Ólafur Ragnar heiðrar Steingrím Hermannsson

Ólafur Ragnar Á morgun verður Steingrímur Hermannsson, fyrrum forsætisráðherra, áttræður. Afmælinu verður fagnað með málþingi í Kópavogi. Athygli vekur að Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, mun flytja þar ræðu Steingrími til heiðurs. Steingrímur og Ólafur Ragnar hafa lengi unnið saman í stjórnmálum, en þeir voru í þrjú ár samstarfsfélagar í síðustu vinstristjórn á Íslandi, 1988-1991, þar sem Steingrímur var forsætisráðherra en Ólafur Ragnar var fjármálaráðherra.

Langt er um liðið síðan Ólafur Ragnar hóf stjórnmálaferil sinn, sem varð stormasamur og litríkur en hann kom við í nokkrum flokkum áður en hann hélt til Bessastaða og sagði sig þá úr Alþýðubandalaginu, þar sem hann var formaður í átta ár. Fyrstu skrefin voru þó stigin innan Framsóknarflokksins. Alla tíð var Ólafur Ragnar umdeildur, ekki síður innan Framsóknarflokksins en á öðrum þeim vettvangi sem hann valdi sér áður en að hann varð forseti Íslands, með fyrri eiginkonu sína, Guðrúnu Katrínu Þorbergsdóttur, sér við hlið fyrir tólf árum. Hin mikla gæfa Ólafs Ragnars var þá að vera vel giftur.

Ólafur Ragnar sat í miðstjórn Framsóknarflokksins 1967-1974 og í framkvæmdastjórn 1969-1973. Á þessum fyrstu árum Ólafs Ragnars í Framsóknarflokknum var Eysteinn Jónsson, formaður flokksins. Eysteinn var öflugur maður í íslenskri stjórnmálabaráttu. Hann varð yngstur allra ráðherra, leiddi flokkinn og var lengi forystumaður á sínum heimavelli í pólitík fyrir austan. Í skjóli Eysteins Jónssonar hóf Ólafur Ragnar Grímsson stjórnmálaþátttöku sína. Það kom mér því ekki að óvörum þegar forsetinn Ólafur Ragnar Grímsson flutti ávarp til heiðurs Eysteini á aldarafmæli hans í nóvember 2006.

Eysteinn Jónsson Þar var talað af virðingu um pólitísk verk Eysteins og forystu hans. Eysteinn varð aldrei forsætisráðherra, en setti mikið mark á Framsóknarflokkinn og pólitískt landslag um áratugaskeið. Sennilega er ekki ofmælt að framsóknarleiðtoginn Eysteinn hafi verið pólitískur lærifaðir Ólafs Ragnars og leikið lykilhlutverk í hans pólitíska lífi. Þetta staðfestir Ólafur Ragnar í aldargreininni og minningargrein sumarið 1993. Þar segir Ólafur Ragnar frá bílferð þeirra og Sólveigar, eiginkonu Eysteins, en hann var þá að keyra þeim á milli staða, ungur maður á leið til náms erlendis.

Segir Ólafur Ragnar svo í minningargreininni um það er Eysteinn, þar í þeirri ferð, tilkynnti Ólafi Ragnari að hann ætlaði að hætta formennsku í flokknum árið 1968: Í skugga sólarinnar, sem sleikti hin sögufrægu fjöll, sagði hann mér að nú ætlaði hann að hætta formennsku í Framsóknarflokknum. Rétti tíminn væri kominn. Honum varð ekki þokað þótt ég beitti öllum þrótti og ákafa ungs manns til að telja honum hughvarf. Auðvitað lét svo sterkur stofn íslenskra stjórnmála ekki ungan strák hagga sér. Hugurinn var skýr. Ákvörðunin hafði verið tekin. Rökin voru margvísleg en þó var fjarri því að hann ætlaði að draga sig í hlé.

Í upphafi áttunda áratugarins lenti Ólafur Ragnar upp á kant við forystu flokksins og hann stofnaði ásamt fleirum ungliðum í Framsóknarflokknum, samtök Möðruvellinga, sem voru til vinstri í flokknum. Ólafur Ragnar vildi kanna þann kost að sameina Framsóknarflokkinn og vinstri flokkana í einn flokk. Ólafur Jóhannesson, sem á þeim tíma var forsætisráðherra og formaður Framsóknarflokksins, var andvígur þessum hugmyndum og Ólafur Ragnar yfirgaf flokkinn ásamt samherjum sínum með miklum hvelli. Hann gekk þá í flokk Hannibals Valdimarssonar, Samtök frjálslyndra og vinstri manna og var t.a.m. formaður framkvæmdastjórnar flokksins 1974-1976. Eftirmálann þekkja allir.

Steingrímur Hermannsson rakti eftirminnilega sameiginlega pólitíska sögu sína og Ólafs Ragnars Grímssonar í ævisögu sinni. Þeir voru ekki samherjar í lykilmálum sem leiddu til þess að Ólafur Ragnar sagði skilið við Framsóknarflokkinn og samstarf við Steingrím Hermannsson, en um tíma leit svo út fyrir að þeir myndu leiða Framsókn saman hlið við hlið. Þeir komu þó saman síðar og mynduðu stjórn sem komst í sögubækurnar fyrir ýmsa hluti. Aftur mætast þeir nú á áttræðisafmæli framsóknarleiðtogans. 

Eflaust mun Ólafur Ragnar mæra afmælisbarnið Steingrím með sama hætti og Eystein, þann stjórnmálamann sem mest mark setti á hann og mótaði til framtíðar. Fróðlegt verður að lesa um hvaða sess Steingrímur skipar í pólitískri sögu hans, nú þegar að Ólafur Ragnar heldur áfram að heiðra framsóknarleiðtoga fyrri tíðar í ræðuhöldum.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband