Okkur vantar sameiningartákn á forsetastól

Vigdís forseti
Ég sakna þess mjög á þessum erfiðu tímum að íslenska þjóðin á ekki sameiningartákn á forsetastóli þegar þess er mest þörf. Við höfum ekki átt traust sameiningartákn og leiðarljós í forsetaembættinu síðan Vigdís Finnbogadóttir var forseti Íslands. Rödd Vigdísar og boðskapur hennar hefur verið mikilvægt leiðarljós í þeim efnahagsþrengingum sem dynja á íslensku þjóðinni,

Mér hefur alltaf þótt vænt um Vigdísi og finnst mikils virði að hún tali til fólksins í landinu. Hún hefur mjög mikið fram að færa og hefur þann trausta styrkleika að njóta trausts og stuðnings allra - er hafin yfir dægurþrasið. Þó rúmur áratugur sé nú liðinn frá því að hún flutti frá Bessastöðum er Vigdís og verður alla tíð forseti í huga okkar allra.

Vigdís var sameiningartákn þjóðarinnar um langt skeið og er það í raun enn. Á þeim tímum þegar forseti Íslands, sem ætti að öllu eðlilegu að vera sameiningartákn þjóðarinnar, er ekki lengur traustsins verður og hefur farið svo illa úti í efnahagshruninu verður rödd Vigdísar enn meira virði.

Við getum treyst því að hún talar af visku og sannleika um stöðuna og hefur þann sess að vera hafin yfir þessar átakalínur - ein af fáum landsmönnum sem allir geta treyst til að tala einlægt og án þess að hefja sjálfa sig upp. Slíkt er og mikils virði.

Í dag, kvenréttindadaginn, opnaði heimasíða Vigdísar Finnbogadóttur. Hvet alla til að líta á hana.


mbl.is Ólafur Ragnar heimsækir Grænland
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eiríkur Sjóberg

Vel skrifað!

Ég er þér sammála.  Leiðtoga vantar á Íslandi!  Þótt ég treysti Steingrími og Jóhönnu pólítískt, þá eru þau ekki leiðtogar í þeim skilningi.

Eiríkur Sjóberg, 20.6.2009 kl. 00:37

2 Smámynd: smg

Er ekki sammála um að við Íslendingar þurfum endilega leiðtoga. Fyrirbærið leiðtogi finnst mér vera úrelt fyrirbæri. Mér finnst ég ekki tilheyra hjörð sem vanti Leiðtoga til að stýra henni.

smg, 21.6.2009 kl. 10:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband