Mengella dauð - hulunni svipt af upprunanum

Jæja, þá er hin umdeilda Mengella, sem vakið hefur mikla athygli í netheimum, dauð. Hefur verið áhugavert að fylgjast með dauðateygjum þessa karakters síðustu dagana, þar til kom að nafnbirtingunni. Hún kemur þó ekki sem stórfrétt, enda var Gísli Ásgeirsson búinn að nafngreina Mengellu í ágúst og hitti þar naglann á höfuðið. Það var mjög mikið rætt þá en síðan einhvern veginn lognaðist það út af, en kraumaði samt undir niðri. Nýlegar nafnbirtingar þeirra sem áttu að standa að vefnum voru umdeildar, en flestir þeirra höfðu ekkert með síðuna að gera.

Segja má að endalokin hjá Mengellu komi eftir að 24 stundir fór að grafast fyrir um uppruna karaktersins og hét því að fólk kæmi með upplýsingar. Í staðinn fyrir að hlaupa frá 24 stundum er gengið frá aumingja Mengellu. Segja má þó að þessi leikur hafi gengið ótrúlega lengi. Það er samt ekki hægt að segja að Mengella sé einstök, enda er fullt af nafnlausu bloggi í gangi og sumir ganga lengra en aðrir. Talað hefur verið um Mengellu sem rotþró bloggsamfélagsins. Eflaust er það rétt, enda getur fólk gengið svo miklu lengra undir nafnleynd en ella væri gert.

Þetta er reyndar í fyrsta skipti sem ég skrifa um Mengellu, merkilegt nokk. Nokkrum sinnum tók ég eftir því að viðkomandi penni vék orðum að mér á bloggsíðu sinni. Það var svosem algjörlega mér að meinalausu. Með bloggskrifum mínum er ég fyrst og fremst að sinna áhugamáli mínu og tjá mig um mál málanna. Er þó varla einstakur, enda er ég bara einn þúsunda sem blogga hérlendis. Þeir lesa bara sem vilja og þeir sem þola ekki skrifin geta gert eitthvað annað, vonandi eitthvað annað þó en nöldra sig gráhærða yfir bloggsíðunni. 

Mengella var smátíma einhver brandari en gamanið var farið að kárna. Mörgum var nóg boðið og greinilegt var að nafnleyndin var að mást af og þetta var hætt að vera fyndið í huga æ fleiri einstaklinga. Því fagna eflaust flestir því að þessi karakter hafi verið blásinn af - fengið náðarhöggið.

Bandarískur kennari svaf hjá kærasta dótturinnar

Ekki er langt síðan að það komst í heimsfréttirnar að 25 ára stærðfræðikennari í Nebraska hefði átt í ástarsambandi við þrettán ára nemanda sinn og stungið af með honum yfir landamærin til Mexíkó. Síðan hafa komið upp tvö mál af svipuðum toga í Bandaríkjunum. Í hinu fyrra er reyndar um að ræða að kennari um þrítugt svaf margoft hjá kærasta dóttur sinnar, nemanda í skólanum, fjórtán ára strák. Það fylgdi reyndar sögunni að bæði dóttirinn og eiginmaðurinn hefðu ekki sagt skilið við hana þrátt fyrir að upp hefði komist um málið. Styðja þau við hana í yfirvofandi dómsmáli.

Í vikunni var svo í fréttunum að kennari í Tennessee hefði átt í ástarsambandi við þrettán ára nemanda sinn. Það var tekið meira að segja fram að kennarinn, Pamela Turner, hefði kennt líffræði í skólanum og verið gift körfuboltaþjálfara skólans sem hún starfaði í. Hún hefur nú verið kærð fyrir nauðgun, rétt eins og báðir fyrrnefndu kennararnir, enda eru allir strákarnir sem um ræðir innan við fjórtán ára aldur og þær innan við þrítugt.

Mál af þessum toga bera vitni talsverðu siðleysi í Bandaríkjunum. Það er auðvitað skuggalegt þegar að kennarar sofa hjá nemendum sínum og misnota það traust sem skólayfirvöld gefa þeim með starfi sínu. Það eru engar málsbætur með því að kennarar eigi í kynferðislegu sambandi við nemanda sína, sem hafa ekki náð lögaldri.

Það hefur reyndar fylgt sögunni í Bandaríkjunum að skv. könnunum telja margir Bandaríkjamenn eðlilegra að kvenkyns kennari sofi hjá nemanda en að karlkyns kennari geri slíkt hið sama. Á þessu á varla að vera nokkur munur og greinilegt að eitthvað stórlega vantar á siðferði þeirra sem starfa í bandarískum skólastofnunum.

Óhugnarlegur dauðdagi í Kanada

Taser-byssaÞað er afskaplega sorglegt að sjá myndbrotið sem sýnir síðustu andartökin á ævi Pólverjans Robert Dziekanski, sem lést er hann fékk skot úr rafstuðbyssu, svokallaðs Taser-vopns. Taser er mjög kuldalegt vopn, sem mér finnst æ oftar vera talað um að sé notað á fólk. Það er vopn sem mér finnst hreinlega að eigi að banna. Það getur varla talist annað en mannleg grimmd að beita því á fólk.

Minnist þess er námsmaður í Gainesville-háskólanum í Flórída var stuðaður, vegna þess að hann var of hávær á fundi með John Kerry, öldungadeildarþingmanni og fyrrum forsetaframbjóðanda Demókrataflokksins, í september. Hann var stuðaður hið minnsta tvisvar, en löggan gat ekki yfirbugað hann þó fjöldi lögreglumanna væru staddir þar. Myndbrot af því birtust á YouTube. Frægt varð að Kerry haggaðist ekki einu sinni í ræðuhöldunum er strákurinn var stuðaður.

Lýsingarnar á dauðdaga þessa manns í Kanada eru sláandi. Þetta er mannleg grimmd eins og hún gerist verst að mínu mati. Svona vopn á að banna.

mbl.is Maður lést í Kanada þegar lögreglumenn skutu hann með rafstuðbyssu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Styttist í fyrsta leik Ólafs - Eiður Smári ekki með

Eiður Smári Það eru vonbrigði að Eiður Smári Guðjohnsen geti ekki spilað leikinn gegn Dönum í næstu viku. Þessi fyrsti leikur Ólafs Jóhannessonar með landsliðið skiptir miklu máli. Hann hefur þó ekki haft langan tíma til undirbúnings, aðeins verið í starfinu í hálfan mánuð og tekur við erfiðu búi undir lok riðilsins, staða okkar í riðlinum er vond og það er engin tilviljun að skipt var um þjálfara eins og flestum er kunnugt.

Það skiptir máli að ekki fari illa í Kaupmannahöfn, við náum að sýna góðan leik og standa okkur. Verkefni Ólafs með liðið er þó til tveggja ára og mikilvægt að þar verði unnið vel. Skiptar skoðanir voru um valið á Ólafi. Sjálfum fannst mér skynsamlegt að leita til hans, enda margreyndur þjálfari með góðan bakgrunn í bransanum. Það þurfti að horfa til þess að fá reyndan þjálfara eftir þá vondu stöðu sem við blasti á endastöð Eyjólfs Sverrissonar.

Fyrst og fremst vonum við öll að leikurinn fari vel og þetta verði upphaf nýrra tíma hjá liðinu - Ólafi og hans mönnum takist að byggja liðið upp til góðra verka. Það er erfitt að byrja í Köben en vonandi verður þetta ekkert 14-2 dæmi.

mbl.is Eiður Smári ekki með gegn Dönum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Munu Grímseyingar sameinast Akureyri?

Grímsey Það er að mínu mati jákvætt skref að Grímseyingar óski eftir sameiningarviðræðum við Akureyrarbæ. Eðlilegt er að láta á þann kost reyna fyrst eyjaskeggjar vilja horfa til sameiningar, án þess að nokkuð sé þó ljóst um niðurstöðu nú þegar. Það hefur reyndar verið bjargföst trú mín mjög lengi að stutt sé í að Eyjafjörður sameinist í eitt sveitarfélag. Held að það verði raunin fyrr en síðar.

Þegar hefur sameining orðið í smærri skömmtum hér í firðinum, en þrjú ár eru til dæmis síðan að Akureyri og Hrísey sameinuðust í eitt sveitarfélag. Kosið var um heildarsameiningu fjarðarins í landskosningu um sameiningu haustið 2005, en þá var það fellt á öllum stöðum nema Ólafsfirði og Siglufirði, sem sameinuðust í Fjallabyggð í kjölfarið. Grímsey var þá reyndar ekki í kosningunni eitt sveitarfélaga í Eyjafirði.

Ég er frekar hlynntur sameiningu af þessu tagi að svo stöddu. Tel að það gæti orðið gott mál að treysta böndin með þeim hætti. Það verður sannarlega saga til næstu bæja ef sú verður raunin að Akureyri og Grímsey verði ein sveitarstjórnarheild. Þá eru báðar perlur Eyjafjarðar, eyjurnar tvær, sameinaðar Akureyri.

Sameiningarkosningin 2005 var augljóslega of stórt skref á því stigi. Þá spáði ég reyndar í skrifum að langt yrði í heildarkosningu af sama tagi, en þess þá styttra í sameiningar innbyrðis á svæðinu í skömmtum. Það hefur orðið raunin og ég tel að þetta sé þróun sem verði áberandi á næstu árum.

mbl.is Vilja ræða um sameiningu Grímseyjar og Akureyrar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vægir dómar í kynferðisafbrotamálum

Héraðsdómur Reykjavíkur Það verður að segjast alveg eins og er að dómur Héraðsdóms Reykjavíkur í kynferðisafbrotamálinu í dag er alltof vægur, með eðli afbrotanna sem um er að ræða í huga. Það er því miður orðin alkunn staðreynd að dómar fyrir kynferðisafbrotamál hér heima eru til skammar, bæði eru þeir alltof vægir og með þeim er ekki staðfest hversu alvarlegur glæpur felst í verknaðinum.

Kynferðisafbrot eru að mínu mati stóralvarlegur glæpur. Sálrænt áfall þeirra sem fyrir því verður gróa aldrei að fullu, sérstaklega þegar í hlut eiga börn. Í því máli sem dæmt var í og vísað er til í fréttinni á Moggavefnum eru stelpurnar sem urðu fyrir kynferðisofbeldinu 4-13 ára. Í því ljósi þykir mér þessi dómur eiginlega til skammar. Það er fyrir löngu kominn tími til að dómar fylgi eðli verknaðarins. Það gerir það ekki í þessu máli.

Það hefur verið rætt vel og lengi um dóma í þessum málum. Það er greinilegt á þessum dómi að þeirri umræðu er ekki enn lokið.

mbl.is Dæmdur í 2½ árs fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn 6 stúlkum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jákvætt skref hjá Samkeppniseftirlitinu

Það er ánægjulegt að loksins hafi Samkeppniseftirlitið hafið rannsókn á meintu samráði Krónunnar og Bónus, með húsleit í fyrirtækin í morgun. Það var kominn tími til að þær alvarlegu ásakanir sem þessi fyrirtæki hafa setið undir yrðu könnuð til fulls. Það er algjörlega ólíðandi að neytendur í þessu landi þurfi að sætta sig við þennan óstaðfesta en þó áberandi orðróm sem grasserað hefur vikum saman, án þess að ekkert sé gert. Ég sagði á þeim tíma sem umræðan hófst að hefja ætti rannsókn án tafar og komast til botns í málinu. Það blasti reyndar við þá þegar að engin bið gat orðið á því.

Ásakanirnar um samráð og það hvernig neytendur hafa verið hafðir af fíflum með svokölluðum verðkönnunum, eða því sem frekar ætti að kalla aumt sjónarspil, eru þess eðlis að almenningur í landinu, neytendur sem þurfa að versla matvæli flesta daga vikunnar, krefst aðgerða. Það hefur löngum verið talað um matvörumarkaðinn hérna heima sem gruggugan án þess að nokkuð hafi verið gert beint í málunum. Fákeppnistal hefur verið áberandi í umræðum manna á meðal. Það verður að taka þessi mál til skoðunar og fara yfir það.

Umræðan í upphafi leiddi þegar af sér þá staðreynd að verðkannanir eru bara sýndarleikur sem ekkert er að marka. Verðbreytingar mörgum sinnum á dag vekja líka spurningar. Það að vafi leiki á heiðarleika þessara fyrirtækja sem reka ódýrustu búðirnar á matvörumarkaði er ólíðandi og það verður að koma fram með staðreyndir í málinu. Til þess er Samkeppniseftirlitið hæfast og því ber að fagna almennilegri rannsókn á málinu.

mbl.is Húsrannsókn byggð á upplýsingum frá einstaklingum og fyrirtækjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Háskaakstur ökumanna í dópvímu í Reykjavík

Bílflak í Reykjavík Mér finnst það vægast sláandi staðreynd í hinu litla samfélagi sem við lifum í að fjögur umferðaróhöpp á einni nóttu megi rekja til þess að ökumenn keyri í dópvímu í Reykjavík. Það er ekki langt síðan að litlu munaði að ökumaður í dópvímu yrði valdur að banaslysi í umferðarslysi á Kringlumýrarbraut. Lýsingar af því voru ekki fagrar.

Það er sannarlega áhyggjuefni hversu alvarleg staðan er í umferðarmálum með tilliti til þessa. Það er búið að tala vel og lengi um að úrbóta sé þörf - taka verði á þessum augljósa vanda. Það þarf að fara að gera eitthvað meira en bara tala. Ætla að vona að við séum ekki komin í biðferli eftir banaslysi, þar sem ökumaður í dópvímu drepur jafnvel fjölda fólks með hugsunarleysi sínu og gerræðislegum ákvörðunum sem við blasa einkum í þessum tilfellum í nótt.

Sérstaklega má þakka fyrir að ekki fór verr við þessa bensínstöð á gatnamótum Sæbrautar og Kleppsvegar. Það hefði verið svakalegt ef svo hefði farið að eldur hefði komið upp er keyrt var á bensíndælu og jafnvel allt fuðrað upp á svæðinu. Þetta hlýtur að leiða til þess að horft verði út fyrir orð okkar allra sem tölum fyrir því að fólk hugsi sitt ráð og fari ekki undir stýri í annarlegu ástandi. Akstur í vímu, annaðhvort að völdum áfengis eða eiturlyfja, er vaxandi vandamál sem kristallast æ meir með atvikum, einkum í nótt greinilega.

Í sjálfu sér tel ég þetta orðið eitt mesta vandamálið í umferðinni í dag. Það er engin trygging fyrir því þegar fólk sest undir stýri og heldur út í umferðina að það mæti ekki fólki undir áhrifum vímugjafa - út úr heiminum í sínu annarlega ástandi. Þetta er mikið áhyggjuefni sem full þörf er að tala um með mjög áberandi hætti.

mbl.is Bifreið gjöreyðilagðist er hún þeyttist á bensínstöð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lögreglan tekur á rasistunum á skapari.com

Með lögum skal land byggja! Það er mjög ánægjulegt að heyra að lögreglan ætli sér að taka af hörku á rasistunum sem skrifað hafa með ógeðfelldum hætti á vefinn skapari.com og tala þar mikið um Óvini Íslands. Það blasir við öllum að fjöldi laga er brotinn með skrifum á þessum vef, þar er meðal annars ráðist harkalega að forsetahjónunum, auk fjölda annars nafngreinds fólks.

Ekki er hægt að una við skrif af þessum toga eða þann boðskap sem þar sést. Það er engin furða að nafnleysi sé yfir skrifunum, enda vilja þeir sem að þessum boðskap standa væntanlega ekki fara í fangelsi eða svara til saka fyrir það. Held að lögreglan sé að senda góð skilaboð með þessu.

mbl.is Rannsókn hafin á kynþáttanetsíðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Björn Bjarnason fær björn.is í afmælisgjöf

Björn Bjarnason Það er óhætt að segja að Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, hafi fengið afmælisgjöf dagsins. Hann eignaðist í dag lénið björn.is að gjöf frá Birni Swift, en það vakti mikla athygli í ágúst er Björn Swift opnaði vef á slóðinni sem var nærri algjörlega kóperaður af vef dómsmálaráðherrans. Ekki aðeins var allt útlit vefsíðunnar endurómað heldur letur og uppsetning flokkanna. Eins og flestir vita hefur Björn Bjarnason átt slóðina bjorn.is frá árinu 2000.

Þetta er höfðingleg gjöf hjá Birni Swift og honum mjög til sóma. Veit ekki hvort opnun síðunnar björn.is var frá upphafi eitt stórt grín og stælar til að ná í athygli, sennilega í og með. Allavega tókst Birni að ná athygli, reyndar talsverðri bæði í bloggheimum og hjá fjölmiðlum með vefnum sínum. Þetta var líka á þeim tíma ársins, í ágústmánuði, að svona varð stórfrétt, í miðri gúrkutíð fjölmiðlanna.

Eins og flestir vita er Björn Bjarnason bloggari par excellance hérna heima, sannkallaður frumkvöðull í þessum efnum, altént meðal stjórnmálamanna. Held reyndar að fáir hér heima hafi bloggað jafnlengi. Þeir eru þá allavega fáir, man ekki eftir neinum, allavega stjórnmálamanni, sem hefur sýnt aðra eins elju við skrifin og verið jafnvirkur við að tala máli Internetsins.

Gleymum því enda ekki að mörgum fannst tæknin sem Björn Bjarnason byrjaði að nota árið 1995 óviðeigandi fyrir ráðherra. En það eru aðrir tímar - þessar raddir hafa þagnað. Nú er blogg, vefskrif og vefpælingar, daglegt brauð þorra landsmanna. Enda skemmtileg iðja, mjög svo.

En þetta er afmælisgjöf sem vekur athygli, sannarlega. Óska Birni til hamingju með afmælið og lénið auðvitað.

Hrottalegur verknaður

Það er skelfilegt að heyra af hinni hrottalegu nauðgun í miðborg Reykjavíkur um síðustu helgi. Nauðgun er eitt af því ógeðslegasta sem til er, ógeðfelldur glæpur sem setur mark sitt á sálu þeirra sem fyrir verða um aldur og ævi. Það sem mér finnst mest sláandi við þessa frétt er að yfir 118 nauðgunarmál hafa borist neyðarmóttöku nauðgana. Það er ótrúlega há tala og fær alla til að hugleiða þessi mál frá grunni.

Þetta er óeðlilega hátt hlutfall grimmdarverknaðar af þessu tagi, altént í því samfélagi sem við flest viljum lifa í. Það verður að berjast gegn þessu með öllum tiltækum hætti. Það er aldrei barist nógu mikið gegn svona ógeði.

mbl.is Tveir grunaðir um hrottalega nauðgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pólverjum úthýst af Kaffi Akureyri

Kaffi Akureyri Það hlýtur að teljast merkileg frétt að eigendur skemmtistaðarins Kaffi Akureyri hafi ákveðið að úthýsa með öllu hópi Pólverja þaðan út. Mér skilst að hópurinn hafi verið jafnan mjög dónalegur við konur sem sóttu staðinn og þetta allt gengið út í öfgar. Það er stór ákvörðun að úthýsa fólki af skemmtistað og því vekur þessi frétt athygli.

Mér finnst þetta mjög harkaleg ákvörðun. En hinsvegar skil ég sjónarmið eigandans ef hann telur að þessi hópur skemmi fyrir góðu andrúmslofti á skemmtistaðnum og geri honum lífið leitt. Það er stóralvarlegt mál ef gestir skemmtistaðarins geta ekki farið út að skemmta sér nema að vera truflaðir með þeim hætti sem heyrst hefur í umræðunni hér á Akureyri. Það er eðlilegt að á því sé tekið.

Er á hólminn kemur hljóta Birgir Torfason og hans fólk á Kaffi Akureyri að taka af skarið um það hverja hann vill að sæki staðinn. Sé einhver hópur að ónáða aðra viðskiptavini hlýtur þetta að teljast eðlilegt. Það er lykilmál að mínu mati að eigendur stjórna þeim skemmtistað sem þeir eiga.

mbl.is „Dónaleg framkoma ekki liðin“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ógeðfellt kynþátta- og persónuhatur á rasistasíðu

Ég vil þakka fyrir þau viðbrögð sem ég hef fengið á umræðuna á vefnum mínum um rasistavefsíðuna skapari.com þar sem fram kemur ógeðfellt kynþáttahatur og persónuárásir, meðal annars á forsetahjónunum Ólafi Ragnari og Dorrit, auk fjölda annars fólks. Hef ég fengið fjölda tölvupósta og skilaboða vegna skrifanna og heyrt hversu mjög fólki er almennt brugðið vegna þessarar rasistavefsíðu. Það verður að taka svona ófögnuði alvarlega og taka á honum.

Mér finnst persónuhatrið og ógeðið sem þrífst þarna undir nafnleynd fyrir neðan allar hellur. Það er ekki hægt annað en að undrast hversvegna fólk getur fyllst hatri af þessu tagi. Það á að vera lykilmál í því samfélagi sem við lifum í að fólk beri virðingu fyrir hvoru öðru og geti lifað í sátt og samlyndi. Hatur á fólki vegna kynþáttar er það alvarlegt mál að taka verður á því með öllum þeim brögðum sem til eru.

Heilt yfir finnst mér nafnlaust ógeð vera að aukast á netinu. Það er alltof mikið af fólki sem skrifar ógeðslega um aðra, allt í skjóli nafnleyndar. Skoðanir sem myndu aldrei koma fram ef nafn fylgdi með. Að mínu mati eru nafnlaus skrif jafnan með öllu marklaus, þeim orðum fylgir engin ábyrgð og ekki hægt að virða þau neins. Það er alltof stutt í skítlegheit þegar að nafnleyndin er áberandi. Það er löngu sannað.


Fogh áfram forsætisráðherra í Danmörku

Anders Fogh Rasmussen Það er nú ljóst að hægristjórnin í Danmörku hefur haldið velli og Anders Fogh Rasmussen verður áfram forsætisráðherra. Hann er fyrsti leiðtogi Venstre sem hlýtur umboð sem forsætisráðherra þrisvar og Venstre er ennfremur stærsti flokkurinn í Danmörku þriðju kosningarnar í röð. Merkilegur árangur og sannarlega sögulegur. Jafnaðarmannaflokkurinn var í rúm áttatíu ár stærsti flokkurinn í dönskum stjórnmálum og drottnaði þar yfir. Það er óhætt að segja að það sé á bak og burt.

Það vekur athygli að kjör Edmunds Joensen, fyrrum lögmanns Færeyinga, á danska þingið tryggir sigur hægriblokkarinnar í Danmörku. Þetta er ekki ósvipað og því er Poul Nyrup Rasmussen hélt velli sem forsætisráðherra í þingkosningunum 1998 á atkvæðum frá Færeyjum. Þá munaði rétt um 100 atkvæðum að hinn litríki forystumaður Venstre, Uffe Ellemann Jensen, utanríkisráðherra í tíð borgaralegu stjórnarinnar 1982-1993, yrði forsætisráðherra. Það greiddi leiðina fyrir innkomu Fogh sem leiðtoga Venstre og hann hefur nú markað spor í danska stjórnmálasögu á þessu kvöldi.

Þó að naumt hafi staðið með stjórnina er yfir lauk má segja með sanni að Fogh hafi sterkasta umboðið til að stjórna í Danmörku er úrslitin liggja fyrir. Þó að Helle Thorning Schmidt hafi sett mark sitt á baráttuna tapar Jafnaðarmannaflokkurinn fylgi undir hennar stjórn, frá kosningunum 2005 er Mogens Lykketoft fékk sinn séns. Þetta er versta útkoma Jafnaðarmannaflokksins danska. Eins og ég sagði hér fyrr í kvöld er það mikið áfall fyrir kratana og þeir hljóta að hugsa mikið á þessu kvöldi. Hefðu þeir bætt einhverju við sig hefðu þeir getað staðið uppi sem sigurvegarar og jafnvel getað náð tökum á stjórnarmyndun hefði tæpar staðið. En svo fór ekki.

Vinstrimennirnir í SF eru stærstu sigurvegarar kosninganna, fyrir utan hægriblokkina sem heldur völdum þriðju kosningarnar í röð. Þeirra árangur er sannarlega glæsilegur og mikil fylgisaukning staðreynd. Þeir eru enda glaðir á þessu kvöldi, fagna fyrir alla vinstriblokkina í heild sinni. Ekki geta kratarnir brosað allavega á þessu kvöldi. Helle hafði viðurkennt ósigur nokkuð snemma í kvöld, enda ljóst að hún yrði ekki forsætisráðherra og umboð kratanna veikst frá síðustu kosningum sem þóttu það slæmar að Lykketoft hrökklaðist frá. Helle fær þó greinilega annan séns, þó marin sé eftir kosningarnar.

Fogh tók auðvitað mikla áhættu með að flýta kosningum. Það er ekkert gefið í þessum efnum þó kosningabaráttan sé stutt, aðeins þrjár vikur. Það fékk Poul Nyrup Rasmussen að reyna fyrir sex árum, þar sem hann notaði tímabundna uppsveiflu sem ástæðu til að flýta kosningum. Sú áhætta var dýrkeypt og hann horfði á eftir völdunum til Fogh. Þó Fogh standi eftir áfram sem forsætisráðherra er meirihlutinn tæpur og gætu verið spennandi ár framundan. Tel að það verði ekki svo langt í næstu kosningar altént.

En það er vissulega ánægjulegt fyrir Dani að geta tekið kosningar með trompi með þessum hætti, tekið slaginn á aðeins þrem vikum. Þetta er eitthvað allt annað en hérna heima þar sem kosningabaráttan stendur meira og minna í 8-9 mánuði.

mbl.is Joensen tryggir Fogh meirihluta á danska þinginu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Danska stjórnin heldur velli - áfall kratanna

Helle Thorning Schmidt Það er að verða ljóst að danska hægristjórnin hefur haldið velli í þingkosningunum í dag - flest bendir til að hún geti setið áfram án liðsinnis Nýs afls. Jafnframt er ljóst að úrslitin verða enn eitt áfallið fyrir danska Jafnaðarmannaflokkinn. Sérlega eru úrslitin, eins og nú stefnir í, gríðarlegt pólitískt áfall fyrir Helle Thorning Schmidt. Svo virðist vera sem að kratarnir tapi enn fylgi, nú undir forystu fyrstu konunnar sem á raunhæfa möguleika á að verða forsætisráðherra Danmerkur. Eins og staðan er nú er krötum spáð 45 þingsætum - tapa tveim.

Helle var kjörin leiðtogi Jafnaðarmannaflokksins í apríl 2005. Tók hún við forystu flokksins af Mogens Lykketoft, eftir að flokknum mistókst aðrar kosningarnar í röð að verða stærsti flokkur Danmerkur og hlaut vonda útreið í kosningunum 2005. Thorning-Schmidt er tengdadóttir Neil Kinnock, sem var leiðtogi breska Verkamannaflokksins í áratug, 1983-1992. Þessi úrslit eru sögulegt áfall fyrir danska krata, nú verða þeir næststærsti flokkur landsins þriðju kosningarnar í röð og virðast vera heillum horfnir.

Um leið er það mikil pólitískt afrek fyrir Anders Fogh Rasmussen að halda völdum og tryggja að Venstre sé stærsti flokkurinn á danska þinginu þriðju kosningarnar í röð, sérstaklega verður sigurinn sætur ef stjórnin heldur völdum eins og stefnir í. Það þótti sögulega merkilegt að Fogh og Venstre tryggðu stöðu sína í kosningunum 2005 en úrslitin nú hljóta að verða enn merkilegri og þess þá meiri áfall fyrir kratana. Eftir sex ára stjórnarandstöðuvist kratanna og þriðja tapið í röð hlýtur naflaskoðun að taka við hjá þeim.

Sigurvegarar kosninganna, fyrir utan stjórnarblokkina, eru auðvitað vinstrimennirnir í Socialisk Folkeparti (SF) sem virðist vera að ríflega tvöfalda þingmannatöluna sína. Radikale Venstre er að tapa stórt, tapar átta þingmönnum frá eftirminnilegum kosningasigri fyrir tæpum þrem árum. Dansk Folkeparti er að bæta sig um eitt þingsæti og Konservative stendur í stað með sína átján menn. Heilt yfir er áhugavert að sjá stöðuna. Enn er þó spurt að leikslokum, enda eftir að telja nokkuð enn. En staðan nú sýnir nokkuð vel að Fogh verður áfram við völd.

Úrslitin eru fyrst og fremst áfall Jafnaðarmannaflokksins. Eftir áralanga stjórnarandstöðu hljóta danskir kratar að vera áttavilltir yfir stöðu mála, varla er hægt að tala um annað en ósigur þeirra.

mbl.is Danska ríkisstjórnin heldur velli samkvæmt kosningaspá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Anders Fogh áfram forsætisráðherra

Anders Fogh Ég fæ ekki betur séð en að útgönguspár í dönsku þingkosningunum í dag bendi allar til þess að Anders Fogh Rasmussen verði áfram forsætisráðherra Danmerkur. Stóra spurningin nú er þó hvort að stjórnin heldur velli óbreytt eða þarf að leita eftir samstarfi við Nýja aflið. Það veltur allt á því hvernig flokkarnir sem standa að ríkisstjórninni munu standa er talningu lýkur.

Það var áhætta hjá Fogh að boða til kosninga. Hann hefur áður þorað að taka áhættur á stjórnmálaferli sínum, boða til kosninga fyrir lok kjörtímabilsins. Sama gerði hann árið 2005. Þá hreinsaði hann loftið, kratar töpuðu styrk og Mogens Lykketoft datt upp fyrir í dönskum stjórnmálum.

Það sem mér finnst merkilegast við útgönguspárnar er hversu lítið kratar eru að bæta við sig í Danmörku. Þeir eru annaðhvort að tapa broti úr prósenti eða standa í staði. Það eru stórtíðindi, en kratar voru vanir að toppa og vera langstærsti flokkur landsins hér á árum áður. Það eru stórtíðindi fari svo sem spáð er að Venstre verði stærstur þriðju kosningarnar í röð.

Þetta verður spennandi kosningakvöld í Danmörku. Þó er Fogh að því er virðist með pálmann í höndunum. Helle Thorning Schmidt sem gat orðið fyrsti kvenforsætisráðherra Danmerkur þarf sennilega að bíta í það súra að missa af tækifærinu til að ná völdum en sennilega fær hún að leiða kratana aftur í gegnum kosningar.

mbl.is Útgönguspár benda til sigurs dönsku stjórnarflokkanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hugsað til jóla - innkaupastríðið að hefjast

Jólainnkaupin Það styttist í jólin - aðeins rétt rúmir 40 dagar til stefnu og öll teikn á lofti um að innkaupastríðið, sem orðinn er órjúfanlegur hluti jólanna, sé að fara af stað af fullum þunga. Það sést einna best af markaðssetningu Rannsóknaseturs verslunarinnar sem minnti á sig í dag. Hefði þó veðjað á margt annað en GPS-staðsetningartæki sem jólagjöfina í ár, kom mér svolítið á óvart.

Það er svo margt sem er spennandi ein jólin en svo gleymd þau næstu. Muna ekki allir eftir fótanuddtækjunum? Eru ekki margir með þannig inni í geymslunni sinni. Markaðssetning jólanna er að verða ansi mikil. Þetta er allt komið á fullt löngu fyrir aðventu, kynningar verslana á því flottasta að þeirra mati og svona mætti lengi telja. Hef alltaf verið mikill áhugamaður um jólin og ég byrja að plana þau snemma ávallt á hverju ári. Til dæmis er það ævinlega þannig hjá mér að ég skrifa öll jólakort í nóvember, þá kaupi ég þær jólagjafir sem ég gef, ef nokkrar eru undanskildar og ég skipulegg allt.

Desember er mánuður rólegheita hjá mér. Það hefur nær alltaf verið þannig. Ég vil nota aðventuna til að slappa af og hafa það rólegt, njóta góðra laga og stemmningarinnar sem fylgir þessari miklu hátíð. Ég nenni ekki að eyða mánuðinum í því geðveikislega stressi sem fylgir búðunum í desember, því miður. Ég nenni ekki að taka þátt í því og nota því nóvember til að klára það sem mikilvægast er. Það er langbest, trúið mér bara. Annars er ég varla einn um þetta. Ég mun skrifa á öll jólakort sem ég sendi, sem er allnokkur slatti, sennilega í næstu viku og ætla að kaupa gjafirnar fljótlega.

Ég á afmæli í desember, tveim dögum fyrir jól, svo ég kannast við stressið sem fylgir því að eiga afmæli svo til í aðdraganda jólanna. Það vandist skemmtilega vel, en ég hef alltaf vanið mig á það að geta slappað af á þessum afmælisdegi og liggja ekki í búðarrandi. Á ekki við mig. Því er svo gott að geta klárað allt í nóvember og notað desember til hugleiðingar um gildi jólanna, en ekki standandi ergelsis í verslunum Baugsfeðga.

Þessi tími er mun meira virði en það, að mínu mati. Vonandi eigum við öll notalegan og ergelsislausan fyrripart desember framundan. Ég ætla allavega ekki að ergja mig í búðum á aðventunni og sérstaklega ekki eyða þorláksmessu hlaupandi í örvæntingu milli verslana eða morgni aðfangadags. Það á að nota nóvember í að klára svona hluti, að mestu.

mbl.is Jólagjöfin í ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þorgerður Katrín friðar Hafnarstræti 98

Hafnarstræti 98 og 96 Ég vil lýsa yfir ánægju minni með þá ákvörðun Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, menntamálaráðherra, að friða Hafnarstræti 98, sem mjög hefur verið í umræðunni hér á Akureyri í fjöldamörg ár vegna þess hversu mjög illa er komið fyrir því, auk Parísar og Hamborgar; Hafnarstrætis 96 og 94. Seinni tvö húsin hafa verið endurgerð síðustu árin með glæsilegum hætti.

Kaffihúsið Bláa kannan hefur verið rekin í París síðasta áratuginn og það er vinsæll áfangastaður fjöldamargra hér til að fá sér kaffibolla; hittast og taka spjall. Húsið öðlaðist með því nýtt líf eftir að hafa verið leikfangaverslun árum saman. Hamborg var miðstöð okkar sjálfstæðismanna í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna 2006 en varð síðar gert upp sem verslun 10-11 og hefur með því öðlast nýtt líf, en þar var sportverslun í áraraðir. Það er mikil sál í þessum húsum og jákvætt skref að tekin hafi verið ákvörðun um að vernda þessa götumynd sem tákn um byggingastíl síns tíma.

Ég held að örlög Hafnarstrætis 98 hafi verið endanlega ráðin þegar að teikningar urðu opinberar af því húsi sem byggja átti þar í staðinn. Það var með eindæmum ljótt, passaði engan veginn í götumyndina. Reyndar finnst mér kassalaga byggingar af því tagi sem boðað var að ætti að reisa á þessum reit lítt spennandi og hefði ekki viljað sjá þannig hús á þessum stað. Varð endanlega friðunarsinni við að sjá þá skelfingu. Þannig að ég fagna þessari niðurstöðu og vona að hún leiði til þess að fólk byggi húsið upp og hefji það aftur til vegs og virðingar.

Það hefur verið deilt um þetta hús svo lengi sem ég man eftir. Það hefur verið ljótt meginpart minnar ævi, man ekki eftir því nema sem lýti á miðbænum. Talað hefur verið um að rífa það árum saman. Samt hefur það aldrei verið gert. Nú er tækifæri til að endurbyggja það og ég vona að það gangi fljótt og vel að taka á þeim málum. Skipulagsyfirvöld hafa sofið lengi á verðinum hvað varðar þessi mál og eru áralangar hugmyndir að baki um að rífa húsið. Þó það hafi verið þyrnir í augum hefur það ekki verið gert.

Bæjarstjórn Akureyrar átti á fundi sínum í dag að taka fyrir samþykkt skipulagsnefndar að staðfesta niðurrif hússins. Menntamálaráðherra stoppar þetta mál af nú. Mér fannst orðið ljóst með ákvörðun Húsafriðunarnefndar fyrir nokkrum vikum að húsið yrði friðað, það yrði niðurstaða mála. Nú hefur verið kippt fótunum undan þeirri umræðu í bæjarstjórn og haldið verður með málið í aðrar áttir. Ég tel að þetta sé jákvætt skref og fagna því að kassalaga skrímsli var ekki byggt á þessum reit.

mbl.is Þrjú hús friðuð á Akureyri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ógeðslegt kynþáttahatur og árásir á forsetahjónin

Ólafur Ragnar og Dorrit Það er orðið langt síðan að maður hefur fyllst öðrum eins viðbjóð og hægt er að upplifa er vefsíðan skapari.com er lesin. Þar er ekki aðeins boðað kynþáttahatur heldur ráðist harkalega að forsetahjónunum Ólafi Ragnari Grímssyni og Dorrit Moussaieff og þau nefnd Óvinir Íslands ásamt fleirum.

Oft hefur verið skrifað gegn vissum einstaklingum í samfélaginu en aldrei af sömu óvirðingu og lágkúru og þarna er gert. Er erfitt að finna almennilega út hvað mörg lög eru brotin með þessari vefsíðu og boðskap hennar. Þetta er grófasta dæmið um kynþáttahatur hérna heima sem sést hefur lengi.

Það er vonandi að þeir sem standa að þessum ófögnuði verði að svara fyrir hann.

Reykingar eru og verða umdeildar

Reykingar bannaðar!Það eru ekki nýjar fréttir að reykingar séu umdeildar. Þó hefur mórallinn í þessu snúist við eftir að reykingabannið tók gildi í sumar. Nú eru reykingamenn fúlir yfir að fá ekki að reykja inni á skemmtistöðum á meðan að þeir reyklausu geta hrósað sigri, eftir að ergjan hafði verið á hinn veginn. Persónulega fannst mér það mjög gott að geta farið út að skemmta mér án þess að finna fyrir reyknum. En eflaust eru reykingamenn ósáttir með sína stöðu.

Það hefur verið hasar víða vegna þessara nýju reykingalaga hefur maður heyrt. Komið hefur til handalögmála og eflaust er fréttin sem Mogginn vísar á ekkert einsdæmi í þessum efnum. Eðlilegast er að þeir sem vilja reykja fari þó út til að stunda þá iðju. Það er þeirra val að reykja. Þoldi lengi vel ekki reykingastybbuna á skemmtistöðum, á þeim sumum var þetta gjörsamlega óþolandi. Á sumum þolanlegt en varla meira. Það eru mannréttindi fyrir reykingamenn að fá að reykja vilji þeir gera það, en það á ekki að vera á kostnað þeirra sem reykja ekki.

Reykingalögin hafa verið umdeild. Sumir hafa misst spón úr aski sínum vegna þess að reyknum var úthýst en aðrir gleðjast. Held að kaffihúsið Bláa kannan hér á Akureyri hafi verið eitt það fyrsta sem úthýsti reyk, þar hefur verið reyklaust frá fyrsta degi. Það var lúxus að koma þar og losna við reykinn hér fyrir nokkrum árum meðan að reykingastybban var órjúfanlegur hluti hinna. Hef þó heyrt ótrúlega lítið talað um afleiðingar þessa reykingabanns. Þetta fór yfir ótrúlega ljúflega og ég held að flestir séu sáttir.

En auðvitað harma reykingamenn sinn hlut og gráta í hljóði örlög sín. Skiljanlega.


mbl.is Sleginn í rot fyrir að reykja í dyragætt á krá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband