Sextugsafmæli í skugga stjórnmálahneykslis

Olmert í skugga SharonsÍ dag eru sex áratugir liðnir frá stofnun Ísraelsríkis. Merkilegur dagur. Afmælið hefur þó fallið í skuggann á hneykslismálum tengdum Ehud Olmert, forsætisráðherra, en hann hefur veikst mjög í sessi síðustu dagana og búist jafnvel við að hann segi af sér á næstu dögum. Olmert hefur aldrei náð að tryggja stöðu sína vel eftir að Líbanon-skýrslan var opinberuð fyrir ári, en honum tókst með pólitískum klækjum að halda velli þá.

Rúmum tveim árum eftir að pólitíski skriðdrekinn Ariel Sharon hvarf af sjónarsviði stjórnmálanna í Mið-Austurlöndum vegna alvarlegra veikinda hefur Olmert tekist að grafa algjörlega undan trúverðugleika sínum og Kadima, flokksins sem Sharon stofnaði skömmu fyrir leiðarlokin og Olmert leiddi til kosningasigurs í mars 2006 - fyrst og fremst vegna minningarinnar um stjórnmálamanninn Ariel Sharon. Hann hélt völdum á bylgju samúðar og styrkleika Sharons fyrst og fremst.

Ári eftir að Ariel Sharon fékk heilablóðfallið sem sló hann út af hinu pólitíska sviði spurðu ísraelskir fréttaskýrendur hvað Sharon myndi eiginlega segja ef hann vaknaði við það stjórnmálaástand sem væri í Ísrael þá miðað við hina traustu stjórn hans á málum allt þar til í janúar 2006. Þetta var fyrst og fremst grín vissulega en um leið fúlasta alvara. Það var allt gjörbreytt. Olmert hafði mistekist að taka völdin föstum tökum og gert afdrifarík mistök æ ofan í æ. Það syrtir sífellt meir í álinn hjá honum.

Ekki er undrunarefni að talað sé um mikilvægi þess að Ehud Olmert eigi að segja af sér. Ég tel að hann eigi að gera það, fyrst og fremst til að tryggja það að þau þáttaskil sem Ariel Sharon vildi tryggja með tilkomu Kadima klúðrist ekki algjörlega. Likud styrkist sífellt og að öllu óbreyttu mun Likud verða endurbyggt sem lykilafl að nýju. Kadima er rúin trausti. Það eina sem Olmert getur gert er að segja af sér meðan stætt er fyrir hann.

Viðeigandi væri nú að Tzipi Livni, utanríkisráðherra Ísraels, og næst valdamesti stjórnmálamaður Ísraels tæki við. Hún er fimmtug, sterk stjórnmálakona sem boðar nýja tíma í ísraelskum stjórnmálum og hefði í raun frekar átt að taka við Kadima en Olmert, sem þrátt fyrir langan stjórnmálaferil hefur ekki staðið undir væntingum.


mbl.is Ísraelsríki sextíu ára
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband