Eric Clapton að koma til Íslands

Eric Clapton Það verður ekki um það deilt að Eric Clapton er einn besti tónlistarmaður síðustu áratuga, goðsögn í lifanda lífi. Það er því mjög ánægjulegt að hann sé að koma til Íslands og halda tónleika. Loksins, loksins, segja eflaust helstu aðdáendur hans. Clapton hefur verið goð sinnar kynslóðar og að svo mörgu leyti annarra. Auðvitað ekki vegna margfrægs lífstíls síns, heldur umfram allt tónlistarinnar. 

Aldrei hefur Clapton þó snortið mig og eflaust fleiri meira en þegar að hann samdi og söng hið undurljúfa lag sitt Tears in Heaven - þar braust rokkgoðið harða og ákveðna allt að því fram með tárin í augunum og samdi kveðjuóð til sonar síns, Connors, sem hafði látist með sorglegum hætti í New York. Þar fór lífsreyndi rokkarinn með tilfinningar, eins og við öll, en líka faðirinn með ábyrgðartilfinninguna sem hafði boðskap fram að færa - talaði hreint út, lét tilfinningarnar koma óhikað. Og lagið er einstakt.



Annars er erfitt að nefna bestu lög Claptons, en þau sem koma helst í huga mér eru lög á borð við; Layla, Tears in Heaven, Crossroads, Bellbottom Blues, Have You Ever Loved A Woman, Badge, Cocaine, I Shot the Sheriff, My Father´s Eyes, Change the World, Old Love og Wonderful Tonight. Allt perlur rokksögunnar að sínu leyti, minnisvarði um rokkgoð.

Eric Clapton er einn þeirra sem hefur flutt sterk og eftirminnileg lög, sem þekja allan skalann, eru eftirminnileg, ekkert síður en karakterinn á bakvið lögin. Gott að fá hann hingað á konsert. Verður hann ekki Íslandsvinur með því?


mbl.is Clapton með tónleika á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingi Björn Sigurðsson

Ég er sammála að Clapton sé gítarsnillingur og afburðarlagahöfundur. Ég er samt ekki að sjá að hann hafi markað djúpspor á síðustu áratugum. Sannleikurinn er sá að hann hefur gefið út þrjár plötur með frumsömdu efni á síðustu tuttugu árum. Það eru ekkert sérstök afköst hjá skapandi tónlistarmanni.

Ég verð upptekin þennan dag, hefði ekki farið á tónleika með honum. Ég er ekki að meika að fara á tónleika þar sem tónlistamenn eru að covera sjálfan sig eins og þeir voru þegar þeir voru upp á sitt besta. En sem betur fer deila fæstir þessari skoðun minni og það verður bókað uppselt á Clapton 

Ingi Björn Sigurðsson, 11.2.2008 kl. 12:52

2 Smámynd: Haukur Nikulásson

Clapton er löngu orðinn Íslandsvinur. Hann kemur hér reglulega í veiðiskap. Sjálfur mun ég mæta á þennan konsert. Vil bara fá gott sæti.

Haukur Nikulásson, 12.2.2008 kl. 09:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband