Fjölskylduharmleikur Jennifer Hudson

Dapurlegt að heyra fréttirnar af morðinu á móður og bróður óskarsverðlaunaleikkonunnar og söngkonunnar Jennifer Hudson. Eftir mikla velgengni síðustu árin er þetta þungt högg fyrir hana og fjölskylduna.

Jennifer Hudson hefur á skömmum tíma farið sigurför um allan heim og orðin stórstjarna. Hún hefur unnið öll helstu kvikmyndaverðlaun heimsins fyrir leik sinn í Dreamgirls og náði að stimpla sig á kortið með glans.

Hudson varð reyndar fyrst fræg sem þátttakandi í American Idol. Hún var eftirlæti dómaranna og þótti mjög sigurstrangleg. Flest stefndi í að hún kæmist mjög langt. Mörgum að óvörum féll Hudson úr keppni um mitt keppnistímabilið.

Svo fór síðar að Fantasia Barrino vann keppnina. Jennifer Hudson er nú orðin margfalt meiri stjarna en Fantasia og vann meira að segja samkeppni við hana um hlutverkið í Dreamgirls.

mbl.is Móðir og bróðir söngstjörnu skotin til bana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Jennifer Hudson ... Fantasia Barrino ... Dreamgirls???  Hver er þetta fólk og hvað kemur þetta okkur við?

H.T. Bjarnason (IP-tala skráð) 25.10.2008 kl. 13:39

2 Smámynd: Anna Dóra Gunnarsdóttir

Velgengni eða ekki, svona atburður er alltaf þungt högg fyrir ástvini og vini.

Anna Dóra Gunnarsdóttir, 25.10.2008 kl. 15:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband