McCain vs. Obama > 2 dagar

Obama-McCain
Æ líklegra verður nú að Barack Obama verði kjörinn 44. forseti Bandaríkjanna eftir 48 klukkustundir. Forskot Obama er enn það traust og afgerandi í flestum könnunum að það yrði pólitískt kraftaverk tækist John McCain að komast í Hvíta húsið. McCain-sigur úr þessu yrðu merkilegustu úrslit í bandarískum forsetakosningum frá árinu 1948 þegar Thomas Dewey, fyrrum ríkisstjóri í New York, tapaði fyrir Harry S. Truman, sitjandi forseta, þvert á allar skoðanakannanir, en hann hafði tapað fyrir Roosevelt og Truman fjórum árum áður.

Harry S. Truman birtist sigri hrósandi á kosninganótt, eftir að hafa skellt Dewey og tryggt sér eigið kjörtímabil í Hvíta húsinu (hann var kjörinn sem varaforseti Roosevelts og tók við þegar hann varð bráðkvaddur skömmu fyrir stríðslok vorið 1945), og veifaði forsíðu Chicago Daily Tribune með stríðsletrinu Dewey Defeats Truman. Blaðið tók sénsinn og ákvað að veðja á Dewey. Ef McCain sigrar Obama úr þessu myndi hann örugglega minna á Truman veifandi hinu seinheppna blaði frá Chicago, heimaborg keppinautarins.

Ég er sammála því mati að kosningabaráttan, sérstaklega lokaspretturinn, minnir ískyggilega mikið á það þegar Bill Clinton skellti hinum reynda Bob Dole árið 1996 og reyndar ekki síður þegar hann sigraði George H. W. Bush fjórum árum áður. Báðir voru lánlausir og áttu mjög erfitt í baráttu við mun yngri frambjóðenda, sem hafði stærsta sóknarfærið á umbrotatímum, gat boðið ferska og nýja forystu gegn gömlu tímunum. Þó McCain hafi aldrei ráðið ríkjum í Hvíta húsinu eða ráðuneyti í forsetatíð Bush þá er hann brenndur af þeim tíma.

Dole var 73 ára þegar Clinton forseti vann hann. Í rauninni átti hann aldrei séns, þó innst inni vonuðust repúblikanar allir eftir því. Honum mistókst að ná til óháðra og tapaði á því að fólki fannst hann of gamall og boða fortíðina við hlið yngri kynslóðar sem hafði nýja nálgun í pólitísku starfi. John McCain er árinu yngri en Dole þegar hann tapaði fyrir Clinton og hefur sama stimpil. Annars er ég viss um að McCain hefði haft alvöru séns ef efnahagskreppan hefði ekki skollið á.

Í þeirri stöðu væri líklegra að baráttan snerist um utanríkismál, lykilmál stjórnmálaferils og persónu hans, gömlu stríðskempunnar. En þetta eru örlagatímar, ráðandi stjórnvöld og erindrekar hennar eiga undir högg að sækja. Á slíkum tímum er líklegt að fólk vilji nýja tíma og nýja kynslóð til forystu. Því er ekki ósennilegt að Bandaríkjamenn færi Obama traust umboð. Annað yrðu söguleg úrslit, rétt eins og kjör Obama mun verða fari svo að hann sigri. 

En það hefur svosem verið vitað frá upphafi að þetta yrðu sögulegar kosningar - þetta eru fyrstu kosningarnar frá 1928 þar sem sitjandi forseti eða varaforseti eru ekki í kjöri, ekki einu sinni í forkosningaferlinu, og það er blökkumaður í kjöri. Þetta getur ekki annað en orðið sögulegt. Get þó ekki neitað því að það yrði merkileg endalok ef Obama tapar á sigurvissu stuðningsmannanna. En það er mjög ólíklegt, eins og stemmningin er.

mbl.is Öruggasta forustan síðan 1996
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Steingrímur Helgason

Ég er nú dáldið fyrir pólitík & óþokkalega samfélagslega sinnaður í eðli.

Ef ég væri enn sjálfstæðismaður myndi ég líka 'blogga' um þetta 'útlendiz', frekar en þá 'pólitík' sem að er á Íslandinu í dag.

En ég er nú líka hálfgerður strútur í eðli ...

Steingrímur Helgason, 3.11.2008 kl. 00:41

2 identicon

McCain vs. Obama (eru stærri en) 2 dagar? Þessi jafna gengur ekki alveg upp hjá þér Stebbi.

Jói (IP-tala skráð) 3.11.2008 kl. 11:31

3 identicon

Ég er ansi hræddur um að það yrðu margar háværar raddir ef McCain tæki þetta á lokasprettinum. En það er nú heldur ólíklegt. Ég vona samt að hann fái eitthvað að gera í framhaldi af þessu. Innst inni er hann góður kall, hann er bara svolítið ráðavilltur núna.

Óskar Örn Arnarson (IP-tala skráð) 3.11.2008 kl. 19:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband