úlfur
- Vaka, félag lýðræðissinnaðra stúdenta
- valdi
- Valdimar H Jóhannesson
- Valgeir Ómar Jónsson
- Valsarinn
- Varðhundar frelsisins
- Varmársamtökin
- Vefritid
- Vestfirðir
- viddi
- Viðar Freyr Guðmundsson
- Viktor Borgar Kjartansson
- Viktoría Rán Ólafsdóttir
- Vilborg G. Hansen
- Vilborg Valgarðsdóttir
- Vilhjálmur Árnason
- Vilhjálmur Sveinn Björnsson
- Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson
- Vinir Ítalíu,VITA
- Vinir Ketils bónda, áhugamannafélag
- VÞV
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Þjóðleikhúsið
- Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir
- Þorleifur Ágústsson
- Þorleifur Leó Ananíasson
- Þorsteinn Erlingsson yngri
- Þorsteinn Gunnarsson
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Þorsteinn Magnússon
- Þóra Guðmundsdóttir
- Þóra Kristín Hauksdóttir
- Þórarinn Eldjárn
- Þórður Björn Sigurðsson
- Þórður Steinn Guðmunds
- Þórður Vilberg Guðmundsson
- Þórir Aðalsteinsson
- Þórólfur Ingvarsson
- Þórólfur S. Finnsson
- Þráinn Árni Baldvinsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Ævar Rafn Kjartansson
- Öll lífsins gæði?
- Örlygur Hnefill Örlygsson
- Örvar Már Marteinsson
Athugasemdir
Þeir voru þar sem almenningsálit var: að fylgja breyttum meirihluta. Yfirgnæfandi stuðningur var í Reykjavík við þær breytingar. Enginn getur mögulega sagt það sama við þessar. Sjá mína eigin seinnustu bloggfærslu nánar um skoðanir mínar á þessari röngu rökfærslu að bera sífellt þetta tvennt saman.
Friðrik Jónsson, 24.1.2008 kl. 13:13
ef vinstri menn fá ekki að ráða þá verða þeir reiðir og öskra og æpa. Ég vitna núna í Svandísi. Þegar fráfrandi meirihluti var mynndaður þá þurfti ekki að kalla á lögreglu vegna láta. Ekki fórum við alveg brjálaðir sjálfstæðismenn, niður í ráðhús grenjandi af reiði og biturleika.
Vinstri ungliðar hafa verið sér til skammar. Þeir telja sig að vera að verna lýðræðið. lýðræðið var í síðustu kosningum. Þá var kosið. Meirihluti kjósenda kaus núverandi meirihluta.
Vinstir ungliða hræsnarar.
Fannar frá Rifi, 24.1.2008 kl. 13:18
Friðrik: Það verður að virða fundarsköp. Þetta er ekki handboltaleikur með frammíköllum og húrrahrópum. Hafi menn ekki fundarfrið á að rýma pallana og það hefur verið gert. Vinstrisinnuðu ungmennin hafa fært ungliðapólitíkina á lágt plan í dag, mjög lágt. Þvílíkir helvítis hræsnarar!
Alex: Skoðanakannanir eru ekki kosningar. Hef fullan skilning á að væringar séu. En lýðræðislega kjörnum meirihluta á að gefa færi á að taka til starfa og vinna verkin. Það hefur verið myndaður nýr meirihluti með afgerandi umboð.
Þessi ungmenni létu eins og fífl áðan. Þetta er bara hræsni. Það gilda fundarsköp og þau er ekki hægt að sveigja fyrir vinstrimenn í fýlu yfir því að finna fyrir sömu meðölum og þeir hafa beitt áður.
Sammála hverju orði Fannar.
Stefán Friðrik Stefánsson, 24.1.2008 kl. 13:25
Eru mótmæli heimsk? Er ekki okkar réttur að mótmæla? Hvernig ætlast þú til þess að fólk mótmæli?
Ansi hart að þið sjálfstæðismenn talið niður til fólksins í borginni með þessum hætti. Þetta er bara valdablindni og valdníðsla.
Unnar, 24.1.2008 kl. 13:28
Er 75% þjóðarinnar vinstrimenn?? Það eru engin flokksskirteini á því fólki sem þarna mótmælir - enda gera þau það á sýna ábyrgð.
Við höfum látið bjóða okkur allt of mikið - mér finnst allt í lagi að fólk mótmæli. stórum hluta almennings mislíkar það sem er að gerast og því í lagi að láta í sér heyra.
Eggert Hjelm Herbertsson, 24.1.2008 kl. 13:34
Unnar: Já, mótmæli í borgarstjórnarsalnum sjálfum eru algjörlega til skammar. Það að tryggja ekki fundarfrið þar sem sitja lýðræðislega kjörnir fulltrúar er til skammar. Það er eitt að mótmæla úti en annað að færa það inn og það er bannað skv. fundasköpum sveitarstjórna. Þeim er ekki breytt fyrir fúla vinstrimenn sem eru að missa völdin.
Alex: Það er ekkert að því að mótmæla. En þarna eru fundarsköp brotin og ber að rýma salinn og það hefur verið gert. Mér finnst þessi mótmæli áðan og tilraun til að koma í veg fyrir fund í sal borgarstjórnar til skammar. Þetta eru því miður bara hræsnarar sem þarna saman koma. Fyrir hundrað dögum tóku stjórnmálamenn þeirra við völdum með sama hætti og er að gerast í dag með nýjan meirihluta.
Stefán Friðrik Stefánsson, 24.1.2008 kl. 13:36
Skoðanna kannanir þær sem Fréttablaðið notar eru nær ómarktækar með öllu. Hver sá sem hefur lært eitthvað um skoðanna kannanir veit það. Þær eru teknar af fáum einstaklingum og skekkjumörk þeirrar tegundar sem Fréttablaðið notar eru gríðarleg.
Síðan eru netskoðanna kannanir og einhverjir undirskriftar listar ómarktækir með öllu.
Fannar frá Rifi, 24.1.2008 kl. 13:38
Eggert: Þetta er mjög barnalegt. Það er afleitt að sveigja fundarsköp fyrir frústreraða vinstrimenn sem eru þarna. Hef verið það lengi í ungliðapólitík að ég sá vel hvaða fólk var þarna að meginhluta séð, þetta voru aðallega vinstriungliðar.
Stefán Friðrik Stefánsson, 24.1.2008 kl. 13:39
Ég er ekki sammála þér Stefán að hér séu uppi sömu aðstæður og fyrir ca. 100 dögum síðan. Þá slitnaði upp úr samstarfi D og B vegna ágreinings um gríðarlega mikilvægt og stórt pólítískt málefni; OR, GGE og REI. Geturðu bent mér á hvernig þú sérð þessar aðstæður í sama ljósi?
Sindri Kristjánsson, 24.1.2008 kl. 13:41
Spyrjum okkur. Hvað höfðu þessir sömu mótmælendur sagt ef við hefðum fjölmennt á pallanna í ráðhúsinu öskrandi okkar hás?
Grenjandi eftir að misst áhrif og völd. ég meina þetta er bara spurning um völd. Ekki voru það nein málefni sem fráfarandi meirihluti stóð fyrir. eða getur einhver bent mér á eitthvað málefni annað en að halda í völdin og þagga niður Rei málið, sem fráfarandi meirihuti stóð fyrir?
Fannar frá Rifi, 24.1.2008 kl. 13:46
Stebbi:
Fyrir þremur mánuðum voru borgarbúar búnir að fylgjast með óförum fráfarandi meirihluta, sér í lagi sjálfstæðismanna og algjöru getuleysi þeirra til að stjórna borginni. Þetta lýsti sér m.a. í:
Ef þetta snýst um málefni hjá Ólafi hefði hins vegar verið hægt að bjarga síðasta meirihluta bara með því að Óafur hefði látið vita að hann væri óánægður - það gerði hann aldrei!
Og einu sinni enn, Stebbi, vegna þess að ég sá hjá þér að þú ert enn að tala um svik Björns Inga:
Hanna Birna Kristjánsdóttir lýsti því sjálf af hverju síðasti meirihluti féll - "Það hefði ekki verið neitt mál að komast að samkomulagi bara ef Björn Ingi hefði fallist á skoðanir okkar". Þegar menn líta svoleiðis á samstarf þá er það engin svik að yfirgefa það!
Ekki það, ég er alls ekki hrifinn af störfum Björns Inga, en það er bara ein ástæða fyrir því að meirihluti hans og Sjálfstæðisflokksins féll: Algjört getuleysi Sjálfstæðisflokksins til að fara með vald. Það mun koma í ljós aftur á næstu dögum - þessi meirihluti verður ekki út árið, það er á hreinu!
Steingrímur Jónsson (IP-tala skráð) 24.1.2008 kl. 13:53
Hvað höfðu þessir sömu mótmælendur sagt ef við hefðum fjölmennt á pallanna í ráðhúsinu öskrandi okkar hás?
Sennilega minna en "þið" því þegar öllu er á botnin hvolft þá munu þessi mótmæli ein og sér sennilega ekki breyta neinu. Fólk hefur hins vegar rétt á að láta í sér heyra þó svo að það megi deila um hvaða leið sé best að fara í því.
Grenjandi eftir að misst áhrif og völd.
Það hefur verið talað um einhverja hræsni hér að hálfu mótmælenda. Hvað hefur breyst núna frá því að Villi og Ólafur ræddu saman eftir kosningar en náðu ekki saman?
Sindri Kristjánsson, 24.1.2008 kl. 13:57
Stebbi er þetta barnalegt? En er þetta ekki ungt fólk sem er að mótmæla? Ungt fólk má vera barnalegt.
Ungt fólk á að vera ástríðufullt, sýna tilfinningar, láta ekki allt yfir sig ganga. Ég er ánægður með það fólk sem hér mótmælti. Á meðan ekki er um ofbeldi að ræða, né margra daga mótmæli, þá er þetta í góðu lagi.
Eggert Hjelm Herbertsson, 24.1.2008 kl. 14:02
Sindri: Meirihlutinn féll í október vegna þess að borgarfulltrúi Framsóknarflokksins treysti sér ekki til að vinna með Sjálfstæðisflokknum áfram. Það höfðu verið væringar innan meirihlutans og þeim lauk með þessum hætti. Hann fór með atkvæði sitt annað og hafði til þess fullan rétt. Ólafur F. Magnússon virðist greinilega ekki hafa verið sáttur í nýjum meirihluta, ekki fundist áherslur sínar verið að fá nógu gott vægi og það hefur verið talað um að krafan um læknisvottorðið hafi skemmt samskipti hans og Margrétar Sverrisdóttur, svo að óbrúanleg gjá var milli þeirra. Ólafur samdi ekki um meirihlutann á þeim tíma, enda fjarri.
Hann virðist ekki hafa verið sáttur með stöðu mála, sérstaklega með að enginn málefnasamningur var, en þau náðu aldrei saman um slíkt plagg á hundrað dögum. Málefnasamningur er í öllum sveitarstjórnum grunnur meirihlutasamstarfs. Svo að hann fer annað með sitt atkvæði, eins og Björn Ingi. Var ósáttur. Hann hefur fullt vald til þess.
Steingrímur: Meirihlutinn féll í október og hinn féll svo hundrað dögum síðar. Þetta er víst bara svona. Það gerist í sveitarfélögum um allt land að meirihlutar geti komið og farið þar sem enginn afgerandi meirihluti eins afls eða bandalag hafi völd úr kosningum. Það er ekkert við því að gera. Þetta er eðli stjórnmála að samstarf hefst og því getur lokið.
Fannar: Sammála.
Sindri (aftur): Ég er ekki að tala gegn standard mótmælum, eins og voru fyrir fundinn. Það að ætla að breyta borgarstjórnarfundinum í skrípaleik með fótboltaleiksframmíköllum er til skammar. Sjálfur hef ég tekið þátt í mótmælum, fyrir utan þinghúsið þegar að Li Peng kom (komum í veg fyrir að hann kæmist í þinghúsið) og er Jiang Zemin kom. Þá vorum við öll ungliðafélögin samstíga. Það var gaman. En það að halda þessu áfram og öskra á kjörna fulltrúa inni á fundinum; þetta er til skammar.
Eggert: Mér finnst þetta til skammar inni á fundinum, fer ekki ofan af því. Þú hefðir verið annarrar skoðunar hefði þetta verið meirihlutaskiptin í október og ungir sjálfstæðismenn hefðu gert þetta. Það var hiti í Heimdallarfólki þá vissulega en það hvarflaði að engum að gera svona þá, þó hiti hafi verið í fólki. Þau mótmæltu bara með greinaskrifum og ályktunum, sem voru reyndar mjög hófstilltar miðað við svik framsóknarmanna, sem gerðu marga reiða. Það er alltaf gott að geta fundið listina við að mótmæla málefnalega. Þetta öskur í fundarsalnum og brot á fundarsköpum var barnaskapur.
Stefán Friðrik Stefánsson, 24.1.2008 kl. 14:08
Stebbi: Þetta er einhver mesta svarleysa sem ég hef nokkurn tíma séð hjá þér!
Þú spyrð af hverju ungliðar mótmæltu ekki í október, en gera það nú og ég bendi þér á aðstæðurnar eru allt, allt, öðruvísi nú en í október - og ef út í það er farið eru aðstæður nú allt, allt öðruvísi en hafa verið þegar aðrir meirihlutar hafa sprungið - það hafa alltaf verið ágreiningur fyrir - en hann var enginn í þessu tilviki! Lestu aftur svarið og svaraðu því málefnalega - er ég að fara eitthvað rangt með?
En það er gott að sjá að þú sért búinn að sjá að síðasti meirihluti féll ekki vegna svika Björns Inga. Þú bjallar kannski í Þorbjörgu Helgu og bendir henni á það - hún sagði að það væri allt í lagi að svíkja sig inn í nýjan meirihluta vegna þess að Björn Ingi byrjaði á því!
Steingrímur Jónsson (IP-tala skráð) 24.1.2008 kl. 14:36
Sæll Stebbi
Tek heilshugar undir með þér að þetta er hálvitaháttur að láta svona og brjóta öll fundarsköp, en því miður er þetta gott dæmi um það aga- og virðingaleysi sem að hefur grasserað á Íslandi síðustu ár.
Það þykir flott á meðal ákveðinna hópa að mótmæla og láta öllum illum látum og svo er öskrað "löglegluríki" um leið og þetta fólk er beðið um að virða lög og reglur.
Hjá þeim er bara ein rétt skoðun og það er þeirra eigin og virðast þau tilbúin til þess að vaða yfir allt á skítugum skónum til þess koma því á framfæri.
Þarf varla að taka fram að ég er ánægður með þróun mála í borginni.
Kveðja Ómar
Ómar Pétursson (IP-tala skráð) 24.1.2008 kl. 14:38
Ómar: Takk kærlega fyrir kommentið - algjörlega sammála hverju orði.
Steingrímur: Með orðum þínum ertu að segja að það hefði mun frekar átt að vera læti í október, þá voru mun meiri tilfinningar í falli meirihlutans þar sem málið var mun stærra að þínu mati. Þú hefur þessar skoðanir bara af því að meirihlutaskiptin þá þýddu valdamissi Sjálfstæðisflokksins en nú kemst hann til valda og þá er í lagi að mótmæla. Verum ekkert að tala í kringum hlutina. Það var ágreiningur þá og enginn saklaus. Ég skrifaði harkalega gegn REI-málinu og varði ekkert í því. Ég er ekki blindur flokkshestur og þori alveg að tala hreint út.
Stefán Friðrik Stefánsson, 24.1.2008 kl. 15:37
Flott hjá þér Stefán að halda með lýðræðinu og á móti "almenningsálitinu" sama hvað það er. Það eru ákveðnar reglur sem gilda en vinstrimenn hreinlega skilja það ekki að það eina sem skiptir máli er það sem kemur upp úr kjörkössunum en ekki skoðanakannanir Frétttablaðsins sem teknar eru í hita leiksins. Stjarna dagsins finnst mér vera Hanna Birna sem stóð sig frábærlega á móti öskrandi "skrílnum", hélt ró sinni og kurteisi við mjög erfiðar aðstæður. Finnst að Villi eigi fyrr en seinna að rýma fyrir henni sem framtíðar leiðtoga sjálfstæðismanna í borginni. Hún verður flottur Borgarstjóri að ég held. Eða hvað finnst þér??
Pétur Svavarsson (IP-tala skráð) 24.1.2008 kl. 16:16
Nákvæmlega! Fundarsköp ber að virða, og það er það sem við setjum út á þegar við gagnrýnum hvernig þessi mótmæli fóru fram. Alveg sjálfsagt í ríki þar sem málfrelsi ríkir að fólk mótmæli því sem það er ósátt við, en hlutir geta farið út í öfgar og jafn vel snúist upp í andhverfu sína ef vitlaust er að farið.
Ég er jafnframt sammála Pétri, Hanna Birna stóð sig vel og er vel efni í borgarstjóra í framtíðinni.
Björn Kr. Bragason, 24.1.2008 kl. 22:25
Alveg sammála þér Pétur. Hanna Birna er mikil pólitísk stjarna að mínu mati. Frábær forystukona í pólitík; röggsöm og traust - kjarnakona. Finnst hún langframbærilegasta leiðtogaefnið á næstu árum.
Gott að við erum sammála Jón.
Takk fyrir gott komment Björn. Gott að við erum sammála um þetta, og já Hanna Birna er flott.
Stefán Friðrik Stefánsson, 25.1.2008 kl. 01:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.